Morgunblaðið - 19.02.1974, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUAR 1974
OJtCBÓK
í dag er þriðjudagurinn 19. febrúar, sem er 50. dagur ársins 1974.
Árdegisflóð er kl. 05.10, síðdegisflóð kl. 17.29.
Sólarupprás í Reykjavfk er kl. 09.11, sólarlag kl. 18.14.
Á Akureyri er sólarupprás kl. 09.02, sólarlag kl. 17.52.
Blessaður er sá maður, sem reiðir sig á Drottin og lætur Drottin vera athvarf
sitt. Hann er sem tré, sem gróðursett er við vatn og teygir rætur sínar út að
læknum, sem hræðist ekki, þótt hitinn komi, og er með sígrænu laufi, — sem
jafnvel í þurrkaári er áhyggjulaust, og lætur ekki af að bera ávöxt.
(Jerynía 17. 7—8).
Unga Akureyri, upplýsangarit
um æskulýðsstarfsemi á Akur-
eyri, 1. tbl. 5. árg. er komið út.
Ritið er gefið út af æskulýðsráði
Akureyrar, og eru i því fréttir af
æskulýðsstarfsemi og bindindis-
starfi ásamt öðru efni.
Menntamál, tímarit um uppeld-
is- og skólamál er komið út. Aðal-
efni blaðsins er um grunnskóla,
og eru birtar umsagnir um grunn-
skólafrumvarpið frá Fóstrufélagi
íslands, Sambandi íslenzkra
barnakennara, Landssambandi
framhaldsskólakennara og Fé-
lagi háskólamenntaðra kennara.
Auk þess er sagt frá umræðum
um nokkur atriði grunnskóla-
frumvarpsins, og birt minningar-
orð um Skúla Þorsteinsson.
Út er komið rit, sem nefnist JC
Reykjavik, en það er kynningar-
blað Junior C hamber i Reykjavík.
Guðmundur Hallgrímsson, forseti
Junior Chamber í Reykjavík, rit-
ar inngangsorð þar sem hann gerir
grein fyrir tilgangi samtakanna
og starfsemi þeirra. Þar greinir
hann m.a. frá því, að samtökin
stefni að þvi að flytja íslenzka
fánann inn í bárnaskólana, og
vilji þau gera það að framlagi
sínu til 1100 ára afmælis íslenzku
þjóðarinnar árið 1974. Þá er í
blaðinu viðtal við Birgi Isleif
Gunnarson borgarstjóra, grein er
um félagsþroska og kynning á
starfsemi Verzlunarráðs Islands,
Kaupmannasamtaka íslands, Fé-
lags islenzkra stórkaupmanna og
Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur. Af öðru efni í blaðinu, at-
hyglisverðu sem nefna má er
Reykjavíkurbréf, sem ritað er af
Birgi Bragasyni.
I Skinfaxa, tímariti Ungmenna-
félags íslands, 5.—6. hefti 1973,
eru fréttir frá starfsemi ung-
mennafélaga, íþróttafréttir, o.fl.
GEMGIÐ
CENCISSKRANINC
Nr. 32 - 18. febrúar 1974
Eining Kl.13.00 Sala
1 Banda ríVjadolU r 85. 40 85. 80
1 SterlinjjBpund 194,85 195. ?5 *
1 Kanadadollar 87, 60 88, 10
100 Danskar krónur 1 339. 85 1347,75 •
100 Norakar krónur 1498,35 1507, 15
100 Saenskar krónur 1843,40 1854,20 •
100 Finnsk mörk 2185,10 2197,90 *
100 Franskir frankar 1716.05 1726,05 *1>
100 Belg. frankar 211.15 212,35 *
100 Svissn. frankar 2700.55 2716,35 •
100 Gyllini 3044,15 3061,95 •
100 V. -Þýxk mörk 3163, 50 3182,00 »
100 Lfrur 13. 13 13,21 »
100 Austurr. Sch. 431, 10 433,60 •
100 Escudos 332, 40 334,40 •
100 Pesetar 145, 10 146.00
100 Yen 29, 28 29, 45 *
100 Reikningskrónur -
Vöruskiptalönd 99, 86 100,14
1 Reikningsdollar-
Vörusklptalönd 85,40 85, 80
* Brcytlng frm mCBustu akránlngu.
1) Gildir aCeina fyrir greiOelur tengdar Inn-
og utflutnlngi á vórum.
Eftirfarandi spil er frá leiknum
milli Finnlands og Tyrklands í
Evrópumótinu 1973.
Norður
S K
H G-9-7
T D-10-9-6-4
L K-D-10-5
Vestur Austur
S Á-D-8-5-2 S 9-7-6-3
H Á-K-6-3 H 8-2
T 7-2 T K-G-8
L 9-3 L G-7-4-2
S uður
H G-10-4
H D-10-5-4
T Á-5-3
L Á-8-6
Við annað borðið sátu finnsku
spilararnir N-S og þar varð austur
sagnhafi i 3 spöðum. N-S tóku 2
fyrstu slagina á lauf, létu siðan út
hjarta og sagnhafi fékk 8 slagi,
varð einn niður og finnska sveitin
fékk 100 fyrir.
