Morgunblaðið - 12.03.1974, Page 7
MORGÚNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1974
7
OLÍUFURSTARNIR hafa ný-
lega setið fyrstu ráðstefnuna
með fulltrúum þeirra þjóða,
sem hækkun olíuverðsins
kom hvað harðast niður á —
það er fulltrúum kaupenda
hjá vanþróuðu ríkjunum.
Ráðstefnan var haldin
sem leiðtogafundur ríkja
Múhameðstrúarinnar í
Lahore í Pakistan að frum-
kvæði forsætisráðherra
Pakistans, Zulfikar Ali
Bhutto, og árangurinn var
örlítil huggun fyrir fátæku
olíuinnflutningslöndin, sem
hafa orðið mun harðar úti
vegna olíuskortsins en vest-
rænu iðnrfkin.
Engin endanleg ákvörðun
var tekin til að milda það
áfall, sem efnahagsáætlanir
aðstoð
Houari Boumedienne.
Muammar Gaddafi.
Vilia _______
olíufurstanna
rúmlega 35 þróunarríkja,
sem fulltrúa áttu á ráðstefn-
unni, hafa orðið fyrir. En í
fyrsta sinn gerðu fulltrúar
olíuvinnsluríkjanna sér grein
fyrir erfiðleikum innflutnings-
ríkjanna og samþykktu að
gripa til sameiginlegra ráð-
stafana til að ráða bót á
þeim.
Ráðstefnan skipaði sam-
eiginlega nefnd fulltrúa
vinnsluríkja og innflutnings-
ríkja, sem getur ráðið sér-
fræðinga í sína þjónustu, og
á nefndin að leita að skjótum
leiðum til úrbóta. Nefndina
skipa fulltrúar Saudi-Arabíu,
Kuwait, Líbýu og arabísku
furstadæmanna af hálfu
framleiðenda, og Pakistans,
Alsírs, Egyptalands og
Senegals af hálfu neytenda.
Á nefndin að leggja fram
skýrslu sína og tillögur fyr-
ir fund utanríkisráðherra
Múhameðstrúarríkjanna eftir
tvo mánuði.
Ekki var ætlunin að taka
olíumálin á dagskrá leiðtoga-
ráðstefnunnar í Lahore, held-
ur tilgangurinn að ganga frá
sameigninlegri yfirlýsingu
um framtíð Jerúsalemborgar
og Palestínu-Araba. En strax
á fyrsta degi bárust umræð-
urnar að olíunni og við lá, að
hún varpaði aðalmálinu í
skuggann.
„Gæðaflokkun" ríkja
Aðallega voru það tvær til-
lögur, sem fram komu varð-
andi olíumálin. Önnur var frá
Muammar Gaddafi ríkisleið-
toga Líbýu, sem lagði til, að
olíukaupendum yrði skipað í
fjóra „gæðaflokka" og að
efsti flokkurinn fengi að
kaupa olíu á lægsta verði, en
neðsti flokkurinn greiddi oií-
una fullu verði. í lægsta
flokki yrðu þá flestar iðn-
væddu þjóðirnar, í þeim
næsta iðnríki, sem seldu olíu-
ríkjunum vopn og tækniað-
stoð, í þeim þriðja þróunar-
ríkin, og í efsta flokki lönd
Múhameðstrúarinnar.
Houari Boumedienne for-
seti bar fram hina tillöguna.
Lagði hann til, að endurskoð-
un færi fram um allan heim á
mismuninum á verði hráefnis
og fullunninna vara í þeim
tilgangi að koma í veg fyrir,
að auðugu ríkin gætu arð-
rænt þau fátækari.
Boumedienne hefur verið
einn aðal hvatamaðurinn að
væntanlegri ráðstefnú um
hráefnisverð á vegum Sam-
Zulfikar Ali Bhutto.
einuðu þjóðanna, og á ráð-
stefnunni í Lahore sagði
hann, að „í fyrsta skipti verð-
ur nú — vegna olíumálsins
— hlustað á okkur."
Fljótlega kom í Ijós, að
báðar tillögurnar höfðu sínar
veiku hliðar. Talið er svo til
útilokað að koma á mismun-
andi olíuverði vegna þess, að
olíuríkin sjá ekki um dreifing-
una og vegna þess, að þró-
unarlöndin kaupa yfirleitt
verulegan hluta olíunnar frá
olíuhreinsunarstöðvum utan
Arabaríkjanna. Að því er til-
lögu Boumedienne varðar,
þá er hún talin mjög erfið I
framkvæmd og of seinleg til
að koma að gagni fljótlega.
