Morgunblaðið - 13.03.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974
Dr. Þórður Þor-
bjarnarson látinn
DR. ÞÓRÐUR Þorbjarnarson for-
stjóri Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins lézt í Reykjavík f
fyrrinótt, 65 ára að aldri.
Dr. Þo'rður var fæddur 4. maí
1908 á Bíldudal, sonur hjónanna
Guðrúnar Pálsdóttur og Þorbjarn-
ar Þórðarsonar héraðslæknis þar.
Hann varð stúdent frá M.R. 1929,
lauk B.Sc.-prófi í fiskefnafræði
frá Dalhousie University í Kana-
da 1933 og doktorsprófi í lífefna-
fræði frá University College í
London 1937. Hann var forstöðu-
maður Rannsóknastofu Fiskifé-
lags íslands frá 1934 til 1965, að
hann varð forstöðumaður Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins.
Hann vann á margvíslegan hátt
að málefnum fiskiðnaðarins og
skrifaði margar greinar og rit-
gerðir um rannsóknir á sviði fisk-
iðnaðar. Hann var sæmdur fálka-
orðunni árið 1965.
Eiginkona hans var Sigríður
Claessen og lifir hún mann sinn.
Verðhækkun bú-
Framhald á hls. 18
vara ólögmæt?
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands
Islands hefur beðið tvo lögmenn
að gera athugun á því, hvort lög-
mæt hafi verið sú ákvörðun sex-
mannanefndarinnar svonefndu,
sem ákvarðar búvöruverðið, að
láta kauphækkun verkafólks og
væntanlega hækkun dreifingar-
7% hækkun
flugfargjalda
kostnaðar koma þegar f stað fram
í verðlagningu búafurða.
Um þetta segir í fréttatilkynn-
ingu frá ASÍ:
„Miðstjórn Alþýðusambands Is-
lands samþykkti á fundi sínum 7.
þ.m. eftirfarandi tillögu:
„Miðstjórnin samþykkir að láta
fara fram lögfræðilega athugun á
því, hvort sú ákvörðun sexmanna-
nefndar að láta kauphækkun
verkafólks og væntanlega hækk-
un dreifingarkostnaðar koma þeg-
ar í stað fram í verðlagningu bú-
afurða, hafi stoð í lögum um
Framleiðsluráð o.fl.
Kanadamenn gefa Vest-
mennaeyingum tíu hús
Fyrsta húsið afhent í gærdag
FLUGFARGJÖLD á öllum flug-
leiðum milli landa í Evrópu, Mið-
austurlöndum og Afríku hækk-
uðu um 7% hinn 1. marz sl., en
áður höfðu fargjöldin hækkað um
6% 1. jan. sl. Að sögn Sveins
Sæmundssonar blaðafulltrúa
Flugfélags íslands eru þessar
hækkanir eingöngu tilkomnar
vegna verðhækkana á eldsneyti.
— 7% hækkunin kemur um miðj-
an mánuðinn til framkvæmda á
flugleiðum í Austurlöndum og á
Kyrrahafsleiðum og um næstu
mánaðamót á flugleiðum yfir Atl-
antshafið.
„Flugfélögin, sem undantekn-
ingalítið berjast í bökkum fjár-
hagslega vegna of lágra fargjalda,
urðu að koma eldsneytishækkun-
unum út í verðlagið," sagði
Sveinn. Hann gat þess, að elds-
neytiskostnaðurinn hefði áður
verið um 12% af reksturskostnaði
flugfélaganna að jafnaði, en mán-
uðina janúar-marz á þessu ári
yrði hann um 25% af reksturs-
kostnaðinum, samkvæmt nýjustu
útreikningum sérfræðinga.
Sveinn sagði, að í fyrrahaust
hefði verið búið að ákveða að
hækka millilandafargjöldin t
Evrópu frá og með 1. apríl nk.
vegna hækkaðs tilkostnaðar, m.a.
