Morgunblaðið - 24.10.1973, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1973
IMTTlWniR MORGIIIIIBLAfiSIRIS
Unglingarnir
í sérflokki
A opnu móti f borðtennis, sem
fram fór f Laugardalshöllinní f
fyrrakvöld, bar Gunnar Finn-
björnsson sigur úr býtum, hann
sigraði Hjáimar Aðalsteinsson
21:16 og 21:17 f úrslitum.
Gunnar er aðeins 15 ára, en
stendur þó flestum öðrum
fslenzkum borðtennisleikurum
framar. 1 þriðja sæti varð Jón
Sigurðsson, hann vann annan
unglingaflokksmann, Jónas
Kristjánsson, 21:15 og 21:16. Af
þeim átta, sem komust I
fjórðungsúrslitin, voru fímm
unglingar, og sýnir það mæta vel.
að hefðu ungu piltarnir fengið
að spreyta sig f landskeppninni
við Færeyinga á sunnudaginn,
hefði sigurinn mjög líklega orðið
fslenzkur.
Færeysku landsliðsmennirnir
tóku þátt I þessu opna móti, en
stóðu sig ekki eins vel og f lands-
keppninni. Fararstjóri Færey-
inganna Sverre Midjörd var sá
eini, sem komst f fjórðungsúrslit.
Nokkrum leikja sinna töpuðu
Færeyingamir þó injög naum-
lega, en yfirleitt voru leikirnir f
þessu móti mjög jafnir og
skemmtilegir.
Gunnar Finnbjörnsson
Arleg fimleikasýning
SIÐASTLIÐIN TVÖ AR HAFA
Fimleikasamband Islands og
íþróttakennarafélagið gengizt
fyrir miklum fimleikasýningum í
Laugardalshöllinni. Hafa báðar
þessar sýningar tekizt mjög vel og
þótt góð skemmtun f skammdeg-
inu. Nú hafa sömu aðilar ákveðið
að gangast fyrir þriðju sýning-
unni, og verður hún 2. desember.
Þegar hafa fjölmargir flokkar
tilkynnt þátttöku, og gera má ráð
fyrir, að færri flokkar komist að
en vilja. Undirbúningsnefnd
vinnur nú að skipulagningu sýn-
ingarinnar, og þurfa þeir, sem
áhuga hafa á þátttöku, að hafa
samband við undirbúningsnefnd-
ina sem allra fyrst.
I athugun er að fá þátttakendur
erlendis frá, en enn er ekki vitað,
hvort af því getur orðið.
Badminton:
Keppt verður við Finna
og í Norðurlandamótinu
tSLENDINGAR leika sinn annan
landsleik f badminton 16. nóv.n.k.
og mæta þá Finnum: Leik-
ið verður f Helsinki og sennilega
keppt f fjórum einliðaleikjum og
þremur tvfliðaleikjum. Þá hafa
sex Islendingar verið boðaðir til
þátttöku f Norðurlandameistara-
mótinu í badminton, sem fram
fer f Helsinki 17. og 18. nóvem-
ber.
Sem kunnugt er léku
Islendingar sinn fyrsta landsleik
f badminton f fyrra, er þeir
mættu Norðmönnum f Laugar-
dalshöllinni. Norðmennirnir
unnu öruggan sigur, enda greini-
legt að reynsluleysi háði
tslendingunum. Finnar standa á
mjög sviðuðu stigi og Norðmenn,
þannig að von ætti að vera til
þess, að Islendingar geti veitt
þeim keppni f landskeppninni.
Þeir, sem skipa fslenzka Iands-
liðið, eru þeir Haraldur Korne-
lfusson, Steinar Pedersen,
Sigurður Haraldsson, Garðar
Alfonsson, Óskar Guðmundsson
og Friðleifur Stefánsson.
1 Norðurlandamótinu munu
f imm Islendingar keppa f einliða-
leik, þeir Haraldur, Steinar,
Sigurður, Óskar og Friðleifur,
og sfðan munu þeir svo keppa f
þremur tvfliðaleikjum. Þá leika
saman Haraldur og Steinar,
Sigurður og Garðar og Óskar og
Friðleifur.
Haraldur Komelfusson — mestar vonir eru bundn-
ar við hann f landskeppninnf og Norðurlanda-
mótinu.
Agreiningur milli
Dana og Finna
NORÐURLANDAMÓTIÐ í
körfuknattleik hefur venjulega
verið haldið um páska ár hvert.
Að þessu sinní er það vilji gest-
gjafanna, sem að þessu sinni
eru Finnar, að mótið verði hald-
ið f janúar. Astæðan fyrir þvf
að Flnnar vilja flýta mótinu er
sú, að Heimsmeistaramótið f ís-
knattleik fer fram í Finnlandi
um páskana og vilja Finnamir
koma I veg fyrir að þessi tvö
mót rekist á.
