Morgunblaðið - 12.03.1974, Side 19

Morgunblaðið - 12.03.1974, Side 19
[Tlrtljir ................ _ -- * rr ™ ~ “ •" ----- 111. .1 MÍ-íl MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1974 19 í Morgunblaðinu hinn 31. janúar sl. birtist grein, sem heitir Nýting sjúkrahúsa, en er opið bréf til heilbrigðisráðherra frá Félagi ísl. lækna i Bretlandi, og óska þeir þess, að hann svari þessu bréfi á opinberum vett- vangi. Að öðrum þræði er þessi grein frásögn af fyrirkomulagi heil- brigðisþjónustu á íslandi með ákveðnum athugasemdum. Hins vegar er um að ræða ákveðnar spurningar um fyrirætlanir heil- brigðisstjórnarinnar í sambandi við heilbrigðismál. Um það eru ekki deilur, að sjúkrahúsrekstur er mikill hluti útgjalda til heilbrigðismála, en þetta er ekki einstakt fyrirbrigði á íslandi, heldur er það svo, hvar sem er í heiminum og g^gnir sama máli, hvort um er að ræða hið þjóðnýtta kerfi heilbrigðis- þjónustu Bretlands eða einka- framtak i Bandaríkjunum. Munurinn er eingöngu sá, að kostnaðurinn verður i heild meiri, þar sem frjálsræði ríkir um reksturinn, en hlutföllin eru því nær hin sömu. Hvað sem þessu líður eru aliir sammála um að nauðsynlegt er að reka þessi fyrirtæki eins og öll önnur á sem hagkvæmastan hátt, jafhframt því sem þau veiti góða þjónustu. Það hefur verið stefna heil- brigðisstjórnarinnar undanfarið, ekki aðeins að veita betri upplýs- ingar um fyrirætlanir á sviði heil- brigðismála en áður, heldur einnig, að starfslið heilbrigðis- þjónustunnar geti átt sinn þátt í ákvarðanatöku i sambandi við stofnanir, er það vinnur við. Má í þvi sambandi nefna þær breytingar, sem verða á stjórnum allra sjúkrahúsa með nýju lög- unum um heilbrigðisþjónustu og meðal annars koma fram i reglu- gerð um starfsmannaráð, sem út var gefin í lok desember s.l. og hefur þegar tekið gildi. Heilbrigðisstjórnin væntir þess, að þessar breytingar verði til þess að vaxandi og almennur áhugi verði á stjórnun þessara stofnana, bæði með aukinni hagræðingu og nýtingu í huga, en ekki síður með aukna og betri þjónustu i huga. Fyrirkomulag heilbrigðisþjón- ustu á Islandi hefur verið um margt ólíkt því, sem gerist í ná- grannalöndum, þannig að hvergi er hægt að benda á land, þar sem fyrirkomulagið er nákvæmlega það sama. Hér er heimilislæknakerfi, sem frá byrjun hefur verið byggt líkt upp og í Bretlandi, Danmörku og Noregi, en hefur síðan þróast á mjög ólíkan hátt. Sjúkrahúskerfið hér frá byrjun á sér ekki hliðstæðu nema í einka- sjúkrahúsum erlendis og er skýr- ingin e.t.v. sú, að fyrsta sjúkra- húsið I Reykjavík er einkasjúkra- hús, þar sem læknarnir starfa ein- göngu hver fyrir sig að rannsókn- um og aðgerðum á sjúklingum sínum, en höfðu hins vegar stofur sínar utan sjúkrahússins. Þegar Landspítalinn er teiknaður á sin- um tíma, þá er þar ekki gert ráð fyrir neinni aðstöðu vegna göngu- deildarsjúklinga, sem þó var þá þekkt fyrirbrigði bæði í Dan- mörku og Þýskalandi, en þangað sóttu íslenskir læknar þá aðallega menntun sína og framhalds- menntun. Göngudeildarstarfsemi hefur þvi ekki þróast á sjúkrahúsum í Reykjavík og hefur þvf ekki verið gert ráð fyrir henni i byggingun- um fyrr en nú á allra siðustu timum, hins vegar hefur verið gert ráð fyrir þessari starfsemi i nýbyggingum á sjúkrahúsum utan Reykjavíkur, svo sem á Akureyrar-sjúkrahúsi á sínum tíma og það er gert ráð fyrir henni í öllum nýjum sjúkra- húsum í dag. Frá byrjun hefur íslenska tryggingakerfið gert ráð fyrir greiðslum sjúklinga vegna lækn- ishjálpar utan sjúkrahúsa, en ekki fyrir beinum greiðslum sjúklinganna vegna