Morgunblaðið - 13.03.1974, Side 7

Morgunblaðið - 13.03.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974 7 Eftir Ingva Hrafn Jónsson Jóhann Briem framkvæmda- stjóri Markús Örn Antonsson, rit- stjóri Frjálsrar verzlunar TfMARITIÐ Frjáls verzlun hefur nú komiS út í 35 ár, sem er langur tími miðað við feril margra ann- arra tímarita, sem hafið hafa göngu sína hér á landi. Kostur þeirra, sem að útgáfunni hafa staðið á þessum árum var oft þröngur, en með árunum hefur sannast að blað á borð við Frjálsa verzlun hefur hlutverki að gegna í þjóðfélaginu. Þegar núverandi út- gefandi blaðsins, Jóhann Briem, tók við rekstri þess 1967, hófst hann handa um breytingar á blað- inu og útgáfunni með það fyrir augum að ná til víðari lesenda- hóps en áður var, er Frjáls verzlun var félagsblað verzlunarmanna. Tlmaritið birti sem áður, fyrst og fremst efni um viðskipti og efnahagsmál, en jafnframt var lögð áherzla á greinar og fréttir úr öllum þáttum atvinnulífsins, auk þess, sem þróun stjórnmála og þjóðmála á breiðum grundvelli urðu meira áberandi efnisflokkar. Það hefur komið glöggt I Ijós. að þessi stefna útgefandans var rétt þv! að lesendahópur blaðsins hef- ur stöðugt stækkað og er það nú gefið út I um 6000—7000 ein- tökum mánaðarlega og mun vera vlðlesnasta timarit hér á landi. Það er jafnaðarlega 80—100 blaðsfður, en auk þess hafa nokkr- um sinnum verið gefin út sérrit um ýmsa afmarkaða málaflokka. Þá hafa þættir þess um fram- kvæmdir og atvinnuhætti I ein- stökum landshlutum vakið athygli svo og viðtalsþátturinn Samtlðar- maður, þar sem kynntir eru at- hafnamenn og forystumenn I opin- beru llfi. Ritstjóri blaðsins er Markús Örn Antonsson og blaða- maður Margrét Sigursteinsdóttir, en auk þess skrifa ýmsir sérfræð- ingar fasta þætti I blaðið. Hér á eftir fer hluti ritstjórnar- greinar I afmælisblaðinu, sem er nýkomið út. „Frjáls verzlun hefur það enn að markmiði að vera boðberi hug- sjónanna um frjáls viðskipti. Blaðið leggur höfuðáherzlu á að kynna ýmsa þætti viðskipta- og athafnalífsins. Það vill leggja sitt af mörkum til þess að hið frjálsa framtak I landinu megi eflast. Um leið og það tekur til meðferðar vlðara svið þjóðmálanna mun blaðið hafa að leiðarljósi grund- vallarhugsjónir frelsis og lýðræðis. Frjáls verzlun á islandi var einn happadrýgsti áfanginn I endur- „Góð skipulagning og áætlana gerð grundvallarskilyrðið” Rætt við Jóhann Briem um Frjálsa verzlun 35 ára og Frjálst framtak hf. heimt frelsis þjóðarinnar. í því Ijósi skal Ifta nafn þessa blaðs. Það telur sér skylt að fjalla um meginviðburði liðandi stundar eftir lýðræðislegum leikreglum I þeirri von að það geti lagt sitt af mörkum til að þeim reglum verði ekki varpað fyrir róða á öðrum vettvangi." Útgáfufyrirtæki Frjálsrar verzl- unar er Frjálst framtak H/F og þó að segja megi, að Frjáls verzlun sé móðurskip fyrirtækisins, er það nú aðeins einn þáttur I fyrirtæki. sem hefur vaxið og dafnað svo ört á siðustu árum, að það er nú eitt stærsta útgáfufyrirtækið hér á landi. Auk Frjálsrar verzlunar gef- ur fyrirtækið út árlega fyrirtækja- skrána fslenzk fyrirtæki, ferða- mannabæklinginn lceland in a hurry, upplýsingaritið Inside lce- land. sem er ætlað erlendum kaupsýslumönnum og á sl. ári var hafin útgáfa tveggja sérrita, er Frjálst framtak tók að sér útgáfu á, fþróttablaðsins, málgagns l. S.f., og nýs sérrits, sem vakið hefur mikla