Morgunblaðið - 19.02.1974, Side 15
MORC.UNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAOUR 19. KKBKUAK 1974
15
Matthías A. Mathiesen:
Árásirnar á Norð-
menn vöktu undran
Stollhólmi, 18. febr.
frá Birni Jóhannssyni.
MATTHlAS A. Mathiesen, for-
maður íslen/.ku sendinef ndar-
innar í Norðurlandaráöi, sagði í
viðtali við Morgunblaðið í dag, að
ræða Magnúsar Kjartanssonar sl.
sunnudag hefði vakið undrun
manna, einkum hefðu fulltrúar í
ráðinu undrazt árásir hans á
norsku ríkisstjörnina og norska
stjórnmálamenn vegna orðsend-
ingar rfkisstjórnar Lars Korvalds
og komu norskra stjórnmála-
manna til íslands.
Matthías benti á, að aðeins einn
ræðumaður hefði tekið undir orð
Magnúsar, hinn norski flokks-
bróðir hans, Finn Gustavsen,
enda hefði ræða Magúsar ekki
virzt koma Gustavsen á óvart.
Það getur víðar blásið og
hrimað en á íslandi. Þessi
mynd var tekin í síðustu viku í
Dawlish í Devon á Englandi,
þegar hvassviðri mikið gekk
þar yfir. Brimið kastaði upp á
járnbrautarteinana grjóti og
spýtnabraki og varð lestin
fyrir verulegum töfum meðan
það var hreinsað burt.
48 fórust
Kairó 18. febrúar XTB
48 manns fórust og tugir
slösuðust, er áhorfendapallar
hrundu á knattspyrnuleikvangi í
Kaíró. Völlurinn rúmar um 45
þúsund áhorfendur, en alls munu
um 80 þúsund manns hafa ruðzt
inn á leikvanginn til að sjá leik
milli tékkóslóvakíska liðsins
Dukla ög Kaíróliðsins Zamalek.
Jevtusjenko refsað
fyrir að láta í ljós áhyggjur
af handtöku Solzhenitsyns
Þá sagði Matthías, að það hel'ði
vakið sórstaka athygli, er Olafur
Jóhannesson, forsætisráðherra,
hefði séð sig knúinn til þess að
svara Magnúsi varðandi ummæli
hans um Norðmennina. Ilefði
ekki farið framhjá neinum sá
skoðanamunur, sem rikir innan
islenzku rikisstj órna ri nn ar.
Matthías sagði, að í samtölum,
sem hann hefði átt við norræna
stjórnmálamenn, hefði komið
fram mikil gagnrýni á framkomu
Magnúsar Kjartanssonar á
þinginu og ýmsir hefðu sett ræðu
hans í samband við hina opinberu
heimsókn Frydenlunds utanrikis-
ráðherra Noregs til íslands.
Matthias kvaðst vona, að
norrænir stjórnmálamenn hefðu
gert sér grein fyrir því, að
Magnús talaði fyrir sjálfan sig,
jafnvel ekki sinn eigin flokk,
hvað þá aðra, enda hefði Gylfi Þ.
Gislason gert grein fyrir því í
svari þvi, er hann flutti.
SOVÉTSKALDIÐ Jevgeni Jevtu-
sjenko hefur skrifað bréf og feng-
ið birt I ítalska blaðinu II Giorno,
þar sem hann segir, að sovézk
yfirvöld hafi beitt sig refsiaðgerð-
um fyrir að lýsa áhyggjum sínum
af handtöku rithöfundarins
Alexanders Solzhenitsyns.
Bréf Jevtusjenko, sem er dag-
sett í Moskvu 16. íebr., birtist á
forsíðu II Giorno á sunnudag. Þar
segir, að hann hafi sent miðstjórn
sovézka kommúnistaf lokksins
bréf strax og hann frétti af hand-
töku Solzhenitsyns og þar hafi
hann, án allrar fordæmingar á
yfirvöldum, látið í ljós áhyggjur
af rithöfundinum og einnig af
þeim áhrifum, sem handtaka
hans kynni að hafa á orðstir
Sovétríkjanna.
