Morgunblaðið - 04.11.1973, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÖVEMBER 1973
31
—Hvað er sannleikur
Framhald af bls. 2.
öll samfcrða héðan frá Skál-
holti ?“
„Ragnheiður, hvernig stend-
ur á, að þú gerir mér þetta
svona erfitt?“
„Sigurður Torfason, eg er
ekki að gera þér neitt erfitt. Eg
veit vel, að þetta er enginn leik-
ur, en Sigurður Torfason, eg
get ekkert sagt þér. Allt, sem eg
gæti sagt þér, er það, að eg
heyri orðróminn um þig, og þú
segir mér það sama um mig. Ef
þú hefur þinn sannleika, þá
hlýt eg líka að hafa minn. Vilt
þú leggja þinn sannleika fyrir
föður minn?“
„Nei( Ragnheiður, við megum
ekki gera það“.
„Nei, við megum ekki gera
það, Sigurður Torfason. Eg
ætla ekki að gera það. Þú ræður
alveg, hvað þú gerir. Þú hefur
orðróminn, en þú hefur ekkert
frá mér“.
„Nei, eg hef ekkert frá þér,
það er alveg satt. Það er alveg
satt, Ragnheiður. Heyrðu, má
eg tylla mér?“
„Já, já. — Sigurður Torfason,
eg held það sé að líða yfir þig. Á
eg ekki að ná í.vatn handa þér?
Eg held, að þú sért að falla út
af “.
„Nei, Ragnheiður, mér lfður
bara svolítið illa“.
„Já, Sigurður Torfason, eg
skil það vel. Þér líður illa,
veslings maðurinn. Viltu ekki
vatn að drekka?“
„Jú, eg held það væri gott,
áður en eg fer inn til föður
þíns, að eg fengi vatn að
drekka. Það er eins og allt, eins
og allt . . . Þakka þér fyrir,
Ragnheiður, það var gott að
drekka vatnið, en eg kvíði fyrir
að fara inn til föður þins“.
„Elg trúi því, Sigurður Torfa-
son. Brynjólfur biskup er
ekkert lamb að leika sér við,
þegar hann er í þeim ham, en
heldur þú nú ekki, að þú getir
eitthvað mildað hann? Þú
hefur nú ef til vill tækifæri til
þess á þessari stundu“.
„Já, já. — Ragnheiður, það er
eitt, sem eg held, að hann ætli
að gera“.
„Ætlar hann að láta mig fara
frá Skálholti?"
„Nei, hann hefur ekki minnzt
á það. Nei, nei, nei, hann
hefur ekki orðað það, nei, nei.
Hann hefur bara, Ragnheiður,
skal eg segja þér, skammað mig
fyrir heigluskap og ræfildóm
og allt annað, og eg á það ekki
skilið, — en, Ragnheiður, hann
ætlar víst að láta þig sverja
eið“.
„Mig sverja eið? Hvers vegna
á eg að sverja, Sigurður Torfa-
son? Þú lætur það ekki við-
gangast".
„Sko, sko, þú veizt, hvað er
talað um ykkur Daða, alstaðar,
alstaðar”.
„Já, eg veit, að það er talað
um okkur Daða og þig og Ingi-
björgu. Við erum öll þessi
fjögur á milli tannanna á fólk-
inu í Skálholti, en átt þú líka að
sverja, Sigurður Torfason, eða
Ingibjörg Magnúsdóttir?"
„Nei, nei, Ragnheiður, þú
mátt ekki misskilja mig, sérðu,
nei, það er bara þú, af því að þú
ert biskupsdóttir. Ingibjörg
þarf ekkert að sverja. Hún er
bara . .
„Ja, hún er bara konan, sem
þú elskar. Er það ekki, Sig-
urður Torfason?"
„Ja, eg veit það nú ekki,
Ragnheiður. Ja . . .“
„Þú þarft ekki að vera
hræddur við mig, Sigurður
Torfason. Elg mun ekki klóra
Þig“.
„Nei, eg veit það, en veiztu,
eg elska ekki Ingibjörgu
Magnúsdóttur. Elg hef aldrei
elskað hana“.
„Nú, það er undarlegt. Það er
undarlegt, Sigurður Torfason.
