Morgunblaðið - 12.03.1974, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1974
_30______________
LÖKVIK
LÁTINN
ÞÆR fregnir hafa borizt sunnan
frá Spáni, að aðalræðismaSur ís-
lands í Barcelona, Ole Lökvik, sé
látinn. Hann var rúmlega sjötug-
ur að aldri, er hann lézt, en hann
hafði verið aðalræðismaður ís-
lands í Barcelona allt frá árinu
1950. Lökvik var maður vinsæll í
starfi og átti hér ýmsa kunningja
og vini. Kona Lökviks lifir mann'
sinn.
Greip til
dúkahnífs
KONA á sextugsaldri kærði á
sunnudag fyrrverandi eigimann
sinn til lögreglunar fyrir að hafa
ógnað sér með dúkahnífi og hótað
sér likamsmeiðingum.
Maðurinn hafði komið heim til
hennar á sunnudagsmorguninn
og farið með átta ára gamlan son
þeirra í sundlaugar. Er hann kom
aftur, upphófst rifrildi milli hans
og konunnar og endaði það með
því, að maðurinn fór út að bíl
sínum og náði i dúkahníf, sem er
með stuttu, en hárbeittu blaði.
Risti hann síðan bólstraða rúm-
gafla og rúmdýnu til að leggja
áherzlu á orð sin og segir konan,
að hann hafi hótað sér sömu með-
ferð. Á endanum fór hann þó
burt, án þess að skaða konuna, en
var handtekinn siðar um daginn
og færður til yfirheyrslu. Hann
neitaði að hafa hótað konunni
líkamsmeiðingum. Hann var alls-
gáður, er atvikið gerðist. Honum
var sleppt úr fangageymslu í gær.
Rýr bolfiskafli
UNDANFARIÐ hafa gæftir verið
mjög stopular hjá þeim bátum,
sem stundað hafa bolfiskveiðar.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar Ingimarssonar hjá Fiski-
félagi íslands hefur aflamagn
verið eftir því. Þó mun einn og
einn bátur hafa fengið allt að því
16 tonn í róðri, en þegar á heild-
ina er litið hefur afli verið rýr
eins og áður segir.
— Heilbrigðis-
þjónusta
Framhald af bls. 19
til deilna milli aðila um það, hvað
eigi að hafa forgang.
Það er ætlun heilbrigðisráð-
herra að leggja fram áætlun um
heilbrigðisstofnanir til 10 ára,
eins og gert er ráð fyrir i lögum
um heilbrigðisþjónustu. Hve
langt verður náð að séttu marki á
næstu 10 árum er erfitt um að
spá, en þó má segja, að það verða
5 atriði aðallega, sem njóta for-
gangs við þessa ggrð, en þau eru:
1. Bygging héilsugæslustöðva
úti um landsbyggðina.
2. Bygging heilbrigðisstofnana
fyrir geðsjúklinga, bæði göngu-
deildaraðstaða og legudeildarað-
staða.
3. Aukning vistúnarrýmis fyrir
hjúkrunarsjúklinga og aldraða.
4. Aukning rannsóknaraðstöðu
og göngudeildaraðstöðu stærstu
sjúkrahúsanna.
5. Nýjar legudeildir fyrir bráða
sjúkdóma, og heilsugæslustöðvar
í þéttbýli.
Heilbrigðisstjói*nin telur að
þannig sé í stórum dráttum for-
gangsröðun verkefna í þeirri
framkvæmdaáætlun, sem gera á,
en samfara þessu þarf að gera
mjög vandaðar og víðtækar rann-
sóknir á mannaflaþörf til heil-
brigðisþjónustunnar, áætlun um
menntun og rtýmenntun heil-
brigðisstétta og utn þessi atriði
þurfa heilþrigðisráðuneyti,
menntamálaráðurtéyti og Háskóli
íslands að hafa festföngu og sam-
vinnu.
Að lokum ber þakka þann
áhuga sem Félag»íátetækna i Bret-
iandi hefur sýfttlyttibrigðismál-
um á Islandi iáSÉIflbförnum ár-
Jt H| f ? nr " j - *
»lvT*
||
Þessa mynd tók ferðamaður, sem rakst á Onoda þegar hann var
enn inni í frumskóginum.
Eftirlegukindin
komin til byggða
Manila, 11. mars-AP.
