Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAI 1974
Fellahellir nefn-
ist félagsmiðstöðin
FÉLAGSMIÐSTÖÐ Æskulýds-
ráds Reykjavíkur í Fellahverfi
hefur nú verid gefið nafn. At-
kvæðagreiúsla fór fram meðal
nemenda f unglingadeild Fella-
skóla miðvikudaginn 22. maf, og
greiddu 116 atkvæði. Margar
skemmtilegar tillögur komu
fram, en langflest atkvæði fékk
nafnið FELLAHELLIR.
Talning atkvæða fór fram að
Fríkirkjuvegi 11 í gær, þriðjudag.
Á myndinni sjást fulltrúar þeirra,
sem atkvæði greiddu, þær Sigur-
björg Þorsteinsdóttir, Sigríður
Gunnarsdóttir, Björg Ólafsdóttir
og Anna Magna Bragadóttir. Með
þeim er Valur St. Þórarinsson,
forstöðumaður félagsmiðstöðv-
arinnar. Stofnunin mun hefja
starf í júní. (Ljósm. Mbl.'ÖI. K.
Mag.)
D-LISTA SKEMMT-
ANIR ANNAD KVÖLD
AKVEÐIÐ hefur verið að efna til
skemmtana fyrir alla þá, sem
störfuðu fyrir D-listann á kjördag
og stuðluðu með þvf að sigri sjálf-
stæðismanna f borgarstjórnar-
kosningunum. Þessar skemmtan-
ir verða annað kvöld, fimmtudag,
að Hótel Sögu og í Sigtúni við
Suðurlandsbraut.
Allir þeir, sem störfuðu fyrir
D-listann á kjördag geta sótt boðs-
miða sina á skrifstofu Fulltrúa-
ráðsins að Síðumúla 8 til kl. 6 í
dag. Þessar skemmtanir munu
hefjast kl. níu og standa til kl.
eitt. Á Hótel Sögu leikur hljóm-
sveit Ragnars Bjarnasonar fyrir
dansi en í Sigtúni hljómsveitin
Islandia ásamt söngkonunni
Þuríði Sigurðardóttur. Sigríður
E. Magnúsdóttir mun syngja á
báðum skemmtununum við undir-
leik Ólafs Vignis Albertssonar. Þá
munu hinir vinsælu Halli og
Laddi kæta gesti með eftir-
hermum.
í næstu viku verður svo sérstök
skemmtun fyrir þá fjölmörgu
starfsmenn listans, sem eru undir
átján ára aldri.
Framleiðsla dýrmætra
fúkalyfja möguleg hér
Fúkalyfjaframleiðsla væri
möguleg hér, ef erlendir fram-
leiðendur fengju hagstæð skil-
yrði. Innlend hráefni væru aðal-
lega vatn og orka, en þetta er ekki
orkufrek framleiðsla. Slíkan iðn-
að mætti fl.vtja inn á sama hátt og
Duga kjötbirgðirn-
ar til haustsins?
ÚTFLUTNINGI á dilkakjöti,
framleiðslu ársins 1973, er að
mestu lokið. Samkvæmt upplýs-
ingum Agnars Tryggvasonar f
búvörudeild SÍS, var útflutn-
ingurinn rúmlega 3000 tonn , á
móti 2600 tonnum af framleiðslu
ársins 1972. Ovenju miklar
birgðir eru af dilkakjöti f
landinu, og er talið, að þær dugi
til haustsins, enda þótt niður-
greiðsiurnar hafi stóraukið
söluna að undanförnu.
Hinn aukni útflutningur stafar
af mikilli framleiðslu dilkakjöts í
fyrra. Þrátt fyrir þennan aukna
útflutning var búizt við því, að
einhverjar kjötbirðir gengju af
þegar slátrun hæfist í haust. Kjöt-
birgðir í landinu munu nú vera
um 3000 tonn, en meðalneyzla
dilkakjöts innanlands er 700—800
tonn á mánuði.
