Morgunblaðið - 13.03.1974, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13, MARZ 1974
5
Vélsleðamenn frá vinstri: Einar Benediktsson, Þröstur Sigurðsson,
Örn Þórsson, Stefán Heigason og Freyr Askelsson. — Ljósm.: Sv.P.
BÖNUÐU TÓFUM
MEÐ VÉLSLEÐUM
Akureyri, 11. marz. —
FIMM vaskir Akureyringar voru
á fjöllum uppi í góða veðrinu í
gær á jafnmörgum vélsleðum.
Þeir fóru m.a. upp á Vaðlaheiði
og óku drifhvítar fannbreiðurnar
suður eftir háheiðinni.
Nálægt Þingmdnnahnjúk komu
þeir auga á tvær tófur, aðra mó-
rauða en hina hvíta og hófu strax
eltingaleik við þær. Sú mórauða
slapp frá þeim fljótlega, en þá
hvítu eltu þeir suður undir Bílds-
árskarð, þar sem lágfóta sprakk á
hlaupunum og gafst upp. Henni
var banað undir einum vélsleð-
anum.
Enn héldu fimmmenningarnir
áfram för sinni til suðurs og komu
brátt auga á þriðju tófuna, mó-
rautt dýr. Hún var feikihörð af
sér og þolin, hljóp i ótal krókum
og hlykkjum undan vélsleða-
mönnum, sem veittu henni eftir-
för suður að Gönguskarði, á að
gizka 5 km leið, og máttu hafa sig
alla við, að króa hana af á flat-
lendi, sem þar er. Þar laut skauf-
hali loks i lægra haldi, en urraði
þó og hvæsti og reyndi að beita
klóm og kjafti áður en hann var
unninn.
Þeir félagar komu svo til Akur-
eyrar í gærkvöld með þennan
óvenjulega feng sinn. — Sv. P.
A112. þúsund manns
á kjörskrá í sveitar-
stjórnarkosningunum
HAGSTOFA tslunds hefur birt
tölur yfir fjölda einstaklinga 20
ára og eidri í kaupstöðum og
þeim kauptúnahreppum, sem
kjósa á I til sveitarstjórna hinn
26. mai næstkomandi. Meðtaldir I
tölum þessum eru erlendir menn,
sem búsettir eru hérlendis, og er
þvf tala einstaklinga á kjörskrá
eitthvað lægri en þessar tölur
Hagstofunnar. Til samanburðar
birtir Hagstofan tölur yfir fjölda
á kjörskrá við sveitarstjórnar-
kosningarnar 31. maf 1970.
í Reykjavík er fjöldi 20 ára og
eldri nú 55.400, en á kjörskrá
voru 1970 49.699, en þar eru
kjörnir 15 borgarfulltrúar. I
Kópavogi er talan nú 6.476, en
1970 voru á kjörskrá 5.487, en þar
eru kjörnir 9 bæjarfulltrúar. I
Hafnarfirði erutölurnar 6.430 nú
en voru 5.285, en þar eru kjörnir
9 bæjarfulltrúar. I Keflavik er
talan nú 3.364, en var 1970 2.872.
Á Akranesi er talan nú 2.539, en
var 2.276, á ísafirði er talan nú
1.844, en voru 1970 samtals 1.478.
A Sauðárkróki eru nú 20 ára og
eldri 1.054, en voru á kjörskrá
1970 890. Á Siglufirði eru nú
1.335, en voru 1970 1.324, en í
öllum ofangreindum bæjarstjórn-
um, þar sem ekki er tilgreind
bæjarfulltrúatala, eru bæjarfull-
trúar 9, nema á Sauðárkróki, þar
sem þeir eru 7.
A Ólafsfirði er talan nú 642, en
á kjörskrá voru 1970 613 manns.
Þar eru bæjarfulltrúar 7. Á Akur-
eyri, sem kýs 11 bæjarfulltrúa,
eru 20 ára og eldri 6.874, en á
kjörskránni 1970 voru 6.062. Á
Húsavík eru nú 1.228, en voru við
kosningarnar 1970 1.035 manns.
Bæjarfulltrúarnir eru 9. A Seyðis-
firði eru nú 20 ára og eldri 537, en
á kjörskrá síðast voru 475. Þar
eru kjörnir 9 fulltrúar. Á Nes-
kaupstað eru nú 992 20 ára og
eldri, en voru á kjörskrá við síð-
ustu bæjarstjórnarkosningar 869.
Bæjarfulltrúar eru 9. I Vest-
mannaeyjum eru nú 20 ára og
eldri 2.936, en voru á kjörskrá
1970 2.770. Þar eru kjörnir 9
bæjarfulltrúar.
Samtals eru því 20 ára og eldri í
kaupstöðum landsins 91.651 mað-
ur, en voru á kjörskrá fyrir fjór-
um árum 81.135. Samtals kjósa
fbúar kaupstaðanna 130 borgar-
eða bæjarfulltrúa.
