Morgunblaðið - 12.03.1974, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.03.1974, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1974 21 SVEND-AAGE MALMBERG IIAFFRÆÐINGUR: Hafkostir og nýting þeirra Þekktar olíuauðlindir heims í fortíð og nútíð (miðað við árslok 1972). Athyglin beinist að landfræðilegri misdreifingu olíuauðlindanna og skýrir erfiða aðstöðu t.d. iðnrfkja Vestur-Evrópu og einnig Japans. Þróunarlöndin og höfin (P. Sreenivasa Rao lögfræðingur) —Þessi grein fjallar um álit lögfræðings á afstöðu þróunarlandanna til haf- kosta tslands telst almennt ekki til þróunarlandanna, en á þó með þeim samleið á sviði hafréttar. Kann þvf greinin að vera forvitnileg f augum íslenzks lesenda.— Um 130 þjóðir sækja hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, en í þeim hópi eru svonefnd þróunarlönd í miklum meirihluta. Engin einhlít skilgreining er til á þróunarlandi, en samt teljast til þeirra öll ríki Afríku nema Suður-Afrfka og Ródesía, öll ríki Asíu nema Japan, öll ríki Ameríku nema Bandaríkin og Kanada, og auk þess nokkrar eyj- ar á höfunum. Meðalárstekjur á íbúa í þessum löndum munu vera 50—300 dalir, en menning, við- horf, stjórnarfar, mennt og tækni er mjög mismunandi, — Þau eiga fátt sameigin- legt nema fátæktina—. Þótt þróunarlöndin séu mörg þá koma þau á hafréttarráðstefnuna með veika punkta eins og van- þekkingu um höfin, auðlindir þeirra og nýtingu, og einnig fjár- skort og manneklu til að taka þátt í öllum störfum ráðstefnunnar. Þessum löndum hefur samt tekizt að koma stefnumálum sinum á framfæri og þau virðast hafa myndað sterka samstöðu um sam- eiginlega hagsmuni. I flestum sér- málum, sem til umræðu verða á ráðstefnunni, er þó ekki um að ræða neina einhlíta afstöðu eða flokkun fvrir bróunarþjóðirnar. Eðlilegar virðist að flokka þjóð- irnar eftir t.d.: legu þeirra, þ.e. hvort um er að ræða eyþjóð, strandþjóð eða þjóð, sem hvergi á land að sjó; eftir því hvort þær stundi veiðar á heimamiðum eða fjarlægum miðum; eftir flota- styrk, orkunotkun, afstöðu til haf- rannsókna o.s.frv. — Flest þessi sjónarmið má þó einnig, andstætt skoð- un hins bandaríska lögfræð- ings, skoða sem áréttingu um, að þjóðirnar skiptist einmitt í þróunarþjóðir og tækniþróaðar þjóðir. — Lönd fjarri sjó og þau, sem bda við aðþrengda strandlengju, standa yfirleitt gegn viðáttumik- illi lögsögu strandrfkja og óska eftir sameign á auðlindum hafs- ins — eða frelsi til að nýta þær eins og bezt lætur. — önnur lönd, strandríki, vilja helga sér auð- lindir eins og gas, olíu og málma út á allt að 2500 m dýpi, eða lifandi auðlindir hafsins með 200 mílna lögsögu. Margar þjóðir stunda fiskveiðar á fjarlægum miðum utan 12 mílna, m.a. Sovét- menn, Japanir, Bretar og Þjóð- verjar, og munu þær því væntan- lega beita sér gegn víðáttumikilli fiskveiðilögsögu. Sömu sögu er að segja um miklar siglingaþjóðir, sem óttast hömlur á siglingaleið- um um sund og flóa, Þeirra á meðal eru Japanir, sem eru háðir miklum oliuflutningum til síns lands og útflutningi iðnaðarvarn- ings. Aðrar þjóðir, eins og t.d. Spánverjar, Tyrkir og Indónesar kunna svo að óttast mengun eða jafnvel hernaðarátök á þröngum siglingaleiðum við lönd þeirra. Svona má væntanlega lengi upp telja. Til að breikka samstöðu sina stefna þróunarlöndin að svo- nefndri efnahagslögsögu, sem II grein nær bæði til auðlinda á hafsbotni og í sjónum án tillits til mismun- andi staðsetningu auðlindanna, viðhalds þeirra og viðkomu eða hagkvæmrar nýtingar. Auk þess vilja þessi lönd alþjóðlegt eftirlit á auðlindum utan 200 mílna markanna svo þær verði nýttar i þágu alls mannkyns. Eftir því sem bezt verður vitað eru varla nokkrar áhugaverðar auðlindir utan 200 mílnanna eða á meira dýpi en 2500 m. Þvi virðist sem hugmyndir um sameign mannkyns á auðlindum hafsins utan 200 mílnanna byggist annað- hvort á fáfræði eða tilraunum til að blekkja þjóðir, sem eiga ekki land að sjó. — Sem kunnugt er hugsa Afríkuþjóðir sér að búa að sameign sinni sfn á milli innan efnahagslögsögunnar, en lönd fjarri sjó eru mörg S Afrfku.