Morgunblaðið - 26.01.1974, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JANUAR 1974
Það Eyjafólk, sem hefur getað flutzt til Eyja og fengið húsnæði þar í allri
húsnæðiseklunni, hefur verið fljótt að koma eðlilegum svip á mannlffið þar.
Þessa mynd tók Sigurgeir í Eyjum af börnum að leik á barnaleikvellinum við
Boðaslóð.
70 ný skip í flotann
og 62 skip í smíðum
Tíðar bilanir á Stál-
víky hinum nýja skut-
togara Siglfirðinga
UM síðustu áramót var íslenzki
skipastóllinn samtals 983 skip.
samtals 154,168 hrúttólestir, en
auk þess voru skráðir 1070 opnir
vélbátar — samtals. 3.385 brl.
Islenzk þilfarskip eru nú 902 að
tölu og samtals 90.510 brl.
Þessar upplýsingar er að finna í
riti Siglingamálastofnunar ís-
lands — Skrá yfir islenzk skip
1974 og þar kemur ennfremur
fram, að á árinu 1973 bættust i
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi athugasemt frá Jóni
Þórarinssyni, dagskrárstjóra hjá
Sjónvarpinu með ósk um birt-
ingu.
Ólafur Haukur Símonarson
hefur látið hafa eftir sér i blaða-
viðtölum hvað eftir annað að
undanförnu, að hann hafi látið af
umsjón með sjónvarpsþættinum
Vöku vegna „grundvallarágrein-
ings“ um efni þáttarins og vegna
„ofríkis’* og „ritskoðunar" af
hálfu undirritaðs.
Staðreyndir málsins eru þessar:
Ráðningartími Ólafs Hauks
SKIPAÐIR AÐSTOÐAR-
MENN SÁTTASEMJARA
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
fréttatilkynning frá ríkisstjórn-
inni, þar sem segir, að rfkisstjórn-
in hafi á fundi sínum í fyrradag
samþykkt að skipa þá Ölaf
Björnsson prófessor og ilalldór
Jakobsson framkvæmdastjóra í
sáttanefnd til aðstoðar sáttasemj-
ara ríkisins við lausn kjaradeilu
Alþýðusambands íslands og
\ innuvei tendasambands íslands.
Sýninguraii á K jarvab-
stöðum að l júka
SÝNINGU á listaverkum í eigu
Reykjavíkurborgar, sem nú
stendur yfir á KjarvalsStöðum,
lýkur á sunnudagskvöld, kl. 22.
Hins vegar verður Kjarvalssýn-
ingin áfram alveg til vors. Aðsókn
hefur verið mjög góð á báðar
þessar sýningar. Strax og sýning-
unni á Reykjavíkurmyndunum
lýkur verður sá salur tekinn und-
ir alþjóðlega skákmótið, sem hér
á að halda.
íslenzkan skipastól alls 70 skip
samtals 19.851 brl., en árið áður
bættust við 75 skip, en aðeíns
8.167 brl. í fjölguninni á sl. ári
eru nýju skuttogararnir mest
áberandi, en auk þeirra voru
keypt sex flutningaskip — Sæ-
borg, Saga, Disarfell, Norðri,
Kyndill og Hvalnes.
Skuttogurum fjölgaði um 22 á
árinu 1973, þeir voru um áramót-
in 1972-73 alls 10 og samtals 4.993
Símonarsonar sem umsjónar-
manns Vöku rann út um áramót
og hafði engin ákvörðun verið
tekin um að óska eftir framleng-
ingu hans. Má því segja að „af-
sögn“ umsjónarmannsins hafi
verið ónauðsynleg.
Þá þrjá mánuði, sem Ólafur
Haukur Símonarson stárfaði við
Vöku, kom aldrei til neins
„grundvallarágreinings" um efn,
hennar okkar á milli af þeirri
einföldu ástæðu, að hann setti
aldrei fram við mig neinar hug-
myndir um breytingar á þætt-
inum. Hafi einhverjar slíkar hug-
myndir verið uppi, komu þær
aldrei til minna kasta né heldur
útvarpsráðs, sem hefur úrslita-
vald um dagskrá Sjónvarpsins
sem kunnugt er. Verður þvf varla
sagt, að reynt hafi verið .til
þrautar að vinna „hugsjónum"
umsjónarmannsins brautgengi.
Óskylt mál þessu er það, að ég
hef að svo komnu ekki séð mér
fært að stuðla að flutningi nema 5
af 7 leikþáttum fyrir börn, sem
Ólafur Ilaukur Símonarson hefur
samið fyrir sjónvarp sfðan í sum-
ar. Ef einhverjum finnst hér slæ
lega að unnið af minni hálfu, eða
ef einhverjum þykir nauðsynlegt
að sýna börnunum meira af
„Krökkunum í Kringlugötu"
(sem höfundur af einhverjum
ástæðum virðist ekki lengur
muna nafnið á), þá er það mál,
sem útvarpsráð verður að fjalla
um.