Við hitt borðið sátu finnsku
spilararnir A-V og þar opnaði suð-
ur á 1 grandi, vestur doblaði og
norður sagði pass. Austur þorði
ekki að láta sögnina standa og
valdi að segja 2 lauf', sem varð
lokasögnin, en ekki sú besta. Spil-
ið varð 3 niður og tyrkneska sveit-
in fékk 300 fyrir og græddi 5 stig
á spilinu. Leiknum lauk með jafn-
tefli 10-10.
| SÁ MÆSTBESTI
Á ritvélum eru stafirnir p
og ð hlið við hlið og í flýti
eiga blaðamenn — eins og
aðrir — það til, að hitta
ekki á rétta stafinn. Um
daginn kom dálítið
skemmtileg villa af þessari
ástæðu — þannig að Henry
Kissinger var titlaður „ut-
anrfkisrápherra Banda-
ríkjanna“.
| FHÉTTIR 1
Aðalfundur kvennadeildar
Slysavarnarfélags íslands f
Reykjavík verður haldinn mið-
vikudaginn 20. febrúar kl. 20.30 í
Slysavarnarfélagshúsinu á
Grandagarði.
Á Fæðingarheimili Reykjavík-
ur fæddist:
Þórdísi Kristjánsdóttur og
Valdimar Karlssyni, Hlaðbrekku
5, Kópavogi, sonur þann 3. febrú-
ar kl. 07.05. Hann vó tæpar 16
merkur og var 51 sm að lengd.
Nönnu Þorláksdóttur og Sæm-
undi Sigurjónssyni, Lokastíg 28,
Reykjavík, sonur þann 3. febrúar
kl. 02.25. Hann vó ll!ó mörk og
var 47 sm að lengd.
Kolbrúnu Halldórsdóttur og
Guðmundi Jónssyni, Hraunbæ 66,
Reykjavík, dóttir þann 6. febrúar
kl. 11.10. Hún vó rúmar 15 merk-
ur og var 53 sm að lengd.
Svanborgu Óskarsdóttur og
Tony Peter Alsopp, Leifsgötu 21,
Reykjavík, dóttir þann 6. febrúar
kl. 01.00. Hún vó tæpar 15 merkur
og var 52 sm að lengd.
Höllu Elimarsdóttur og Frið-
finni Friðfinnssyni, Gaukshólum
2, Reykjavík, dóttir þann 5. febrú-
ar, kl. 19.40. Hún vó rúmar 14
merkur og var 49 sm að lengd.
Bonnei Laufey Dupuis og Davíð
Karli Andréssyni, Bárugötu 23,
Reykjavík, dóttir þann 7. febrúar
kl. 22.11. Hún vó rúmar 16 merk-
ur og var 54 sm að lengd.
Lilju Hallgrímsdóttur og Sigur-
jóni Þórarinssyni, Mávahlíð 20,
Reykjavík, dóttir þann 7. febrúar
kl. 12.50. Hún vó rúmar 14 merk-
ur og var 50 sm að lengd.
Hildi Gunnarsdóttur og Guð-
jóni Pétri Ólafssyni, Vesturbergi
140, Reykjavík, sonur þann 6.
febrúar kl. 03.45. Hann vó tæpar
16 merkur og var 53 sm að lengd.
Þann 2. febrúar gaf séra Þórir
Stephensen saman í hjónaband 1
Dómkirkjunni Mögnu Fríði Birn-
ir og Þorkel G uðbrandsson. Heim-
ili þeirra er að Þverbrekku 2,
Kópavogi.
Það er fleira skemmtilegt í
Reykjavík en mannlífið.
Hér er æðarfuglinn að frí-
lysta sig um helgina, og
verður ekki annáð séð en
að þarna sé bara hörku-
partí!
Þar sem skfðatfminn fer nú í
hönd, er ekki ósennilegt, að þeir,
sem fþróttina iðka að ein-
hverju ráði, þurfi að huga eitt-
hvað að klæðahurðinum. Þau,
sem við sjáum hér, standa svo
sannarlega ekki á nærklæðunum,
en sennilega hafa þau ekki haft
vit á því að útvega sér íslenzkt
„föðurlaad", sem íslenzkum
skíðamönnum þykir ómissandi.
Stúlkan er í hvítum og svörtum
fötum, en náunginn, sem með
henni er, er eins og „gula hætt-
an“, að vísu með svörtum rönd-
um.
Sextugur er 1 dag Þorsteinn Jó-
hannesson, útgerðarmaður,
Reynistað i G arði.
Sjötugur er í dag Bjarni For-
berg, bæjarsímstjóri, Nesvegi 19,
Reykjavik.
