Morgunblaðið - 05.02.1974, Síða 1

Morgunblaðið - 05.02.1974, Síða 1
29. tbl. 61. árg. ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRUAR 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sprenging í áætlun- arvagni í Englandi Manchester, 4. febrúar. NTB. [J EUefu manns biðu bana og fjórtán hlutu alvarleg meiðsl, þegar sprengja sprakk í áætlunar- bifreið, sem var að flytja her- menn og fjölskyldur þeirra. Gerð- ist þetta á þjóðveginum fyrir norðan Manchester i gærkveldi, og er það skoðun lögreglunnar brezku, að hér hafi írski lýðveld- isherinn verið að verki. Talsmenn IRA sögðu í Belfast fyrir skömmu, að þeir mundu innan skamms herða á hefndaraðgerð- um sínum í Englandi. Þannig leit áætlunarvagn- inn brezki út eftir sprenging- una skammt norðan við Man- chester í gærkveldi, þar sem ellefu manns biðu bana og fjórtán hlutu meiriháttar meiðsl. 1 bflniffii voru fimmtíu London, 4. febr. AP—NTB 0 Kolanámaverkainenn f Bret- landi samþvkktu með yfirgnæf- andi meirihluta að heimila stjórn sambands þeirra að boða til verk- falls næstkomandi sunnudag, verði stjórn landsins ekki búin að setja fram sýnu betra launatilboð fyrir þann tíma en hún hefur gert til þessa. 0 Verkamenn krefjast 30—35% launahækkunar að mcðaltali en stjórnin hefur ekki fengizt til að fara upp fyrir 16% hækkun að meðaltali og það gegn tryggingu fyrir þvf, að aðrar stéttir fylgi ekki á eftir með kauphækkanir umfram þau 7%, sem höfðu verið sett sem þak á launahækkanir í því skyni að reyna að stemma stigu við vaxanda verðbólgu f landinu. 0 Úrslit atkvæðagreiðslunnar urðu þau, að 81% verkamanna samþvkktu verkfal Isheimildina og er það mesta fylgi, sem verk- fallsboðun hefur nokkru sinn. haft í Bretlandi. í sambandi kolanámaverka- manna í Bretlandi eru 270.000 manns. Þar af voru 188.393 sam- þykktir verkfalli en 44.222 á móti. í Suður-Wales, þar sem verka- menn hafa verið harðastir, voru 93% fylgjandi verkfallinu. Stjórn Edwards Heaths er nú komin upp að vegg, að sögri AP- fréttastofunnar, því að stuðning- ur við stjórn sambands verka- manna hefur reynzt öflugri en hún reiknaði með. Fyrirhugaður er á morgun fundur 27 forystu- Meðal þeirra, sem létust, var liðþjálfi að nafni Clifford Hough- Framhald á bls. 31 81% brezkra kolanámaverka- manna fylgjandi verkfalli manna verkamannanna og er haft fyrir satt, að þeir vænti þess, að stjórnin leggi fram betra tilboð fyrir fundinn. Ella getur svo farið, að verkfall hefjist á mið- Framhald á bls. 31 Krafa Sovétstjómarinnar: Vestræn ríki afstöðunni til Spratly-eyjar bitbein Kína og S-Vietnams? Peking, 4. febr. AP—NTB. PEKINGSTJÓRNIN birti i kvöld opinbera tilkvnningu, þar sem sagði, að hún mundi ekki láta það viðgangast, að Suður-Vitnamar sendu aukið herlið til svonefndra Spratly- eyja. Þær eru 800 km suður af Parcel-eyjum, sem Kínverjar hertóku í síðasta mánuði. Ekki var frekar tiltekið, hvað gert yrði, en sýnileg hætta er talin á hernaðarátökum, hafi stjórn S-Vietnams þessa tilkynningu að engu. í tiikynningu Peking- stjórnarinnar, sem frétta- stofan Nýja-Kina birti í kvöld, sagði meðal annars, að hinn 1. febrúar sl. hefði stjórn S- Vietnams sent skip og herlið í því sk.vni að hernema Nantzu og aðrar eyjar í Nansha-eyja- klasanum — en það er nafn Kínverja á umræddum Spratly-eyjum. Sagði og, að þetta væri tillitslaus yfir gangur og jafngilti árás á sjálfstæði kínversks lands