ÁKVÖRÐUN ÍRANS
Eina ríkið, sem þegarhefur
ákveðið að hlaupa undir
bagga með þóunarríkjunum,
er íran, sem ætlar að verja
einum milljarði dollara af
olíugróða sínum í þessu
skyni. Á upphæðin að renna í
sérstakan þróunarsjóð á veg-
um Alþjóðabankans og Al-
þjóða gjaldeyrissjóðsins.
Leiðtogaráðstefnan í Lahore
gagnrýndi þó þessa ráðstöf-
un af tveimur ástæðum. í
fyrsta lagi var því lýst yfir, að
Alþjóðabankinn og Alþjóða
gjaldeyrissjóðurinn væru
„vinir ísraels" (eins og Idi
Amin forseti Uganda komst
að orði og Yasser Arafat leið-
togi arabískra skæruliða tók-
undir), og í öðru lagi var bent
á, að vextir af lánum á veg-
um Alþjóðabankans væru of
háir fyrir fátækar þjóðir.
Áður en leiðtogaráðstefn-
unni lauk var mikið kapp
lagt á það að komast að
ákveðnu samkomulagi um
aðgerðir. í drögum að lokayf-
irlýsingu leiðtoganna var gert
ráð fyrir því, að inn í hana
yrði felld tillaga Gaddafis. Þá
hefðu olíufurstarpir I rauninni
undirritað fyrirheit um að
selja fátækari þjóðum olíuna
á lægra verði, eða greiða
þessum þjóðum uppbætur
með olíunni.
Það var Faisal konungur
Saudi-Arabíu, sem kom I veg
fyrir samþykkt þessarar ráð-
stöfunar. Hann sagði (! einka-
viðræðum, þv! að hann lagð-
ist ekki svoíágtaðtaka þátt í
almennum umræðum), að
hann væri samþykkur því að
veita fátæku þjóðunum að-
stoð, en hann hefði ekki haft
efnahagssérfræðinga s!na
með i förinni til Lahore og
þess vegna bæri að ræða
þetta mál í þar til kjörinni
sérfræðinganefnd.
Helzti vandinn, sem leið-
togafundurinn ! Lahore átti
við að stríða, var sá, að full-
trúarnir gera sér ekki enn
fulla grein fyrir áhrifum olíu-
kreppunnar — og á það
jafnt við um olíuf urstana,
sem ollu þessari kreppu með
þv! að hækka verðið. „Hagn-
aður þessara ríkja eykst nú
um 70 milljarða dollara á
ári," sagði fulltrúi frá Pakist-
an á ráðstefnunni. „Af þess-
ari aukningu koma 10 millj-
arðar dollara, eða 15%, frá
þróunarríkjunum. Vandinn er
sá að fá olíuríkin til að sætta
sig við þá hugmynd að að-
stoða þá fátæku. Þegar haft
er í huga, hve langan tíma
það tók að fá vestrænu iðn-
aðarríkin til að ræða hug-
myndina um að verja 1 % af
þjóðarframleiðslunni í efna-
hagsaðstoð viðþróunarlöndin
— hvað þá að koma þeirri
hugmynd í framkvæmd —
þá er ekki undarlegt, þó að
olíufurstarnir eigi erfitt með
að öðlast fullan skilning á
málin á örfáum mánuðum."
THE OBSERVER
EFTIR
WALTER
SCHWARZ
ÞHR IR EITTHURfl
FVRIR RLLR
PorgiimtþlaMfc
HERBERGI ÓSKAST
Upplýsingar í síma 81 700 á milli
kl, 9 og 5.
Innilegar þakkir vil ég færa öllum þeim, er heiðruðu mig
á 60 ára afmæli mínu 6. marz '74 með góðum gjöfum,
blómum, heillaskeytum og heimsóknum, sem aldrei
gleymast.
Kær kveðja og þakkir.
FINNUR ÁRNASON, garðyrkjumeistari,
Óðinsgötu 21.
VIÐURKENNDAR
ELDTRAUSTAR
— fyrir kyndiklefa
— hvar sem eldvörn þarf
— Sfandard stærðir
SÆNSK GÆÐAVARA
VIÐURKENNING
BRUNAMALASTOFNUNAR RlKISINS.
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGOTU 4
HAFNARFIRÐI — SÍMI 51919
Addo-X 9101 rafeindareiknivélin er fullkomin
lausn á samlagningarvél og kalkúlator. Vélin
hefur hið vel þekkta lykilborð með fisléttum
áslætti, lykilborðsloku og svörun í hverjum
takka.
Reiknar allar fjórar reikniaðferðir, talnarými
14+14 tölustafir.
Tvö reikniverk, konstant, prósentutakki o.m.fl.
GENGUR AÐEINS MEÐAN ÝTT ER Á
TAKKA.
KJARANhr
skrifstofuvélar & -verkstæði Tryggvagíítu 8. s.tmi'24140