HIROO Onoda, liðsforingi f
japanska hernum, sem verið
hafði í felum á einni Filipseyja
frá lokum sfðari heimsstyrjald-
arinnar, kom um helgina til
byggða eftir að leiðandur eins
af fyrrverandi yfirmönnum
hans úr strfðinu hafði samband
við hann og tilkynnti honum,
að styrjöldinni væri nú lokið.
Onoda, sem nú er 52 ára að
aldri, sagði, að hann hefði ekki
gefið sig fram vegna þess, að
hann hefði aldrei fengið skip-
un um að gefast upp.
Var Onoda ákaft fagnað við
komuna til Manila, höfuðborg-
ar Filipseyja, og hátíðlegri at-
höfn við forsetahöilina var
sjónvarpað. Ferdinand Marcos
forseti tók alúðlega utan um
hermanninn, sem hafði verið í
stríði 30 árum of lengi, hrósaði
honum fyrir hreysti og undir-
gefni við yfirboðara sina, og
óskaði japönsku þjóðinni til
hamingju með að eiga slíka
stólpahermenn.
En þeir Filipseyingar, sem
lifað hafa í nábýli við Onoda öll
þessi ár, voru ekki jafn hrifnir,
því hann mun hafa verið harð-
ur í horn að taka, látið greipar
sópa hvar og hvenær sem unnt
var, og skotið hvern þann, sem
gerðist of nærgöngull eða fór
að ybba gogg.
Læknar i Manila segja
Onoda vera við hestaheilsu, og
tannlæknir kveður hann hafa
enga tönn skemmda.
um. Bréfaskipti hafa verið tölu-
verð milli félagsins og ráðuneytis-
ins um ýmsa þætti heilbrigðis-
mála og heilbrigðisráðherra og
ráðuneytisstjóri áttu gagnlegan
og vinsamlegan fund með fé-
laginu á s.l. ári.
Ráðuneytið tekur að sjálfsögðu
undir þær fullyrðingar bréfsins,
að íslensk heilbrigðisþjónusta sé
að ýmsu leyti góð og telur, að hún
sé í mjög verulegum atriðum góð,
enda þótt gera megi ráð fyrir, að
ávallt séu verkefni að leysa og að
betur megi fara.
Heilbrigðis- og
tryggingamál aráðu ney tið
4. mars 1974.
F. h. r.
Páll Sigurðsson. .
— Geir
Hallgrímsson
Framhald af bls. 17
Hafa Alþýðubandalagsráðherr-
ar framlengt dvöl bandarískra
flugsveita hér á landi um óákveð-
in tíma fram yfir 1976, sex mán-
uði í senn?
En í fjórða lagi eru ráðherrarn
ir spurðir hvort þessar tillögur
utanríkisráðherra verða lagðar
fram í viðræðum við Bandaríkja-
menn sem fyrstu hugmyndir og
umræðugrundvöllur af hálfu ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar, eða
sem síðustu tillögur og úrslita-
kostir? Ég óska skýrra svara frá
báðum ráðherrunum.
Loks er nauðsynlegt í fimmta
lagi að spyrja ráðherrana. Eru
þeir ekki sammála því að ítreka
fyrri yfirlýsingar sínar um, að
hver svo sem niðurstaðan verður I
varnarmálunum innan ríkis-
stjórnarinnar eða í viðræðum 'við
Bandaríkin, verði málið lagt fyrir
Alþingi til endanlegrar af-
greiðslu?
Hr. fundarstjóri.
Undanfarið hefur verið tekizt á
um tvær grundvallarstefnur í
öryggismálum fslenzku þjóðarinn-
ar. Önnur byggist á því, að í land-
inu verði varnir hin, að landið
verði varnalaust.
Meirihluti
vill varið land
Fyrsta þætti þessarar báráttu
er nú lokið. Baráttan um stuðning
almennings I landinu við aðra
hvora þessara megin stefna hefur
verið til lykta leidd með afdrátt-
arlausum og afgerandi sigri
þeirra, sem vilja landvarnir.
Þetta hefur undirskriftasöfnun
Varins lands leitt í ljós. Niðúr-
staða hennar er skýr. Meirihluti
þeirra manna, sem taka þátt í
kosningum í landinu, hefur með
ótvíræðum hætti lýst yfir þeim
vilja sínum að ísland verði „varið
land“.