Athugun þessa skulu a.m.k.
tveir lögmenn hafa með höndum
eftir nánari ákvörðun miðstjórn-
ar.“
Egill Sigurgeirsson hrl., lög-
fræðingur ASÍ, og Jón Þorsteins-
son hrl. hafa orðið við beiðni ASl
um að gera athugun þessa.“
Lítil loðna
FRÁ miðnætti á mánudagskvöld
fram til kl. 22 í gærkvöldi höfðu
einungis átta skip tilkynnt um
loðnuafla, og voru flest bara með
slatta nema Magnús NK, sem var
með 260 lestir. Hei Idaraflinn var
7-800 lestir og fékkst í Faxaflóa.
Ágætt veður var á miðunum þar
og eins fyrir austan, en þar fannst
engin loðna.
Ambassador Kanada á Islandi afhendir Viðlagasjóði fyrsta húsið af 10 sem Kanadamenn ákváðu að
gefa vegna náttúruhamfaranna í Vestmannaeyjum. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.)
AMBASSADOR Kananda á Is-
landi, Kenneth D. Mcliwraith,
afhenti Viðlagasjóði í gær fyrsta
húsið af 10, sem Kanandamenn
ákváðu að gefa Vestmannaeying-
um skömmu eftir að eldur brauzt
út í Heimaey. Tómas Þorvaldsson
tók við gjöfinni fyrir hönd sjóðs-
ins og þakkaði hina rausnarlegu
gjöf. Afhenti hann síðan fyrsta
húsið þeim Sigrúnu Guðmunds-
dóttur og Ólafi Sigurðssyni, full-
orðnum hjónum, sem misstu hús
sitt á einum af fyrstu dögum goss-
ins.
Gefendur hðsanna 10 eru í sam-
einingu ríkisstjórn Kananda,
fylkisstjórnin í Manitoba og fram-
leiðendur húsanna, kanadísk-jap-
anska fyrirtækið Misawa Homes
Ltd. Fimm húsanna, sem éru 90
fermetrar að stærð, verður fyrir-
komið á Akureyri og fimm í
Hafnarfirði, á síðarnefnda staðn-
um var fyrsta húsið afhent í gær.
Kanadaher annaðist flutning hús-
anna hingað til lands og fyrirtæk-
ið Skeljafell sér um að reisa þau.
Fyrsta húsið var eins og áður
sagði afhent í gær og við það
tækifæri sagði Mcllwraith m.a.,
að staðsetning helmings húsanna
á Akureyri hefðj e.t.v. verið
ákveðin með það í huga, að það
voru Norðlendingar, sem fyrstir
hófu fjöldaflutning til Vestur-
heims árið 1873. Það væri von sín,
að húsin reyndust vel í alla staði
og mættu verða til þess að við-
halda sérstakri vináttu og gagn-
kvæmum skilningi, sem jafnan
hefðu einkennt samskipti ís-
lenzku og kanadísku þjóðanna.
Viðræður
um stækkun
álversins
Dr. Paul Múller aðalfor-
stjóri svissneska álfélagsins
Alusuisse og dr. Hámmerli
einn af forstjórum félagsins
dvöldust hér á landi í tvo daga
í síðustu viku og áttu viðræður
óð fulltrúa fslenzkra stjórn-
valda um hugsanlega stækkun
annars kerjaskálans í
álverinu, þannig að ársfram-
leiðslan ykist um 10 þús.
lestir, og um breytingar á raf-
orkusölusamningnum frá
1966, að sögn Magnúsar
Kjartanssonar iðnaðarráð-
herra og Ragnars S. Halldórs-
sonar forstjóra íslenzka
álfélagsins í samtölum við
Mbl. í gær. — Ákveðið var að
halda þessum viðræðum áfram
í júní nk. — Þess má geta, að
ársframleiðsla álversins er nú
75 þús. lestir.
Tómas Þorvaldsson afhendir fbúum fyrsta hússins, Sigrúnu Guð-
mundsdóttur og Ólafi Sigurðssyni, lykilinn að húsinu.
Sundmót skólanna
SÍÐARA sundmót skólanna fer
fram í Sundhöll Reykjavíkur
fimmtudaginn 14. marz og hefst
klukkar* 20.30. Tilkynningar um
þátttöku þurfa að sendast sund-
kennurum skólanna i Sundhöll
Reykjavíkur fyrir klukkan 16 í
dag.
Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélag-
anna í Hafnarfirði hefur ákveðið
að fram skuli fara prófkjör í sam-
bandi við val fulltrúa til fram-
boðs við bæjarst jórnarkosning-
arnar 26. maí 1974.
Yfirstjórn prófkjörsins
skipa: Einar Ingimundarson bæj-
arfógeti, Ólafur Tr. Einarsson út-
gerðarm. og Birgir Olafsson, lög-
giltur endurskoðandi.
Prófkjörið fer fram dagana 30.
og 31. marz n.k. í Sjálfstæðishús-
inu í Hafnarfirði og verður kjör-
staður opinn frá kl. 10 árdegis til
kl. 18.30 báða prófkjörsdagana.
Þá verða prófkjörgögn send heim
til þeirra, sem þess óska.
Þegar fólk kýs frambjóðendur
skal það tiilusetja þá í þeirri röð,
sem það óskar að þeir skipi fram-
boðslistann. Tölusetja skal frá 1
til 11 en kjörseðill er ógildur séu
ekki minnst valdir 6 fulltrúar.
„Radar-myndrit” eiga
ekkert skylt við ratsjá
HANNES Jónsson blaðafulltrúi
ríkisstjórnarinnar ritaði grein í
Morgunblaðið, sem hann nefndi
athugasemdir, og bar greinin
fyrirsögnina „Arvakursfrásögn
blaðafulltrúa og gerskir gjörning-
ar Morgunblaðsritstjórans“. í
greininni segir m.a.: „Radar-
myndritin sýna, að fimm sinnum
var siglt á Arvakur og einu sinni
ulan í hann.“ Svokölluð „Radar-
myndrit" fylgja grein blaðafull-
trúans.
Morgunblaðið spurði Gunnar
Bergsteinsson forstöðumann Sjó-
mælinganna, hvað „radarmynd-
rit“ væri, en Gunnar sagðist ekki
vita það. Var hann þá spurður að
þvi, hvað væri „radar plott“, en á
svokölluðum „radar-myndirtum"
blaðafulltrúans standa þessi tvö
orð: „radar plott“. Gunnar sagði:
,Jtadar-plott er eyðublað, sem
notað er af skipstjórnarmönnum
til að setja út mælingar á hlutum,
sem þeir sjá í ratsjá sinni. Með
því geta þeir fundið út stefnu og
hraða viðkomandi skipa, sem þeir
sjá ekki með berum augum, held-
ur aðeins í ratsjá.“
Gunnar sagði, að þau „radar-
plott“, sem birtust í Mbl. ættu
ekkert skylt við ratsjá — heldur
væru aðeins vettvangsteikning án
þess þó að vegalengdir og stærð-
arhlutföil væru í samræmi við
raunveruleikann. Á hverju „rad-
ai-plotti“ stendur: „Afstöðumynd
þessi sýnir aðeins viðburðarásina
án tillits til réttra hlutfalla.
Framhald á bis. 18
Allt stuðningsfólk Sjálfstæðis-
flokksins, sem náð hefur 20 ára
aldrei fyrir kjördag, 26. maf, get-
ur tekið þátt í prófkjörinu og
einnig félagsbundið fólk, sem náð
hefur 18 ára aldri á sama tíma.
Gengið hefur verið frá próf-
kjörslista .með 37 manns, en auk
þess má bæta við tveimur nöfnum
ef fólk óskar.
Þess skal getið, að tveir úr bæj-
arstjórnarflokki sjálfstæðis-
manna gefa ekki kost á sér til setu
í bæjarstjórn, það er Eggert
ísaksson bæjarfulltrúi og Elin
Jósefsdóttir varabæjarfulltrúi.
Prófkjörslistinn er þannig skip-
aður:
Albert Kristinsson
deildarstjóri.
Ármann Eiríksson
verzlunarmaður.
Árni Grétar Finnsson
hæstaréttarlögmaður
Ásgeir Sölvason
skipstjóri.
Benedikt G uðmundsson
bifvélavirki.
Björg Ivarsdóttir
húsmóðir.
Björn Eysteinsson
skrifstofustjóri.
Einar Þ. Mathiesen
framkvæmdastjóri
Framhald á bls. 18