Morgunblaðið - 28.12.1973, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 28. DESEMBER 1973
MAMAKUMit l«W.
l-kWtMnlMl (l7«4Í Vr inn4« tjAoruua.
«»i V*A 'wtar hrt »•) b«4 ti
í»S-< » fwiWi *fc» «w« •*«»-
tktMr harjtpt eíktri «( mrrnti H
rS.ii A^íwaw, w* kulUi »1 Scm.
Mbotl* Uwfcin* %(a it.hu V.n itfrr
/rttm «. 4 1)0«««. rbMUOum*' ri«*
.. ofi ftmrí -iániKtv* ng wmntmfífatnt
cns «* Stoút ÍrAffiaéytpfi. linn U&Arý '
riýt* O. tyíif omAcIí Hr-ctwnlc**
i þ»*H» 1M.V ■ Þ.VS« JS 4*n *Ii*»
•Sruu. « Jvir AjM. grvlta UMyvOgi*.
Kvj'i'ír tyiSlR*.*: «V, Nikuí. ;
/4 Si)-.ou«4r t'iWiwrMUu %..ngu fytttir
rutnni .m> S Aifi KniSr.'uo. En rv Ktö-
fccinn ok .oc.ni IOW oáu fwi, þi hrWo
t**r « Jtcw.i tao, >) *«» f. rh h.*i>
*■»*■**■'
S<oStm«n, K« tSWi, »1 M> «.
MARZ
S M
3 4
10 11
5
12
2
9
M F F
1
6 7 8
13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31
0 M F T C
2 3 4 5 6
9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30
Myndskreyting á dagatalinu af upphafi Flóabardaga.
DAGATAL ELLEFU
ALDA BYGGÐAR
Erilsamt hjá
björgunarsveitum
r #
Islenzkar myntir 1974
99
Alþingis-
húsið, Dóm-
kirkjan og
Safnahúsið
alfriðuð
AÐ fengnum tillögum húsa-
friðunarnefndar og með-
mælum borgarstjórnar
Reykjavíkur ákvað mennta-
málaráðherra hinn 14. þ.m.
að friða nokkur hús í
Reykjavík.
Er þetta gert samkvæmt
þjóðminjalögum frá 1969.
Friðuðum húsum skal skipt í
tvo flokka, A og B. Ef hús er
friðað í heild telst það til
A-flokks, en taki friðun
aðeins til ytra borðs húss,
skal það talið til B-flokks.
Húsin, sem friðuð voru að
þessu sinni, eru í A-flokki:
Alþingishúsið, Dómkirkjan
og Safnahúsið við Hverfis-
götu. B-flokki: Stjórnarráðs-
húsið, hús Menntaskólans í
Reykjavík og íþöku, bók-
hlöðu sama skóla.
Dr. Jónas Kristjáns-
son formaður rithöfunda-
sjóðs Ríkisútvarpsins
MENNTAMALARÁÐUNEYTIÐ
hefur skipað dr. Jónas Kristjáns-
son forstöðumann Stofnunar
Arna Magnússonar á íslandi, for-
mann rithöfundasjóðs Ríkis-
útvarpsins, skv. skipulagsskrá
sjóðsins, staðfestri 28. desember
1956
Olfufélagið Skeljungur hefur
sent frá sér mjög vandað og
skemmtilegt dagatal f tilefni 1100
ára afmælis tslandsbyggðar. Eru
á dagatalinu myndir af sögu-
legum viðburðum og er minnt á
atburði, sem eiga marga sfna Ifka
og eru dæmi um það, hvernig skin
og skúrir skiptast á I sögu þjóða.
Forsfðumyndin minnir á hinar
bjartari hliðar: stofnun lýðveldis
á Þingvöllum 1944, staður og
stund er tákn þjóðlegrar einingar
— áminning og hvatning f senn.
Myndskreytingu hefur Hilmar
Helgason gert, en myndaval og
texta gerði Guðni Kolbeinsson.
Dagatalið er prentað í litum, en
Guðjón Eggertsson setti það upp.
Meðal myndaefnis er það þegar
Höfðabrekkubæ tók af í Kötlu-
hlaupi, mynd af Þórólfi smjör að
lýsa tslandi, frá alþingi 1869, frá
upphafi Flóabardaga, mynd af
deilu um pundara í Grindavík og
mynd af Jóni Arasyni á leið að
höggstokknum. Fróðlegur texti
fylgir hverri myndskreytingu.
Mælifelli 22. desember.
