Morgunblaðið - 13.03.1974, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974
Fundur um peningamál
in sem hagstjórnartæki
STJÓRNUNARFÉLAG íslands
gengst á morgun, fimmtudag, fyr-
ir fundi um „peningamái sem
hagstjórnartæki" í Bláa sal Hótel
Sögu kl. 16. Fyrirlesarinn, dr.
Þráinn Eggersson lektor, mun
fjalla almennt um peningamálin
sem hagstjórnartæki hins opin-
hera og áhrif þess á atvinnulífið.
Enginn fyrir-
vari um skatta-
breytingar
AÐ GEFNU tilefni, þar eð margir
hafa spurt Mbl., skal það upplýst,
að f kjarasamningum þeim, sem
undirritaðir voru hinn 26. febrú-
ar sfðastliðinn, er enginn fyrir-
vari um heimild til uppsagnar
samningsins, nái skattbreytinga-
frumvarp rfkisstjórnarinnar eigi
fram að ganga á Alþingi. Hins
vegar stendur í 7. grein samnings-
ins, að „verði veruleg breyting á
gengi fslenzku krónunnar er
samningurinn uppsegjanlegur
með eins mánaðar fyrirvara hve-
nær sem er“.
Byrjaðir leigu-
akstur á ný
Leigubílstjórarnir þrír úr
Grindavík, sem handteknir voru á
föstudagskvöldið vegna gruns um
leynivínsölu, voru látnir lausir á
laugardag eftir yfirheyrslur, svo
og tveir menn, sem grundaðir
voru um að hafa verið viðskipta-
vinir bílstjóranna. I yfirheyrslun-
um játuðu bílstjórarnir að hafa
selt áfengi og ætlað að selja það
áíengi, sem fannst í geymslu hjá
þeim. — Munu þeir allir byrjaðir
leiguakstur að nýju.
Lýst eftir vitnum
UM KL. 11 á þriðjudagsmorgun-
inn, 12. marz, varð árekstur á mót-
um Tryggvagötu og Grófarinnar í
Reykjavík. Land Rover-jeppa var
ekið austur Tryggvagötu, en
Simca-bifreíð norður Grófina og
lentu þær satnan á gatnamótun-
um. Ökumönnunum ber ekki
saman um með hverjum hætti
áreksturinn varð og óskar
rannsóknarlögreglan í Reykjavik
því eftir að hafa tal af vitnum að
árekstrinum.
Hótelskip
á Grænlandi
GRÆNLENDINGUR einn, sonar-
sonur hins kunna Grænlandsfara
Knud Rasmussens, hefur keypt
tvo Moonraker-báta og ætlar að
nota þá sem hótelskip á Græn-
Iandi eftir að þeim hefur verið
breytt. Moonraker-bátarnir eru
dýrasta tegundin á bátasýning-
unni sem stendur yfir í Forum í
Kaupmannahöfn, en þessir bátar
sem eru enskir að gerð, hafa feng-
ið afar góðar viðtökur f Dan-
mörku og hafa margir selzt, að
því er fregnir herma frá Dana-
veldi.
— Sveitarfélög
Framhald af bls. 19
yrði séð fyrir sameiginlegri
þjónustu og ýmis önnur þjónusta
veitt, sem ekki er í venjulegum
íbuðarhúsum. Þetta fyrirkomu-
Iag, að hafa aldraða í litlum
íbúðarhúsum, þar sem þeir fá sér-
staka fyrirgreiðslu og eftirlit og
frá sameiginlegri þjónustumið-
stöð, hefur t.d. verið í fram-
kvæmd í Ási í Hveragerði árum
saman og reynst þar hið besta.
Það er því enginn efi á því, að hér
er fyrir hendi mjög aðgengilegur
möguleiki til þess að bæta stór-
lega úr húsnæðisörðugleikum
aldraðs fólks.“
Jafnframt mun hann ræða efnið
með sérstöku tilliti til peninga-
magnskenninga Miltons Fried-
man, umdeilds, bandarísks hag-
fræðings, sem tíðrætt hefur verið
um undanfarið.