— Betra væri ef þróunarþjóðirnar berðust fyrir sannri alþjóða- stjórnun á nýtingu hafanna. Sum- ar þeirra efast jafnvel um nyt- semi alþjóðastofnana, hvað snert- ir eiginhagsmuni þeirra. Stað- reyndin er þó sú, að þróunar- þjóðirnar hafa notið góðs af starfsemi alþjóðastofnana; þær viðurkenna þetta sjálfar í reynd með óskum um fjárhags- og tækniaðstoð frá alþjóðastofnun- um fremur en frá einstaka þjóð- um, enda lúta samskipti einstakra þjóða oft reglum hins sterkari. Ef alþjóðastofnanirnar væru ekki til þá mundu þróunarlöndin í aukn- um mæli verða fyrir barðinu á kaldrænum staðreyndum í heimi misréttar, þegar einhliða skipti eiga sér stað milli tveggja þjóða. — Fyrir Islendinga eru samskipt- in við Breta og Þjóðverja e.t.v. dæmi i þessum efnum. — Ýmis þróunarlönd hafa enn ekki gert sér grein fyrir stefnu sinni ef í ljós kemur, að auðlind- irnar úti fyrir ströndum þeirra eru engar eða litlar. Ef auðlindirnar reynast vera miklar þá hafa þessar þjóð- ir ekki gert_ sér grein fyrir markaðsmálum og samneyti við þaulreynd einkafyrirtæki á sviði viðskipta, né fjármögnun fyrir hagkvæma nýtingu auðlindanna. Verði andstæðurnar milli þeirra þjóða, sem stefna að víð- áttumikilli efnahagslögsögu, og hinna, sem standa gegn henni, of miklar á hafréttarráðstefnunni, er hættu á að ráðstefnan verði árangurslaus. Astandið, sem þá kann að skapast, þ.e. að hver hugsi um sig, mun bitna harðast á þróunarlöndunum. Ein leið til að ná árangri virðist vera að draga úr víðáttu éfna- hagslögsögu í t.d. sem svarar 1000 m dýpi eða 100 milur. Sameign mannkyns á auðlindum hafsins virðast þá ekki vera orðin tóm. Slíkt mundi geta tryggt árangur og friðsamleg samskipti milli þjóða. Hvernig sem málin fara á haf- réttarráðstefnunni þarf sem fyrst að marka stefnuna um efnahags- lögsöguna og skipulagningu á af- rakstri auðlinda utan hennar^ I þeim efnum virðist eðlilegt, að svæðisbundin samtök fjalli um lifandi auðlindir sjávar, en auð- lindir á hafsbotni verði aftur í höndum einnar alþjóðastofnunar vegna nauðsynjar á samvinnu í stað samkeppni varðandi orku- dreifingu í Heiminum. Einnig ber að huga að sem mestri frjáls- hyggju á sviði siglinga og verzlunar. A þann veg munu þróunarlöndin vinna áeigin hags- munum og jafnframt stuðla að sem mestum rétti og reglu í heiminum. — Þessi grein fellur væntanlega ekki öllum í geð hér á landi, hvað þá í hinum þróunarlöndunum. Það getur samt verið nauðsyn- legt að gefa slíkum sjónar- miðum gaum. Ætla má, að samþykktir, sem stórveldin geta ekki sætt sig við, séu þvf miður oft óraunhæfar, þótt stórveldin geta ekki sætt sig við, séu því miður oft óraunhæfar, þótt áróðursgildi þeirra geti verið mikið. Einnig skal bent á, þótt það sé ekki leng- ur á dagskrá, að tslendingar gætu á margan hátt vel við unað, ef 100 mflna eða 1000 metra efnahagslögsaga nær örugglega fram að ganga. Slfk niðurstaða væri reynd- ar mikil tilslökun af hálfu stórveldanna og annarra iðnaðarrfkja. Gildi 200 míln- anna felst að mestu f sam- stöðu margra þjóða í þeim efnum, en ekki af nauðsyn á hverjum stað. — (þýtt og endursagt). — Heilög Birgitta Framhald af bls. 10 inberra aðila í Vadstena gætti furðulegrar andstöðu við þá hugmynd að endurreisa bygg- ingar