sjúkrahús- vistar. Hins vegar er hér um óbeina greiðslu að ræða, ef um lengri veikindi er að ræða, því að dag- peningar sjúkrasamlaga eru lægri til þeirra, sem liggja í sjúkrahúsi en hinna, em eru utan sjúkra- húsa. Fólk, sem fer til rannsóknar án þess að það þurfi að hætta vinnu, er talið geta betur staðið undir kostnaði af þessu tagi og þess vegna hefur þessi regla verið i gildi. Hvað snertir breytingu á þessu kerfi hefur verið um það rætt að jafna þessum kostnaði, ekki með því að fella hann alveg niður, heldur með þvi að hafa greiðslu sömu upphæðar fyrir komu á göngudeild og komu á rann- sóknarstofu og röntgendeild, hvaða þjónusta sem í té er látin, á svipaðan hátt og nú er um greiðsl- ur vegna lyfja í Svíþjóð og Bret- landi. Enginn vafi er á því, að ein- hverjir sjúklingar eru lagðir inn á sjúkrahús til rannsóknar vegna þess, að rannsóknir utan sjúkra- húss eru þeim kostnaðarsamar, en því má ekki gleyma, að i flest- um þessum tilvikum er um að ræða gamalt fólk, þar sem slíkar rannsóknir utan sjúkrahúsa yrðu sjúklingunum einnig mjög erf- iðar, og þvi er oft af þeim ástæð- um einum ástæða til innlagningar vegna rannsóknar. Því hefur verið haldið fram í blaðagreinum og viðtölum að und- anförnu og m.a. í þeirri grein, sem hér er verið að svara, að sjúklingar séu oft lagðir inn að óþörfu á legudeildir sjúkrahús- anna. Fyrirspurnir, sem heilbrigðis- ráðuneytið sendi til lyflækninga- deilda sjúkrahúsanna i Reykjavík um þetta mál, benda alls ekki til, að svo sé. Læknar sjúkrahúsanna líta ekki á bráðar innlagningar gamals fólks til rannsóknar um stundarsakir sem óþarfar og kemur þar fram kannski meira mannúðarsjónarmið hjá vakt- læknum og heimilislæknum en tíðkast í hinum stóra heimi. Að sjúkrarúm séu fyllt af sjúkl- ingum, sem ekki þurfa að iiggja inni á sjúkrahúsum og verða því fyrir óþarfa vinnutapi af þeim sökum, eru fullyrðingar, sem ekki fást staðist, að áliti þeirra lækna, er á sjúkrahúsunum starfa nú. Hitt er staðreynd, að sjúkrarúm fyllast og teppast af sjúklingum, oftast öldruðum, sem koma inn bráðveikir, en ekki er síðan hægt að útskrifa vegna aðstöðu í heima- húsum og þess, að ekki er um að ræða hjúkrunardeildir, sem við þeim geta tekið. Ráðuneytið væntir þess, að læknar lyflækningadeilda svari fyrir sitt leyti þeim fullyrðingum, um starfsemi lyflækningadeilda i Reykjavík, sem fram koma i bréfi ykkar. Á vegum ríkisspítalanna eru nú starfandi göngudeild við Land- spítala, sem er lokuð göngudeild að því leyti, að þangað koma ein- göngú sjúklingar, sem legið hafa í spítalanum áður, göngudeild sykursjúkra á sama spítala, sem er nýtekin til starfa, og engin reynsla er fengin af enn, göngu- deild á Kleppsspitala og Flóka- deild, sem starfandi hefur verið um árabil og tekur bæði á móti sjúklingum, sem legið hafa í þess- um sjúkrahúsum og sjúklingum beint frá heimilislæknum. í Fæðingardeildinni nýju og Geðdeildinni er gert ráð fyrir göngudeildarstarfsemi. Þó er það svo, að það má furðulegt heita, hve gert er ráð fyrir litlu húsrými fyrir göngudeildarstarfsemi Fæð- ingardeildar og sannar það enn, að áhugi lækna, sem mestu hafa ráðið um gerð þeirrar deildar, er ekki sá, sem bréfritarar vilja vera láta. Það er ákvörðun heilbrigðis- stjórnarinnar, að göngudeild i hinni nýju Fæðingardeild verði ekki lokuð göngudeild, heldur op- in að eins miklu leyti og hægt verður, og er í ráði að leita sam- komulags við borgaryfirvöld Reykjavikur um mæðraeftirlit og Krabbameinsfélag íslands um skoðanir og rannsóknir, er það félag hefur annast, til þess að þessar þrjár stofnanir