Morgunblaðið - 26.01.1974, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.01.1974, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1974 25 fclk f fréttum □ HATARAÐ BÚA Á HÓTELUM. Hilton, nafnið er lykilorð — já, hótellykilorð. Um allan heim er að finna Hilton-hótel, alls 115 talsins, og öll eru þau í eigu eins manns, sem heitir Hilton, eða svo nákvæmar sé farið út í það: William Barron Hilton. Hann hatar að búa á hótelum og kýs helzt að halda sig með konu sinni Marlyn og börnum sínum (á myndinni er Saron, 19 ára) í gömlu húsi í Kaliforniu, sem hann nefnir Hilton Hilton. □ Sundsprettur á janúarmorgni. Hena Rudzka er snyrtisérfræðingur — og veit hvað er bezt til að halda húðinni góðri og fegurðinni sem mestri. Hún fær sér sund- sprett i sjónum á hverjum morgni kl. hálfsjö — á meðan flestir aðrir borgarar eru steinsofandi eða kannski rétt að vakna til að mæta nýjum degi. Og Henu er ekkert kalt í sjöbaðinu sínu, því að hún býr skammt frá Perth í Astraliu og þar er hásumar núna — í janúar- mánuði. □ FINNST YKKUR HUN LÍKA LJÓT? Finnst ykkur franska leik- konan Jeanne Moreau ljót? Ungverska leikkonan Hella Petri hefur látið þá skoðun í ljós — þó með mjög lofsam- legri viðbót: „Hún er mjög göfuglynd manneskja, og þar á ég við, að hún er gjörsamlega laus við það miskunnarleysi, sem flest- ar franskar toppstjörnur hafa. Hún er i raun ljót, a.m.k. er hún ekki ímynd raunverulegr- ar fegurðar. En hún er aðlað- andi persónuleiki og afar greind leikkona." Þeir eru likir þessir þrír, enda fannst lögreglumönnum i New York það líka. Sá i miðið er tvitugur að aldri og var handtekinn vegna gruns um að hafa framið rán og kynferðisglæpi. Hann játaði verknaðina á sig. Við það var piltinutn til vinstri við hann á myndinni sleppt úr haldi, en hann hafði verið grunaður um að hafa framið verknaðina. Sá er 19 ára gamall námsmaður, sem hefur unnið til verðlauna fyrir námsafrek sín. Sá þriðji, til hægri á myndinni, hafði einnig verið handtekinn vegna gruns um að hann væri sá seki, en hann gat sannað sakleysi sitt og var þá sleppt. Útvarp Reykjavík t LAUGARDAGUR i6.o() Fréttir 26. janúar 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.20. Frétiir kl. 7.30, 8.15 og (forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Knútur R. Magnússon heldur áfram lestri sögunnar „Villtur vegar" eftir Oddmund Ljone (19). Morgunleikfimi kl. 9.20. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög á milli liða. Morgunkaffið kl. 10.25: Páll Heiðar Jónsson og gestir hans ræða um útvarpsdagskrána. Auk þess sagt frá veðri og vegusn. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.25 Fréttir og veðurfregni. Tilkynning- ar. 13.00 óskalög sjúklinga Kristín Svein- björnsdóttir kynnir. 14.30 Iþróttir Umsjónarmaður: Jón As- geirsson. 15.00 Islenzkt mál Ásgeir Blöndal Magnússon cand. mag. flytur. 15.20 Utvarpsleikrit barna og unglinga: „Bláskjár": fyrri hluti Kristján Jóns- son færði samnefnda sögu eftir Franz Hoffmann í leikritsform og stjórnar flutningi. Aður Utv. fyrir 13 árum. Per- sónur og leikendur: Sögumaður .........Ævar R. Kvaran Bláskjár....................Halldór Karlsson Ella...................Iris Blandon Svarti Eiríkur ..Haraldur Björnsson Móa gamla ............Inga Blandon Valtýr .................örn Blandon Hinrik vinnumaður ... Jónas Jónasson Ræningi ...........Kristján Jónsson 16.15 Veðurfregnir Tíu á toppnum örn Petersen sér um dægurlagaþátt. 17.15 Framburðarkennsla I þýzku 17.25 Tónleikar. Tilkynningar. 18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55 Tilkynningar. 19.00 Veðurspá F'réttaspegill 19.20 Framhaldsleikritið: „Sherlock Holmes44 eftir Sir Arthur Conan Doyle og Michel Hardwick (áður útv. 1963) Fimmti þáttur: Vistmaðurinn. Þýðandi og leikstjóri Flosi Olafsson. Porsónur og leikendur: Holmes...........Baldvin Halldórsson Watson Rúrik Haraldsson Trevillian ............Lárus Pálsson Blessington Gísli Halldórsson Gréfinn Gestur Palsson Ivan ............Bjarni Steingrímsson Lestradi Þ<frstoinn Ö. Stephensen 20.00 Þekkt hljómsveitarverk Lou Whiteson og hljójnsveit hans leika. 20.30 Frá Norðurlöndum Sigmar B. Hauksson talar. 20.55 Langstökkið Jón Ingvarsson les smásögu eftir Tryggva Þorsteinsson skólastjóra. 21.15 Hljómplöturahb Þorsteinn Hann- esson bregður plötum á fóninn. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Þorradans útvarpsins Meðal danslaga- flutnings af hljómplötum verður klukkustundasyrpa með gömlum dans- lögum, sem íslenzkar hljómsveitir leika. (23.55 Fréttir í stuttu máli.) 01.00 Dagskrárlok. jr_ A skjánum * LAUGARDAGUR 26. janúar 1974 17.00 Iþróttir Meðal efnis i þættinum verður um- ræðuþáttur um íþróttir og listir, mynd frá íslandsmótinu í handknattleik, og n\vnd Urensku knattspyrnunni. Umsjónarmaður Ömar Ragnarsson. 19.15 Þingvikan Þáttur um störf Alþingis. Umsjónarmenn Björn Teitsson og Björn Þorsteinsson. 19.45 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Söngelska f jölskyldan Bandariskur söngva- og gamann\vnda- flokkur. Þýðandi Hcba Júliusdóttir. 20.50 Vaka Dagskrá um bókmenntir og listir. 21.30 Alþýðulýðveldið Kína Breskur fræðslumyndaflokkur úm þjóðlíf og menningu i Kinaveldi nútímans. 3 háffur Þýðandiog þulurGylfi Pálsson. 21.55 Öhreinir englar (Angels With Dirty Faces) Bandarfsk biómynd frá árinu 1938. Aðalhlutverk James Cagney. Humphrey Bogart og Pat O'Brien. Þýðandi Heba Júlíusdóttir. Myndin gerist í New York. Aðalpersón- urnar eru tveir götustrákar, sem cru miklir mátar og virðast eiga flest sam- eiginlegt. En hlutskipti þtúrra í lífinu verður ólíkt, þótt starfsvettvangur þeirrasé í vissumskilningi hinn sami 23.30 Dagskrárlok. SUNNUDAGUR 27. janúar 1974. 16.30 EndurfPkið efni Hmleikahátfð í Laugardalshöll Sjimvarpsupptaka frá fjölmennri fim- leikasýningu, sem haldin var seint á síðasta ári. Aður á dagskrá 1. janúar síðastliðinn. 18.00 Stundinokkar Sýnd verður norsk teiknimynd. sem nefnist ,,í búðinnr' og er hún úr myndaflokknum „Þetta er reglulega óréttlátt". Þar á eftir fer mynd um hunda og meðferð þeirra, og síðan syngur Hall- dór Kristinsson „Ingu-Dóru-visur ". Einnig er í stundinni mynd um Róbert bangsaog leikþáttur um Hatt og Fatt. Umsjónarmenn Sigríður Margrét Guð- mundsdóttir og Hermann Ragnar Stefánsson. 18.50 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veðurog augþ'singar 20.25 Ertþettaþú? Fræðslu- og leiðbeiningaþáttur um bif- reiðastöður og umferðastjórn lögregl- unnar. 20.35 Þaðeru komnir gestir U msjónarmaður Ömar Valdimarsson. Gestir þáttarins eru Baldvin Jónsson. Guðrún A. Simonar og Rögnvaldur Sigurjónsson. 21.10 Lýsistrata Gamanleikur eftir gríska leikskáldið Aristofanes. Sviðsetning Þjóðleikhússins. Leikstjóri Brynja Benediktsdóttir. Leikendur Margrét Guðmundsdóttir. Bessi Bjamason, Erlingur Gíslason. HerdLs Þorvaldsdóttir. Kristbjörg Kjeld, Sigurður SkUIason. Þóra Frið- riksdóttir og fleiri. Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson, Leikntið er talið samið árið 411 fyrir Krists burð og lýsir það tilraunum aþenskra kvenna til að draga úr áhuga eiginmannanna á vopnaburði og hemaði. 22.25 Kambódia Dönsk fréttamynd um Kamlxídíu og áhrif loftárása Bandarikjahers á land og þj óð. Þýðandiog þulur Jón O. Edwald. (Nordvision — Danskasjónvarpið) 23.05 Að kvöldi dags Séra Þónr Stephensen flytur hug- vekju. 23.15 Dagskrárlok fclk f [ fjclmiélum » Söngelska fjöl- skyldan fer að syngja sitt síðasta 1 kvöld kl. 20.25 er Söngelska fjölsk.vldan á dagskrá. Við höf- um minnzt á þá endemisfjöl- skyldu áður i þessum þætti, miðum vinsamlega. Nú höfum við fregnað eftir krókaleiðum, að fjölskyldan sé á undanhaldi, og séu nú ekki eftir nema örfáir þættir. Það er sorglegt með þennan myndaflokk, sem nú hefur verið sjónvarpað framan í áhorfendur vikulega í marga mánuði, að jafnvel nteð bezta vilja er ekkert hægt að telja honum til gildis, og er erfitt að gera sér í hugarlund, að nokkur hafi af honum ánægju. Þess vegna er það gleðiefni, að útlit er fyrir, að ósköpunum fari nú að linna. Bláskjár í útvarpinu Kl. 15.20 er útvarpsleikrit barna og unglinga á dagskrá, og verður nú fluttur fyrri hlutinn um Bláskjá. Bláskjár er eins og kunnugt er sígild barnasaga eftir Franz Hoffmann, og er óþarfi að rekja söguþráðinn hér. Kristján Jónsson hefur fært söguna í leikritsbúning, en leikritinu var áður útvarpað fyrir 13 árum. Kristján hefur starfað sem leikstjóri víða um land, og hefur hann m.a. starf- að á vegum Bandalags islenzkra leikfélaga. Einnig hefur hann lagt fyrir sig ritstörf, og hafa t.d. komið út eftir hann barna- bækur, sem hann skrifaði undir höfundarnafninu Örn Klói. Leikendur i Bláskjá eru sjö talsins, sögumaður er Ævar Kvaran, en Kristján Jónsson stjórnar flutningi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.