Morgunblaðið - 19.02.1974, Síða 1
40 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
41. tbl. 61. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUAR 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ólafur afneitar fullyrð-
ingum iðnaðarráðherra
Islenzkur ráðherra veldur reiði og
hneykslun á fundi Norðurlandaráðs
Stokkhólmi, 17, febrúar,
frá Birni Jóhanrtssyni.
Magnús Kjartansson
iðnaðarráðherra veittist
mjög harkalega að Norð-
mönnum í almennum um-
ræðum á þingi Norður-
landaráðs hér í dag. Sakaði
hann þá um að hafa bland-
að sér í íslenzk innanríkis-
mál með því að reyna að
hafa áhrif í þá átt, að
varnarstöðin í Keflavík
verði ekki Iögð niður. Ólaf-
ur Jóhannesson forsætis-
ráðherra sá sig til knúinn
til að taka til máls og lýsa
yfir því, að, Norðurlanda-
ráð væri ekki vettvangur
til umræðna um varnar-
málin og lýsti því yfir, að
hann teldi ekki, að Norð-
menn hefðu blandað sér í
íslenzk innanríkismál.
Trygve Bratteli, forsætis-
ráðherra Noregs, Lars
Korvald, fyrrverandi for-
sætisráðherra, K. B. And-
ersen, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Dana, og
Gylfi Þ. Gíslason mót-
mæltu allir fullyrðingum
Magnúsar.
Framhald á bls. 18
Andrei Gromyko um Solzhenitsyn:
Þiirfnm ekki þetta eitursull
Ziirich, París,
febrúar, AP-NTB
Moskvu, 18.
HATURSHERFERÐINNI gegn
Alexander Solzhenitsyn hefur
ekki linnt í Sovétrfkjunum þótt
Miðausturlönd:
r
Ognar
Gaddafy
friði?
Washineton 18. febrúar,
AP—NTB
BANDARÍKJASTJÓRN IVIEÐ
Henry Kissinger utanríkisráð-
herra í fararbroddi hefur nú á
ný hert mjög tilraunir sínar til
að koma á samningsviðræðum
milli Sýrlendinga og ísraela
og að fá ólíusölubanni Araba-
ríkjanna gagnvart Bandaríkj-
unum aflétt.
Utanríkisráðherrar Egypta-
lands og Saudi-Arabíu, þeir
Ismail Fahmi og Omar Sakkaf,
eru nú í Washington og hafa
þegar átt fund með Henry
Kissinger. Þeir munu halda
með honum fleiri fundi áður
en þeirsnúa heim og einnig
hefur flogið fyrir, að þeir muni
ræða við Nixon forseta.
Mikil spenna er nú í löndum
Araba vegna hótana frá Líbýu
um að gera opinberar segul-
bandsspólur, sem sagt er að
Framhald á bls. 31
hann hafi verið rekinn úr landi
og sviptur rfkisborgararétti.
Andrei Gromyko, utanrfksráð-
herra Sovétrfkjanna, sem er f
heimsókn í Parfs, bermálaði
þessa stefnu þegar hann var
spurður hvort þetta mál gæti haft
neikvæðar afleiðingar á sambúð
austurs og vesturs: „Solzhneitsyn
er nú utan landamæra Sovétríkj-
anna, utan lands okkar. Sovétrík-
in þurfa ekki þetta eitursull.“
I einkaviðtali við fréttastofuna
Associated Press hefur Solzhenit-
syn hins vegar lýst þvf yfir, að
hann hafi ekki gefið upp alla von
um, að hann geti einhvern tíma
snúið aftur til föðurlands síns:
„Ég veit i hjarta mínu, að ég á
jafn mikinn og meiri rétt á
sovézkri grund en þeir, sem ráku
mig með valdi úr landi.“
Ahyggjur af skjöl-
UMSÍNUM
Solzhenitsyn kvaðst vongóður
um, að fjölskylda hans gæti komið
til hans áður en langt um líður en
hún ætti töluvert starf fyrir hönd-
um, að pakka niður og ganga frá
ýmsum málum. Hann kvaðst hins
vegar hafa miklar áhyggjur af
skjalasafni sínu, sem hann hefur
verið að byggja upp áratugum
saman.
