Morgunblaðið - 29.01.1974, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.01.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1974 3 Erlingur Þorsteinsson: Enn um Jörund konung „Enn um Jörund konung" er fyrirsögn greinar, sem birtist í Þjóðviljanum þ. 17. jan. undir mynd af þeim hópi manna, sem hóf undirskriftasöfnun gegn uppsögn varnarsamningsins. Ég hef ekki hingað til fengizt við að skrifa greinar um stjórnmál og hafði ekki hugsað mér að gera það, en í þetta sinn get ég ekki orða bundizt, þar eð ljóð föður míns er notað á svo ótrúlega ósmekklegan hátt. Eins og flestum mun vera kunnugt, er systursonur minn, dr. Þorsteinn Sæmundsson, einn aðalhvatamaður undír- skriftasöfnunarinnar. Það mun víst fáum dyljast, að greinar- höfundur notar einmitt ljóðlín- ur úr kvæði afa hans til þess að kasta með þeim svívirðingum á hann og félaga hans og kalla þá „hundflatan skrælingjalýð“. Mér finnst furðu gegna, að þessi maður, sem eflaust telur sig berjast fyrir góðum málstað, skuli þurfa að grípa til svo ódrengilegrar og ósmekklegrar baráttuaðferðar. Ég leyfi mér að fullyrða, að greinarhöfund- ur, sem undirritar grein sína með D.Þ., muni ekki geta fund- ið í blaðagreinum Þorsteins Erlingssonar frá þeim tímum, er hann var blaðamaður og rit- stjóri, neinar slíkar eða þvílík- Þorsteinn Erlingsson ar svívirðingar eða smekkleys- ur. Það er raunar ekki ný bóla, að kommúnistar noti sér kvæði föður míns sér og sínum mál- stað til framdráttar. Við vitum, að hann var harður baráttu- maður og barðist gegn órétt- læti, kúgun og lygi, barðist til þess að hjálpa lítilmögnum, bæði mönnum og málleysingj- um, en hann barðist drengilega og elskaði sannleikann. Hann hefði áreiðanlega ekki verið samherji þeirra, sem hafa fyrir kjörorð, að tilgangurinn helgi meðalið, ekki reynt að ná tak- marki sínu með lygum eða sví- virðingum. Þorsteinn Erlingsson aðhyllt- ist stefnu sósialdemókrata. Ýmsir íslenzkir sósialistar hafa kallað hann fyrsta kommúnista á íslandi. Ég held, að það sé hvorki á þeirra færi né annarra að dæma um, hvaða flokki hann hefði fylgt á síðari tímum, ef honum hefði orðið lengri líf- daga auðið, en hann dó ungur á okkar mælikvarða, árið 1914. Mín skoðun er sú, að hann hefði ekki kosið að lifa í þjóðfélagi, þar sem skáld hefðu ekki fullt frelsi til að yrkja og skrifa að eigin geðþótta, eða væri bein- línis fyrirskipað, um hvað þau ættu að yrkja eða skrifa, eða væru fjötruð við átthagana og bannað að ferðast til annarra landa. Eg held, að hann hefði aldrei aðhyllzt kúgun i neinni mynd, sizt af öllu skoðanakúg- un eða frelsisskerðingu. Af þeim sökum tel ég fráleitt, að hann hefði nokkurn tíma gerzt kommúnisti, þótt honum hefði enzt aldur til. Enda þótt ég hafi lítið blandað mér í stjórnmál, finnst mér nú slíkt stórmál á dagskrá, þar sem varnarmál íslands eru. að ekki sé hægt að láta það afskiptalaust. Mér finnst öll önnur mál hégómi í saman- burði við það. Ef kommúnistum og áhangendum þeirra tekst að gera landið okkar varnarlaust, gæti jafnvel litill hópur vopnaðra útlendinga tekið hér völdin og sagan um Jörund hundadagakonung endurtekið sig. Enn hörmulegra teldi ég þó, ef fyrir okkur og börnum okkar ætti að liggja að verða kommúnistum að bráð og landið yrði i einhverri mynd leppriki Rússa. Ástandið í þeim löndum, sem þau örlög hafa hlotið, örbirgðin og ófrelsið, er víst flestum kunnugt. Með til- liti til þessa, mundi ég telja mér sæmd að vera í þeim hópi, sem D.Þ. nefnir „hundflatan skrælingjalýð". A SUNNUDAG fór fram á Mímis- bar á Hótel Sögu veiting silfur- hestsins, bókmenntaverðlauna gagnrýnenda fjögurra dagblaða í Reykjavík og hlaut Hannes Pétursson skáld þau fyrir bók slna „Ljóðabréf". Gagnrýnendur Morgunblaðsins áttu ekki aðild að þessari verðlaunaveitingu, því að svo sem tilkynnt var í blaðinu sl. sumar, ákvað það að hætta þátttöku í veitingu silfurhestsins. Atkvæði greiddu hins vegar Helgi Sæmundsson frá Alþýðublaðinu. Gunnar Stefánsson frá Tímanum, Ólafur Jónsson frá Vfsi og Arni Bergmann frá Þjóðviljanum. Atkvæði féllu svo, að „Ljóða- bréf“ fengu 325 stig, skáldsagan „Yfirvaldið" eftir Þorgeir Þor- geirsson fékk 250 stig; leikritið „IJómínó“ eftir Jökul Jakobsson