Morgunblaðið - 04.11.1973, Síða 2

Morgunblaðið - 04.11.1973, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1973 Nýja viðbyggingin við Sundiaug Vesturbæjar. Nýir búningsklefar fyrir 300 sundgesti Snorri til veiða SKUTTOGARINN Snorri Sturluson heldur f sfna fyrstu veiðiferð nú um helgina, sam- kvæmt upplýsingum Bæjarút- gerðar Reykjavfkur. Hefur togarinn að undanförnu verið búinn veiðarfærum og ballest og á föstudag var farið að Iesta fs. Allgóður rækjuafli á Bíldudal Nýbygging fvrir böð og búningsklefa á að verða komin við Sundlaug Vesturbæjar f árs- lok 1974. Höfust framkvæmdir fyrir 3 vikum. Þama verður bún- ingsaðstaða á tveimur gæðum með fata geymslum fyrir 150 manns á hvorri, eða 300 gesti alls. Þá eru í húsinu böð, þurrkher- bergi, afgreiðsla og herbergi fyrir starfsfólk. í kjallara er rými fyrir stjórntæki og geymslur. 1 eldri búningsálmu eru fatageymslur, 250 þúsund krónur til Starfsmannafélags Mbl. í tilefni af 60 ára afmæli Morgunblaðsins í fyrradag færði Starfsmannafélag Morgunblaðs- ins blaðinu að gjöf veggskjöld, sem í er greypt fyrsta forsíða Morgunblaðsins. Baldvin Jónsson formaður starfsmannafélagsins afhenti gjöfina, en við henni tók Geir Hallgrímsson stjórnarfor- maður Arvakurs h.f. — Þá ákvað stjórn Arvakurs að færa Starfs- mannafélagi Morgunblaðsins 250 þúsund kr. að gjöf í tilefni af- mælisins. Skal beirri f járhæð var- íð til menningar- og félagsstarfs félagsmanna starfsmannafélags- AFLI rækjubáta á Bíldudal hefur verið mjög góður að undanfömu, og i nóvembermánuði fengu þeir samtals 125 lestir af rækju. Rækjan, sem bátarnir fá, er bæði stærri og betri en sú rækja, sem þeir fengu í fyrra. Mikil vinna er nú við fullnaðarvinnslu á rækj- unni, en 10 bátar stunda rækju- veiðar frá Bíldudal. Páll Hannesson fréttaritari Morgunblaðsins á Bíldudal sagði f gær, að einn bátur væri nú byrj- aður að róa með lfnu og hefði hann farið 4 róðra. Vinna í frysti- húsinu hefði því verið lítil í haust, ef ekki hefði komið til fiskur frá Patreksfjarðarbátum, en frysti- húsið í Bíldudal er búið að vinna 80 lestir, sem bátar frá Patreks- firði hafa komið með. Þrjú íbúðarhús eru nú í bygg- ingu á Bíldudal. Þá er verið að byggja við verzlunarhús Jóns Bjamasonar. 50 fyrir hvort kyn, eða samtals Verksamningur hefur verið 100. Viðbótarbygginguna teikn- gerður við Böðvar Bjarnason sf, uðu arkitektarnir Bárður Isleifs- sem hefur tekið að sér bygging- son og Jes Einar Þorsteinsson. una fyrir 29,9 milljónir kr. Froðan hefti skjótt eldinn TALIÐ er, að um 150 hestar af heyi af 300, sem voru f hlöðunni á Blikastöðum, hafi eyðilagzt f brunanum á fimmtudagskvöld. Sáralitlar skemmdir urðu á mannvirkjum, en talsvert tjón varð hins vegar af völdum hitans á hjólhýsi, sem geymt var á hlöðu- loftinu. Slökkviliðið í Reykjavík beitti slökkvifroðu í ríkum mæli við slökkvistarfið að þessu sinni, og í viðtali við Mbl. í gær sagði Gunnar Sigurðsson varaslökkvi- liðsstjóri, að hann teldi, að ef hún hefði ekki verið notuð, hefði