Morgunblaðið - 26.01.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JANUAR 1974
5
Kristbjörn
Tryggvason:
Hríngurinn
70ára
HRINGURINN, kvenfélagið, sem
allir þekkja og ekki síst börnin, er
í dag 70 ára gamalt, stofnað 26.
janúar 1904. Það voru 45 konur,
sem stofnuðu félagið, og fámennt
hefur það alltaf verið, aldrei fleiri
en 200 konur, sem mun vera nú-
verandi félagstala, en lengst af
munu starfandi félagar hafa verið
um 100. Það gegnir því furðu, hve
miklu félagið hefur fengið áorkað
á giftudrjúgum starfsferli, og
hlýtur hlutur hverrar félagskonu
að vera ærið stór, þegar litið er á
afköstin.
Segja má, að tveir þættir líkna-
mála hafi verið mest áberandi hjá
félaginu og hvor þáttur nú staðið i
35 ár. Við stofnun félagsins var
berklaveikin alvarlegasti sjúk-
dómurinn hérlendis og hjó stór
skörð í raðir unga fólksins. Þann
vágest tókst að kveða niður og
lögðu þar margir hönd á plóg, en
þáttur Hringsins var þar stærri
en almennt er vitað, því ekki var
öll hjálp tiunduð frekar þá en nú.
Áður en ríkið tók að greiða
sjúkrakostnað berklaveikra,
greiddi þetta fámenna félag
dvalarkostnað ótrúlega margra
sjúklinga og greiddi götu þeirra á
ýmsan hátt og lauk afskiptum sín-
um af þeirra málum með því að
byggja og reka Hressingarhælið í
Kópavogi um árabil og gefa siðan
ríkinu hælið til annarra þarfa,
þegar berklar voru sigraðir.
Strax var tekist á við nýtt
verkefni og hafin fjársöfnun til
barnaspítala árið 1939. Barna-
spftalasjóður Hringsins varð brátt
þekktur og vinsæll, gjafir
streymdu i sjóðinn, stórar og
smáar, en mestu munaði þó um
framlag félagskvenna sjálfra, sem
voru óþreytandi að finna nýjar og
frumlegar fjáröflunarleiðir og að
fáum árum liðnum var félagið til-
búið að hefja byggingu spítalans.
Af ýmsum ástæðum, sem ekki
verða raktar hér, liðu þó 15 ár uns
hafist var handa, en þá afhenti
félagið sjóði sína til viðbyggingar
Landspitalans og varð það bein-
linis forsenda þess, að sú bygging
var hafin. Barnaspítali Hringsins
var vigður árið 1965, eftir aldar-
fjórðungs þrotlaust starf
fámenns, en einhuga félags. Á
meðan verið var að byggja
spítalann gekkst félagið fyrir
stofnun barnadeildar við Land-
spitalann og greiddi allan búnað
deildarinnar, sem starfaði i rúm-
lega 8 ár.
Næsta verkefni var Geðdeild
Barnaspitala Hringsins, sem lokið
var við árið 1970 og en er haldið
áfram. Senn hefst nýtt 35 ára
tímabil stórra átaka, enn vantar
marg’ar stofnanir fyrir börnin
okkar og Hringurinn er stað-
ráðinn í að byggja það sem byggja
þarf í næsta áfanga.
i dag minnast félagskonur
afmælisins í félagsheimiíi sínu að
Ásvallagötu 1, en 15. febrúar
verður haldið hóf að Hótel Borg,
þar sem vonast er til, að vel-
unnarar félagsins fjölmenni.
Að endingu vil ég svo þakka
fyrir ánægjulegt samstarf sl. 35 ár
og óska félaginu allra heilla, gæfu
og gengis við næstu verkefni.
Kristbjörn Tr.vggvason.
Hestamannafélaglð Fákur
Árshátlð
félagsins verður haldin á Hótel Borg laugardaginn 2.
febrúar og hefst með sameiginlegu borðhaldi kl. 19.
Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstofu félagsins og hjá
Kristjáni Vigfússyni.
Borð- og miðapantanir verða að Hótel Borg milli kl. 1 7
og 19 fimmtudaginn 31. janúar og verða þá miðar
afhentir ef eitthvað er óselt.
Félagar fjölmennið á árshátíð ykkar.
Athugið:
Kaffistofurnar eru opnar laugardaga og sunnudaga kl.
UNGÓ UNGÓ
Haukar
Sætaferðir frá Umferðamiðstöðinni kl. 9.30.
Fellihurðir eru
farsæl lausn.
Fellihurðaskápar
erframtíðin.
ÁLNIUR SF„
sími 71 732, 43761.
ÞURFIÐ ÞÉR
HÍBÝLI?
íbúðir í smíðum
★ 2ja herb. fokheld íbúð við Nýbýlaveg með bílskúr.
Afhent pússuð utan með verksmiðjugleri í gluggum.
Tilbúin til afhendingar.
if 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir í smíðum i miðbænum i
Kópavogi. Sameign fullfrágengin. Sameiginleg bíl-
geymsla. Afhentar tilbúnar undir tréverk um n.k.
áramót.
Kaupendur athugið
if að beðið er eftir láni Húsnæðismálastjórnar, áð
eindagi umsóknar um lán Húsnæðismálastjórnar er 1
febrúar n.k.
að teikningar eru til sýnis á skrifstofunni.
að skrifstofan er opin kl. 10 — 1 6 á laugardag.
HÍBÝLI & SKIP
Dansað I kvöld viÖ hljóÖfæraslátt og hljómplötuleik.
STEINBLÓM
leikur á ný eftir stórkostlega andlitslyftingu og sex tíma hjá
snyrtisérfræÖingi. GjaldiÖ er 250 speslur. Aldurstakmark f. '58
og eldri. Allir velkomnir og takiÖ meÖ ykkur gesti. Gætiö
auglýsingarinnar. Bimbó les úr nýjum barnabókum.
DYJOTNIN
#4