Morgunblaðið - 26.01.1974, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.01.1974, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JANÚÁR 1974 Petra Pétursdóttir Þann 17. janúar s.l. andaðist á Akranesspítala Petra Pétursdótt- ir eftir stutta legu, en mér brá ónotalega við, þó að ég vissi reyndar, að hún var lengi búin að vera lasin, og eflaust meira þjáð en hún lét á bera. Petra Pétursdóttir var fædd í Reykjavík 13.12. 1911. Dóttirhjón anna Agústínu Þorvaldsdóttur og Péturs G. Guðmundssonar bók- bindara og var hún ein af 6 börn- um þeirra hjóna og eru þrjú þeirra á lífi. Petra var mjög vel gefin og fyrir margar sakir sérstakur per- sónuleiki og enga hef ég þekkt, sem eins var laus við að óska sér til handa tildur heimsins eða sækjast eftir veraldargæðum eins og við köllum það. Lífið hagaði því þannig, að það var hennar hlutskipti ámiðjum aldriaðverða húsfreyja í sveit, nánar tiltekið að Skarði f Lundarreykjardal, er hún giftist seinni manni sínum, Hjálmi bónda Þorsteinssyni og þó hún væri Reykvíkingur og hefði alið þar aldur sinn fram til fert ugs, þá var eins og sveitin leysti úr læðingi það, sem hugur hennar hneigðist að og margar góðar vfs- ur og kvæði orti hún þar efra. Ræðumaður var hún góður og vel ritfær. Reykjavíkurbarn var Petra eins og við skyldfólk og vinir kölluðum hana og fróð um bæinn sinn eins og kannski marg- ir muna, er hún gekk með Jökli Jakobssyni um götur Miðbæjarins og rifjaði upp gamlar minningar á sinn skilmerkilega hátt. Það var eins og að lesa góða bók um Reykjavík og rabba við Petu. Ætt- fróð var hún með afbrigðum og ættfræði henni hugfólgið við- fangsefni og hefði hún getað grúskað í þeim fræðum enda- laust. I félagsmálum var hún og fróð og hafði hún sínar skoðanir á þeim málum eins og öðru, sem hún hneigðist að. Hún var við nám í Verzlunarskóla íslands og efa ég það eigi, að hún hefði náð þar góðum árangri með áfram- haldandi námi. Ung giftist hún Guðna Guð- mundssyni, fæddum hér í bæ, góðum dreng. Þau slitu samvist- um. Hann dó á'bezta aldri. Börn áttu þau þrjú: Eddu, stúdent, gifta Gunnari Sæmundssyni, lög- fræðing, son sinn Guðmund misstu þau ungan, mesta efnis- mann, sem var við nám f Háskóla islands og var það þeim mikil lífsreynsla, en yngsur er Þorvald- ur, kjötiðnaðarmaður, nú bóndi að Skarði, kvæntur Ingibjörgu Þorgilsdóttur. Hjálmur reyndist börnum hennar góður stjúpfaðir, enda öðlingsmaður. Petra mágkona mín fékk að finna fyrir þeim erfiðleikum i líf- inu sem margir reyna, en aldrei heyrði ég hana kvarta og var það eitt af hennar aðalsmerkjum og fjar henni að bera raunir sínar á torg, en lífið hafði líka margar bjartar hliðar, sem hún þakkaði. Ég þakka Petu fyrir margar glaðar stundir, sem við áttum sam an og mun það ekki vera að henn- ar skapgerð að sýta. Eflaust er það þakkarvert hverjum, sem fær lausn frá þjáningum sinum áður en þær verða óbærilegar og enga hjálp að fá. Manni hennar og börnum og öðrum skyldmennum votta ég samúð mína og vona að sú sól, sem farin er að hækka á lofti megi ylja þeim. ÖIl geymum við minninguna um góðan vin og samferðarmann. Hún verður jarðsett að Lundi í Borgarfirði í dag. Svava Ölafsdóttir Svanborg Sigurðar- dóttir — Mumingarorð 1. október 1901 18. janúar 1974 Þegar niskið fólk fellur í valinn að loknu ævistarfi og genginni ævihamingju og æviraunum, hverfur það oftast furðu hljóð- lega af sviðinu. Aðeins