Morgunblaðið - 28.12.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.12.1973, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1973 Fa JJ III /. I í./. /f. i v íiiAii; 22-0-22- RAUÐARÁRSTÍG 31 BILALEtGA CAR RENTAL n 21190 21188 BÍLALEIGA car rental Hverfisgötu 18 86060 (£ BÍLALEIGAN 5IEYSIR CAR RENTAL “W24460 í HVERJUM BÍL PIOMŒŒR ÚTVARP OG STEREO KASSETTUTÆKI SKODA EYÐIR MINNA. Shodb UI6AH AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600. Bílaleiga CAB BENTAL Sendum C4* 41660 — 42902 MJÓR ER MIKILS 0 SAMVINNUBANKINN FERÐABÍLAR HF. Bílaleiga. — Sími 81260. Fimm manna Citroen G. S. station. Fimm manna Citroen G.S. 8 — 22 manna Mercedes Benz hópferðabílar (m. bílstjór- um) Ríkisstjórn með skjögur Afgreiðsla tollskrárfrum- varpsins á dögunum, eða öllu heldur sú staðreynd, að það frumvarp var alls ekki afgreitt, hefur staðfest það sem flestir raunar vissu, að við völd á ts- landi situr fallin ríkisstjórn. Að vfsu orðaðist þessi stað- reynd mismunandi i hugskota- þrengslum stjórnarsinna. Tóm- as Karlsson beitti mjög fjar- lægum og hugvitslegum túlk- unum á þingræðisreglunni. Hann sagði það algjört.ábyrgð- arleysi af stjórnarandstöðunni að hleypa ekki því frumvarpi f gegn, nákvæmlega eins og rík- isstjórnin vildi hafa það. Hins vegar hafði hann bersýnilega ekki hugleitt, hvort ætlast mætti til þess af rfkisstjórn, að hún hefði þingstyrk til að koma fram mikilvægustu málum, minnsta kosti meðan hún sjálf teldi sig meirihlutastjórn. Magnús Kjartansson ráð- herra kommúnista sagði hins vegar, að nú bæri að íhúga þingrof og nýjar kosningar. Sagði sami maður, að Bjarni Guðnason væri pólitískur trúð- ur, en honum gleymdist, að sjálfur leikur hann eitt aðal- hlutverkið í ríkisstjórnarfars- ganum. Ólafur Jóhannesson forsætis- ráðherra var ekki á sömu skoð- un og Magnús Kjartansson. Hann virtist hins vegar sam- mála Ragnari Arnalds, að nú skyidi „skáskjóta málunum í gegnum þingið“ og ekki víkja fyrir öðru en vantrausti. Það er þvf ekki furða, þótt gárunganum hafi orðið á orði að ríkisstjórnin væri orðin eins og rolla með skjögur. Hún gæti hvorki gengið, staðið né fallið Hið sanna Ríkisstjórnin kennir nú stjórnarandstöðunni um, að tollskráin fékkst ekki sam- þykkt á Alþingi fyrir jól. Hið sanna f málinu kemur hins veg- ar fram f nefndaráliti minni- hluta fárhags- og viðskipta- nefndar efri deildar, en hann skipuðu Magnús Jónsson, Geir Hallgrímsson og Jón Armann Héðinsson. I nefndarálitinu segir m.a.: „Tollaskráin er ein viða- mesta og flóknasta löggjöf, sem hér gildir, og þarf langan tíma og mikla varfærni til að gera a henni breytingar, sem ekki valdi ósamræmi. Þingmenn eiga þvf engra annarra kosta völ f slfkri tfmaþröng en annað- hvort samþykkja frv. nánast blindandi eða fella það, þvf að breytingum.sem nokkru nema, verður ekki við komið. Vegna mikilvægis málsins mælum við þó með þvf, að frv. verði semþykkt með þeim breytingum, sem nefndin stendur sameiginlega að. Hins vegar mótmælum við harðlega tillögu þeirri um hækkun siiluskatts, sem fjár- málaráðherra gerir kröfu til, að hengd verði aftan í frv. sem bráðabirgðaákvæði, bæði sem óþinglegri og ástæðulausri. Það er með öllu fráleitt að breyta lögum um söluskatt með toll- skrárlögum. Jafnframt er verið að reyna með þessu á óviður- kvæmilegan hátt að tengja við nauðsynjamál, sem hefur al- mennt fylgi á þingi, skatt- heimtu, sem ekki nýtur nægi- legs stuðnings til