Morgunblaðið - 12.03.1974, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.03.1974, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1974 Sjötugur í dag: Gunnar Jónsson, Nesi GUNNAR Jónsson, Nesi á Rangárvöllum, er sjötugur í dag. Af því tiíeíni langar mig að senda honum stutta afmæliskveðju. Gunnar er fæddur 12. mars 1904 í Nesi í Norðfirði og voru foreldrar hans Halldóra Bjarna- dóttir og Jón Bjarnason. Kann ég ekki að rekja ætt hans frekar. Til 15 ára aldurs dvaldi Gunnar í Norðfirði, en fór þá norður í Bárðardal og var þar í fimm ár. Árið 1925 flutti Gunnar suður á Rangárvelli og hefur átt þar heima síðan. Var hann fyrst hjá Guðmundi Þorbjarnarsyni á Stóra-Hofi í nokkur ár, en stund- aði síðan ýmis störf og vann m.a. með dráttarvél að jarðabótum í vestanverðu Rangárþingi. Var það fyrsta dráttarvélin, sem þangað kom. Gunnar kvæntist ái'ið 1933 Guðrúnu Jónsdóttur, Jónssonar, bónda í Bjóluhjáleigu og Önnu Guðmundsdóttur, konu hans. Hófu þau búskap í Gunnarsholti, þar sem Gunnar gerðist ráðs- maður hjá Búnaðarsambandi Suðurlands, sem hafði þar bú- rekstur. Ari síðar flytja þau að Selalæk og bjuggu þar í fjögur ár. Vorið 1938 keypti Gunnar hluta úr jörðinni Helluvaði og reisti þar nýbýlið Nes, spölkorn frá Hellu, og hafa þau hjón búið þar síðan, en samhliða búskapnum hefur Gunnar jafnan stundað önnur störf. Þegar Gunnar flytur að Nesi, hafði Kaupfélagið Þór verið stofnað þremur árum fyrr og réðst hann í þjónustu þess, sem pakkhúsmaður. Arið 1947 gerðist Gunnar innheimtumaður hjá Raf- magnsveitum ríkisins í Rangár- vallasýslu og gengir því starfi enn. Þannig er í stuttu máli lífs- hlaup Gunnars i Nesi til þessa dags, sitt hvað mun þó ótalið, m.a. það að hann hefur verið sóknar- nefndarformaður og meðhjálpari í Oddakrikju um nær 30 ára skeið. Á safnaðarfólk honum þakkir að gjalda fyrir þau störf og önnur að málefnum kirkjunnar. Það sem mér finnst ríkast í fari Gunnars í Nesi er hógværð hans, samhliða greiðasemi hans og hjálpsemi. Hann hefur hvergi tranað sér fram, en jafnan verið boðinn og búinn til að greiða úr fyrir öðrum, þegar þess tiefur verið óskað. Eins og flestír aðrir hefur Gunnar lengst af unnið hörðum höndum fyrir daglegu brauði sínu og sinna. Hefur því komið sér vel að hann er maður vel verki far- inn, einn þeirra sem „hagir“ eru kallaðir, enda mun hann aldrei hafa skort verkefni. Svo sem fyrr er sagt er Nes örskammt frá kauptúninu á Hellu. Gunnar hefur því vel fylgst með vexti þess og uppbyggingu. Þegar hann reisti býli sitt var engin byggð á Hellu, utan verslunarhús kaupfélagsins. Nú hefur byggðin þrengt svo að Gunnari að hálft tún hans er komið undir hús og áfram er haldið í sömu átt. Alltgerist þetta með góðu samkomulagi við Gunnar og konu hans og eiga þau þakkir skilið fyrir af hálfu Hellu- búa. Gunnar og Guðrún eiga þrjá syni, sem allir eru kvæntir, er Sjötugur í dag: Gísli á Hvalsnesi Jóhann búsettur á Seltjarnarnesi, en Jón Bragi og Kristinn á Hellu. Kynni mín af Gunnari í Nesi eru orðin ærið löng, því hann hefur verið einn næsti nágranni minn frá því ég man eftir mér. Ég hef því ríka ástæðu til að þakka langa og góða viðkynningu, um leið og ég sendi honum og hans fólki innilegar hamingjuóskir á þessum timamótum. Jón Þorgilsson. Töf hjá togaranum • • Ogra UM ÞESSAR mundir liggur í Reykjavíkurhöfn skuttogarinn Ögri, en vegna bilunar í kæli- vatnsinntakinu mun verða nokkurra daga töf hjá honum. Mun vatn hafa lekið inn í vélar- rúmíð og bleytt þar vélar og annað, sem verður að þurrka áður en Ögri heldur aftur á veiðar. GÍSLI sonur Guðmundar á Norð- urkoti