þeir, sem næstir standa, veita því athygli, að skarð er komið í hópinn, þótt lífið haldi áfram sinn gang eins og t Móðir okkar GUDRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR Hnlfsdalsveg 8, fsafirði lézt í Landspítalanum fimmtu- daginn 24. janúar. Börn hinnar látnu. t Hjartkær maðurinn minn HÖRÐUR SIGFÚSSON, Barðavogi 26, lézt á Borgarspitalanum, 24 þ.m. Jóhanna Guðmundsdóttir. + Eiginmaður minn og faðir okkar BJARNI GUÐMUNDSSON Framnesvegi 13 verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 13.30 Blóm vinsamlega afbeðin, en þeim sem vilja bent á líknarstofnanir 28 janúar kl. minnast hans er Maria Jónsdóttir Jón Bjarnason Svala Bjarnadóttir Rafn Bjarnason + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför SIGRÍDAR BJARNADÓTTUR frá Krossbæ ! Hornafirði. Sérstakar þakkir viljum við færa Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrír góða umönnun Vandamenn. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, GUÐNÝJAR GUÐJÓNSDÓTTUR frá Vik i Fáskrúðsfirði. Friðbjörn Þorsteinsson, Aðalsteinn Friðbjörnsson, Áslaug Friðbjörnsdóttir, Guðmundur Magnússon, Sigurpáll Friðbjörnsson, Jóna Mortensen, Jón Friðbjörnsson, Sveina Lárusdóttir, Björn Friðbjörnsson. Ólafia Jónsdóttir, Geir Friðbjörnsson, Þórhallur Friðbjörnsson, Egíll Friðbjörnsson, Guðiaug Þórðardóttir. ekkert hefði í skorizt. Slik verða örlög okkar flestra, að fljótt skef- ur í förin og fá menn ekki spornað við. Kannski á þetta við enga frekar en þá, sem árum sam- an hafa barizt við þjáningar og heilsubrest og beðið endalokanna, sviptir öllum ráðum til þess að láta að sér kveða, starfa og njóta sín, en reyna þó í vanmætti sínum að neyta takmarkaðrar orku til að halda í horfinu og hlynna að þeim eldum, er þeir kveiktu og önnuð- ust ungir. Þannig finnst mér, aðorðið hafi að lokum örlög mágkonu minnar, Svanborgar Sigurðardóttur, Stigahlíð 32. Hún hefur nú lokið ævistríði sínu eftir nærri tíu ára þrotlausan sjúkdóm, andaðist á Landakotsspftala hinn 18. þ.m. og verður jarðsett í dag. Svanborg fæddist f Riftúni í Ölfusi 1. október 1901, og voru foreldrar hennar hjónin Pálfna Guðmundsdóttir og Sigurður Bjarnason, er þar bjuggu allan sinn búskap og áttu fjölda barna. A barnmörgu heimili var lifsbar- áttan hörð um þessar mundir og ekkí um annað að ræða en að börnin björguðu sér sjálf, þegar þau höfðu aldur og þrek tií. Svan- borg varð þvf snemma að sjá fyrir sér, og ung að árum fluttist hún til Reykjavíkur, þar sem hún dvaldist æ síðan. Á þessum árum eignaðist hún dóttur, Fjólu Haildóru Halldórsdóttur, ágæta konu, sem nú er gift Ingvari Guð- jónssyni, er vinnur hjá Orku- stofnuninni. Arið 1927 giftist hún Hallgrfmi Péturssyni sjómanni og síðar vél- stjóra frá Hesteyri og stofnuðu þau heimili hér í bæ. Skömmu seinna gekk heimskreppan mikla í garð, og gerðist þá þungt fyrir fæti á mörgu alþýðuheimili og heldur dimmt að horfa fram á veginn. Þau Svanborg og Hallgrímur eignuðust þrjá syni. Einn þeirra andaðist f bernsku, en hinir eru Rafnar Sverrir vélstjóri við Anda- kilsárvirkjun, kvæntur Rósu Öskarsdóttur, og Kristinn Vignir hagfræðingur hjá Seðla- bankanum, kvæntur Önnu + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför ÖNNU L. TÓMASDÓTTUR frá Vikum Karl Árnason og fjölskylda. Minning: Árni Einarsson klœðskerameistari Fæddur4. desember 1886. Dáinn 19. janúar 1974. Árni fæddist að Ánanaustum hér