EINS og fram hefur komið í frétt-
um hefur nokkrum sinnum í vet-
ur verið leitað til Björgunarsveit-
ar Slysavarnadeildarinnar á
Sauðárkróki og Flugbjörgunar-
sveitarinnar f Varmahlíð vegna
mannaferða í sambandi við fram-
kvæmdir Lahdssímans á Þrándar-
hlíðarfjalli.
Formaður björgunarsveitarinn-
ar á Sauðarkróki, Bragi Skúlason,
hefur tjáð mér, að Slysavarna-
félag íslands hafi af þessum sök-
um ó§kað þess, að fyrir hönd
BÆKLINGURINN „Islenzkar
myntir 1974“ er nýlega kominn
út, 48 bls. Höfundur er Finnur
Kolbeinsson, en útgefandi Frf-
merkjamiðstöðin.
Þetta er í sjötta sinn, sem list-
inn „Islenzkar myntir" kemur út,
og hefur verðskráningu verið
breytt til samræmis við áorðnar
verðhækkanir.
í fyrsta hluta ritsins eru allar
íslenzkar myntútgáfur frá árinu
1922 og síðan taldar upp; myntun-
um lýst, upplags þeirra getið og
áætlað verð þeirra gefið upp í
tveimur eða þremur gæðaflokk-
um. Myndir fylgja af myntunum.
Sem dæmi um hátt verð einstakra
mynta má geta þess, að tíeyringur
frá 1925 er metinn á fjögur þús-
und krónur og „þykki túkallinn"
frá 1966 á 7.500 krónur, en vegna
mistaka í myntsláttu munu um
þrjú hundruð eintök hafa verið
slegin af þeim þykka. 10 krónu
peningur frá 1971 er verðlagður á
25 krónur, en væntanlega er það
verð handa erlendum myntsöfn-
urum, og ýmis dæmi eru þess
fleiri, að peningar, sem enn eru
algengir í umferð, eru metnir á
hærri upphæð en gangverð þeirra
segir til um.
Landssímans verði hlutazt til um
að slíkir atburðir endurtaki sig
ekki að nauðsynjalausu. Búizt er
við, að eftir hátíðar verði aftur
hafizt handa á Þrándarhlíðar-
fjalli. Stöðin er í 960 metra hæð
og bein loftlína þaðan að Mæli-
fellsá um átta kílómetrar.
Formaður Flugbjörgunar-
sveitarinnar í Varmahlíð er
Brynleifur Tóbíasson. Mikið
öryggi er að báðum björgunar-
sveitunum í héraðinu.
Síra Agúst,-
Minnispeningur um Jón
Sigurðsson, sem kostaði 750 krón-
ur 1961, er þarna verðlagður á 30
þúsund krónur.
I næsta kafla eru medalíur og
minnisskjöldur. Lýðveldishátiðar-
skjöldurinn frá 1944 er metinn á
10 þúsund krónur, en hann var
seldur á 25 krónur á sínum tíma.
Alþingishátáðarpeningarnir frá
1930 eru verðlagðir á 5.000 kr. (2
krónur), 10.000 kr. (5 kr.) og
10.000 kr. (10 kr.).
Þá er fjallað um vörupeninga
og brauðpeninga, en síðast er
myndskreyttur peningaseðlalisti.
Elztu seðlarnir eru ekki verðlagð-
ir, en þeir eru ríkisdalur, sem
gefinn var út á árunum 1777 til
1815, og 5 ríkisdalir
(1780—1800). Elztu landssjóðs-
seðlarnir (1885—1905) eru verð-
skráðir á 25.000 kr. (fimm krónu
seðillinn), 25.000 kr. (10 kr.)
50.000 kr. (50 kr.) Elzti hundrað
krónu seðill Landbanka fslands
er metinn á 25.000 kr. Getið er um
sex gerðir gömlu krónuseðlanna
og hver metin á 1500 kr., en taldar
eru upp tíu tegundir af hinum
yngri (úr seinna stríði) og sagt,
að þær séu hinar helztu. Hver
seðill er metinn á 700 kr.
Hjálparsveitir skáta um land allt,
standa nú fyrir flugeldamörkuðum.
Hvergi er meira úrval!
FLUGELDAR, BLYS, STJÖRNULJÖS, GOS,
SÓLIR O. M. FL.
UtsölustaÓir:________________________
Reykjavík Garðahreppur
Kópavogur Njarðvík
Akureyri Blönduós
Flugeldamarkaðir eru undirstaða
reksturs Hjálparsveitanna.
Við hvetjum því fólk til að
verzla eingöngu við okkur.
ísafjörður
Vestmannaeyjar