Hefur þú aldrei elskað Ingi-
björgu Magnúsdóttur? En hún
elskar þig. Hefur þú virkilega
farið svona illa með hana?“
„EJskar hún mig? Hver hefur
sagt þér það?“
„Sigurður Torfason, hún kom
til mfn grátandi fyrir tveimur
dögum og bað mig að tala við
föður minn, svo að þú misstir
ekki hempuna".
„Guð minn almáttugur! Datt
henni þetta i hug? Ragnheiður,
ert þú búin að því?“
„Sigurður Torfason, vertu ró-
legur".
„Þá er eg dauðadæmdur
maður, ef þú hefur gert það“.
..Eg hef ekki talað við föður
minn, og þó að eg fari inn til
hans, þá ætla eg ekki að tala við
hann um þig eða Ingibjörgu
Magnúsdóttur. Það er þitt mál,
Sigurður Torfason, en það er
annað, sem eg vil segja þér:
Leiktu þér ekki að tilfinningum
konunnar, sem elskar þig, þá
verður þú alla tið ógæfumaður.
Þá skiptir umtalið ekki máli.
Innan undir hempunni verður
þú alltaf vansæll, og vittu til.
ISg er að segja þér satt Sigurð-
ur Torfason. En eg ætla ekki að
segja föður mínum meira. Þú
getur dhræddur farið þangað
inn. I2n nú ert þú búinn að
skrifta fyrir mér. I5g er lfka
búin að skrifta fyrir þér. Sig-
urður Torfason, gakktu inn til
biskupsins í Skálholti, og segðu
honum það, sem þér sýnist".
Frá Sviss.
Slffar blússur. stuttar biússur.
Glugginn
Laugavegi 49.
ÚTBOD
Tilboð óskast í smíði cg uppsetningu 1 5 orlofshúsa fyrir
Sjómannadagsráð í Reykjavík og Hafnarfirði
Húsin, sem eru úr timbri skal reisa að Hraunkoti í
Grímsnesi.
Útboðsgögn má fá hjá skrifstofu Hrafnistu D.A.S., gegn
5000 kr. skilatryggingu frá og með mánudeginum 5.
nóvember.
Tilboðin verða -opnuð á skrifstofu Sjómannadagsráðs að
Hrafnistu, þriðjudaginn 4. desember 1973 kl. 11. fyrir
hádegi.
Kemur Þér Þad ekki vid?
Sjávarfréttir er nýtt blað um sjávarútvegsmál, málin sem öllum koma við. Nú er
rétti tíminn til þess að skapa þjóðareiningu um málefni sjávarútvegsins og allir
læsir landsmenn tryggi sér eintak af Sjávarfréttum.
Sjávarfréttir fjalla um útgerð, fiskiðnað, markaðsmál, rannsóknir, vísindi,
tækni og nýjungar allt á sviði sjávarútvegsins.
Sjávarfréttir koma út sex sinnum á ári og er hvert blað 84 blaðsíður. Kostar
eintakið 1 65 kr. og ársáskrift 990 kr.
Fáið Sjávarfréttir frá byrjun, og eignizt dýrmætt upplag meðan kostur gefst.
Útgefandi:
Frjálst framtak hf.
Laugavegi 178, R.
Pósthólf 1193.
Símar 82300 og
82302.
Til Sjávarfrétta Laugavegi 1 78. R.
Undirritaður óskar eftir áskrift af Sjávarfréttum.
Nafn
Heimili sími
RAGNAR JÓNSSON,
hæstaréttarlögmaður,
GÚSTAF Þ. TRYGGVASON,
löafræðinaur.
Hverfisgötu 14 - simi 17752.
Lögfræðistörf og eignaumsýsla
IShlPAUTGtRB KlhlSINS 1
m/s Baldurferfrá Reykja-
vík þriðjudaginn 6. þ.m.
til Snæfellsness- og
Breiðarfjarðarhafna.
Vörumóttaka: Mánudag
og þriðjudag.
SKóbud Austurbæjar
Seljum á morgun og næstu daga, nokkurt magn af karlmanna-
skóm úr leðri. Allar stærðir fyrir kr: 995, 1150, 1225, 1250,
1270, 1290, 1390, 1495.
Ennfremur seljum við vinnu- og kuldaskó karlmanna úr leðri á kr.
995.
Síðustu sendingar af þessum ódýru skóm fyrir jól.
Skóbúd Austurbæjar Laugavegl 1 oo