þar, meðal annars á klausturkirkjunni, sem nefnd var Birgittukirkjan. Turnar þeirrar kirkju blöstu við augum von Heidenstamms í bernsku hans frá herragarðssetrinu Ols- hammar á eystri bakka Vatt- ern. Ahrifamenn, sem höfðu hug á að varðveita þau lista- verk sem til voru frá þessum stað, efndu til sýningar á þeim í Stokkhólmi. Sú fallega sýning vakti ákaflega mikla athygli. Og hún átti þátt i þvi að and- staðan í Vadstena fór dvinandi við þá hugmynd, að hlúð yrði að Birgittukirkjunni. Á Birgittudeginum þann 7. október 1920, á þeim degi þegar hún hafði öldum áður verið lýstur dýrlingur safnaðist um fjörutíu manna hópur áhuga- samra aðila saman í Stokk- hólmi. Þar varð til Birgittufé- lagið. Það var ekki kaþólskt fé- lag, en reynir að starfa á kristi- legum grundvelli. Tilgangur- inn með þessu félagi var að freista þess að varðveita hinn merka menningararf, sem Sví- þjóð á í lífi og starfi Heilagrar Birgittu, með þvi meðal annars að endurreisa hinar fornu klausturbyggingar í Vadstena og nýta þær í þágu menning- arinnar og til þess að styðja við bakið á fólki, sem í nauðum væri statt . . . láta Vadstena verða sem forðum skjól þeirra, sem leituðu kyrrðar og einfald- leika. GESTAHEIMILIÐ Þetta hefur gengið eftir. Rit- ari félagsins próf. Andreas Ny- blom, lét hvað eftir annað i ljós þá skoðun, að gestaheimili Vad- stena ætti að vera allt í senn rólegt gistiheimili og öruggur griðastaður, þar sem nútima- menn, menn streitu.gætu fund- ið frið og hugarró. Árið 1920 við stofnun félags- ins var þarna ekkert gestaheim- ili. En félagið ávann sér traust stjórnvalda, ríkið gaf því bygg- ingarnar aftur og hefur félagið séð um endurreisn á staðnum af trúmennsku og dugnaði. Fyrsti formaður þessara sam- taka var Eugen prins, og gegndi hann þvi af áhuga og dugnaði, i samvinnu við aðra i stjórninni, unz hann lézt árið 1947. Núver- andi formaður er landstjórinn á Austur-Gotlandi, Per Ecker- berg. Það var þó ekki fyrr en geð- sjúkrahúsið, sem hafði verið í nunnuklaustrinu gamla frá lok- um síðari heimsstyrjaldar, hafði verið rýmt, að endurbæt- ur á gömlu nunnuálmunni gátu hafist. Snjallir arkitektar lögðu hönd á plóg, margar hendur voru til taks. Gjafir bárust frá félögunum sjálfum, frá opin- berum stofnunum og einka- aðilum. Andreas Lindblom, sem hef- ur verið ritari félagsins árum saman, sá einnig um bdnað og innréttingu á gestaherbergj- unum. Vadstenagestaheimilið var svo opnað 1964. Þangað hafa leitað gestir frá Norður- löndunum og viðar og eiga margar ánægjuríkar minningar frá dvöl sinni. Enn er þó ýmis- legt ógert í sambandi við búnað heimilisins. OG AFTUR ERU NUNNUR I VADSTENA Og nú er aftur komið Birgittuklaustur i Vadstena. Nýtt klaustur var vígt þar 1935, skammt frá þeim stað, sem gamla klaustrið hafði staðið á. Systurnar reka einnig hvíldar- og sjúkraheimili. Þar lauk Jo- hannes Jörgensen sínu viða- mikla verki um Heilaga Birg- ittu. Birgittureglan var stofnuð þann 5. ágúst 1370. Próf. Lind- blom sem áðir er nefndur hefur staðið að útgáfu, fallega mynd- skreyttri, um Vadstenaklaustur fyrr og síðar. í júlímánuði er jafnan mest- ur straumur gesta til Vadstena. Á nafndegi Heilagrar Birgittu ár hvert syngja systurnar hinn fræga latneska sálm, sem hljömar svo i sænskri þýðingu Lindbloms: Ros, som dagg af gothed sprider Stjarna, klar i mörka tider, O, Birgitta, naadefull Gut som dagg i himmelsk enhet Hjártats fromhet, livets renhet Över taaredalens mull. Og það eru ekki aðeins kaþólskir menn, sem nema staðar eina stund og mæla fyrir munni sér þessi orð: „Heilög Birgitta, bið þú fyrir oss."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.