Jevtusjenko kveðst hafa tekið
fram i bréfi sinu til miðstjórnar-
innar, að hann sé ekki sammála
mörgum sjónarmiðum Solzhenit-
syns. Engu að siður hafi sovézk
yfirvöld brugðið við skjótt og af-
lýst flutningi verka hans i út-
varps- og sjónvarpsdagskrá, sem
fyrirhuguð var á iaugardaginn.
Jafnframt var hann kallaður á
fund stjórnar sovézku rithöfunda-
samtakanna og veittar ákúrur.
Var farið það fram á það við
Jevtusjenko, að hann gagnrýndi
Solzhenitsyn opinberlega, en
hann neitaði.
Jevtusjenko var á sinum tima
talinn í forystu ..ungra, reiðra
manna“áSovétrikjunum en síðari
ár hefur hann ‘skipað sveit viður-
kenndra skálda og rithöfunda
þar.
Hearst vongóður um að
fá dóttur sína heila á húfi
Berkeley, Kaliforniu,
18. febr. AP
BANDARÍSKI ritstjórinn og
blaðaeigandinn Randolph A.
Hearst vinnur nú kappsamlega að
því að skipuleggja matvæladreif-
ingu til bágstaddra Kaliforníu-
búa eins og ræningjar dóttur
hans hafa krafizt og gerir sér vonir
um, að henni verði sleppt lausri á
morgun, þriðjudag. Ræningjarnir
hafa sent honum tvær segul-
bandsspólur, þar sem hún hefur
talað inn kveðju til föður síns og
áskorun um að láta lögregluna
ekki blanda sér í málið. Inn á
síðari spóluna hafði einnig einn
ræningjanna talað og sagði, að
þeir myndu gera sig ánægða með
að sjá fram á einlægan vilja
Hearsts til að koma til móts við
kröfur þeirra, sem upphaflega
Pompidou
til Moskvu
Moskvu 18. febrúar. .AP.
SOVÉZKA fréttastofan Tass
skýrði frá þvf í dag, að Georges
Pompidou Frakklandsforseti
myndi koma i opinbera heimsókn
til Sovétríkjanna fyrstu dagana í
marz nk. Samkomufág um heim-
sóknina náðist á fundi Pompidous
og Grömýkós utanrikisráðherra
Sovétríkjanna, sem nú er í Parfs.
hljóðuðu upp á 400 milljónir doll-
ara. Hearst hefur marglýst því
yfir, að hann hafi ekki nokkur tiik
á að greiða allt þetta fé, en hann
skuli láta af hendi allt, sem hann
geti.
Samkvæmt kröfum ræningj-
anna á matvæladreifingin að hefj-
ast á morgun. Þeir hafa tilnefnt
ákveðnar stofnanir til að annast
hana og hefur verið sett á laggirn-
ar nefnd þeirra undir forseti
prests að nafni Cecil Williams, er
starfar við Glide Memorial kirkj
una f San Fransisco. Williams
hefur lýst þvf yfir, að þeim aðil-
um, sem ræníngjarnir tilnefndu,
sé nauðugur einn kostur að verða
við tilmælunum enda þótt þau
viðurkenni á engan hátt slfkar
ofbeldisaðgerðir. Byltingarsam-
tök og vinstrisamtök í Bandarikj-
unum hafa að sögn neitað að veita
eða lýsa stuðningi við ræningj-
ana, sem setjast tilheyra samtök
um, er nefnist „Symbiosiski
frelsisherinn". Haft er eftir sál-
fræðingi við háskölann í
Berkeley, dr. Bernard Diamond,
að búast megi við, að ræningjarn-
ir séu menn hættulegir og vísir til
að standa við hótanir um að drepa
Patriciu Hearst, verði ekki gengið
til móts við þá. Segir læknirinn,
að orðsendingar ræningjanna
beri það með sér, að þeir séu
barnalegir menn en líkiega ein-
lægir og hafi lifað sig inn í bylt-
ingardrauma.
Blaðið, sem Hearst ritstýrir,
„Examiner" i San Fransisco og
„Okland Tribune" segja í dag, að
lögreglan hafi lýst eftir tveimur
mönnum vegna ránsins, Donald
Davids DeFreeze og Thero M.