að geta náð fram að ganga með þinglegum hætti. Aætlað er af ríkisstj., að frv. valdi rfkissjóði á næsta ári 615 milfj. kr. tekjutapi. Innflutn- ingur til landsins hefur vaxið svo gífurlega að undanförnu, að tekjur af aðflutningsgjöld- um eru áætlaðar að verða 8,5 miljarðar, sem er 1,7 milljarða hækkun frá núgildandi fjárlög- um og einum milljarði kr. hærri upphæð en áætlað var f fjárlagafrv., sem lagt var fyrir Alþingi f byrjun október f haust. Svo örar eru hækkanirn- ar og miðað við þá óðaverð- bólgu, sem geisar af sífellt meiri krafti, má telja vfst, að aðflutningsgjöld fari það mikið fram úr fjárlagaáætlun á næsta ári, að tekjutapið vegna þessar- ar tollalækkunar skipti litlu máli f hinum stjarnfræðilega talnaleik rfkisstjórnarinnar, þar sem milljónir eru nánast smámynt. Því sfður er þörf þessarar furðulegu tekjuöflunar, að f fjárlagafrv. er áætlað fyrir um 200 millj. kr. af umræddum 615 millj. kr. tekjutapi, svo að eftir standa, sem þó byggjast á hreinum ágiskunum, um 400 millj. Til að mæta þeirri smá- vægilegu upphæð f fjármála- feni rfkisstjórnarinnar heimtar fjármálaráðherra 1% söluskatt sem gefur um 650 millj. eða 250 millj. umfram tekjutapið, og hótar að stöðva ella bráð- nauðsynlega lagasetningu. AU- ir heilvita menn hljóta að for- dæma þessi vinnubrögð, því að fjármálaráðherra er auðvitað í lófa lagið að spara jafnvirði þeirrar fjárhæðar f 30 millj- arða frárlögum. Hér er aðeins um örlítið brot að ræða af þeim stórkostlega efnahagsvanda, sem fram undan er og stjórnin ætti fremur að reyna að Ieysa en efna að átæðulausu til ill- inda um nauðsynjamál." spurt og svaraá Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSíNS Hringið f sfma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unblaðsins. □ Þjóðaratkvæða- greiðsla um varnarmálin? Aðalsteinn Jóhannesson, Dyxgjuvegi 16, Reykjavík, spyr: „Eru Tíminn og Þjóðviljinn meðmæftir þvi, að þjóðarát- kvæðagreiðsla fari fram um veru varnarliðs hér á landi?“ Þórarinn Þórarinsson, rit- stjóri og ábyrgðarmaður Tfmans, svarar spurningunni fyrir sitt leyti: „Ritstjórar Tímans hafa ekki rætt málið eða tekið afstöðu til þess, en persónuleg afstaða min er sú, að eins og má.lið liggur nú fyrir, komi þjóðaratkvæða- greiðsla ekki til greina.“ Svavar Gestsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Þjóðviljans svarar spurningunni þannig og er svar hans birt f heild sinni, enda þótf venja sé að birta ein- ungis bein svör við beinum spurningum í þessum þætti: „Þegar- bandaríski herinn kom hingað til lands snemma í maí 1951 var ekki viðhöfð þjóðaratkvæðagreiðsla; og það sem meira er: Alþingi var ekki kvatt saman til þess að taka afstöðu til hersetunnar, áður en bandaríski herinn settist að i landinu á nýjan leik. Þannig var stjórnarskrá þverbrotin af þeim, sem þá réðu. Allir eru sammála um að her- seta sé óeðlilegt ástand. Ekki er þar aðeins um að ræða að- standendur núverandi ríkis- stjórnar í landinu, heldur bók- staflega talað alla íslendinga aðra en þá, sem e.t.v. hafa beina hagsmuni af því að hafa bandaríska herinn hér í landinu. Þegar eðlilegu ástandi er breytt í óeðlilegt ástand er sjálfsagt að viðhafa þjóðarat- kvæðagreiðslu. Þegar óeðlilegu ástandi er breytt í eðlilegt ástand gegnir allt öðru máli. Við það bætist svo, að stjórnar- flokkarnir þrír lýstu því allir yfir fyrir síðustu kosningar, að bandaríski herinn ætti að fara úr landinu og herstöðvarnar