er sjötíu ára í dag. Hann er vel kynntur og vinmargur á Suð- urnesjum; enda ástundað félags- lega hjálp og hlýlegt viðmót um langa ævi. Að þeirra tíma hætti lagði Gisli stund á sjósókn og landbúnaðarstörf þegar á ferm- ingaraldri, en er sýnt var, að heilsufar leyfði ekki slík erfiðis- störf, þá gerðist hann rafvirki og hefur stundað þá iðju um alllangt árabil. Gísli hefur verið mikilvirkur í félagsmálum i sínu héraði. Eink- um hefur kirkja hans á Hvalsnesi notið umönnunar hans og natni. Safnaðarstörf og allt það, er efla mátti kirkju hans, hafa verið hon- um hugljúf viðfangsefni. „Haldið áfram Traustur sjálfstæðismaður hef- ur Gísli veríð, setið i heppsnefnd sveitar sinnar og gegnt trúnaðar- störfum í Sjálfstæðisfélagi Mið- neshrepps athugunum” MORGUNBLAÐIÐ sneri sér I gær til Einars Agústssonar utanríkis- ráðherra og spurði hann hvort ákvörðun hefði verið tekin um hvenær fram yrði haldið varnar- málaviðræðunum við Bandaríkja- menn. Hann kvað enga ákvörðun hafa verið tekna í því efni ennþá. Þá spurði Mbl. ráðherrann einnig um framhald viðræðna við VÞjóð- verja um landhelgismálið. „Ég hef talað við þýzka sendiherrann nú fyrir nokkru og það verður haldið áfram athugunum á leið- um til lausnar á því,“ sagði Einar Agústsson. Gísli er kvæntur Guðrúnu dótt- ur Páls á Ilvalsnesi. Heimili þeirra hjóna er þekkt að rausn og myndarskap. Heirnili þar sem greindur og fróður húsbóndinn, margreyndur í hörðum skóla lífs- ins hefir mannbætandi áhrif á þá, er hann sækja heim. Vinir og félagar senda Gísla kveðjur á þessum merkisdegi lís hans, og vina að fá að njóta návistar hans lengi enn. Þakka honum og fjölskyldu hans þeirra ómetanlega framlag til menning- ar-og félagsmála umhverfisins. O.Öl. ES2K Bifrei'ð astjóri óskast Viljum ráða vanan bifreiðarstjóra með réttindum til aksturs stórra vörubifreiða. Upplýsingar í olíustöð okkar við Skerjafjörð, sími 11425. OLÍUFÉLAGIÐ SKELJUNGUR H.F. Vanan mann vantar til að sjá um viðhald og eftir- lit með flökunarvélum. Framtíðar- starf fyrir reglusaman mann. Fiskiðjan Freyja h.f. Súgandafirði Sími 94-6105 eða 94-6146. Vantar stúlku til ræstinga og umsjónar með kaffi- stofu. Nánari uppl. í síma 33033. Fjarskiptastöðin Gufunesi Atvinna Óskum að ráða nokkrar stúlkur til verksmiðjustarfa. Kexverksmiðjan Frón hf. Skúlagötu 28. Húsgagnasmitiir, húsasmióir, aÓstoÓarmenn vantar okkur nú þegar í vinnu á verkstæði okkar. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Sigurður Elíasson hf., Auðbrekku 52, Kópavogi. Kópavogsbúar Óskum að ráða starfsmenn til verk- smiðjustarfa nú þegar á aldrinum 35 — 50 ára. Nánari upplýsingar hjá verkstjóra, milli kl. 1 og 4 mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Málning h.f., Kársnesbraut 32, sími 40460. Skipstjóri sem er landskunnur afla- maður óskar eftir vönum háseta á 180 tonna netabát sem rær frá Patreksfirði. Símar 34349 og 30505. Sendisveinn Röskur sendisveinn óskast eftir há- degi. Upplýsingar á skrifstofunni. Bókaverzlun Snæbjarnar, Hafnarstræti 4. Verzlunarmaöur Óskum eftir að ráða mann við út- keyrslu og önnur almenn verzlunar- störf. Upplýsingar í síma 36746. A'ðstoÓarmaÓur — bílasala Ungan reglusaman mann vantar okkur nú þegar til aðstoðar sölumönnum nýrra og notaðra bif- reiða. Bílpróf nauðsynlegt. Upplýs- ingar ekki í síma Ford-umboðið Kr. Kristjánsson H.F., Suðurlandsbraut 2. Sjómenn Stýrimann, 2. vélstjóra og háseta vantar á m/b Faxavík til þorska- netaveiðar. Uppl. í símum 71566, Reykjavfk og 1968, Keflavík. Hraðfrystihús Keflavíkur h.f.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.