Morgunblaðið - 28.12.1973, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.12.1973, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1973 3 Fjórum skákmót- um lokíð hjá T.R. Konur þinga í Bandalagi kvenna NÝTT starfsár Taflfélags Reykja- víkur hófst með setningu haust- mólsins 30. september s.l., en mót- inu lauk 4. nóvember. Ingi R. Jóhannsson fór með sigur af hólmi með 9 vinninga úr 11 um- ferðum og vann hann sér sæmdar- heitið skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur 1973. Næsta mót, sem TR hélt, var hraðskákmót félagsins. Þar sigr- aði Guðmundur Sigurjónsson. Ingi R. Jóhannsson skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur Hlaut hann 16 vinninga af 18 mögulegum. Næsti maður, sem var Ingvar Asmundsson, hlaut ekki nema 13H vinning og sýnir þetta hve yfirburðir Guðmundar hafa verið miklir á mótinu. Þriðja mótið, sem Taflfélagið hélt, var 11 umferða helgarmót og var teflt dagana 23. 24. og 25. nóvember. Þar sigraði Þórarinn Guðmundsson, með 9'á vinning. Þá hófst Bikarmót T.R. 10. nóvember og lauk 10. desember. Sigurvegari varð Sævar Bjarna- son. Hreppti hann bikarmeistara- titilinn eftir að hafa tapað 1'á skák í þessari útsláttarkeppni, en eftir 5 töp féll keppandi úr leik. Um þessar mundir tekur Sævar Bjarnason þátt í Evrópumeistara- móti unglinga I skák, en mótið fer fram í Hollandi. Þetta mót er haldið árlega. Engar fréttir hafa enn borizt af mótinu, en því líkur skömmu eftir 'áramót. Þá teflir Ómar Jónsson á alþjóðlegu móti unglinga sem ferfram í Hallsberg i Svíþjóð um þessar mundir. Það- an hafa heldur engar fréttir bor- izt. BILUN varð á jarðsímastreng frá Reykjavík til Hafnarf jarðar 1 gærmorgun við Kópavogslæk. Þessi jarðstrengur er með 500 lln- um og þar af fóru 300 llnur úr sambandi. Hafnfirðingum gekk mjög illa að ná sambandi við Reykjavfk 1 gær, en í gærkvöldi var komið eðlilegt símasamband aftur. Guðmundur Sigurjónsson hrað- skákmeistari Taflfélags Reykja- vfkur. Jólahraðskákmót TR hófst í félagsheimili félagsins í gær og lýkur því 1 dag. Skákþing Reykja- víkur hefst svo fimmtudaginn 3. janúar n.k. kl. 20. Tefit verður á sunnudögúm, þriðjudögum og fimmtudögum, biðskákir verða tefldar á mánudögum 1 viku hverri. Keppt verður í tólf manna flokkum og skipað í flokka eftir nýútreiknuðum skákstigum. Öll- um er heimil þátttaka, og innrit- un hefst föstudagskvöldið 28. desember, í kvöld kl. 21. Hafsteinn Þorsteinsson hjá Bæjarsímanum sagði í samtali við blaðið í gær, að 4. símstrengir lægju frá Reykjavík til Hafnar- fjarðar og hefði annar aðal- strengurinn farið í sundur. Strengirnir væru ekki á sama stað af öryggisástæðum, en þeir væru 24 lína, 26 lína, 150 llna og 500 lína. BANDALAG kvenna í Reykjavík hélt að venju aðalfund sinn í byrjun nóvember eða dagana 8. og 9. Til umræðu voru menningar- og heilbrigðismál, uppeldis- og skólamál, barna- gæzlumál, áfengismál, trygginga- mál, orlofsmál, verðlags- og ■verzlunarmál o.fl. Voru gerðar margar álvktanir á fundinum. Fundinn sátu 84 fulltrúar. Bandalag kvenna I Reykjavik var stofnað 30. maí 1917.1 því eru flest kvénfélög í borginni eða samtals 28 félög með 10137 félags- mönnum. Aðalstjórn bandalags- ins skipa Geirþrúður Hildur Bernhöft, formaður, Halldóra Eggertsdóttir og Unnur Schram Agústsdóttir. 