Hann kvaðst óttast, að yfirvöld
gerðu það upptækt, en það væri
þá andlegt morð af þeirra hálfu. I
skjalasafninu sagði hann að væru
meðal annars ýmsar sögulegar
heimildir, sem honum væru nauð-
synlegar við ritverk sín. Ekki
kvaðst hann þó ætla að gefast
uppt þótt sovézk yfifvöld legðu
hald á safnið: „Það hefur að
geyma heimildir frá fortiðinni. Ef
þeir taka þær af mér, sný ég mér
bara að nútíðinni. Eg þarf engar
sérstakar heimildir til að skrifa
umSovétrfki dagsins í dag.“
Solzhenitsyn bað fyrir hlýjar
kveðjur og þakkir til allra þeirra
fjölmörgu, sem hefðu boðið sér
aðstoð og lýst yfir stuðningi. Ýmis
lönd hefðu boðið sér hæli og slík-
ur vináttuvottur væri sér mikils
virði. Hann kvaðst ekki hafa tekið
ákvörðun um hvar hann settist að,
en fyrst um sinn yrði hann um
kyrrt íSviss.
Hann kvaðst ekki örvænta um
framtiðina, þótt hann hefði verið
rekinn úr landi: „Tré, jafnvel
gömul tré, jafnvel tré, sem eru
flutt úr stað, skjóta nýjum rót-
HEIMÞRAIN kemur
SÍÐAR -----------
Vestur-þýzka skáldið Heinrich CoilCOrdG:
Böll, sem er náinn persónulegur
vinur Solzhenitsyns, sagði í við-
tali við „Der Spiegel“, að Solzhen-
itsyn virtist ekki vera neitt þung-
lyndur núna, en hann byggist við,
að það kæmi siðar: „Ég held, að
þegar hann hættir að hafa áhyggj-
ur af fjölskyldu sinni, þegar hún
er komin heilu og höldnu frá
Ölafur Jóhannesson í ræðustól á
þingi Norðurlandaráös á sunnu-
daginn.
150 millj. punda
til viðbótar
Sovétríkjunum, muni hann fyrst
finna til biturleika vegna brott-
rekstursins. Að vera rekinn frá
heimalandi sínu er það versta,
sem getur koinið fyrir rithöfund.
Solzhenitsyn kemur til með að
þjást af heimþrá."
London, 18. febr. AP.
LJÓST er orðið, að því er blaðið
Daily Telegrap í London segir í
dag, að ríkisstjórnir Frakklands
og Bretlands verða að leggja fram
um 150 milljónir sterlingspunda
til viðbótar, eigi að vera unnt að
fullgera hljóðfráu þotuna Con-
corde. Þar með yrði kostnaður við
Framhald á bls. 31
Bretland:
Komast fr jálslyndir í
oddaaðstöðu?
Lundúnum 18. febr. AP—NTB
NIÐURSTÖÐUR Þriggja
skoðanakannana, sem birtar voru
f Lundúnum í gær, benda til þess,
að áhrifa Frjálslynda flokksins í
Bretlandi kunni að gæta í brezka
þinginu eftir kosningarnar 28.
febrúar nk. í f.vrsta skipti í hálfa
öld. Benda niðurstöðurnar til, að
íhaldsf lokkurinn og Verka-
mannaflokkurinn fái svipaðan
þingmannafjölda, en að Frjáls-
lyndi flokkurinn fái 20 þingmenn
og geti koinizt í oddastöðu.
Frjálslyndir hafa skv. könnun-
unum aukið mjög fylgi sitt frá því
að kosningabaráttan hófst eða um
5% á einni viku. Skv. skoðana
könnun, sem blaðið Observer birt-
ir, fá frjálslyndir 19,5% atkvæða,
íhaldsflokkurinn 40,5% og
Verkamannaflokkurinn 38%.
Skv. könnun Daily Telegraph fá
frjálslyndir 14%, Ihaldsflokkur-
inn 42,5% og Verkamannaflokk-
urinn 41,5%. I könnun, sem
Sunday Times birtir, fá frjáls-
lyndir 21%, íhaldsflokkurinn
38% og Verkamannaflokkurinn
35%.
Fulltrúar brezkra kolanáma-
manna lögðu i dag launakröfur
sínar fyrir hið ríkisskipaða launa-
málaráð. Formaður ráðsins, sir
Frank Figgures, sagði, að kröfur
námamanna væru einsdæmi i
sögu ráðsins, þar eð þær væru svo
langt fyrir ofan þau mörk, sem
ríkisstjórnin hefði sett i barátt-
unni gegn verðbólgu i landinu, en
þar er gert ráð fyrir 7% hámarks-
hækkun. Námamenn krefjast
hins vegar 35% hækkunar. Ve'rk-
fall námamanna hefur nú staðið i
15 daga og fer ástandið í Bret-
landi dagversnandi samfara
minnkandi kolabirgðum.