hlaut 100 stig; „Stóð ég úti í tunglsljósi“, sjálfsævisaga Guð- mundar G. Hagalíns, hlaut 75 stig, ljóðabókin „Athvarf í himin- geimnum“ eftir Jóhann Hjálmars- son hlaut 50 stig, „Atburðirnir á Stapa“, skáldsaga Jóns Dan, 50 stig og ljóðabók Péturs Gunnars- sonar, „Splunkunýr dagur" einn- ig 50 stig. Gunnar Stefánsson skýrði frá verðlaunaveitingunni fyrir hönd gagnrýnenda og fór nokkrum orð- um um skáldferil og verk Hannes- ar Péturssonar. Hann minnti á, að um þessar mundir væru tveir áratugir frá því Hannes hefði fyrst vakið á sér athygli með þátt- töku í Ljóðum ungra skálda árið 1954 og alla tíð síðan hefði hann verið í hópi þeirra skálda, sem mest eftirtekt hefði verið veitt. Hann sagði, að hver ný bók frá hendi Hannesar teldist mikill við- burður. „Við lesendur hans höfurn margs að minnast," sagði Gunnar, „i hugann koma formföst og svip- mikil söguljóð Kvæðabókar, hin ákefðarfulla lífsdýrkun í „I sum- ardölum", íhygli og efahyggja Stundar og staða. Og ef við litum nær, minnumst við hinnar djúp- næmu og innilegu náttúruskynj- unar í Innlöndum og hugleiðing- anna i Rímblöðum um stöðu Is- lendings í heiminum. Og á liðnu ári fengum við í hendur ný athug- unarefni í Ljóðabréfum þeim, sem Hannes hlýtur nú viðurkenn- ingu fyrir. En þess ber að minn- ast, að Ljóðabréf eru ekki eina framlag hans til bókaútgáfu liðins árs. Söguþáttur hans, Rauðamyrk- ur, hefur einnig vakið verulega athygli; það er mögnuð saga, sögð af öruggri iþrótt sögumanns i samræmi við mótaða hefð á þessu sviði. Og enn gaf Hannes út á árinu úrval frum kveðinna og þýddra ljóða Steingrims Thor- steinssonar með inngangsritgerð, en áður hefur hann ritað merki- lega bók um Steingrím eins og kunnugt er.“ Um Ljóðabréf sagði Gunnar Stefánsson meðal annars: „I mörgum þessara bréfa er að finna eftirminnileg dæmi þeirrar nær- færnu skynjunargáfu og orðlist- ar, innhverfu ihygli, sem lesend- ur Hannesar þekkja vel úr fyrri bókum. Mál hans er einatt með þeim tærJeika og kliðmýkt, sem listhögustu höfundar hafa einir á valdi sínu.“ Er Hannes Pétursson hafði veitt silfurhestinum viðtöku, flutti hann stutt ávarp, þar sem hann sagði m.a„ að sér þætti held- ur miður að fá þessi verðlaun einmitt nú, þegar ágreiningur hefði orðið um gildi þeirra og kvaðst hann hafa verið nokkuð á báðum átttum um það hvort hann ætti að veita þeim viðtöku. Akvörðun sína kvað Hannes byggð á persónulegum ástæð- um, er hann teldi ekki ástæðu til að rekja. Hann ræddi m.a. litil- lega um þá sámkeppni, sem bók hans „Ljóðabréf" hefði átt i við verðlaunaveitinguna og sagði, að framtiðin mundi skera úr um end- anlega stöðu hennar meðal þeirra ritverka, sem atkvæði voru greidd um sem og annarra, — en i raun ætti skáld sér engan annan keppi- naut en sjálft sig, skáldinu bæri að keppa að þvi einu að taka fram- förum með hverri nýrri bók, er það léti frá sér fara. Hannes Pétursson skáld veitir silfurhestinum viðtöku af bók- menntagagnrýnanda Tímans, Gunnari Stefánssyni. Verð- launagripinn smlðaði Jóhannes Jóhannesson. 39 Rangæingar senda for- sætisráðherra áskorun BLAÐINU hefur borizt bréf, sem tilefni af áskorun til hans frá 39 39 Rangæingar hafa sent Ólafi háskólakennurum og starfsmönn- Jóhannessyni, forsætisráðherra, f um við Stofnun Arna Magnússon Hr. forsætisráðherra, Olafur Jðhannesson, Forsætisráðuneytinu, Reykjavík. ar. Aður hefur verið skýrt frá þeirri áskorun hér I blaðinu. Bréf Rangæinganna er svo- hljóðandi: Rangárþingi í janúar 1974. I tilefni af áskorun 39 kennar.a við Háskólann og starfsmanna við Stofnun Arna Magnússonar á Islandi, til yðar varðandi brottför Varnarliðsins, viLjum við 39 aLmennir borgarar í Rangárþingi, skora á yður að standa gegn ótímabærum áformum um brottför VarnarLiðsins af KefLavíkurfLugveLLi og gæta þannig áframhaLdandi sjáLfstæðis ísLenzku þjóðarinnar á 1100 ára afmæLi hennar. Ennfremur mótmæLum við eindregið því framferði starfsmanna, sem vinna við opinberar stofnanir | og reknar eru fyrir aLmannafé, að þeir noti nöfn þessara stofnana persónuLegum og póLitískum skoðunum sínum tiL framdráttar. VirðingarfylLst, Hannes Pétursson skáld fær silfurhestinn í ár

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.