Morgunblaðið - 13.03.1974, Side 32
ÞEIR RUKH
uiosKiPTin sehi
nuGLúsn í
ÍttoTBimbtfiíiiuu
JR<»r0iinWaí>*fe
nuGLVsincnR
^-•22480
MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974
„Mikil hætta á
verðlækkun”
segir Þorsteinn Gíslason frkvstj.
Coldwater um verðlag á þorskblokk
BANDARÍSKIR kaupendur fisk-
blokka halda nú að sér höndum
með innkaup og nota upp birgðir
sínar, því að verðlækkanir á fisk-
blokkum virðast líklegar. Þetta
stuðlar hins vegar að aukinni
svartsýni seljenda og getur sett
skriðuna af stað niður á við í
verðlagi. Kemur þetta fram í
svari Þorsteins Gíslasonar fram-
kvæmdastjór Coldwater Seafood
Corp., dótturfyrirtækis Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í
Bandaríkjunum, við spurningu
Morgunblaðsins um stöðuna f
sölumálum fiskblokka og verð-
lagsþróun.
Þorsteinn sagði, að mjög mikil
óvissa væri þessa dagana um
verðlag á fiskblokkum. Hugsan-
legar verðlækkanir lægju ekki
eins skýrt fyrir og gefið hefði
verið til kynna í frétt Mbl. fyrir
nokkrum dögum.
„Talin er mikil hætta á verð-
lækkunum, en útilokað að áætla á
þessu stigi málsins, hversu miklar
Framhald á bls. 18
Aftur sovézkar vél-
ar á Keflavíkurvelli
SOVÉZKAR flutningaflugvélar
hafa átt viðdvöl á Keflavíkurflug-
velli undanfarna daga á leið sinni
frá Moskvu til Kúbu og til baka
aftur. Vélarnar, sem eru af gerð-
ínni A-22, fjögurra hreyfla
skrúfuþotur, hafa verið að flytja
ýnsan búnað frá Kúbu til Sovét-
gærkvöldi, fengu álíka margar
sovézkar flugvélar lendingar-
heimild á flugveliinum nú og fyrr
i vetur, en þá voru lendingarnar
alls 22. Er viðdvöl vélanna með
sama sniði og áður: Þær taka hér
eldsneyti og áhafnir þeirra mat-
ast í flugstöðinni. Pétur taldi, að
ríkjanna að lokinni heimsókn flugi vélanna væri nú að verða
Opinbert svar við
fyrirspurn Mbl.:
Engin „ryk-
suguskip”
MORGUNBLAÐIÐ spurði
sendiherra Vestur-Þjóðverja,
Karl Rowold, nýlega um ásókn
vestur-þýzkra „ryksuguskipa"
við Island. Svar sendiherrans,
sem er opinbert, fer hér á
eftir:
„1 vestur-þýzka fiskiskipa-
flotanum eru engin skip, sem
eru „ryksuguskip" eða notuð
sem slík.
Ef átt er með orðinu „ryk-
suguskip“ við skip, sem veiða
handahófskennt án þess að
taka tillit til líffræðilegra og
efnahagslegra aðstæðna, þá
get ég upplýst, að slík skip eru
ekki til í Sambandslýðveldinu
Þýzkaiandi.
Þá er og ekki í bígerð að
smíða slík skip eða nota í
framt íðinni."
A heimili meistara Þórbergs í
gær: Þórbergur, Margrét, Hall-
dór Laxness, Lilla Hegga og
Baldur Sigurðsson, sonur Sig-
urðar Baldurssonar lögfræð-
ings. — Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
Brezhnevs, aðalritara sovézka
kommúnistaflokksins til Kúbu
fyrir nokkrum vikum. Nokkrum
vikum fyrir heimsóknina fengu
vélarnar einnig heimild til milli-
lendinga á Keflavíkurflugvelli,
er þær voru að flytja búnaðinn til
Kúbu.