geti nýst sem best sem sérfræðilegar rann- sóknarstofnanir. Það er ákveðin stefna heil- brigðisstjórnarinnar nú að reyna að færa sérfræðilega göngudeild- araðstöðu að sjúkrahúsunum, þannig, að þeir sérfræðingar, sem á sjúkrahúsunum vinna við sjúkl- inga, verði jafnframt ráðnir til starfa að þessum göngudeildum og að það verði hægt að taka á móti sjúklingum beint frá heimilislæknum svo að ákvörð- unin um innlagningu á sjúkrahús- ið sé í höndum þeirra sérfræð- inga, sem siðar eiga að fjalla um þá i sjúkrahúsinu. Það er nú i höndum bygginga- stjórnar Landspítalans, hvernig að þessu máli verður staðið, hvort hægt verður að hrinda því af stað að einhverju leyti með bráða- birgða- og leiguhúsnæði jafn- framt þvi sem rannsóknaraðstaða sjúkrahússins er aukin. Hvað viðvíkur Borgarspítala hefur heilbrigðisstjórnin lagt á það áherslu í viðskiptum sínum við stjórnendur hans, að leggja eigi þar áherslu á þjónustu- deildir, og þar undir göngudeild- ir, áður en hafist verður handa um byggingu nýrra sjúkradeilda. Forráðamenn borgarinnar hafa hins vegar talið nauðsynlegt að undirbúa þetta hvort tveggja sam- timis, en heilbrigðisstjórnin hefur ekki mælt með fjárveit- ingum nema til göngudeildar- starfsemi Borgarspitala fyrst um sinn. Mjög má um það deila, hvenær forspár um sjúkrarúmaþörf er marktæk. Sú spá, sem heilbrigðis- stjórnin gekkst fyrir að gerð yrði, byggir ekki nema að litlu leyti á íslenskum athugunum, hún bygg- ir hins vegar mun meira á athug- unum, sem gerðar hafa verið í þeim löndum, þar sem göngu- deildarstarfsemi af þvi tagi, sem hér hefur verið rætt, þ.e.a.s. opin göngudeildarstarfsemi við sjúkra- hús, er rekin i stórum stíl, og er þess vegna að því leyti frekar spá um það fyrirkomulag, sem verða á i framtiðinni í sambandi við sjúkrahús og göngudeildir. Sá misskilningur kemur fram í bréfinu, að rikið hafi ekki hönd I bagga með því, til hvaða starfsemi fé ríkisins fer i sambandi við byggingar heilbrigðisstöðva. Fjár- lög ákvarða til hvers fé ríkisins fer, ef um er að ræða byggingu og búnað heilbrigðisstofnana, og ekkert fé er greitt úr ríkissjóði nema ákvörðun Alþingis liggi fyrir í þessu efni. Skoðanir Alþingis og heil- brigðisstjórnarinnar þurfa hins vegar ekki að fara saman í þessu efni, og þegar á milli ber, ræður að sjálfsögðu ákvörðun Alþingis. Hins vegar má benda á það, að sú nýbreytni er tekin upp i lögum um heilbrigðisþjónustu, að í stað þess, að áður var fé ríkisins veitt sem styrkur til sveitarfélaga, þá verður framvegis svo, að ríkið verður eignaraðili að heilbrigðis- stofnun i hlutfalli við framlag, svo að heilbrigðisstofnanir fram- tiðarinnar verði að 85 hundraðs- hlutum eign rikisins. í stuttu máli eru þvi svörin við þeim tveim spurningum, sem fram koma í fyrri hluta greinar- innar, þannig: Það er ákveðin stefna heil- brigðisstjórnarinnar i dag, að göngudeildarstarfsemi, þ.e. opnar göngudeildir, verði i vaxandi mæli við öll sjúkrahús landsins, þar sem eðlilegt er að koma því við. Við sjúkrahúsin í Reykjavík þarf að vinna að þessu með bráða- birgðaráðstöfunum hið allra fyrsta og er þess að vænta, að greinarhöfundar reynist sannspá- ir um afstöðu læknasamtakanna til málsins, því að eins og hér hefur verið rakið að framan, er ekki hægt að rekja núverandi ástand í þessum málum til neins annars en stefnumörkunar læknasamtaka og skoðana þeirra lækna, sem um málið hafa fjallað á hverjum tíma. Það er skoðun heilbrigðis- stjórnarinnar, að það sé algerlega óeðlilegt, að læknar, sem vinna við sjúkrahús, vinni að sérgrein sinni vegna sjúklinga, sem utan