farið miklu verr, ekki aðeins hvað heyið snerti, heldur einnig húsin. Mjög erfiðar aðstæður hefðu verið til vatnsöflunar og hefði tekið langan tíma að setja upp dælukerfið og ekki tekizt að hefta eldinn eins fljótt og tókst með notkun froðunnar. Þetta mun í fyrsta skipti, sem slökkvifroðu er beitt á eld í heyi hérlendis, en hún hefur gefið góða raun við slökkvistarf í bátum og skipum. Hins vegar telur Gunnar hana ekki myndu henta við slökkvistarf í venjuleg- um húsbrunum. — Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins mun nú gera rannsóknir á áhrifum froð- unnar á fóðurgildi þess heys, sem ekki skemmdist af eldinum. Gunnar kvaðst vilja koma á framfæri þakklæti til björgunar- sveitarmanna úr Kyndli (SVFI) í Mosfellsveit og bænda úr sveit- inni, sem hefðu unnið mikið og gott starf við að moka heyinu út úr hlöðunni og aðstoða við slökkvistarfið. „Já, hvað er sann leikur, Sigurður Torfason?” I kvöld flytur Útvarpið kafla af segulbandsspólum frá miðilsfundi Guðrúnar Sig- urðardóttur á Akureyri, en bók byggð á þessum spólum er væntanleg á markað og er nú þegar margumtöluð og um- deild. Morgunblaðið hefur birt fréttir af bók þessari og blaða- maður þess átt samtal við máls- aðila, enda f verkahring blaðs- ins að skýra frá þvf, sem efst er á baugi hverju sinni, ánþess að með þvf sé tekin afstaða til málsins. Þar sem mönnum hefur þótt hnýsilegt að fá nasa- sjón af ritverki þessu, hefur blaðið fengið eftirfarandi kafla úr bókinni til birtingar. Segir þar frá þvf, er Sigurður Torfa- son, skriftafaðir Ragnheiðar, gengur á hennar fund til þess að taka af henni skriftir að boði Brynjólfs biskups. Það er drepið létt á dyrnar hjá Ragnheiði Brynjólfsdóttur. Hún er alklædd, og Steinunn Finnsdóttir situr á rúminu sínu. „Svara þú, Steinunn mín“. Steinunn stendur upp og opnar. Sigurður Torfason stendur í dyrunum. „Gott kvöld“. „Gott kvöld, Sigurður Torfa- son. Seint á ferð. Hvað er þér á höndum, skriftafaðir minn?“ „Eg þarf að tala við þig, Ragnheiður Brynjólfsdóttir, undirfjögur augu“. „Nei, og svona seint á kveldi. Heldur þú nú, Sigurður Torfa- son, að það sé óhætt vegna orð- rómsins?" „Jómfrú Ragnheiður, faðir þinn sendi mig“. „Ó, hans herradómur, nú þá verðum við að hlýða. Steinunn mín, þú verður að fara vegna þess að meistari Brynjólfur biskup í Skálholti segir skrifta- föður mínum að tala við mig undir fjögur augu. Þú verður að fara, Steinunn mín, en vertu ekki langt frá, ef það gæti viljað til, að eitthvað af hjú- unum í Skálholti hleraði það, að það væri inni hjá mér karl- maður. Þá gæti verið, að sög- urnar kæmust á kreik. Passa þú það nú, Steinunn mín, að enginn standi við dyrnar. Það er þegar farið að orða mig við karlmann, og eg býst við, að það sé það, sem séra Sigurður Torfason skriftafaðir minn er að leita eftir, hvort eg hafi brot- ið af mér“. „Eg skal hlýða þér í öllu, Ragnheiður mín“. „Þakka þér fyrir, Steinunn mfn, og gakktu svo út. Jæja, séra Sigurður, má bjóða þér sæti?