I fréttatilkynningu frá Stjórn-
unarfélaginu segir m.a.: Fundur-
inn, sem er opinn öllu áhugafólki
um efnið, er haldinn I tengslum
við fyrirhugaða ráðstefnu Stjórn-
unarfélagsins um áhrif opinberra
aðgerða á atvinnulífíð, en hún
verður haldinn í Munaðarnesi
26.—28. apríl n.k. Fyrr áþessu ári
hafa verið haldnir tveir undir-
búningsfundir í tengslum við ráð-
stefnuna. Ólafur Davíðsson ræddi
um fjárlög sem hagstjórnartæki
og Brynjólfur Sigurðsson lektor
fjallaði um verðlagsákvæði.
Hinn 21. mars n.k. flytur Sigur-
geir Jónsson hagfræðingur fyrir-
lestur um gengismálin og 18. april
gefur Asmundur Stefánsson hag-
fræðingur yfirlit yfir áhrif opin-
berra aðgerða á atvinnulífið árin
1950—1970.
Á fyrrgreindri ráðstefnu sem
haldin verður 26.—28. apríl munu
m.a. flytja erindi Jón Sigurðsson
hagrannsóknarstjóri, Jónas H.
Haralz bankastjóri og Þröstur
Ólafsson hagfræðingur. Enn er
hægt að bæta við nokkrum þátt-
takendum á ráðstefnuna, en efni
hennar er einmitt í sviðsljósinu
um þessar mundir.
Allar nánarí upplýsingar eru
gefnar á skrifstofu félagsins í
síma 82930.
— Hafkostir
Framhald af bls. 10
— Ymis viðhorf til rann-
sóknafrelsins á höfunum
voru rædd í grein í Morgun-
blaðinu 4. júlí 1973 og skal
vísað til hennar hér. Sér-
staklega skal bent á, að með
vfðáttumikilli efnahagslög-
sögu hér við land dregur
væntanlega úr rannsóknum
erlendra vísindamanna á
miðunum við landið. Islend-
ingar hljóta því að verða að
auka sínar rannsóknir bæði
til að fylla upp í tómarúmið
og sérstaklega til að geta
nýtt efnahagslögsöguna á
sem hagkvæmastan hátt. —
(Þýtt og éndursagt).
— Flugfargjöld
Framhaid af bls. 2
vegna launahækkana og annars,
og yrði sú hækkun um 5% að
meðaitali, þó mismunandi eftir
löndum, sem flogið væri til.
Þannig myndu fargjöld milli ís-
lands og Bretlands hækka um
6%, milli tslands og Skandinavfu
og Þýzkalands um 5%, en milli
íslands og Spánar um 4%.
— Radar —
myndrit
Framhald af bls. 2
Hvorki hraði, fjarlægðir né stefn-
ur eru réttar."
Gunnar sagði, að eyðublaðíð
væri aðeins notað til þæginda-
auka, en þess vegna gætu skip-
stjórnarmenn alveg eins notað
hvítan og hreinan pappír. Með
,,radar-plottunum“ er aðeins ver-
ið að sýna atburðarás án þess að
hún sé í réttum hlutföllum, hraði
réttur eða stefna — eins konar
skýringamynd.
Óþarft er að geta þess, að „rad-
ar-plott“-myndir blaðafulltrú-
ans voru ónauðsynlegar með at-
hugasemd hans, eins og fram kom
í svari Morgunblaðsins, því að
blaðið hefur aldrei borið brigður
á, að siglt hafi verið á Árvakur.
Aftur á móti hafa myndir þessar
villt um fyrir ýmsum, sem haldið
hafa, að um ratsjárljósmyndír
væri að ræða, enda talað um ,,rad-
ar-myndrit“ í athugasemd blaða-
fulltrúans, og er það villandi.
— Prófkjör
Framhald af bls. 2
Einar Sigurjónsson
skipstjóri.
Guðjón Tómasson
framkvæmdarstjóri.
Guðmundur Guðmundsson
sparisjóðsstjóri.
Guðni Jónsson
fulltrúi.
