Morgunblaðið - 28.12.1973, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1973
31
Landsleikur við
Bandaríkin í kvöld
Geir Hallsteinsson með íslenzka liðirtu
I kvöld fer fram í Iþróttahúsinu í Hafnarfirði landsieikur í hand-
knattleik milli Islendinga og Bandarfkjamanna og hefst ieikurinn kl.
20.30. 4. janúar n.k. munu tslendingar svo leika annan landsleik við
Bandarfkjamenn og fer hann einnig fram í Iþróttahúsinu í Hafnar-
firði og hefst á sama tíma og leikurinn í kvöld, kl. 20.30. Þá hefur verið
ákveðið að efna til móts með þátttöku sex liða og fer það fram f
tþróttahúsinu í Hafnarfirði dagana 29. desember til 3. janúar.
Eins og áður hefur komið fram,
var ákveðið fyrir nokkru, að
bandariska landsliðið í hand-
knattleik kæmi hingað á þessum
tíma í nokkurs konar æfingabúðir
og léki við íslenzk lið. Þá var hins
vegar búið að ákveða Norður-
landamót i handknattleik, en þeg-
ar ekki gat orðið af þvi, var ákveð-
ið að íslenzka landsliðið kæmi inn
i myndina. Þá var um tvennt að
velja — láta íslenzka liðið taka
þátt i mótinu,. eða keppa tvo leiki
við Bandaríkjamennina.
— Við völdum seinni kostinn-,
sagði Páll Jónsson, annar lands-
liðsnefndarmanna á fundi með
fréttamönnum i gær. — Við töld-
um að landsliðið fengi þannig
betri æfingu, heldur en ef það
tæki þátt í mótinu, ekki sízt vegna
þess að við áttum von á því að
margir landsliðsmenn yrðu í
þeim liðum, sem þátt tækju í mót-
inu, og liðin, sem keppt yrði við,
þar af leiðandi ekki sterk, ef
landsliðsmennirnir væru teknir
úr þeim.
ISLENZKA LANDSLIÐIÐ
Einn nýliði verður í íslenzka
landsliðinu sem mætir Banda-
ríkjamönnum i kvöld. Er það
Ragnar Gunnarsson, markvörður
úr Armanni. Sennilega hefur val
á nýliða í landslið, sjaldan eða
aldrei ■ verið jafn óumdeilanlegt
og val Ragnars, sem staðið hefur
sig með mikilli prýði með Ar-
manni, það sem af er keppnis-
tímabilinu!
Islenzka liðið verður annars
þannig skipað:
Ólafur Benediktsson, Val
Ragnar Gunnarsson, Armanni
Auðunn Oskarsson, FH
Axel Axelsson, Fram
Björgvin Björgvinsson, Fram
Geir Hallsteinsson, FH
Gísli Blöndal, Val
Gunnsteinn Skúlason, Val
Einar Magnússon, Víkingi
Ólafur H. Jónsson, Val
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram
Viðar Símonarson, FH
BANDARtSKA LIÐIÐ
— Við skoðum þessa ferð okkar
til Islands sem mikilvægan undir-
búning bandaríska liðsins fyrir
lokakeppni heimsmeistarakeppn-
innar sagði Dr. Peter Buehning,
formaður bandaríska handknatt-
leikssambandsins, á fundinum
með fréttamönnum í gær. Banda-
rlska landsliðið hefur skort til-
finnanlega verkefni við sitt hæfi.
Það er helzt að við fáum leiki við
Kanadamenn, og þá sigrum við
oftast með 10 marka mun.
Buehning sagði, að í bandaríska
Stefni að HM
sagði nýliðinn í landsliðsmarkinu
RAGNAR Gunnarsson, mark-
vörður Ármanni, er eini
nýliðinn í handknattleikslands-
liðinu, sem leikur við Banda-
ríkjamenn f Iþróttahúsinu f
Ilafnarfirði f kvöld. Ragnar er
26 ára gamall pfpulagninga-
maður, en stundar nú nám f
Tækniskólanum. Segja má að
Ragnar hafi fyrst í vetur skotist
upp á stjörnuhimininn, þó svo
að hann hafi varið mark
Armenninga síðastliðin fjögur
ár. Aður var Ragnar Framari,
gekk ekki vel þar, komst ekki í
lið og söðlaði þvf um.
Er við ræddum við Ragnar f
gær sagðist hann vitanlega vera
ánægður með að fá tækifæri
með landsliðinu og sagðist vona
að hann ætti eftir að fá fleiri
möguleika með landsliðinu.
Það væri ekkert leyndarmál að
hann stefndi að því að komast
með landsliðinu f úrslit Heims-
meistarakeppninnar í ArÞýzka-
landi. Hann yrði þó að láta sér
nægja að vona, það væri
annarra að velja.
— Ég þakka ströngum
æfingum Péturs Bjarnasonar
það, að ég skuli nú vera talinn
nógu góður til að komast í
landsliðið. sagði Ragnar. Þá er
það einnig þungt á metunum að
ég hef einbeitt mér að hand-
knattleiknum, en ekki verið f
fótboltanum Ifka eins og áður.