“ „Nei, Ragnheiður Brynjólfs- dóttir, eg ætla að standa". „Þú ætlar að standa. Eg ætla að sitja, ef það liði yfir mig“. „Liði yfir þig? Heldur þú, að það líði yfir þig?“ „Eg veit ekki, hvað þú ætlar að vera harður við mig“. „Eg ætla ekki að vera harður við þig. Eg ætla bara að vita, hvað er sannleikur“. „Já, hvað er sannleikur, Sig- urður Torfason? Hef eg ein- hvern sannleika fyrir þig?“ „Fyrir mig? Nei, þú hefur engan sannleika fyrir mig, en þú hefur sannleika fyrir sjálfa þig, er það ekki? Eg er kominn hingað...“ „Já, þú ert kominn hingað til að spyrja mig um það, hvort við Daði Halldórsson höfum brotið eitthvað af okkur. Sem sagt leg- orðsbrot. Er þaðekki, Sigurður Torfason? Er það ekki það, sem þú ætlar að spyrja um?“ „Jú, jú, já. Faðir þinn sendi mig“. „Já, og þú ert hans þjónn. En, Sigurður Torfason, getum við deilt nokkru? Att þú nokkuð hjá sjálfum þér, sem við getum deilt? Get eg hjálpað þér í þín- um raunum?" „Ragnheiður, hvað ert þú að meina? Hvað ertu að meina, Ragnheiður?" „Efe er bara að meina þann sama orðróm, sem gengur um þig og Ingibjörgu Magnúsdótt- ur. Er það ekki rétt?“ „Ja, eg veit það ekki, eg, — ja, eg heyri ekki það, sem fólkið segir“. „Nei, eg heyri heldur ekki það, sem fólkið segir, en þú heyrir það, sem fólkið segir um mig, og eg heyri það, sem fólkið segír um þig. Eigum við að deila? Á eg að hjálpa þér? Get- ur þú nokkuð hjálpað mér?“ „Hjálpað þér? Já, þú átt bara að skrifta. Þú átt bara að skrifta. Hefur Daði nokkurn tíma kysst þig?“ „Hefur þú nokkurn tima kysst Ingibjörgu Magnúsdótt- ur, Sigurður Torfason?" „Það kemur ekki þessu máli við. Eg er að spyrja þig“. „Já, en eg var að spyrja þig. Eg er líka forvitin. Veiztu það ekki? Það hefur alltaf fylgt mér, Sigurður Torfason. Eg hef verið svo óskaplega forvitin allt líf ið. Mig langar svo mikið til að vita það.“ „Ragnheiður, þú mátt ekki gera mér svona erfitt fyrir. Eg á að færa föður þinum svörin, öll svörin. Hefur þú kysst hann? Þú verður að svara mér. Eg skal ekki ganga nær þér“. Ja, ef eg segði nú föður mín- um, að eg hefði heyrt, að þú hefðir kysst Ingibjörgu Magnúsdóttur, hvað heldur þú, að faðir minn mundi gera með það, sem þú segðir honum um mig, ef hann vissi það, að þú hefðir kysst Ingibjörgu Magnúsdóttur og ef til vill gert eitthvað meira? Sigurður Torfason, eigum við ekki að láta þetta niður falla? Viltu ekki bara segja föður mínum, að þú hafir talað við mig og eg hafi sagt, að eg vissi ekki neitt um þetta, sem væri talað, og það væri allt saman mér óvið- komandi. Viltu ekki bara segja honum það?“ „Þú veizt ekki, hvernig faðir þinn er núna. Hann er brjálað- ur, Ragnheiður, og hann ætlar að taka þig inn á eftir. Eg verð að reyna að milda hann, fyrir þig, — vegna þín. Fyrir mig. Fyrir okkur öll“. „Já, Sigurður Torfason. Þú verður ef til vill rekinn úr sæt- inu. En verður það ekki hvort sem er? Verður okkur ekki báð- um vísað burt og Daða líka og Ingibjörgu? Verðum við ekki Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.