Wheeler, sem báðir eru stroku-
fangar um þritugt.
60 farast
í flóðum
Buenos Aires, 18. febr, AP.
TALIÐ er, að a.m.k. 60 manns
hafi beðið bana af völdum flöða,
sem orðið hafa í tólf héruðum
Argentínu. A þremur svæðanna
hefur stjórnin lýst yfir neyðar-
ástandi. Um hundrað þúsund
manns hafa verið fluttir burt frá
heimilum sínum vegna flóða-
hættu.
Juan Peron forseti hefur sett á
laggirnar sérstaka stjórnarnefnd
til að hafa umsjón með björgunar-
starfi. Ástandið er verst i
héruðunum Salta og Jujuy í
norðurhluta landsins og Santiago
del Estero i miðhluta þess.
Flóðin stafa af völdum mestu
rigninga, sem komiÁ hafa á þess-
um slóðum árum saman.
Norðurlandaráð:
Verð-
launin
afhent
Stokkhólmi. 18. febr.
frá Birni Jóhannssyni.
AFHENDING bókmenntaverð-
launa og tónlistarverðlauna
Norðurlandaráðs fór fram við
hátíðlega athöfn f ráðhúsinu
hér sl. sunnudagskvöld.
Danski rithöfundurinn, Willy
Sörensen, sem hlaut bók-
menntaverðlaunin að þessu
sinni, gat ekki veitt þeim mót-
töku sjálfur vegna veikinda,
en framkvæmdastjöri Dan-
merkurdeildar Norðurlanda-
ráðs, Franz Wendt, tók við
þeim fyrir hans hönd og flutti
ávarp frá skáldinu.
Danska ' tónskáldið Per
Nörgaard hlaut tónlistarverð-
launin að þessu sinni fyrir
verk sitt Gilgamesh. Flutti
hann ávarp, er hann veitti
verðlaununum viðtöku.
Bókmenntaverðlaunin eru
veitt árlega, en tónlistarverð-
launin annað hvert ár. Forseti
Forseti Noröulandaráðs, Svf-
inn Johannes Antonsson, af-
henti verðlaunin.
Þyrluflugið yfir Hvíta húsinu á sunnudagsnótt:
Herinn fjallar um
mál flugmannsins
Washington 18. febr.
AP—NTB
HANDTFKINN var á sunnu
dagsnótt tvítugur Bandaríkja-
maður eftir övenjulegt þyrlu-
flug, sem skaut fjölda manna
skelk í bringu og lauk á fliit-
inni fyrir sunnan Hvíta húsið
eftir að ríkislögreglumenn
höfðu neytt þyrluna með skot-
hrfð til lendingar. Fftir yfir-
hevrslu mannsins I gær og í dag
var ákveðið, að saksóknari
ríkisins felldi niður áka-ru á
hendur honum og herinn fengi
mál hans til meðferðar. Hann
var við handtökuna sakaður um
að fara í óleyfi inn á yfirráöa-
sva‘öi forsetabústaðarins, en
þar yfir er harðlega bannaö að
fljúga.
Riehard Nixon forseti og fjiil-
skylda hans voru ekki í Hvíta
húsinu, þegar þetta gerðisl.þau
dveljast nú í Flórida.
Upphaf þossa máls var, að
siign talsinanna herstöðvarinn-
ar f Meade i Maryland og lög-
reglunnar i Washington, að
þyrlu af gerðinni Bell Huoy var
stolið frá Tiptonherllugvellin-
um í Meade um miðnæturbil
aðfararnótt sunnudags. 1 fyrstu
sveimaði hún yfir húsakynnum
hermanna í stööinni pn þegar
þyrla n'kisliigreglunnar i Mary-
land kom á yettvang, hélt
stolna þyrlan til Dullesflugval 1-
ar i N-Virginia. Þar fékk Inin
ekki lendingarleyfi og næsl
fréttist af henni, þar sem hún
flaug lágt yfir bifreiðum, sem
öku um þjóðveginn milli
Washington og Baltimore og
hélt iikumiinnum og ibútim
nærliggjandi húsa i skelfingu.
A þessuin slóðum lenti þyrlan
Framhald á bls. .'U