Guðríður Sigurðardóttir
kennari.
Gunnar S. Guðmundsson
verkamaður.
Gunnlaugur J. Ingason
framkvæmdarstjóri.
Haraldur Gíslason
útgerðarmaður.
Haraldur Sigurðsson
verkfræðingur.
Helgi Jónasson
fræðslustjóri.
Hermann Þórðarson
flugumferðarstjóri.
Hulda Sigurjónsdóttir
húsmóðir.
Jóhann G. Bergþórsson
byggingaverkfræðingur.
Jón Rafnar Jónsson
sölustjóri.
Karl Auðunsson
útgerðarmaður.
Knútur Kristjánsson
húsasmíðameistari.
Magnús Þórðarson
verkamaður.
Margrét G eirsdóttir
fóstra.
Oliver Steinn Jóhannesson
bóksali.
Páll V. Daníelsson
hagdeildarstjóri.
Rúnar Brynjólfsson
yfirkennari.
Sigurður Bergsson
vélstjóri.
Skarphéðinn Kristjánsson
vörubifreiðastjóri.
Sólon R. Sigurðsson
deildarstjóri.
Stefán Jónsson
forstjóri.
Sveinn Guðbjartsson
heilbrigðisfulltrúi.
Trausti Ö. Lárusson
forstjóri.
Viðar Þórðarson
skipstjóri.
Þórður G uðlaugsson
gjaldkeri.
— Reyndi
að ræna
Framhald af bls. 15
öldruðum, að fara frá borði þegar
lent var. Þegar lögreglumenn
komu öðru sinni inn í vélina með
matvæli þóttust þeir hafa gengið
úr skugga um, að enginn væri í
vitorði með manninum og tókst að
yfirbuga hann.
Vélin var frá japanska flug-
félaginu JAL og meðan vélin var
á brautinni við Nahaflugvöll er
haft fyrir satt, að ræninginn hafi
sagt að hann myndi ekki aðhafast
neitt fyrr en formaður JAL kæmi
á vettvang. Vél hans kom inn til
lendingar um svipað ieyti og ræn-
inginn, sem var aðeins 18 ára að
aldri, var handtekinn.
— Alþingi
Framhald af bls. 14
skyni að koma í veg fyrir flug-
vélarán. Eftirlit með ferðum
hermdarverkamanna væri í
höndum Utlendingaeftirlitsins
og hinnar almennu löggæzlu.
Þessir aðilar hefðu I starfi sínu
samvinnu við Interpoi og lög-
regluyfirvöld í öðrum löndum.
Sem svar við lið 2 sagði ráð-
herra, að samtals 5 sinnum
hefðu komið fram sprengju-
hótanir á Keflavíkurflugvelli. I
slíkum tilvikum væri byrjað á
því að fjarlæga farþega og far-
angur úr vélunum, sem siðan
væru fluttar á afvikinn stað.
Þar leituðu starfsmenn flug-
félaganna sjálfra að sprengjum
I vélunum, en í hinum 5 tilvik-
um hefði aldrei fundizt
sprengja. I öllum tilvikum
hefðu sprengjusérfræðingar
frá varnarlíðinu verið til taks.
Að lokum sagði ráðherrann, að
hér á landi væru 2 sprengjusér-
fræðingar, einn hjá Landhelgis-
gæzlunni og annar hjá lögregl-
unni í Reykjavík.
— Kjara
samningar
Framhald af bls. 32
samanlagt 16,76% hækkun.
Vegna breytinga á starfsaldurs-
stigum má og gera ráð fyrir 2%
hækkun, þannig að heildarlauna-
hækkunin er um 18,76%. Ofan á
það bætast síðan 10%, sem ýmist
heitir viðgerða- og þungaálag,
þóknun fyrir að hafa setið nám-
skeið o.s.frv. og það með vísitölu
6,18 gerir kauphækkunina 38 %.