Einu beinu afskipti mín af rit-
stjórn Vöku á umsjónartíma Ólafs
Hauks Símonarsonar — og þó
raunar ekki fyrr en hann hafði
sagt af sér starfinu, — eru þau, að
ég lét fella niður úr þættinum 29.
desember síðastliðinn ummæli
Björns Th. Björnssonar um jóla-
dagatal Umferðarráðs og Sjón-
varpsins, ekki vegna þeirra skoð-
ana, sem þar komu fram, heldur
Framhald á bls. 18
brl., en á sl. ári jókst samanlögð
stærð þeirra um 11.565 brl. Alls
eru eiginlegir togarar nú 51 tals-
ins, samtals 29.810 brl. I skránni
kemur einnig fram, að þilfars-
fiskiskip undir 100 brl. eru nú
alls 631 og samtals 19.077 brl. —
fiskiskip frá 100—499 brl. eru alls
248 talsins og samtals 52.759 brl.
og fiskiskip 500—999 brl. eru alls
26 og samtals 20.016 brl.
Mikill fjöldi skipa var í smíðum
og umsamin fyrir fsl. kaupendur
um þessi áramót. Innanlands voru
þá alls i smíðum 44 skip — sam-
tals 2.029 brl. Af þessum skipum
eru 14 stálfiskiskip og 30 tréfiski-
skip. Þannig er eitt 103 lesta stál-
fiskiskip i smíðum á Akranesi, tvö
á ísafirði, fjögur á Akureyri og í
Garðahreppi einn skuttogari.
Erlendis eru í smíðum eða um-
samin alls um 18 skip — samtals
um 11.571 brl., og eru það allt
skuttogarar utan eitt varðskip.
Tveir þessara togara eru í smið-
um í Frakklandi, tveir í Noregi,
fimm i Póllandi og átta á Spáni.
Varðskiptið er sem kunnugt er i
smíðum í Danmörku.
Þá kemur fram í fyrrgreindu
riti, að alls voru 39 skip strikuð út
af skipaskrá á sl. ári — samtals
10.926 brl. Eins er þar skrá yfir
aldur skipa, og kemur í ljós, að
elzta skipið á skrá er smíðað 1894.
Skip smfðuð fyrir 1946 eru þó
aðeins 126 — samtals um 4.374
brl., en alls 566 skip — alls
103.938 brl. eru smiðuð árið 1960
og síðar.
HINN nýi skuttogari Siglfirðinga
— Stálvík, sem smíðaður var hjá
skipasmíðastöðinni Stálvík í
Garðahreppi, liggur nú I Isa-
fjarðarhöfn vegna bilunar í vél,
og á viðgerð að fara þar fram.
Stálvík hefur verið á Isafirði
undanfarin hálfan mánuð og
sækist viðgerðin seint. Mikilla og
margvíslegra bilana hefur orðið
vart i togaranum allt frá þvi að
hann kom til Siglufjarðar. Þannig
var það fyrir jólin, að togarinn
kom til hafnar eftir stutta sigl-
ingu og höfðu þá vatnsleiðslur í
skipinu sprungið. Voru þær úti
við síðu á skipinu og óeinangr-
aðar. Þá hafa einnig verið tíðar
bilanir í fjarskiptakerfi skipsins
og eins i radar þess.
Bilunin í vélinni er þó umfangs-
mest, en ekki er fyllilega ljóst, af
hverju hún stafar. Vitað er, að
fyrir nokkrum vikum fékk tog-
arínn drasl í skrúfuna, er hann
vjr á leið inn til ísafjarðar. Kaf-
ara á ísafirði tókst þá ekki að ná
draslinu úr skrúfunni og varð að
fá björgunarskipið Goðann með
tvo kafara til að vinna verkið. Allt
siðan þá hafa bilanir á vél skips-
ins verið tiðar — eitt sinn átti
togarinn til að mynda að fara til
Akureyrar, þar sem norskur sér-
fræðingur beið til að líta á hann,
en gafst upp eftir skamma sigl-
ingu og varð að draga hann á
leiðarenda. Þá hefur það komið
fyrir, að togarinn hefur verið á
ferð áfram en óvænt tekið að snú-
1 BÆJARÞINGI Reykjavíkur var
fyrir nokkru kveðinn upp dómur
f máli, sem einstaklingur í
Reykjavík höfðaði gegn Bygg-
ingarsamvinnufélagi atvinnu-
bifreiðastjóra í Reykjavík og
nágrenni. Var BSAB dæmt til að
greiða honum vísitöluuppbót
(samkvæmt húsbyggingarvísi-
tölu) á fjárhæð, sem hann hafði
lagt í íbúðarbyggingu hjá
félaginu, en síðan fengið endur-
greidda eftir að hann ákvað að
hætta við fbúðarbygginguna
vegna seinkunar á byggingu
hennar.