athygli, Sjávarfrétta, sem eins og nafnið ber með sér fjallar um mál sjávarútvegsins. Þá hefur fyrirtækið oft aðstoðað ýmis félagasamtök við útgáfu einstakra timamótablaða. Af þessari upp- talningu má sjá að hér er orðið um mikið umsvifafyrirtæki að ræða á þessu sviði. Af tilefni afmælis Frjálsrar verzlunar ræddum við stuttlega við Jóhann Briem, fram- kvæmdastjóra Frjáls framtaks. — Nú hefur útgáfustarfsemi hér á landi löngum verið talin erfið. Hverju þakkar þú hinn mikla vöxt fyrirtækis þins? — Erlendis hefur þróunin verið sú, að sérrit hafa átt vaxandi vin- sældum að fagna. Með skipulagðri auglýsinga- og kynningar- starfsemi hefur tekizt að sýna fram á, að þessi þróun átti ekki siður við hér á landi, og að mark- aður fyrir slfk blöð var fyrir hendi. Það er rétt að útgáfustarfsemi á fslandi er mjög erfið, en með góðri skipulagningu. setningu mark- miða og starfsáætlana og sam- hæfðu þjálfuðu starfsfólki er hægt að láta útgáfufyrirtæki eins og Frjálst framtak bera sig. — Bandarfskur blaðaútgefandi sagði nýlega, að það tæki 10 ár að hasla nýju timariti völl. Nú hefur þú á nokkrum mánuðum ráðist i útgáfu tveggja nýrra sérrita, er það ekki að færast nokkuð mikið i fang? — Þegar ég var á ferð um Bandarikin á sl. ári til að kynna mér útgáfustarfsemi, heyrði ég svipað frá mörgum útgefendum, m. a. útgefanda U.S.World and News Report. Það er rétt, að það tekur yfirleitt langan tima að vinna ný blöð upp. Hins vegar hefur það sýnt sig i sambandi við fþróttablaðið og Sjávarfréttir, að jarðvegur fyrir útgáfu slikra rita er mjög góður ef dæma má af þeim viðtökum, sem þau hafa fengið þann stutta tfma, sem við höfum staðið að útgáfu þeirra. Allir vita hve mikill áhugi er fyrir iþróttum hér á landi, en ýmsum gæti fund- ist að það væri að bera f bakkafull- an lækinn að gefa út sérrit um íþróttir vegna hinna gffurlegu iþróttaskrifa dagbfaðanna. Við reynum hins vegar að fara aðrar leiðir en dagblöðin, tökum málin frá öðrum sjónarhóli, skyggnumst dýpra og leggjum áherzlu á góðar og vandaðar greinar innlendar og erlendar á öllum sviðum iþrótta. Svo við snúum okkur að sjávar- fréttum þá má segja að þorri landsmanna sé tengdur þessum atvinnuvegi enda milii 80—90% af útflutningi okkar sjávarafurðir. Þá má þvi kannski segja að það sé einkennilegt. að það hafi ekki verið fyrr en 1973, að hafizt var handa um útgáfu sérrits um þessi mál. Ég tel að blaðið hafi þegar haslað sér völl miðað við við- tökurnar og bind miklar vonir við framtfð þess. Þess ber þó að gæta, að blaðið er á frumstigi mótunar, en við erum greinilega á réttri leið. Til þess að standa að útgáfu svona blaða verður að fylgjast mjög vel með á þeim sviðum, sem þau fjalla um og hafa til ráðu- neytis og samstarfshóp sérfróðra manna. Að þessu leyti höfum við verið mjög heppnir og það ásamt góðu og þjálfuðu starfsfólki hefur gert þetta allt kleift. — Þú leggur mikla áherzlu á góða skipulagningu og áætlana- gerðir. — Til þess að hægt sé að reka svona útgáfufyrirtæki, er slfkt al- gert grundvallarskilyrði. Verð- bólgubálið krefst þess að fylgst sé mjög nákvæmlega með rekstrin- um og við notum bókhaldið sem stjórnunartæki. Við endurskoðum allar áætlanir mjög nákvæmlega um hver mánaðamót og könnum hvernig tekizt hefur að fylgja þeim og gerum þá nauðsynlegar breyt- ingar á hverjum tima til að tryggja að tilskilinn árangur náist. Hefði ég ekki lagt þetta