sjúkrahúsanna eru, annars staðar en,á sjúkrahúsinu sjálfu, og að það eigi algerlega að leggja niður lækningastofur slikra lækna utan sjúkrahúsanna. Hvað því viðvíkur, hvenær vænta megi breytinga á trygg- ingakerfi, þannig að greiðslur al- mannatrygginga verði eins, hvort sem sjúklingar eru rannsakaðir á legudeildum eða utan þeirra, þá er því til að svara, að nú á næstu vikum verður lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, þar sem þessi atriði verða upp- tekin, ekki þannig að greiðslur sjúklinga falli niður algerlega, heldur þannig, að jöfnuður verði um greiðslur milli dýrra g ódýrra rannsókna. Það á að vera eitt af hlutverk- um heilbrigðisstjórnarinnar að hafa yfirlit yfir heilbrigðisþjón- ustu landsins, þar á meðal það, að ekki sé tvíverknaður og komið sé á dýrri þjónustu, sem óþörf sé eða illa notuð. í þessu skyni var sett upp af fyrrverandi heilbrigðisráðherra samstarfsnefnd sjúkrahúsa, sem hélt nokkra fundi og ræddi um skiptingu starfa sjúkrahúsanna í Reykjavík og gerði nokkrar til- lögur um fyrirkomulagsatriði af þvi tagi. Nefnd þessi hafði ekkert fram- kvæmdavald og það var álit aðila heilbrigðisstjórnarinnar í nefnd- inni, að tillögur kæmust ekki til framkvæmda fyrr en lagaheimild væri til reglugerðarsetningar um þau atriði. Þrátt fyrir ekkert opinbert safn- komulag milli sjúkrahúsanna, hefur hins vegar orðið allmikil verkaskipting milli þeirra, eins og glögglega er rakið í bréfi ykkar, og hefur verið á því vaxandi skiln- ingur, bæði stjórnenda sjúkrahús- anna og lækna, að þannig þyrfti að vera í framtíð. Með nýju heilbrigðisreglugerð- inni fær heilbrigðisráðherra vald til að ákveða verkaskiptingu og starfssvið sjúkrahúsanna, þ. á m. Svar við bréfi íslenzkra lækna í Bretlandi sjúkrahúsanna í Reykjavík, og er gert ráð fyrir því, að reglugerð um þessi atriði verði sett á þessu ári, þar sem starfssvið hvers sjúkrahúss landsins verði ákvarð- að og I því sambandi verður að sjálfsögðu litið á Reykjavík sem eitt svæði og er þá kominn mögu- leiki til að hafa eina stjórn (yfir- stjórn) fyrir öll sjúkrahús á Reykjavíkursvæðinu. Sama máli mun gegna um sjúkrahúsin utan Reykjavíkur, ráðherra á að ákveða starfssvið þeirra hvers fyrir sig og tengsl þeirra innbyrðis. Hvað viðvíkur hei ldaráætlun um sjúkrahús fyrir landið allt, telur ráðuneytið, að það megi lita skýrslu þá um vistunarrýmisþörf, sem fyrr hefur verið nefnd, sem stefnumörkun i þessu máli, enda þótt hún hafi ekki fengið opinber- an stimpil sem slík. í skýrslunni er einmitt tekið tillit til alls landsins og því skipt niður í þjónustusvæði, þ.e. lands- þjónustusvæði, möndulþjónustu- svæði, og heimaþjónustusvæði, sem að líkindum verða siðan sam- hæfð með reglugerð, sem fyrr greinir, um sjúkrahús landsins og heilbrigðisstofnanir. Aætlunin um framtíðarþjón- ustu Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er hluti af þessu og fellur vel saman við áætlunina í fyrrgreindri skýrslu. Uppbygging sjúkrastofnana á Suður- og Vesturlandssvæðinu og þó aðallega í Reykjavík er hins vegar enn í deiglunni og er unnið að skipulagsmálum bæði á lóð Landspítala og Borgarspitala og eru það sjálfsagðar forrannsóknir og forvinna, því að á þessum tveimur stöðum verða aðalsjúkra- hús þessa svæðis i framtíðinni og það er miklu fremur ákvörðun um tímasetningu sem ræður því, livað gert verður á hverjum stað og þá getur að sjálfsögðu komið Framhald á bls. 31 Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri: Heilbrigðisþj usta i dag o framtiðaráfo ón- g rm

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.