Morgunblaðið - 13.03.1974, Síða 15

Morgunblaðið - 13.03.1974, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974 15 Nixon Bandaríkjaforseti leikur undir söng Pearl Baily í samkvæmi í Hvíta húsinu fyrir fáeinum dögum. Forsetinn lék undir hjá söngkonunni í allnokkr- um lögum og síðasta lagið var „God bless America“. Reyndi að ræna flug- vél með 426 manns Viðbúnað- arástandi aflétt Lissabon, 12. marz, AP. VIÐBUNAÐARASTANDI því, sem portúgalska hernum var skipað að vera í, hefur nú verið aflétt, að því er haft er eftir hátt- settum mönnum innan stjórnar- innar í kvöld. Ástæðan fyrir þvf er sögð vera sú, að ólgan innan hersins, sem varð þess valdandi, að hernum var skipað að vera við öllu búinn, mun ekki hafa náð nema til nokkurra tuga manna, aðallega höfuðsmanna. Heim- ildarmenn þessir neituðu að ókyrrðin hefði staðið í einhverju sambandi við málefni Portúgala í Afríku. Biskupinn á heimleið Madrid 12. marz AP. ANTONIO Anoveros, biskup, sem kom af stað miklu fjaðrafoki á Spáni á dögunum með stólræðu sinni, sem fjallað hefur verið um hér í blaðinu, þar sem hann krafðist meiri réttar til handa Böskum, fór frá Madrid f dag. Þar hafði hann verið á fundi með ýmsum æðstu mönnum spænsku kirkjunnar. Búizt er við að Anoveros hafi farið til Bilbao aft- ur. Gefin var út yfirlýsing I gær þess efnis að biskupinn hafi ekki haft í huga að rjúfa þjóðarein- ingu með ræðu sinni. Bonn, 12. marz, NTB, AP. EMBÆTTISIVIENN frá Efnahags- bandalagsríkjunum nfu komu í dag saman til fundar i Bonn tii að ræða drög að yfirlýsingu um framtíðarsamvinnu milli Banda- ríkjanna og Vestur-Evrópu, þrátt fyrir að margt bendi til, að Bandaríkjamenn ætli ekki að hafa afskipti af þessum samningi sem stendur. Bandarískir embættismenn skýrðu frá því, að Nixon Banda- ríkjaforseti hefði i síðustu viku sent bréf til Willy Brandts kansl- ara Vestur-Þýzkalands, þar sem hann iagði til, að undirbúnings- vinnu fyrir þessa yfirlýsingu yrði hætt að sinni. Ástæðan fyrir þessari tillögu Nixons er að líkindum gremja Bandaríkjamanna yfir þvi, að EBE-löndin hafa ákveðið að hefja sérstakar viðræður við arabísku olíuframleiðslulöndin. Talsmaður vestur-þýzku stjórn- arinnar vildi í dag ekkert segja um þá gagnrýni, sem Henry Kiss- inger utanríkisráðherra hefur sett fram á bandamenn Banda- rikjanna í Vestur-Evrópu. í ræðu, sem Kissinger hélt i gærkvöldi í Tókió, 12. marz. NTB. AP. JAPANSKA lögreglan handtók í dag ungan mann, sem gerði til- raun til að ræna farþegaflugvél af gerðinni Boing 747 með 426 Washington, orðaði hann það svo, að vinir Bandaríkjanna i Vestur- Evrópu væru stærra utanríkis- vandamál fyrir bandarísku stjórnina heldur en andstæðingar hennar. Kissinger sagði, að Bandaríkin hefðu ekkert á móti því, að Evrópulöndin mótuðu sjálfstæða stefnu, en í henni mætti þó ekki leynast broddur gegn Bandaríkjunum. Þrátt fyrir þennan ágreining endurtók Willy Brandt þá um kvöldið boð til Nixons um að koma til Brússel í næsta mánuði, eins og frá hefur verið sagt. Kaupmannahöfn, 12. marz.NTB LIS GROES, fyrrverandi við- skiptaráðherra Danmerkur, and- aðist í dag, 63 ára að aldri. Hún gegndi embætti viðskiptaráð- herra f stjórn Hedtofts 1953 og sfðar í stjórn H.C. Hansen frá 1955—1957. Hún var mjög