1 varastjórn eru Sigríður Ingimarsdóttir, Sigþrúð- ur Guðjónsdóttir og Margrét Þórðardóttir. Formenn aðildar- félaganna mynda fulltrúaráð, sem heldur að jafnaði 4—5 fundi á ári. Bandalagið er einn af þremur eignaraðilum að Kvenna- heimilinu Hallveigarstöðum. Fastanefndir starfa milli funda og skila tillögum fyrir aðalfund. A fundinum skilaði orlofsnefnd eftirfarandi skýrslu um störf: Starf orlofsnefndar á árinu 1973 bilað vegna þess, að jarðvegur I kringum hann var hreyfður í sumar, i frostunum að undan- förnu hafi jarðvegurinn komizt á hreyfingu og er þiðnaði komizt bleyta í strenginn. varð meira en nokkru sinni fyrr. Barnaheimili fyrir börn orlofs- kvenna var rekið í Saltvík með fyrirgreiðslu Æskulýðsráðs Reykjavíkur. Nefndin efndi til ráðstefnu um orlofsmál að Hótel Esju dagana 22.—24. febrúar. Formönnum allra orlofsnefnda á landinu var boðið til ráðstefnunnar og mættu alls 39 fulltrúar og 9 gestir. Rætt var um nýju orlofslögin og sam- ræmingu á fyrirkomulagi orlofs- ins. Kosin var 14 kvenna lands- nefnd og er henni ætlað að halda fundi um sameiginleg skipulags- og hagsmunamál. Mæðraheimilisnefnd skilaði eftirfarandi áliti: A Mæðra- heimilinu við Sólvallagötu hafa á yfirstandandi ári dvalið 14 stúlk- ur á aldrinum 15—35 ára. Rekstur heimilisins hefur gengið vel og er hagstæður, þar sem stúlkurnar aðstoða við ýmis heimilisstörf. Páll Þórðarson kosinn prestur í Norðfjarðar- prestakalli Þann 9. desember sl. fór fram prestskosning í Norð- fjarðarprestakalli. Atkvæði voru talin 1 gær á skrifstofu biskups. Einn umsækjandi var um prestakallið, séra Páll Þórðarson, settur prestur þar. A kjörskrá voru 984, þar af greiddi atkvæði 641. Umsækj- andinn hlaut 640 atkvæði, einn seðill var auður. Kosninginn var lögmæt. 500 lína símastrengur bilaði Talið er, að strengurinn hafi Þjóðhátíð allt áríð í höfuðborginni Byrjar með brennu á þrettándanum Þjóðhátfðarhöldin á árinu 1974 hefjast 1 rauninni í Reykjavík á þrettándakvöld, 6. janúar, með álfadansi og brennu á Melavellinum, og markar sú kvöldskemmtun upphaf þjóðhátlðar 1 höfuð- borginni, seeir 1 fvrstu dagskrá þjóðhátfðarnefndar 1 Reykja- vlk, sem prentuð hefur verið. Þar má sjá, að 1974 verð- ur nær samfellt hátíðarár, þar sem öðru hverju verður eitt- hvað um að vera I tilefni af því, að 1100 ár eru liðin frá því norrænir víkingar hófu landnám á tslandi. I Reykjavik verður fyrst álfa- brenna á þrettándanum, í vor verða sýningar í skólum borgar- innar, þá koma hátíðahöldin 17. júní I Reykjavík og listahátíð 7.—21. júnl, en íþróttahátíð 30. júni til 3. júli. Þingvallahátíða- höldin eru 28. júlí, þegar fólk úr öllum landsfjórðungum kemur saman til þjóðhátiðar á Þingvöllum, en næstu helgi á eftir, 3—5. ágúst, verður efnt til fjölbreyttra hátíðahalda I Reykjavik, þar sem að sjálf-v sögðu verður minnzt þess sögu- lega viðburðar, en Ingólfur Arnarson nam fyrstur land á Islandi og reisti bæ sinn I Reykjavík. ALFABRENNA Þréttándahátíðin hefst á Melavellinum kl. 20.30, sunnu- daginn 6. janúar. Þar munu álfakóngur og drottning hans koma fram, ásamt fylgdarliði, og verður söngur og þjóðdansar við brennu fram eftir kvöldi, en i lok hennar verða jólin kvödd með mikilli flugeldasýningu. Næsta vor verða haldnar sýningar I skólum borgarinnar á teikningum, munum úr handavinnu drengja og stúlkna og öðrum verkefnum tengdum námsgreinum og íþróttum, sem sérstaklega hafa verið stundað- ar I tilefni þjóðhátiðarársins. Viðfangsefnin verða einkan- lega byggð á fræðslu um land- nám Islands. Á vissum tímum verður dagskrá, þar sem nemendur koma fram og flytja efni úr sögu lands og þjóðar. Úrval úr þessum vorsýningum verður tekið til uppbyggingar á skólasýningu, sem opin verður þjóðhátíðardagana. REYKJAVÍK !!P*,a® ÞJÓÐHÁTÍÐ 197A Forsfðan á dagskrá þjóðhátíðar I Reykjavík. Landnám Ingólfs, mynd eftir Jóhann Briem. Dagskrá þjóðhátíðardagsins 17. júní byrjar með hefðbundn- um hætti í Reykjavik kl. 10 að morgni og verður athöfn á Austurvelli. I öðrum atriðum hátíðarinnar verður lögð áherzla á þátt æskunnar og verður íþróttahátíð síðdegis, þar sem þátttakendur verða á aldrinum 10—18 ára úr skólum og íþróttafélögum borgarinnar. FJÖLBREYTT LISTAHATIÐ Listahátíð verður haldin í Reykjavík 7.