Morgunblaðið - 28.12.1973, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.12.1973, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1973 Þútur í skóginum Eftir Kenneth Grahame 5. kafli ÆVINTÝRI FROSKS „Jæja, það getur verið, að ég sé svolítið lausmáll,“ sagði hann. „En ég er líka svo vinsæll . . . vinirnir hópast í kring um mig . . . við gerum að gamni okkar og segjum skrítlur, og tungulipurðin hleypur með mig í gönur.Ég hef líka svo þroskaða samræðuhæfi- leika. Mér hefur verið sagt, að ég ætti að stofna umræðuhópa hvað sem það nú þýðir. Jæja, en skítt með það. Haltu áfram, greifingi. Hvernig eiga þessi göng þín að koma okkur að gagni?“ „Ég hef komizt að einu og öðru,“ sagði greifinginn. „Ég lét oturinn klæðast sótarabúningi og berja upp á bakdyramegin til að bjóða vinnu sína með kústa á bakinu. Á morgun er ætlunin að halda mikla kvöld- veizlu. Einhver á afmæli . . . ég held gamli marðar- foringinn og allir merðirnir verða samankomnir í veizlusalnum í fagnaði yfir mat og drykk og eiga sér einskis ills von. Þeir verða þar byssulausir, sverð- lausir og priklausir.“ „En verðirnir verða á sinum stað fyrir utan,“ sagði rottan. „Einmitt,“ sagði greifinginn. „Merðirnir treysta vörðunum algerlega, en þar koma neðanjarðargöng- in okkur að haldi. Þau liggja beint upp í framreiðslu- herbergið við hliðina á stóra matsalnum.“ „Já, ég man, að það brakaði alltaf í einu gólfborð- inu þar. Þarna er komin skýringin,“ sagði froskur. „Við læðumst hljóðlega upp í framreiðsluherberg- ið . .sagði moldvarpan. Teiknar þú vel ? HÉR eru invndir af fimm litlum jóla-sveinum. Aðeins ein mvndanna er þó alveg fullgerð. A hinar vantar hin og þessi atriði. Og nú hefur þú tækifæri til að betrumbæta myndina, og með því æfa þig í teikningu. FEROIIVIAIMO cJVonni ogcTVIanni eftir Jón Sveinsson Freysteinn Gunnarsson þýddi „Og nú getur þú veitt hina fimm, Nonni“. „Ágætt“, sagði ég og tók við færinu og renndi því til botns. Þá dró ég það góðan spotta upp aftur, þangað sem ég átti von á þorski. Brátt fann ég, að kippt var í. Það hlaut að vera fullt af fiski þarna. Þeir bitu á jafnt og þétt, en festu sig þó ekki. Eftir dálitla stund fann ég þó, að kippt var fast í. „Nú er*ég með einn stóran“, kallaði ég og dró af alefli. Manni horfði á. „Nei, sjáðu, Nonni“, kallaði hann, þegar ég dró upp veiðina. „Þú hefur fiskað tvo í einu“. Og það var satt. Tveir þyrsklingar höfðu bitið á , sinn öngulinn hvor, annar stór, en hinn lítill. Fyrst Jagði ég þann stóra við hliðina á kolanum. Hann var nærri því alin á lengd. Þegar ég losaði þann minni, varð mér hálfhverft við. Hann hafði svartan blett á trýninu eins og sá, sem við höfðum fleygt út. Og ekki varð ég minna hissa, þegar ég sá, að hann var særður í kjaftvikinu. Þetta var sami fiskurinn og áður. Manni var alveg hlessa. „Þetta var undarlegt. Það er þá víst bezt að hirða hann“, sagði Manni. „Hann getur þá verið handa þér, en sá stóri handa pabba“. Ég liélt áfram að fiska, og eftir svo sem tíu mínútur var ég búinn að veiða hina þrjá, sem á vantaði. Þá tók ég aftur árarnar. Manni settist við stýri, og nú var lialdið í norðurátt. ' ■ íi ÍTlcóInorgunkaffinu ,1 U' ftf HneBÍck" — Slappaðu af, maður. þú veizt vel, að ég fer alltaf var- lega. KMlT(5p 5 * — Mamma, þú þarft vfst ekki að búast við pabba heim f há- deginu... • Nei, júlíus þó.. .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.