Þá hafa og orðið allmiklu meiri
launahækkanir hjá t.d. verzlunar-
fólki en meðal verkamanna. Nem-
ur hækkunin meðal verzlunar-
fólks um 30%. Sé hins vegar unn-
ið á laugardögum má meta þá
vinnu, sem nú greiðist á helgar-
taxta, um 4%, þannig að fyrir þá
verzlunarmenn, sem eiga þess
kost að vinna á laugardcjgum, er
heildarlaunahækkunin um 34%.
Launahækkun verzlunarfólks og
taxtatilfærslur eru metnar á 17%
og sértaxtatilfærslur á 3%, eða
samtals um 20,5%. Þá eru
starfsaldurshækkanir meðal
verzlunarfólks metnar á 2%,
þannig að heildarhækkunin nem-
ur um 23 % og með vísitölu nemur
hún 30,6%.
— Þorskblokk
Framhald ajbls. 32
þær geta orðið,“ sagði Þorsteinn,
,,Ef þær eiga sér stað, þá stafar
það aðallega af tvennu: Gífurleg-
um innflutningi á svokölluðum
Alaska-ufsa frá Japan, sem er
ódýr, og mótþróa neytenda gegn
háu fiskverði miðað aðrar matvör-
ur, sem sumar hafa nokkuð
lækkað.“
Einnig sagði Þorsteinn: „Eins
og oft.þegar verðlækkanir virðast
líklegar, halda kaupendur að sér
höndum með innkaup og nota upp
birgðir sínar, en það stuðlar að
aukinni svartsýni seljenda og get-
ur sett skriðuna af stað niður á
við í verðlagi.'ý
Þorsteinn Gíslason sagði að lok-
um, að einmitt vegna þess, að
verið væri að minnka birgðirnar,
ættu sér stað mjög fáar sölur á
blokkum, en meðan ekkert væri
selt, þyrfti enga verðlagningu og
því bæri að taka mjög með varúð
á næstunni flestum fréttum og
upplýsingum um verðlag, þangað
til það skýrðist.
— Þórbergur
Framhald af bls. 32
svalirnar og afhentu honum
ávarp, sem getið verður nánar hér
á eftir. Á svölunum stóðu Margrét
og Þórbergur, Lilla Hegga með
son sinn, en hún er sem kunnugt
er aðalpersónan í Sálminum um
blómið. nú dýralæknisfrú í Húna-
vatnssýslu og þriggja barna móð-
ir, og Jón Þor sonur Margrétar.
Þórbergur tók kveðju blysfara
með því að hneigja sig að austur-
lenzkum sið, en gerði siðan kross-
mark yfir aðdáendur sína. At-
höfninni lauk með því, að leikinn
var Internationalinn.
í upphafi fór Bragi
Kristjánsson með vísu, sem
tileinkuð var skáldinu, og þess má
einnig geta, að hópur ungs fólks
söng lög við nokkur ljóð skálds-
ins, þar á meðal Seltjarnarnesið
er lítið og lágt.
Ávarpið, sem meistara Þórbergi
var afhent i tilefni dagsins, var
undirritað: Þátttakendur í blys-
förinni. Það er svohljóðandi.
„I dag göngum við á fund þinn,
Þórbergur, til að votta þér þakk-
læti fyrir list þína, fyrir mátt orðs
þíns, fyrir lífsskilning þinn og
fyrir einurð þína. Vér þökkum
þér fyrir það, að þú hefur ekki
vanið komur þínar að „litlum
vötnum, ekki að lágum hálsum,
ekki að grunnum dölum“. Við
fögnum því, að þér var gefinn sá
styrkur, sem gerði þig að meistara
og spekingi, án þess að þú þyrftir
nokkurn tíma að víkja af götu
einfaldleikans eða bregða trúnaði
við uppruna þinn, því að slíkir
eru hinir útvöldu, sem varpa
birtu til framtíðarinnar.“
— Sundman
Framhald af bls. 16
heppnazt afbragðs vel: að skapa
lifandi, sanna mynd af llfi fólks-
ins í sjávarplássi á norðurhjara.
Hann veit sem er, að töfrasproti
orðsins leysir engin félagsleg og
hagfræðileg vandamál. Þar þarf
aðrar hendur og önnur tök.