Nú stendur annar þáttur þess-
arar baráttu yfir. Hann er háður á
hinum pólitfska vettvangi og fyrst
og fremst nú innan ríkisstjórnar-
innar sjálfrar, síðan í þingflokk-
um stjórnarflokkanna, en því
verður ekki trúað að ítekuð loforð
um, að málið verði lagt fyrir al-
þingi til endanlegrar afgreiðslu,
verði svikin. Hvort sem samkomu-
lag innan ríkisstjórnarinnar næst
eða ekki þá er ástæða til að ætla,
að á Alþingi sé ákveðinn meiri
hluti fyrir því, að landið skuli
áfram varið. En fari svo, að ríkis-
stjórnin virði að vettugi skýran
vilja meiri hluta kjósenda og
gangi jafnvel framhjá Alþingi og
stofni öryggi þjóðarinnar í voða,
þá er samt þriðji þáttur barátt-
unnar eftir. Þá munum við, sem
Gjaldeyrisstaðan rýrn-
aði 1 janúar um 9,3%
Nettógjaldeyrisstaða bankanna
rýrnaði í janúarmánuði um 9,3%.
Samkvæmt gengisskráningu í
janúarlok var gjaldeyrisstaðan
um áramót 6.383 milljónir króna,
en f janúarlok var þessi fjárhæð
594 milljónum króna minni eða
5.789 milljónir króna.
Ölafur Tömasson hjá Seðla-
banka íslands sagði í viðtali við
Mbl. i gær, að bórið saman við
þær tölur, sem til eru frá því í
fyrra yfir sama mánuð, er rýrnun-
in dálitið minni nú, en hins vegar
sagði Ólafur, að talið væri, að
rýrnunin fyrir febrúarmánuð
væri enn meiri og þegar tillit væri
tekið til hennar, væri allmiklu
meiri rýrnun nú en í fyrra. Tölur
yfir febrúarmánuð liggja þó enn
ekki fyrir, svo að unnt sé að birta
þær.
Rúmar 27 milljónir á inn-
stæðulausum ávísunum
AÐ KVÖLDI hins 7. þ.m. fór fram
skyndikönnun innistæðulausra
tékka á vegum ávísanaskipta-
deildar Seðlabanka íslands. Könn
unin náði til innlánsstofnana í
Reykjavík, Kópavogi, Hafnar-
firði, Keflavík og Selfossi. Frá
þessu er skýrt i fréttatilkynningu
frá Seðlabanka íslands.
Fram komu alls 806 tékkar án
fullnægjandi innistæðu að fjár-
hæð samtals kr. 27.176.000,00 sem
reyndist vera 2,87% af veltu dags-
ins í ávísanaskiptadeild Seðla-
bankans.
Niðurstöður könnunar þessarar
gefa tíl kynna, að um víðtækt og
aukið tékkamisferli er að ræða
bæði hjá einstaklingum og fyrir-
tækjum, þrátt fyrir aðgerðir und-
anfarandi ára.
Ástæða er til að geta þess, að
könnun þessi leiddi sérstaklega í
ljós, að aðilar, sem áður hafa gerst
sekir um tékkamisferli, en sam-
Dagný seldi
SIGLFIRZKI skuttogarinn Dagný
seldi í Ostende í Belgíu fyrsta
þessa mánaðar og viku síðar í
Grimsby samtals fyrir 8,8 milljón-
ir króna. Meðalverð, sem skipið
fékk í Ostende, var 52,45 krónur, f
Grimsby 56,44 krónur.
í Ostende seldi skipið 84 tonn
hinn 1. marz fyrir 4.418.437 krón-
ur, en í Grimsby 78 tonn fyrir
4.394.459 krónur. Sölurnar eru á
fiski úr einni og sömu veiðiferð.
þykktir banka eru um, að ekki
skuli vera í tékkaviðskiptum,
hafa komist í viðskipti á ný
og notað þau til frekari misferla.
Tekið skal fram hér, að nöfn
þeírra aðila, sem gefa út tékka án
fullnægjandi innistæðu, eru jafn-
óðum tilkynnti á milli banka og
sparisjóða, og á það jafnt við
hvort sem um skyndikönnun eða
dagleg afskipti Seðlabankans af
innheimtu innistæðulausra tékka
er að ræða. Gróft og endurtekið
misferli er sent dómstólum til
meðferðar.
Að lokum skal tekið fram að
ástæða virðist vera til þess að
hafa skyndikannanir innistæðu-
lausra tékka tíðari en verið hefur
áundanförnum árum.