áber- andi í þingflokki sósíaidemókrata árum saman, en í júní 1970 ákvað manns innanborðs. Hefur ekki áður verið reynt að ræna vél með svo miklum fjölda manna. Ræn- inginn krafðist 55 milljóna doll- ara og 200 milljóna yena í lausn- argjald. Auk þess vildi maðurinn fá afhentar 15 fallhlífar og ýmsan útbúnað til fjallgöngu. Vélin var á leiðinni frá Tökíó til Naha. Skömmu áður en hún átti hún að gefa ekki kost á sér til framboðs af heilsufarsástæðum. Lis Groes var formaður Dansk Kvinnesamfund á árunum 1958—1964 og lét þar mjög að sér kveða. Hún gegndi ýmsum trún- aðarstörfum fyrir flokk sinn og á sl. ári var hún kosin formaður neytendanefndar EBE. Hún átti einnig um árabii sæti f Norður- landaráði. að lenda þar bar ræninginn fram kröfur sínar. Hann hélt á svörtu flaggi og otaði miða að áhöfn- inni, þar sem á stóð „Hlýðið skip- unum okkar. Ef ekki skýt ég." Vildi hann láta vélina fara aftur til Tókió. Síðar kom í ljós að mað- urinn var einn að verki og óvopn- aður. Farþegar segjast ekki hafa vit- að um ránið fyrr en flugstjórinn tilkynnti það í sömu mund og vélin lenti og farþegar munu ekki hafa séð ræningjann. Lögreglu- menn, klæddir sem flugvallar- starfsmenn fóru inn i vélina með matvæli og var þannig reynt að komast að því, hvort maðurinn væri vopnaður. Ræninginn leyfði 162 farþegum, konum, börnum og Framhald á bls. 18 Washington, 12. marz, AP. RANNSÓKNARDÓMURINN, sem hefur haft með höndum rannsóknina á Watergateinnbrot- inu og tilraunum til að breiða yfir það, fékk um það ráðleggingar frá ákærandanum, Leon Jaworski, að leggja ekki fram kæru á hendur Nixon forseta i ákæruskjali sinu, þó að vitnisburður réttlæti slíkt. Skýrði ónafngreindur talsmaður Jaworski frá þessu í dag. Ságði talsmaðurinn, að Jaworski væri þeirrar skoðunar, að það væri svo veigamikið mál í sjálfu sér, hvort lög leyfðu, að hægt væri að ákæra Belgía: Olíu- kreppa Brússel, 12. marz — AP. MEÐAL fjölmargra erfiðra verkefna nýrrar ríkis- stjórnar í Belgíu eftir kosningarnar á sunnudag, verður að finna lausn á yf- irvofandi olíukreppu í landinu, en tvö olíufyrir- tæki, hið belgíska útibú British Petroleum og Pet- rofina, tilkynntu í dag, að þau myndu hætta allri olíu- dreifingu og innflutningi á bensínvörum vegna synj- unar fyrri stjórnar á um- beðinni hækkun heildsölu- verðs þessara vara. Þessi fyrirtæki, sem hafa á sinni könnu meiren helming olíu- hreinsunar landsins, bætast þann- ig í hóp sjö annarra olíufyrir- tækja, sem áður hafa lýst yfir sams konar ákvörðun. Er talið, að líklegustu stjórnar- flokkarnir eftir kosningarnar verði kristilegir sósialistar og sósíalistar, en auk þessarar olíu- kreppu er við mikinn efnahags- og atvinnuleysisvanda að etja. Pólverjarnir fá dvalarleyfi Osló, 12. marz — NTB. PÓLVERJARNIR fimm, sem fóru af skemmtiferðaskipinu Stefan Batory í byrjun febrúar, hafa nú fengið dvalarleyfi í Noregi, en eins og menn muna steig alls 81 farþegi af þessu pólska skipi í ýmsum höfnum á Norðurlöndum og í Þýzkalandi án þess að vilja fara um borð aftur. Pólverjarnir hafa hins vegar ekki fengið póli- tískt hæli, en engu að síður munu þeir geta fengið vinnu í Noregi. forsetann, að slíkt útilokaði að rannsóknardómstóllinn bæri fram ákæru á hendur honum. í fimmtíu