Sundman er einn af fremstu
þingmönnum Miðflokksins
sænska og einn færasti rithöfund-
ur Norðurlanda. Hann þekkir
mæta vel takmarkanir þessara
starfssviða.
— Wilson
Framhald af bls.l
neðri málstofunni þrátt fyrir það,
að stjórnina vantar 20 þingsæti í
að hafa hreinan meirihluta.
I gær tilkynntu hinar ríkis-
reknu kolanámur, að verð á kol-
um mundi hækka um 48% frá og
með 1. april, og mun þetta einnig
leiða til hækkaðs verðs á raf-
magni og stálvörum. Stafa þessar
hækkanir af þeim launahækkun-
um, sem námamenn náðu fram nú
fyrir helgina.
— Sinfóníu
tónleikar
Framhald af bls. 3
síðan átt kost á stöðum i stærri
borgum. Við höfum sem sé ekki
þennan tillölulega jafna metorða-
stiga, við gætum kannski sagt, að i
bandaríska stiganum séu aðeins
tvö þrep, eitt niðri og annað uppi,
flestir standa niðri og eru sífellt
að reyna að hífa sig upp, sem
fáum tekst. Ef maður byrjar á
litlum stað f Bandaríkjunum er
hætt við, að maður festist þar.
Þess ber þó að gæta, að í Banda-
ríkjunum eru tiltölulega fleiri
góðar hljómsveitir en víðast ann-
ars staðar, en þær njóta ekki
ríkisstyrkja heldur eru háðar
framlögum styrktarsjóða eða
styrktarfélaga. Ég gæti trúað, að i
Bandaríkjunum væru yfir 80
sinfóníuhljómsveitir, sem nota
yfir 150.000 dala á ári, þar af fara
um 20 liklega með yfir milljón
dollara á ári, og rekstur þeirra
stærstu er upp á 4—5 milljónir
dala. Vegna þessa verða hljóm-
sveitirnar að taka tiltölulega hátt
gjald fyrir aðgöngumiða og þá
verða þær líka að bjóða fram
þekkta listamenn, til þess að fá
fólk til að koma.
Við höfum heldur ekki ríkis-
styrktar útvarpshljómsveitir eins
og víðast eru í Evrópu, því miður,
því að þær gera mikið af því að fá
unga og upprennandi hljómlistar-
menn sem gesti, það eykur fjöl-
breytni í starfi þeirra og er lista-
fólki nú mikil lyftistöng," sagði
Richard Kapp.
Á efnisskrá hljómleikanna eru,
sem fyrr segir, eingöngu banda-
rísk tónverk. Fluttur verður
kúbanskur forleikur eftir George
Gershwin saminn eftir stutta ferð
hans til Havana 1932. Einnig
verða þættir úr óperunni vinsælu
„Porgy og Bess“ eftir sama höf-
und. Þá verður flutt verk eftir 19.
aldar tónskáldið Louis Moreau
Gottschalk; „Nótt í hitabeltinu“
heitir það og er einnig samið und-
ir kúbönskum áhrifum, á árunum
1858—’59. í þessu verki fær
Sinfóníuhljómsveitin liðsstyrk
frá Skólahljómsveit Kópavogs.
Hún var stofnuð árið 1966 og hef-
ur sem kunnugt er frá upphafi
starfað undir stjórn Björns
Guðjónssonar. Hann hefur m.a.
farið með hljómsveitina i vel-
heppnaða hljómleikaferðir til
Norðurlanda. Nú eru næstum
hundrað börn í hljómsveitinni í
þremur deildum og hafa þau elztu
sérstaka lúðrasveit.
Síðasta verkið á efnisskránni er
eftir núlifandi höfund bandarísk-
an, Virgil Thomsen, sem margt
hefur samið og er sömuleiðis
kunnur sem tónlistargagnrýnandi
Herald Tribune. Verkið var samið
árið 1936 við heimildarkvikmynd,
sem nefnist á íslenzku „Land-
brot“ („The Plough that broke
the Plains“) og verður kvikmynd-
in sýnd hér nú. Texta myndarinn-
ar flytur Jón Múli Árnason.