Að sögn Péturs G uðmundssonar
flugvallarstjóra i viðtali við Mbl. í
Engin
niðurstaða
RÍKISSTJORNIN kom tvíveg-
is saman til fundar f gær til að
fjalla um tillögur Einars
Agústssonar í varnarmálun-
um, en engin niðurstaða
fékkst af þeim viðræðum.
„Það hefur engin ákvörðun
verið tekin,“ sagði Einar
Agústsson í viðtali við Mbl. í
gærkvöldi.
lokið; þær vélar, sem komið hafa
nú siðustu daga, hafa verið á leið
til Moskvu aftur.
Pétur kvað afgreiðslu vélanna
hafa gengið vel og ekkert sérstakt
hafa komið upp í því sambandi.
Eins og fyrr í vetur urðu Sovét-
mennirnir fyrir því óhappi, að ein
af vélum þeirra bilaði og þurfti að
standa á vellinum um nokkurt
skeið, þar til viðgerð var. lokið.
Kvað Pétur vélina, sem nú oilaði,
hafa verið á vellinum í þrjá daga,
en viðgerð hefði verið lokið i gær
og vélin þá haldið á brott.
Þess má geta, að einn starfs-
maður á flugvellinum, sem Mbl.
hafði tal af i gær, sagði Sovét-
mennina ekki hafa verið hrifna
af því, að menn gerðust nærgöng-
ulir; einn starfsfélagi sinn hefði
ætlað að ganga út að einni vélinni
til að skoða hana, en fljótlega
snúið víð, því að Sovétmennirnir
hefðu gert sig líklega til þess að
taka hann í karphúsið, ef hann
kæmi of nærri.
Máttur orðsins, lífs-
skilningur og einurð
Afmælis Þórbergs minnzt: Oska ykkur alls
hins bezta — einnig hinum megin, sagði skáldið
AFMÆLI meistara Þörbergs var
haldið hátfðlegt í gær og má
segja, að það hafi hafizt með þvf,
að 32 nemar í norrænudeild Há-
skóla tslands sungu fyrir utan
gluggana að heimili Margrétar og
Þórbergs, Hringbraut 45, um ell-
efuleytið í gærmorgun. Höfðu ís-
lenzkunemarnir fengið frí hjá
kennara sínum til að hylla meist-
ara íslenzkrar tungu.
Síðar um daginn komu átta
prófessorar á heimili þeirra
hjóna og tilkynntu þeim, að af-
mælisbarnið hefði verið kjörið
heiðursdoktor við Háskóla ts-
lands, eins og skýrt er frá annars
staðar í blaðinu í dag.
Um sjöleytið í gærkvöldi komu
svo blysfarar að heimili þeirra
Margrétar og Þórbergs og hylltu
þau f tilefni dagsins.
Eins og kunnugt er varð Þór-
bergur Þórðarson hálfníræður i
gær, og enda þótt aldurinn sé
farinn að færast yfir hann, lék
Niðurstöður kjarasamninganna:
Iðnaðarmenn fengu
38% - verkamenn 26 %
hann á als oddi i afmælinu og
ávarpaði blysfara m.a. af svölum
húss sins áður en hann kvaddi þá.
Hann sagði: Ég þakka ykkur öll-
um innilega fyrir þann heiður,
sem mér hefur verið sýndur, og
ég óska ykkur alls hins bezta á
öllum ykkar leiðum — og einnig
hinum megin.
Blysfarar lögðu af stað frá Von-
arstræti upp úr kl. hálfsjö. Flestir
voru þeir ungir að árum, nemend-
ur í framhaldsskólum borgarinn-
ar, en auk þess voru í blysförinni
félagar úr verkalýðsfélögum og
aðrir aðdáendur skáldsins. 1 far-
arbroddi fór Lúðrasveit verka-
lýðsins og lék hún ættjarðarlög á
leiðinni, svo og fyrir utan hús
skáldsins.
Blysförin var fjölmenn.
Rúnar Bachmann stjórnaði at-
höfninni við hús skáldsins, Pétur
Pétursson þulur ávarpaði Þór-
berg og minntist m.a. endurminn-
inga, sem i hugann koma á þeirri
leið, sem gangan fðr frá Vonar-
stræti að Hringbraut 45.