Varið land
Undirskriftasöfnun
gegn uppsögn varnar-
samningsins og brott-
vísun vararliðsins.
Skrifstofan í Miðbæ
við Háaleitisbraut
58—60 er opin alla
daga kl. 14^-22. Sími
36031, pósthólf 97.
Skrifstofan að
Strandgötu 11 í Hafn-
arfirði er opin alla
daga kl. 10—22, sími
51888.
Skrifstofan í Kópa-
vogi er að Álfhólsvegi
9. Hún er opin milli kl.
17—20. Sími 40588.
Skrifstofan í Garða-
hreppi er í bókaverzl-
uninni Grímu og er op-
in á verzlunartíma.
Sími 42720.
Skrifstofan á Akur-
eyri er að Brekkugötu
4, en þar er opið alla
daga kl. 17—19. Sím-
ar: 22317 og 11425. Á
verzlunartíma er opið
í Bókabúðinni Eddu,
Hafnarstræti 100. Sími
11334.
Skrifstofan í Kefla-
vfk er að Hafnargötu
46, sími 2021. Opið
5—7og 8—10.
SÖFNIN
Landsbókasafnið er opið kl. 9—
Borgarbókasafnið
Aðalsafnið er opið mánud. —
föstud. kl. 9—22, laugard. kl.
9—18, sunnud, kl. 14—18.
Bústaðaútibú er opið mánud.
— föstud, kl. 14—21.
Hofsvallaútibú er opið mánud.
— föstud. kl. 16—19.
Sólheimadtibú er opið mánud.
— föstud. kl. 14—21. Laugard.
kl. 14—17.
Landsbókasafnið er opið kl.
9—19 alla virka daga.
Ameríska bókasafnið, Nes-
haga 16, er opið kl. 1—7 alla
virka daga.
Bókasafnið í Norræna húsinu
er opið kl. 14—19, mánud. —
föstud., en kl. 14.00—17.00
laugard. og sunnud.
Árbæjarsafn er opið alla daga
nema mánudaga kl. 14—16.
Einungsi Árbær, kirkjan og
skrúðhúsið eru til sýnis. (Leið
10 frá Hlemmi).
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnud., þriðjud.
og fimmtud. kl. 13.30—16.00.
íslenzka dýrasafnið er opið kl.
13—18 alla daga.
Listasafn Einars Jónssonar er
opið á sunnudögum og mið-
vikudögum kl. 13.30—16.
Listasafn Islands er opið kl.
13.30—16 sunnud., þriðjud.
fimmtud. og laugard.
Náttúrugripasafnið, Hverfis-
götu 115, er opið sunnud.,
þriðjud., fimmtu. og laugard.
kl. 13.30—16.
Sædýrasafnið er opið alla daga
kl. 10—17.
Þjóðminjasafnið er opið kl.
13.30—16 sunnud., þriðjud.,
fimmtud., laugard.
Kjarvalsstaðir
Kjarvalssýningin er opin
þriðjudaga til föstudaga kl.
16—22, og laugardaga og
sunnudaga kl. 14—22.
ást er...
... að segja henni,
að vinum þínum
finnst þú hafa
verið heppinn
með eiginkonu
TM Rig. U.S. Pot. Ofl —All righlt r.i.rved
(C) 1973 by Loi Ang»l#i Tim#i
Vikuna 15.—21. febrúar
verður kvöld-, helgar- og
næturþjónusta apóteka í
Reykjavík í Ingólfsapóteki,
en auk þess verður Laugar-
nesapótek opið utan venju-
legs afgreiðslutíma til kl. 22
alla daga vikunnar nema
sunnudag.
|KROSSGÁTA
Lárétt: 1. vottar fyrir 6. vesæl 8.
ílátin 11. fæða 12. lik 13. 2 eins 15.
samhljóðar 16. hlóðir 18. jurtir
Lóðrétt: 2. hrata 3. skordýr 4.
tunnan 5. kofar 7. töfrar 9. sund
10. lærdómur 14. saurgi 16. sam-
hljóðar 17. mynni
Lausn á sfðustu krossgátu
Lárétt: 1. fónar 5. ára 7. seim
9. OE 10. skrimti 12. AA 13. nets
14. agi 15. sinin.
Lóðrétt: 1. fossar 2. náir 3. arm-
ingi 4. rá 6. peysan 8. EKA 9. ótt
11. mein 14. ás
TAPjAÐ-FUIMOIO
Gráhröndóttur fressköttur í
óskilum. Fannst í Reykjavík.
Uppl. í sfma 42580.
Grá- og svartflekkótt ung læða
með hvítar tær og hvíta bringu
fannst á Vesturgötu fyrir mánuði.
Uppl. í síma 16380.
Blöð og tímarit
ÁRIMAÐ
HEILLA
IMVIR BQRGARAR
| BRIPC5E