—21. júni. þar sem margir kunnir innlendir og erlendir listamenn koma fram. I báðum leikhúsunum í borg- inni verða sýnd íslenzk leikrit, flutt verður islenzk ópera og efnt til sýningar á íslenzkri list í aldanna rás. Píanóleikarinn Vladimír Ashkenazy hefur unnið að undirbúningi hátíðarinnar ásamt listahátíðarnefnd og leik- ur hann sjálfur á hljómleikum, sem verða á dagskrá hátíðar- innar. Af þátttöku erlendra listamanna, sem þegar er ákveðin, má nefna Sinfóníu- hljómsveit Lundúna undir stjórn André Previn, hljóm- Ieika óperusöngkonunnar Renata Tebaldi, pianóleikarans Daniels Barenboim, fiðlu- leikarans Zuckermann og bassasöngvarnas Tavela frá Finnlandi. Fluttur verður jass- konsert með þátttöku Banda- ríkjamannsins John Danskworth og balletflokkur Tanz Forum frá Köln heldur sýningu. Þá eru væntanlegir margir aðrir listamenn frá Norðurlöndum. I samvinnu við íþróttabanda- lag Reykjavikur efnir þjóð- hátíðarnefnd til fjögurra daga iþróttahátíðar í Reykjavík dag- ana 30. júní til 3. júli. Keppt verður í hinum ýmsu greinum Óperusöngkonan Rcnata Tebaldi kemur m.a. á listahátfð. íþrótta, svo sem knattspyrnu, sundi, júdó, lyftingum, frjáls- um íþróttum, badminton, tennis, handkanttleik, sigling- um og róðri. Þá verða einnig sýndir fimleikar. Úrvalslið frá Norðurlöndum, að Færeyjum meðtöldum, ætla að sækja Reykvikinga heim á íþrótta- hátiðinni og taka þátt í henni. Iþróttahátíðin fer fram í iþróttamannvirkjum í Laugar- dal, nema siglingar og róður, sem keppt verður í á Skerja- firði. Aðalhátfðin f borginni. Aðalhátiðahöldin fara fram í borginni dagana 3. 4. og 5. ágúst með útiskemmtunum á Arnar- hóli og víðar um borgina. A laugardaginn verða barna- skemmtanir á 9 stöðum í borginni og skrautbúnir vagnar fará með skemmtikrafta milli stáða, Lítill lúðráflokkur úr skólum borgarinnar, leik- flokkur og nokkrir aðrir skemmtikraftar koma fram. Á Arnarhóli hefst aðalhátíðin kl. 14.00. Við setningarathöfn- ina kemur boðhlaupari með blys inn á hátíðarsvæðið og kveikir langelda að loknu boð- hlaupi, sem hefst tveimur sólar- hringum áður við Ingólfshöfða. Meðal dagskráratriða verður frumflutningur Filharmoniu- kórsins og Sinfóníuhljómsveit- arinnar á nýju tónverki eftir Jón Þórarinsson tónskáld. Flutt verður samfelld söguleg dag- skrá, sem Bergsteinn Jónsson cand. mag. hefur tekið saman, en í henni verða raktir helztu þættir úr sögu Reykjavikur. Skemmtikvöldvaka verður á Arnarhóli kl. 20, en dans verð- ur síðan stiginn í hverfum borg- arinnar fram yfir miðnætti. A sunnudagskvöld verður knattt- spyrnuleikur milli úrvalsliðs Kaupmannahafnar og Reykja- víkur á Laugardalsvellinum, en á mánudag verður aftur kvöldvaka á Arnarhóli og flutt ýmis tónlistaratriði og dans á Lækjartorgi, en hátíðinni slitið með flugeldasýningu við Arnarhól skömmu fyrir mið- nætti. Iþróttir verða meginstofn hátíðahaldanna á sunnudag og fara þau fram í Laugardalshöll og Sundlaugunum í Laugardal, en milli íþróttaatriða verður teflt með lifandi taflmönnum, klæddum fornmannabúning- um. Á mánudeginum verða barnaskemmtanir úti í borginni og samfelld dagskrá kl. 2 á Arharhóli. Þar fara fram ræðu- höld og þjóðdansasýning og fluttir verða þættir úr gömlum revíum. Þá syngur líka Pólyfón- kórinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.