Var ákvæði i byggingarsamn-
ingnum um, að félagið skyldi í
tilviki sem þessu endurgreiða
honum framlag sitt án
vaxta, en að viðbættri hækk-
un samkvæmt húsbygging-
ast afturábak, líkt og gerðist með
Júní í Hafnarfjarðarhöfn.
Þessar tíðu bilanir á Stálvík
hafa þegar valdið útgerð togarans
hundruð þúsunda króna tjóni,
auk þess sem skipið hefur ekkert
getað stundað veiðar að ráði. Þó
er gert ráð fyrir, að útgerðin fái
tjónið bætt í gegnum tryggingar,
því að skipið er enn innan 6 mán-
aða ábyrgðartíma framleiðenda.
Sú ábyrgð er þó háð þvi, að í ljós
komi, að hér sé um að ræða fram-
leiðslugalla.
Tékkneska
bamasýning-
in út á land
MYNDLISTARSÝNING tékkn-
eskra barna, sem var í Bogasal
Þjóðminjasafns fyrir skömmu,
verður nú um helgina sett upp á
Akureyri og Egilsstöðum, en
myndum hefur verið skipt milli
staðanna til sýningar og munu
þær síðar verða sýndar á Húsavík.
Á Akureyri verður sýningin í
gagnfræðaskólanum á laugardag
og sunnudag, kl. 14—19 fyrir
almenning, en á mánudag, þr'iðju-
dag og miðvikudag er sýning sér-
staklega fyrir skólanemendur.
Á Egilsstöðum er sýningin i
skólahúsinu laugardag og
sunnudag, kl. 14—20.
arvfsitölu, (að frádregn-
um umboðslaunum, auglýs-
ingakostnaði og öðrum óhjá-
kvæmilegum kostnaði). Stjórn
BSAB hafði, nokkrum mánuðum
eftir að viðkomandi byggingar-
samningur var undirritaður, gert
samþykkt um, að vísitölubætur
skyldu greiddar, ef innistæða
hefði staðið á byggingar-
reikningi i minnst eitt ár.
Sá einstaklingur, sem mál-
ið höfðaði, hafði hins vegar
ekki átt innstæðu á sínum
byggingarreikningi nema i níu
mánuði og neitaði félagið af
þeirri ástæðu að greiða honum
vísitöluhækkunina. Fleiri rökum
studdi BSAB sýknukröfu sina í
málinu, en borgardomari og með-
dómendur hans, prófessor og
tryggingafræðingur, tóku sýknu-
kröfuna ekki til greina, heldur
dæmdu félagið til aðgreiða mann-
inum vísitöluhækkunina.
Þess má geta, að BSAB á nú i
fjölmörgum málum gegn aðilum,
sem höfðu gert við félagið
samninga um byggingu á ibúðum,
og er i mörgum málanna, m.a.
deilt um túlkun á ákvæðum bygg-
ingarsamnings. I ofangreindu
máli. er samningurinn einnig
ágreiningsefnið og BSAB tapar
því máli í undirrétti. Hins vegar
hefur félagið áfrýjað dómnum til
Hæstaréttar.
2 skip seldu
TVÖ skip seldu afla sinn erlendis
f gær. Rán frá Hafnarfirði seldi i
Hull — samtals 106 tonn fyrir
24.833 pund, eða 4,7 milljónir kr.
Þá seldi Gunnar frá Reyðar-
firði stórufsa i Bremer-
haven — samtals 74 tonn fyrir
115 þúsund mörk, eða sem næst
3,5 milljónir króna.
Áfengi svolgrað fyrir
rúma 2 milljarði kr.
HEILDAR-SALA áfengis á
síðastliðnu ári nam samtals
tveimur milljörðum og 56
milljónum króna í útsölum
ATVR um allt land. Heildar-
salan á þessu ári var rúmlega
550 milljónum meiri en árið
1972, en þess ber að gæta, að
útsöluverð áfengis hækkaði
nokkuð. Siiluaukningin árið
1973 frá árinu á undan varð
37,7%. í Reykjavík seldist
áfengi á sl. ári fyrir um 1.6
milljarð, fyrir rúmar 200
milljónir króna á Akureyri og
um 100 milljónir króna í Kefla-
vík.
Neyzluaukningin á árinu
1973 var tæp 5,5% eða 0,07 lítri,
en áfengisneyzlan á mann mið-
að við 100%áfengi var á árinu
2,88 lítrar og hefur ekki verið
meiri. íslendingar eru þó ekki
ýkja miklir drykkjumenn —
miðað við skrá áfengisvarna-
ráðs um neyzlu á hvern íbúa í
ýmsum löndum árið 1971. Það
árið var neyzlan hér á mann i
100% lítrum alls 2,7 og erurn
við i 30. sæti. Hafa verður þá í
huga, að hér er ekkert sterkt öl
og lítið drukkið af léttum
vínum. Miðað við neyzlu
sterkra drykkja erum við mun
ofar, eða í áttunda sæti.
Staðreyndir um Vöku
Fékk dæmda vísi-
töluuppbót við riftun
byggingarsamnings