ál- og stáliðnað, segir m.a. í
skýrslu nefndar, sem skipuð var
til að kanna grundvöll fyrir fram-
leiðslu l.vfjaefna hérlendis úr
innlendum hráefnum, en formað-
ur hennar er dr. Sigmundur Guð-
bjarnason prófessor. Leggur
nefndin til, að hafnar verði við-
ræður við erlenda fúkalyfjafram-
leiðendur til að kanna frekar þá
möguleika, sem eru fvrir hendi.
Fúkalyf eru afar verðmæt mið-
að við þunga og bendir nefndin
sérstaklega á þá möguleika, sem
gætu verið fólgnir í nýtingu verð
lítilla aukaafurða hér á landi úr
fiskslógi og undanrennudufti, og
jafnframt á þá staðreynd, að ekki
fæst nein vitneskja um þessa
möguleika nema e.t.v. eftir við-
ræður um stofnsetningu slíkrar
verksmiðja. Eina leiðin til að
hrinda þessu veigamikla máli í
framkvæmd sé að leita til öfl-
ungra erlendra aðila með fram-
leiðslu á fúkalyfjum á licens-
grundvelli i huga. Vaknar þá auð-
vitað strax sú spurning, hvort
hagkvæmt muni vera að reka slík
an iðnað hér. Þessu er nánast
ómögtilegt að svara eindregið á
núverandi stigi. Aðeins mun stað-
hæft, að markverðar hindranir
eru ekki sjáanlegar, segir í skýrsl-
unni. Verðmæti afurðanna er svo
mikið, að engu máli mun skipta
hvar slíkur iðnaður er staðsettur.
Hvað orku og vatn snertir erum
við tvímælalaust jafnvel eða bet-
ur settir en aðrar vestrænar þjóð-
ir. Og öruggt mál telja að hægt
Tvö óhöpp á Hringbraut
Alþýðubanda-
lagið tapaði
fylgi í Reykjavík
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ, g-
listinn, tapaði verulega fylgi f
borgarstjórnarkosningunum í
Reykjavík borið saman við það
fylgi, sem flokkurinn fékk við
alþingiskosningar 1971. Þá
fékk Alþýðubandalagið 20%
gildra atkvæða, en nú 18,2%.
Hefði flokkurinn haldið hlut-
falli sínu af gildum atkvæðum
hefði atkvæðismagn hans nú
orðið 9.339 atkvæði, en það
varð aðeins 8.512 atkvæði. Mis-
munurinn er 827 atkvæði, sem
er 9,7% af fylgi flokksins við
borgarstjörnarkosningarnar
síðastliðinn sunnudag.
SKÖMMU eftir hádegi I gær varð
harður árekstur á Hringbraut við
enda Tjarnarinnar. Ökumaður
bifreiðar, sem var á leið austur
Hringbraut, stoppaði til að hlevpa
andamömmu með ungana sfna
yfir götuna, en við það skall
bifreið sem kom á eftir aftan á
hann með þeim afleiðingum að
drengur I framsæti aftari bif-
reiðarinnar skall með höfuðið í
framrúðuna og skarst á enni og
nefi. Annar drengur sem sat í
aftursæti sömu bifreiðar skarst
einnig nokkuð á höku. Við
áreksturinn urðu báðar bif-
reiðarnar fyrir skemmdum,
einkum sú sem hafði stoppað
fyrir andamömmu.
Nokkru seinna varð annað um-
ferðaróhapp á Hringbrautinni á
móts við Kaplaskjólsveg. 10 ára
stúlka, sem var á leið yfir Hring-
brautina skall á hægri hlið sendi
ferðabifreiðar sem var á leió
austur Hringbraut, en bifreiðin
hafði hemlað og snúist við það í
hálfhring þannig að hún sneri
öfugt á götunni. Telpan skaddað-
ist á höfði og víðar, en við fyrstu
athugun voru meiðsli hennar ekki
talin alvarleg.