6 manns
slösuðust
FEIKNAHARÐUR árekstur varð
á Laugavegi, rétt við Nóatún, síð-
degis á sunnudag, er Fiat-bifreið
lenti framan á Volvo-bifreið af
miklu afli. Tveir piltar voru i
Fiat-bifreiðinni, báðir ölvaðir, og
stórslösuðust báðir, enda bifreið-
in gjörónýt eftir áreksturinn.
Lágu þeir enn á gjörgæzludeild í
gærkvöldi. í Volvo-bifreiðinni
voru fjórar konur og slösuðust
allar nokkuð, þó ekki alvarlega.
viljum varnir, skjóta máli okkar
undir dóm kjósenda og til þess
gefst tækifæri í síðasta lagi eftir
rúmt ár. Við munum leita stuðn-
ings allra Islendinga og samstöðu
um að gæta öryggis landsins og
sjálfsákvörðunarréttar þjóðarinn-
ar.______
— Dr. Róbert
Framhald af bls. 32
Hann stundaði tónlistarnám i
Þýzkalandi og Frakklandi og
dvalist um hríð i Kaupmanna-
höfn við störf áður en hann settist
að á íslandi haustið 1935. Hann
bjó fyrst á Akureyri en síðan í
Reykjavík. Kennslu stundaði
hann þar alla tíð, m.a. við Tón-
listarskólann, Barnamúsik-
skólann, þar sem hann var skóla-
stjóri á árunum 1957—61, og við
guðfræðideild Háskóla íslands,
þar sem hann var skipaður dósent
árið 1966. Hann varði doktorsrit-
gerð um Þorlákstíðir við Háskóla
íslands 1959.
Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar
varð dr. Róbert árið 1961 og vann
sem slíkur mikið starf til eflingar
kirkjutónlist í landinu.
2 í slysum
TÆPLEGA fjögurra ára drengur
varð fyrir bíl á Grettisgötu á
mánudagsmorguninn og annar
átta ára varð fyrir bíl á Bústaða-
vegi síðdegis á mánudag, en hvor-
ugur drengjanna hlaut alvarleg
meiðsli. — Nú fer í hönd sá tími,
er börn verða yfirleitt hvað mest
fyrir slysum f umferðinni. Með
hækkandi sól og hlýnandi veðri
fyllast börnin fjöri og gáska,
hlaupa um og hamast og gæta sin
ekki sem skyldi á bflunum.
— Hraðfrystihús
Framhald af bls. 32
mundur stefnt i fyrirsjáanlegan
taprekstur. Guðmundur sagði:
„Óhjákvæmilegt er, að þessi
höfuðatvinnugrein landsmanna,
hraðfrystingin, sé ekki rekin með
tapi, heldur eðlilegum hagnaði og
hlýtur það að vera skylda viðkom-
andi stjórnvalda að grípa til
þeirra ráðstafana, sem tryggi heil-
brigðan rekstrargrundvöll hrað-
frystihúsanna. Á fundi sínum í
gær samþykkti stjórn SH heimild
til framkvæmdaráðs þess, að boða
til aukafundar, þegar fram-
kvæmdaráðið teldi ástæðu til. Áð-
ur en til þess kemur munu for-
ráðamenn SH eiga frekari viðræð-
ur við sjávarútvegsráðherra og
viðkomandi stjórnvöld.
Guðmundur sagði, að hrað-
frystihúsamenn væntu þess, að
núverandi stjórnvöld hefðu þann
skilning á málefnum þessarar at-
vinnugreinar að öruggur rekstr-
argrundvöllur yrði tryggður.
Aðspurður um blokkarverð í
Bandaríkjunum sagði Guðmund-
ur:
„Horfur eru mjög iskyggilegar
á helztu mörkuðum fyrir frystar
sjávarafurðir og þá sérstaklega i
Bandaríkjunum. Engir samning-
ar hafa enn tekizt við Sovétríkin á
því verði, sem íslendingar telja
viðunandi, og samkvæmt síðustu
opinberum tilkynningum um al-
mennt markaðsverð í Bandaríkj-
unum, fer verð á frystum sjávar-
afurðum lækkandi og t.d. má gbta
þess, að í þeirri tilkynningu, sem
gefin var út 6. marz síðastliðinn,
er ekkert verð á þorskblokkinni,
en það ber því vitni, að hreyfing
sé á verði blokkarinnar."