Að loknu ávarpi Péturs gengu
þeir Sigfús Daðason upp á
Framhald á bls. 18
LIÓST er orðið, að sú launajafn-
aðarstefna, sem kjaramálaráð-
stefna ASÍ samþykkti á fundi sín-
um í Reykholti síðastliðið haust,
hefur ekki haft þau áhrif, sem til
var ætlazt af ráðstefnufulltrúum,
þvf að launahækkanir, þær, sem
iðnaðarmenn fá, eru stórum
hærri en þær launalækkanir, sem
fram fengust í verkamannafélög-
unum. Meðallaunahækkun innan
Verkamannasambandsins með
vísitölu er um 26%, en meðal-
hækkun iðnaðarmanna er um
38%. Sýna þessar tölur, að stefnu
Alþýðusambandsins, sem mótuð
var á áðurnefndri kjaramálaráð-
stefnu, hefur verið varpað fyrir
róða.
Taxtar Verkamannasambands-
ins hafa í mörgu breytzt i kjara-
samningunum, sem nýlega eru af-
staðnir. Taxtatilfærslur eru metn-
ar á 5,6% og 8% kauphækkunin
og 1.200 krónurnar að auki eru
metnar á um 12%. Samaniagt er
þetta kauphækkun, sem nemur
18,3%, en 12% reiknast ofan á
taxtatilfærslurnar. Vegna starfs-
aldursbreytinga í töxtum Verka-
mannasambandsins má gera ráð
fyrir 0,5% hækkun og er því
heildarhækkun vegna samning-
anna 18,8%, og með vísitölu 6,18
hinn 1. marz er kauphækkunin
samtals um 26%. Jafnvel innan
Verkamannasambandsins gætir
misréttis í kauphækkunarprós-
entu, þar sem bflstjórar og aðrir,
sem fara með vélar, fá meiri prós-
entuhækkun en hinn almenni
verkamaður.
Iðnaðarmenn fá eins og áður er
sagt meðaltalshækkunina 38%, og
er þá vísitöluhækkun innifalin í
þeirri prósentu eins og í prós-
entum Verkamannasambands-
ins. Meðal járniðnaðarmanna er
þessi hækkun um 36% við upphaf
starfs, en eftir þriggja ára starf er
prósentuhækkunin með vísitölu
39,5%. Járniðnaðarmenn fá sér-
stakt álag, 10%, fyrir viðgerðar
og þungavinnu, en gera má ráð
fyrir því, að aðrir iðnaðarmenn
fái mjög svipaða prósentuhækk
un, sem t.d. hjá trésmiðum er í
formi sérstaks námsskeiðs og hjá
rafvirkjum veitir afnám flutn-
ingalínu nærri 9% hækkun fyrir
tímavinnumenn og tæplega 6%
hækkun fyrir þá, sem vinna í á-
kvæðisvinnu. Þá fá þeir einnig
bættan kostnað vegna ferða í
strætisvögnum, sem metinn er á
tæplega 4%.
Taxtatilfærslur hjá iðnaðar-
mönnum almennt eru metnar á
4,25% og eru það taxtatilfærslur,
sem fengust vegna breytinga á
töxtum annarra, m.a. verka-
mannafélaganna. Kauphækkun-
in, 8%, + 1.200 krónurnar eru
metnar á 12% og gerir þetta
Framhald á bls. 18
Sást síðast
á Naustinu
ENN er ekki ljós dánurorsök
Óla Antons Þdrarinssonar,
sem fannst látinn við Hafra-
vatn á laugardaginn. Hins veg-
ar er nú komið f ljós, að Óli
Anton kom í veitingahúsið
Naustið á föstudagskvöldið og
sást þar sfðast um kl. 01 um
nóttina, er húsið var að loka.
Hins vegar er ekkert vitað um
ferðir hans eftir það, eða með
hverjum hætti hann fór upp að
Hafravatni.