Danir hafa boðist til að halda
NM í körfuknattleik að þessu
sinni vegna þess að í janúar
geta þeir ekki tekið þátt í NM
vegna Bandaríkjaferðar. Hafa
þeir skrifað til norrænu körfu-
knattleikssambandanna um
þetta mál, en aðeins eitt land-
anna hefur svarað, Island. Vill
íslenzka Körfuknattleikssam-
bandið gjarnan, að mótið verði
haldið f Danmörku, en það
minnkar kostnað við ferðalög
talsvert.
Gjafir í
Haukssöfnunina
ÞÓTT Haukssöfnuninni sé nú
formlega lokið, berast enn gjaf
ir í hana. Til Morgunblaðsins
hafa borizt, auk þess sem áður
hefur verið getið um, kr.
8.634,00, sem var ágóði af leik
Unglingalandsliðsins 1973 við
Faxaflóaúrval i tilefni 50 ára
afmælis Alberts Guðmunds-
sonar, og kr. 10.000,00 frá full-
trúaráði Fram, sem gefið var í
tilefni afmælisleiksins. Þá hafa
borizt kr. 10.000,00, sem safnað
var á vegum Kaupfélags
Stöðvarfjarðar, og kr. 12.800,00
frá starfsfólki Landssíma Is-
lands. Uppgjör söfnunarinnar
fer nú senn fram, þannig að ef
einhverjir ætla sér að gefa I
söfnunina, eru þeir hvattir til
að gera það hið fyrsta.
Bjarni gefur ekki
kost á sér
Vegna blaðaskrifa og ýmissa
bollalegginga manna á meðal,
að undanförnu, vil ég taka það
fram, að ég hef ekki í hyggju og
hef aldrei haft, að gefa kost á
mér við formannskjör í KSI.
Bjarni Felixson.
Tvíburabræður
VESTUR-ÞJÓÐVERJAR og
Austurríkismenn léku lands-
leik i knattspyrnu I sfðustu
viku og fór leikurinn fram í
Þýzkalandi. Þjóðverjarnir
unnu 4-0 og f tveimur síðustu
leikjum sínum hafa Austur-
rikismennirnir mátt þola stórt
tap, samanlagt 0-11, 0A á móti
Þjóðverjum og 0-7 á móti
Englendingum á Wembley.
Mörk Þjóðverja í leiknum við
Austurríki skoruðu marka-
kóngurinn Gerd Muller (2),
Wolfgang Weber og Erwin
Kremer. 1 leiknum gerðist sá
einstæði atburður að tvíbura-
bræður léku í landsliði Þjóð-
verja, þeir Erwin og Helmuth
Kremer.
Víkingur
AÐALFUNDUR knattspyrnu-
deildar Víkings verður haldinn
f Vfkingsheimilinu við Hæðar-
garð, miðvikudaginn 31.
október nk. og hefst klukkan
20.00. Fundarefni venjuleg
aðalfundarstörf.
Hagnaður IBK tæp
millj. í 1. deildinni
ÞAÐ FER tæpast á milli mála, að
lið IBK í knattspyrnu er ekki að-
eins það sterkasta hér á landi um
þessar mundir, heldur einnig það
vinsælasta. I reikningsyfirliti KSI
um aðsókn að leikjum í 1. deild
kemur fram að hagnaður Keflvík-
inga af leikjum sínum í 1. deild
ein milljón, en frá þeirri upphæð
er eftir að draga ferðakostnað,
sem áætla má, að sé um 75 þús-
und. Valsmenn draga að sér næst-
flesta áhorfendur, en samtals er
hagnaður annarra liða í 1. deild
en IBK tæpar fjórar milljónir.
Valsmenn fá 676 þúsund í sinn
hlut, tBV 638 þús., IBA 623 þús.,
Fram 602 þús., KR 558 þús., IA
532 þúsund, Breiðabliksmenn
draga að sér fæsta áhorfendur en
fá þó 497 þúsund krónur í tekjur.
Af fyrrnefndum tölum er eftir að
draga ferðakostnað, sem er mjög
mismikill, en Akureyringa þó
langmestur.
Tekjuhæsti leikurinn síðast-
liðið keppnistimabil í 1. deildinni
var leikur IBA og IBK á Akur-
eyri, en sá leikur gaf af sér 312
þúsund krónur, leikir IBV—lBK,
IBK—Fram, ÍBK—IBV, ÍBK—
Vals og lA—IBK gáfu svo af sér
tekjur á milli 200 og 300 þúsund
krónur. Það er athyglisvert, að
leikir í Reykjavfk eru tiltölulega
verst sóttir, en flestir áhorfendur
mæta á leiki í Keflavik og á Akur-
eyri.
Ef litið er á aðsókn að leikjum
1. deildar síðastliðin 3 ár, kemur í
ljós, í fróðlegu reikningsyfirliti
Friðjóns Friðjónssonar, gjaldkera
KSI, að áhorfendafjöldi hefur
heldur aukist frá sfðastliðnu ári.
Þá sáu að meðaltali 914 áhorfend-
ur hvern leik, en 1050 síðastliðið
sumar. Sumarið 1971 er þó bezt
þessara þriggja keppnistímabila,
en þá voru að meðaltali 1294
áhorfendur að hverjum leik.