i borg fyrir 87 árum. Árni ólst upp í foreldrahúsum ásamt 6 syst- kinum, Guðmundi, Ölafi, Emilíu, Guðrúnu, Ágústu og Sveinbjörgu, sem var fóstursystir þeirra. Foreldrar Árna voru Einar Guðmundsson og Margrét Bjarna- dóttir, sem bjuggu fyrst f Ána- naustum en fluttust síðar á Vest- urgötu 53. Eftir barnaskólanám fór Árni á Iðnskólann og lagði stund á klæðskeranám hjá Frið- rik Eggertssyni. Arni starfaði síð- an hjá ýmsum klæðskerameistur- um og fór m.a. til Danmerkur og Þýskalands, þar sem hann stund- aði iðn sína. Arni stofnaði sitt eigið klæðskeraverkstæði f Kola- sundi skömmu eftir, að hann kom frá útlöndum árið 1911. Nokkru síðar gekk Bjarni Bjarnason í fé- lag við Áma og ráku þeir lengst Lorange. En auk þess ólu þau hjón upp sonarson sinn Sigurð Pál Sverrisson. Seinna greiddist hagur þeirra eins og hjá fleirum, og þau gátu stutt syni sína til þeirrar menntunar, sem hugur þeirra girntist. Þau hjón voru gestrisin og glöð heim að sækja, enda oft margt um manninn á heimili þeirra. Ég átti þar oft ánægjulegar stundir, meðan húsmóðurinnar naut við. Við heilsubrest hennar dró dimman skugga yfir heimilið, en vænt þótti henni sem áður um, ef vinir og kunningjar litu inn til hennar. Fyrir þessar ánægju- stundir og önnur kynni, sem öll voru góð, þakka ég nú að leiðar- lokum og sendi nánustu aðstand- endum, manni hennar, börnum og tengdabörnum, samúðarkveðju. Haraldur Sigurðsson. af klæðskeraverkstæði sitt að Bankastræti 9 undir nafninu „Ámi og Bjarni“, en við það fyrir- tæki mun flestir eldri Reykvík- ingar kannast. Árið 1920 kvænt- ist Arni Guðrúnu Árnadóttur frá Austurbakka i Reykjavík. Hófu þau búskap á Rauðarárstig 5, þar sem nú stendur Búnaðarbanka- húsið. Þar eignuðust þau 6 börn, Árna, Einar, Margréti, Rann- veigu, Ólaf og Gunnar. Auk þess ólust upp hjá þeim 3 börn Guð- rúnar frá fyrra hjónabandi, þaru Arndis Kristín, Elín Magdalena og Kristinn. Gekk Árni þeim í föðurstað og leit alltaf á þau sem sín eigin börn. Árið 1933 fluttist Árni með fjölskyldu sfna að Berg- staðastræti 78 þar sem þau hjónin bjuggu til dauðadags. Árni missti konu sfna árið 1960 en bjó áfram á Bergstaðastræti ásamt börnum sínum Margréti og Einari. Síðar fluttist Arndís þangað og átti Árni mjög góða elli í umsjá þess- ara barna sinna auk þess sem hin börnin heimsóttu hann oft og létu sér mjög annt um alla hans vel- ferð og líðan. Ég kynntist Árna fyrir 25 árum og þykir mér fengur í því að hafa kynnst slíkum manni. Hann var ákaflega barngóður og hændust börn, tengdabörn og barnabörn mjög að heimilinu á Bergstaða- stræti, enda móttökurnar alltaf jafnhlýlegar. Framhald á bls.23. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar, ÞORLEIFS SIGURDAR SIGURÐSSONAR, Laufey Sigurðardóttir, Sigurður Sigurðsson. + Þökkum sýnda virðingu við minningu móður okkar, tengdamóður og systur, MARENAR PÉTURSDÓTTUR, og hlýjar kveðjur. Ragnheiður Baldursdóttir, Páll Hafstað, Anna Gísladóttir, Sigurður Baldursson, Sigríður Þorvaldsdóttir, Kristinn Baldursson, Ólafía Pétursdóttir. + Öllum fær og nær, sem auðsýnt hafa samúð með skeytum, blómum og gjöfum til barnanna i minningu og við útför hjónanna ÓLAFAR INDRIDADÓTTUR og GÍSLA GUNNBJÓRNSSONAR OG SONA ÞEIRRA, flytjum við hjartans þakkir og óskir um blessun Guðs um alla framtið. Fh. aðstandenda Guðríður Gisladóttir, Gunnbjörn Björnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.