að leggjast niður. Þannig hefur til dæmis Framsóknarflokkurinn lýst þeirri stefnu sinni að koma hernum úr landinu á hverju flokksþinginu á fætur öðru frá 1953, og sú stefna, sem ríkis- stjórnin fylgir i herstöðva- málinu, er fyllilega i samræmi við þá stefnu, sem Framsóknar- flokkurinn hefur markað. Stefna rikisstjórnarinnar er hins vegar nokkurt frávik frá stefnu annars stærsta stjórnar- flokksins Alþýðubandalagsins, sem krefst úrsagnar úr NATO. En Alþýðubandalagið og forustumenn þess hafa lýst því yfir, að þeir muni fallast á að vinna að brottför hersins sem Iágmarksatriði til þess að þátt- taka þess flokks i rikisstjórn sé framkvæmanleg. Þjóðviljinn telur að vissulega geti komið til greina og sé eðli- legt í mörgum tilvikum að við- hafa þjóðaratkvæðagreiðslur, en með tilliti til þess sem gerðist, er herinn kom inn í landið og með tilliti til þess að stjórnarflokkarnir höfðu skýra stefnu í þessum málum fyrir síðustu kosningar svara ég spurningunni, sem fram er bor- in, neitandi.“ Námsstyrkir til barna strjál- býlisþingmanna Guðmundur Guðjónsson, Vallarbraut 7. Seltjarnarnesi, spyr: „1. Eiga börn alþingismanna rétt á að fá námsstyrk til jöfnunaraðstöðu til framhalds- náms nemenda í strjálbýli? 2. Ef svo er, — fá þingmenn ekki ibúðir í Reykjavik og uppi- hald greitt úr rikissjóði?" Fyrri spurningunni svarar Örlygur Geirsson, fuiltrúi í menntamálaráðuneytinu: „Nemendur hljóta styrk er þeir uppfylla þau skilyrði, sem sett eru í lögum um jöfnun námskostnaðar, án tillits til starfs foreldra." Seinni spurningunni svarar Friðjón Sigurðsson, skrifstofu- stjóri Alþingis: „Utanbæjarþingmenn fá allt að 19.000 krónum í húsaleigu- styrk, og 950 krónur i dag- peninga." Skerðir varnar- samningurinn fullveldi íslands? Orðið fullveldi er lögfræði- legt hugtak, sem notað er bæði í þjóðárétti um stöðu ríkja í sam- félagi þjóðanna og í stjórnlaga- fræði um æðsta vald ríkisins yfir landi sfnu og þegnum. — Eins og alkunna er, viður- kenndi Danmörk með sam- bandslögunum 1918, að Island væri frjálst og fullvalda ríki. Lýðveldið ísland var stofnað 1944. Eftir það hefur ísland gerzt aðili að Sameinuðu þjóð- unum, Atlantshafsbandalaginu, Evrópuráðinu, Norðurlanda- ráði og EFTA. Það hefur einn- ig með margvíslegum öðrum hætti tekið þátt i milliríkjasam- skiptum sem sjálfstætt og full- valda ríki. Varnarsamningur- inn frá 1951 og dvöl bandaríska varnarliðsins í landinu hefur í engu skert lagalegan eða raun- verulegan möguleika til slíkrar þátttöku í samstarfi þjóða heims. Þær skyldur, sem á íslandi hvíla samkvæmt varnarsamningnum eru ekki aðrar en þær, sem fjöldi ann- arra ríkja, sem allir telja full- valda, hafa undirgengizt, og reynslan hefur sýnt, að þær hafa ekki skert athafnafrelsi ríkisins á alþjó.ða vettvangi. — Um æðsta vald íslenzka ríkis- ins yfir landi og þegnum þarf ekki heldur að efast. Varnar- liðið hefur dvalizt í meira en 20 ár í landinu, og enginn getur með neinum rökum haldið því fram, að af því hafi leitt full- veldisskerðingu inn á við. Hefur því komið í ljós, að þau ákvæði varnarsamningsins, sem með berum orðum miða að því að tryggja fullveldi íslands, hafa verið virt. Þessi ákvæði varða sum einstök atriði, en að auki er í 5. gr. aðalsamningsins tekið fram: „Ekkert ákvæði þessa samnings skal skýrt þannig, að það raski úrslitayfir- ráðum fslands yfir íslenzkum málefnum."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.