Samtals fara fram sveitar-
stjórnarkosningar i 42 kauptúna-
hreppum og er það sami fjöldi og
við kosningarnar 1970. I þessum
hreppum eru 20 ára og eldri nú
20.098, en voru á kjörskrá 1970
samtals 17.229. Samtals kjósa
þessir kjósendur 231 fulltrúa i
hreppsnefndir. Þrír kauptúna-
hreppar ná því, að fleiri en eitt
þúsund eru 20 ára og eldri. Þessir
hreppar eru Garðahreppur, en
þar er talan nú 1.845, en á kjör-
skrá 1970 voru 1.286, þar eru
kjörnir 5 sveitarstjórnarmenn,
Seltjarnarneshreppur, en þar er
talan nú 1.415, en var víð kosning-
arnar 1970 1.076, þar eru kjörnir
5 fulltrúar, og Selfosshreppur,
þar sem talan er nú 1.487, en var
við kosningarnar 1970 samtals
1.320, en þar eru einnig kjörnir 5
fulltrúar.
Kosningarnar 26. maí eru ein-
göngu bundnar þeim sveitarfélög-
um, sem hafa 3/4 íbúa sinna i
þéttbýli. Mosfellshreppur hefur
því náð því marki nú og bætist
hann við frá síðustu kosningum.
Ekki fara nú sérstakar kosningar
fram i Eyrarhreppi, Hnífsdal, þár
sem sá hreppur hefur verið sam-
einaður ísafirði.
VERZLUNARHÚSNÆÐI TIL LEIGU
Til leigu er verzlunarhúsnæði neðst við Laugaveginn. Tilboð merkt: „Góður verzlunar-
staður — 4905" sendist afgr. Mbl. fyrir mánudag.
VALIÐER
svoep
AUÐVELT....
VÍKUR ELDHÚSSKÁPARNIR er
stöðluS íslenzk framleiSsla,
sem sameinar þaS tvennt aS vera
vandaSir og ódýrir.
HannaSir fyrir íslenzkan smekk, og
henta í allar stærSir eldhúsa. Vegna
þess aS þeir eru byggSir í einingum
sem þér getiS valiS úr og raSaS
saman, og þar meS fengiS ySar eigiS
eldhús.
MeS ótrúlegu litavali í plasti, og
fjölmörgum möguleikum í sam-
setningu getiS þér gert eldhúsiS
enn persónulegra.
KomiS og skoSiS sýningareldhúsiS
á framleiSslustaS.
Ef þér komiS meS mál á eldhúsi,
eSa teikningu,
getum viS gefiS fast verStilboS.
Húsgagnaverkstæbí ÞÓRSINCÓLFSSONAR
SÚÐAVOGI 44 SÍMI 31360 (genqiá inn fra' Kænuvoqi)
RADI@KEni
HI-FI STEREO
Soundmaster40
2 x15 W. sine
Störskemmtiiegi tækl á vlðráðanlegu verðl kr. 29.200.-
Sambyggt útvarpstækl og 2xl 5 watta sinus magnarl
(2x25 w. múslk).
24 23 22 21
1 2 3 20 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15
1. Straumrofi.
2. Styrkstillir vinstri rás.
3. Styrkstillir hægri rás.
2. og 3 jafnvægisstillar.
4. Bassastillir 0—6.
5. Hátónastillir.
6. Mono/Stereo.
7. Segulband. Tengja má stereo segulb. við
tækið.
8. Plötuspilari. Tengja má plötuspilara með
bæði kristal og magnetiskri hljóðdós
við tækið.
(Það er útbúið með formagnara).
9. FM Bylgja.
10. L. Langbylgja.
11. M.1. Miðbylgja 1.
12. M.2. Miðbylgja 2.
13. AFC. Truflana stillir fyrir FM.
14. Heyrnartækja eða hátalara rofi.
1 5. Úttak fyrir heyrnartæki.
1 6. Styrkleikamælir fyrir útvarpstækið.
1 7. Grænt „Pilot" Ijós sem lýsir þegar stereo fer
gegnum tækið.
1 8. Rautt Ijós, sem lýsir þegar leikið er af stereo
spilara.
1 9. Rautt Ijós sem lýsir þegar leikið er af stereo
segulbandi.
20. Merki til stillingar fyrir FM stöðvar.
21. Langbylgjuskali: 150—260 kHz.
22. M 1. Miðbylgjuskali 1 (520—1400 kHz).
23. M 2. Miðbylgjuskali 2 (1350—1 600 kHz).
24. FM.Ttðnisvið (87—104 MHz).
25. Stilling inn á AM bylgju. Ljós sýnir stöðvar-
stillinguna.
26. Stilling inn á FM bylgju. Ljós sýnir stöðvar-
stillinguna.
Soundmaster 40 fékk mjög góða dóma hjá rannsóknum norsku
neytendasamtakanna. (Neytendablaðið iiggur frammi hjá okkur).
ÁRSÁBYRGÐ - GREIÐSLUSKILMÁLAR
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Berffstaðastræti 10 A — Simi 1-69-95