síðna ákæruskjali á hendur sjö fyrrverandi nánum samstarfsmönnum Nixons er hvergi minnzt á forsetann, En auk þess var lagt fram innsiglað skjal fyrir John Sirica dómara, og segja heimildir, að þar sé vikið sérstaklega að Nixon. Sirca hefur ekki ákveðið, hvort hann sendir skjölin til laganefndar fulltrúa- deildarinnar, en með því er mæit af rannsóknardómstólnum. Sak- sóknari mælir með því, ekkert hefur heyrzt um afstöðu Hvíta hússins og lögfræðingar sjömenn- inganna mótmæla því. Humphrey vill stjórn- málasamband við Svía Washington, 12. marz NTB. BANDARlSKI öldungadei Idar- þingmaðurinn Ilubert Humphrey gagnrýndi í dag stefnu banda- rfsku stjórnarinnar gagnvart Svf- þjóð og hótaði að gerðar yrðu ráðstafanir af hálfu þingsins gagnvart utanríkisráðuneytinu. ef stjörnmálasamskiptum land- anna tveggja yrði ekki sem skjót- ast komið f eðlilegt horf. Sagði Humphrey, að Bandaríkjamenn hefðu hegðað sér barnalega í af stöðu sinni til Svíþjóðar síðan Nixon hefði kallað heim sendi- herra landsins í Stokkhólmi eftir að sænska stjórnin hafði gagn- rýnt loftárásirnar á Hanoi á jól- um 1972. Hættuleg B-inflúensa sting- ur sér niður í Bandaríkiunum INFLUENSA af B-gerð hefur stungið sér niður allvfða í Bandarfkjunum í 'vetur, sér- staklega í Miðvesturríkjunum og hafa mörg skólabörn veikzt. Flest barnanna hafa náð sér aftur, en óvenju stór hópur hefur fengið mjög slæm eftir- köst, sem nefnd hafa verið Reyes Syndróm, og hafa all- mörg dauðsföll orðið mcðal barna. Er vitað um að minnsta kosti 25 börn, sem hafa látizt og óttast að ekki hafi tekizt að vinna bug á þessum faraldri. Segir frá þessu í nýju tölu- blaði af bandariska vikuritinu Newsweek. Þar er bent á að yfirleitt séu það börn, sem taki veikina og ástæðan fyrir hárri dánartíðni sé m.a. sú, að læknar þekki ekki alltaf veikina í tæka tið. Syndróminn hefur áhrif á starfsemi lifrarinnar og það sem kemur sjúkleikanum af stað er vírussmitun. Er þá hætt við að ammoníak myndist í blóðinu, sem hefur hættuleg áhrif á heilastarfsemi og starf- semi miðtaugakerfisins. Ein- kennin eru mikil uppköst, slappleiki, krampi, óráð og síðan meðvitundarleysi. Sum barnanna hafa náð sér á ný, ef þau hafa aðeins fengið snert af þessum einkennum. Áhrifa- mesta meðferðin til lækninga á þessari B-inflúensu á háu stigi er að dómi sumra lækna að skipta um blóð í sjúklingnum. Læknar leggja áherzlu á að ekki sé ástæða til að óttast heilaskemmdir hjá börnum, ef þau á annað borð ná sér og talið er að læknar séu nú betur á varðbergi og taki sjúklinga fyrr til þeirrar meðferðar, sem Ekki orðið vart við hana hér að að sögn landlæknis nauðsynlegt er í mörgum tilvik- um til að bjarga lífi þeirra. Mbl. hafði samband við land- lækni i gær til að spyrjast fyrir um, hvort inflúensa af þessari gerð hefði komið upp hér. Landlæknir sagði að flensa, sem líktist B-inflúensu hefði stungið sér niður í nágranna- löndum okkar og nokkuð einnig hérlendis í vetur, en hún hefði verið mjög væg, og hann hefði ekki fengið neinar skýrslur uin eftirköst þau, sem hér er greint frá að ofan. Fundurí Bonn um framtíð arsamvinnu Evrópu og USA LIS GROES LÁTIN Ekki minnst á Nixon forseta í ákæru Jaworskinefndar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.