Ekki var á það minnzt í til- kynningunni að bæði Filipps- Framhald á bls. 31 breyti Kúbu Herferð gegn Baader Meinhof Bonn, 4. febr. AP-NTB VESTUR-þýzka lögreglan hand- tók í nótt sjö manns, sem taldir eru tilheyra samtökunum Baader- Meinhof, sem bönnuð eru í Þýzka- landi. Þau voru stofnuð 1968 og störfuðu til ársins 1972, er þau leystust upp eftir handtöku leið- toganna, Andreas Baader og Ulriku Meinhof. Að undanförnu hefur hins vegar verið unnið að endurskipulagningu þeirra, að því er v-þýzka iögreglan upplýs- ir. Samtökin höfðu lýst því yfir opinberlega á sínum tíma, að þau væru hreyfing vinstrisinnaðra borgaskæruliða — og mundu starfa f samræmi við það. Samtals hafa þá fimmtán manns verið handteknir að und- anförnu, grunaðir um aðild að enduruppbyggingarstarfi samtak- anna. Herferðin í nótt var þó hin öflugasta, sem til þessa hefur ver- ið farin gegn meintum félögum þeirra; lögreglan réðst inn i íbúð- ir sjömenninganna kl. 4 i nótt og kom þeim þar á óvart. Jafnframt lagði hún þar hald á mikið af vélbyssum, jarðsprengjum og táragasi. Hinir handteknu verða leiddir fyrir rétt sakaðir um ólöglega neðanjarðarstarfsemi, landráð, bankarán, svindl og að hafa vopn Framhald á bls. 31 Moskvu og Washington, 4. febrúar. AP—NTB. SOVÉTSTJÓRNIN hefur sett fram þær kröfur, að vestræn ríki aflétti hömlum á efnahagslegum og póiitiskum samskiptum við Kúbu og að Bandarfkjamenn leggi niður herstöð sína við Guantanamo flóa. Kröfur þessar voru birtar í sam- eiginlegri yfirlýsingu, sem Leon- id Brezhnev, leiðtogi sovézka kommúnistaflokksins og Fidel Castro, forsætisráðherra Kúbu, undirrituðu í Havana — og frá þessu var samtímis skýrt i Moskvu og Havana. Fyrr í dag hafði Tass fréttastof- an skýrt frá því, að Andrei Gro- myko, utanrfkisráðherra Sovét- Framhald á bls. 31 Ronald Biggs sá handtekni Rio de Janeiro, 4. febr. AP—NTB LÖGREGLAN í Rio hefur stað- fest, að lestarræninginn brezki. EBE býður Færeyjum sérsamninga um fisk Einkaskeyti til Mbl. frá Jörgen Harboe, Kaupmannahöfn, 4. febr. [[] á fundi 1 Brússel í dag ákvað ráðherranefnd Efnahagsbanda- lags Evrópu að mæla með þvf, að Færeyingum yrði boðinn frfverzl- unarsamningur við EBE um fisk og fiskafurðir — og að látið yrði biða seinni tfma að bjóða þeim fulla aðild að bandalaginu. Það gæti orðið, eftir að stefna banda- lagsins í fiskveiðimáluin liggur Ijósar fyrir, sem tæpast verður, fyrr en lokið er hafréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna. Frumkvæði að þessu máli hafði utanríkisráðherra Dana, Ove Guldberg, en Færeyingar höfðu ákveðið að leita ekki eftir aðild að E23E: í ákvörðun ráðherranefndar er byggt á þremur aðalatriðum. í fyrsta lagi tekur nefndin tillit til þess, að Færeyingar hafa hafnað aðild að EBE að svo stöddu, og er reiðubúin að reyna að finna láusn, sem viðunandi megi teljast fyrir alla aðila. i öðru lagi er nefndin reiðubúin að auka útflutning Færeyinga til EBE með þvi að skera niður Framhald á bls. 31 Ronald Biggs, hafi verið handtck- inn þar f borg sl. föstudag. Það gerðu tveir menn frá brezku leynilögreglunni, en þeir fengu hann þegar í hendur brasiliskum yfirvöldum og hefur hann síðan verið f varðhaldi í höfuðstöðvum lögreglunnar f Rio de Janciro. Biggs var handtekinn í gisti- húsi gegnt hinni frægu Copacabanaströnd, en þar gekk hann undir nafninu Michael Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.