Eg hef ekkert æft með lands-
liðinu og það verður örugglega
ekki þægilegt fyrir mig að
keppa með vörn fyrir framan
mig sem ég þekki ekkert.
Taugaóstyrkleikinn er ekki
farinn að segja til sfn enn og
maður getur að minnsta kosti
leyft sér að vona að vel gangi,
sagði Ragnar að lokum.
liðinu væru átta leikmenn, sem
leikið hefðu með því í lokakeppn-
inni á Olympíuleikunum, en leik-
menn bandaríska liðsins er hing-
að koma, eru eftirtaldir:
Don Morelli •
Edward Osorio
Sandor Rivnyak
G. Duchateau
Rick Abrahamson
Roger Baker
Dennis Berkholtz
Peter Buehning, jr.
Mike Cavanaugh
Tom Hardiman
' Bernie Iwasczyszum
Matt Matthews
William Mozee
Wayen Naylor
Robert Sparks
Harry Winkler.
Allmargir þessara leikmanna
hafa komið hingað áður ogUeikið
hér með bandaríska landsliðinu.
HVAÐGERIR
ISLENZKA LIÐIÐ
Lengst af hafa íslendingar unn-
ið Bandaríkjsmenn í handknatt-
leikslandsleikjum næsta auðveld-
lega, en siðast er Bandaríkja-
menn voru hér á ferð, í júli 1972,
veittu þeir mun meiri keppni en
áður. Ekki er að efa að síðan
hefur liði þeirra farið mjög mikið
fram, ekki sizt eftir að það fékk
mjög þekktan rúmenskan þjálf-
ara til liðs við sig.
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma ætti íslenzka liðið þó að
vinna öruggan sigur í kvöld. Ætla
má, að við teflum fram okkar
allra sterkasta liði — liði, sem
vafalaust tekur litlum sem engúm
breytingum fyrir lokaátök heims-
meistarakeppninnar. Geir Hall-
steinsson leikur nú með liðinu, en
■
Geir Hallsteinsson
■ leikur með fslenzka landsliðinu í kvöld.
hann er heima í jólaleyfi og verð-
ur fróðlegt að sjá hvort tekst að
tæta bandaríska liðið jafnmikið í
sundur og tókst í leiknum fræga
við Frakka í Laugardalshöllinni.
13. LEIKURINN
Landsleikur Islands og Banda-
ríkjanna í kvöld verður 13. lands-
leikur þjóðanna í handknattleik.
Urslit fyrri leikja hafa verið
þessi:
22.2. ’64 Island—USA 32:16
23.2. ’64 Island—USA 32:14
14.5. '66 USA—ísland 18:26
16.5. ’66 USA—Island 19:41
21.2. ’70 Island—USA 27:9
22.2. '70 ísland—USA 25:12
21.11 '70 Island—USA 30:14
22.11 '70 ísland—USA 28:18
8.4. '72 Island—USA 21:11
9.4. '72 Island—USA 25:18
18.7. '72 ísland—USA 24:15
19.7. '72 Island—USA 20:15
1 þeim tólf leikjum, sem leiknir
hafa verið, hafa Islending ar því
skorað 331 mark gegn 179. Má og
til gamans rifja það upp, að það
var í landsleik gegn Bandaríkja-
mönnum, sem fram fór í Hafnar-
firði, sem Geir Hallsteinsson náði
því marki að skora fyrstur íslend-
inga 300 mörk i landsleikjum.
Betra en gildandi met
„NORRÆNA lyftingasambandið
óskar Gústafi Agnarssyni til ham-
ingju með glæsilegan árangur í
íþrótt sinni. 160,5 kg í snörun er
hálfu kílói betri árangur en gild-
andi heimsmet unglinga og
árangurinn er Norrænt unglinga-
met. Hann hefði hlotið bronsverð-
laun í snörun á Evrópumeistara-
mótinu og heimsmeistaramótinu
í ár, og árangur hans mun vera
um það bil sá sjötti bezti, sem
náðst hefur f heiminum."
Þannig hljóðaði símskeyti, sem
Finnur Karlsson formaður Lyft-
ingasambands Islands fékk frá
Yngve Froelander, ritara Lyft-
ingasambands Norðurlanda fyrir
jólin.
Sem kunnugt er vann Gústaf
Agnarsson afrek sitt á móti, sem
fram fór i sjónvarpssal skömmu
fyrir jól, en um afrekið og mót
þetta hafa síðan orðið nokkrar
deilur.
Meðfylgjandi mynd tók Ólafur
K. Magnússon af sjónvarpsskerm-
inum, er Gústaf hafði lyft met-
þyngdinni.
KR vann
REYKJAVIKURMOT yngri
flokkanna í innanhússknatt-
spyrnu stendur yfir þessa dagana
i Laugardalshöllinni. I gær var
leikið í 5. flokki og sigruðu KR-
ingar. I dag verður fjórði flokkur-
inn á ferðinni og hefst fyrsti leik-
urinn klukkan 13.30 í Laugardals-
höllinni.
Sjá
einnig
íþróttir
á bls. 19