til grundvallar I upphafi, hefði þetta aldrei tekizt. Um áramótin gerðum við t.d. þá breytingu, að gera hvern starfs- mann, en þeir eru 11 fastráðnir auk 90 annarra, sem vinna ýmis- leg störf i þágu fyrirtækisins, ábyrgan fyrir ákveðnum þáttum i rekstrinum stórum og smáum. Ég vænti mér mikils af þessu i sam- bandi við frekari uppbyggingu allra útgáfuþátta fyrirtækisins á þessu ári, þó að eðlilega verði mest áherzla lögð á nýju ritin, íþróttablaðið og Sjávarfréttir. FRJÁLS VERZLUN VKVtaf vló fonneta dr. KrfstJAn KldjArn Sérrit Frjáls Framtaks CHEVROLET VEGA GT. Nýinnfluttur/ rauður. Ekinn 26 þús/ míl. Árgerð 1972. Upplýsingar 13285, 34376 TILLEIGU 3ja herb. ibúð i Reykjavík án hús- gagna er til leigu frá 1 5 marz til 15. mat. Tilboð merkt ..1380" sendist afgreiðslu Mbl. TAKIO EFTIR Ungt par óskar eftir 2ja til 3ja herb. ibúð til leigu gegn skilvlsum greiðslum Uppl. i sima 34983 eftirkl. 19.00. TEK AO MÉR flisalögn á böð og eldhús. Enn- fremur minniháttar múrviðgerðir Upplýsingar i sima 10378 kl. 7 — 8 e.h. HAFNARFJÖRÐUR — GARÐAHREPPUR 2ja — 3ja herb. ibúð óskast til kaups. Má vera i gömlu húsi, lítið hús kemur einnig til greina. Upp- lýsingar i sima 521 1 2 og 52210. SUMARBÚSTAÐUR Óska eftir að kaupa eða leigja sumarbústað Kaup á landi kemur einnig til greina. Sími 84399. ÞJÁLFARA VANTAR til að þjálfa yngri flokka í knatt- spyrnu hjá Reykjavíkurfélagi. Umsóknir sendist fyrir 2 3. marz í box 1087, merkt: „Þjálfari 1974" KEFLAVÍK — NJARÐVÍK Til sölu 3ja herb. ibúðir með góð- um greiðsluskilmálum. Lausar strax. Fasteignasalan Hafnargötu 27 Keflavik Simi 1420. HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Nautahakk 395 kr. kg Nautabuff 595 kr. kg Úrbeinað hangikjöt 598 kr. kg. Ódýru rúllupylsurnar. Kjötkjallarinn, Vesturbraut 12. HONDUEIGENDUR Höfum nú aftur til hinar vinsælu veltugrindur á Hondur. Sendum út á land i póstkröfu Uppl.'að Langa- gerði 48 eftir kl 8 á kvöldin Simi 33921 HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Úrvals saltað hrossakjöt Saltað dilkakjöt. Athugið Opið til kl 17.30 föstudaga, lokað alla laugardaga. Kjötkjallarinn, Vesturbraut 12. REYKJAVÍK — NÁGRENNI íbúð óskast til leigu frá og með 1. apríl. Þrennt i heimili. Má vera gömul ibúð. sem þarf eitthvað að standsetja Reglusemi heitið. Uppl. i síma 301 30 eftir kl 1 8 ÓSKA EFTIR að komast á sendiferðabil. Upp- lýsingar i sfma 71484 HÚSDÝRAÁBUROUR Ökum húsdýraáburði á lóðir Ódýr og góð þjónusta Upplýsingar i síma 17472. BIFREIÐASTJÓRI vanur tækjum, (fjölskyldumaður) óskar eftir atvinnu og húsnæði úti á landi. Upplýsingar sendist Mbl. sem fyrst, merkt: „Framtið — 4906". REIÐHJÓL Notuð reiðhjól til sölu Reiðhjólaverkstæðið. Norður- veri, Hátúni 4A. Ryöverjum flestar tegundir fólksbifreiða. Notum hina viðurkenndu ML aðferð. Tektyl efni notuð. Skodaverkstæðið h.f., Auðbrekku 44—46, Kópavogi. Sími 42604. NEMENDUR V.Í. BRAUTSKRÁfllR VORIÐ 1966 Sameiginlegt hóf verður haldið að Hótel Sögu n.k. laugardag 16. marz og hefst kl. 17.00 á Mímisbar. Ráðgert er að sækja almennan dansleik þar um kvöldið. Þeir, sem þess óska, geta snætt saman kvöldverð. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til eftirtalinna: Jóhann s. 82300, Júlíus s. 86377, Steinar s. 11 570 og Ásgeir s. 26505. Félagar eru hvattir til að mæta og taka með sér maka eða 9est' Nefndirnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.