Union Carbide fer
fyrir þing í haust
VEGNA þingrofsins fékkst ekki
afgreiðsla Alþingis á f.vrir-
hugaðri málmblendiverksmiðju
Union Carbide, sem reisa á f
Hvalfirði. Að sögn Magnúsar
Kjartanssonar iðnaðarráðherra,
mun málið væntanlega verða lagt
fyrir þingið f haust.
Fara sérkröfur
starfsmanna í
BÆJARSTARFSMENN um allt
land, sem aðild eiga að BSRB, eru
þessa dagana að semja um sér-
kröfur sfnar. Ef samningar takast
ekki fyrir 1. júní n.k. fara mál
þeirra fyrir Kjaradóm. í gær
höfðu aðeins 3 félög af 13 samið,
en vfðast voru samningar f gangi,
en mismikil hreyfing á þeim
samningum, samkvæmt þeim
upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér
í gær.
bæjar-
Kjaradóm?
Þeir bæjarstarfsmenn, sem
samið höfðu i gær, voru Húsvík-
ingar, Hafnfirðingar og Kópa-
vogsmenn. Samið var um svipuð
kjör og ríkisstarfsmenn náðu
fram í sambandi viðsínar sérkröf-
ur. Það getur tafið samningana
nú, að miklar hræringar hafa víóa
orðið á bæjarstjórnum vegna
nýliðinna kosninga. Því getur svo
farið, að samningar einhverra
félagagangi til Kjaradóms.
Iðnaðarráóherra sagði, að
nefnd, sem skipuð var til að
undirbúa málið, hefði skilað því
frá sér fyrir nokkru. Ætlunin
hefði verið að leggja það fyrir
síðasta þing. '
Leiðrétt
atkvæðatala
úr Gerðahreppi
EKKI var nákvæmlega rétt greint
frá atkvæðatölum úr Gerðahreppi
í Garði í Mbl. í gær. Endanleg
úrslit urðu þau, að H-listi sjálf-
stæðismanna og annarra frjáls-
lyndra kjósenda hlaut 227 at-
kvæói og fjóra menn kjörna, I-
listi frjálslyndra kjósenda hlaut
96 atkvæði og einn mann kjörinn,
en K-listi framfarasinnaðra hlaut
51 atkvæði og engan mann kjör-
inn.
verði aö nýta innlendar aukaaf-
urðir við umræddan iðnað.
Um notkun og verðmæti fúka-
lyfja segir m.a: Ætla má að fúka-
lyf séu um 10% af verðmæti í
brúttóveltu lyfja. Sé aðeins miðað
við lyfseðilsskyld lyf eru fúkalyf
20—25% af verðmætinu. Miðaö
við úrtakskönnun á lyfseðlum i
Reykjavfk i nóvember 1972 og
apríl 1973 má áætla ársnotk
un penicillins, ampícillíns og
tetracyclíns sem hráefna á íslandi
að verðmæti 4.400:000 i ísl. kr. á
100 þús ibúa. Sé miðað við EFTA
svæðið þá er verð þessara lyfja-
efna á þeim markaði að upphæð
1800.000.000 ísi. króna. En eins og
komið hefur fram er um verð-
mæti hráefnisins að ræóa, en
verðmæti fullunninna lyfja er um
fjórum sinnum meira.
í skýrslunni kemur fram að fyr-
ir því megi finna margar veiga-
miklar röksemdir að hagkvæmt sé
aó framleiða fúkalyf á islandi,
m.a. að eftirspurn eftir fúkalyfj-
um er mikil og ekki líkleg til að
minnka um fyrirsjáanlega fram-
tið. og að efnin eru dýrmæt miðað
við fyrirferð. Einnig að hægt er
að nýta áður ónýttar íslenzkar af-
uróir og gera úr þeim mjög verð-
mæta vöru. En gallinn er sá að
efnin, sem notuð eru, eru fram-
leiðsluleyndarmál þeirra fyrir-
tækja, sem framleiða.lyfin.
Við hugsanlega fúkalyfjafram-
leiðslu hér á landi er hægt að
bjóða erlendum fúkalyfjafram-
leiðendum: 1) rlæga og trygga
orku, 2) nægt magn af hreinu og
góðu vatni, 3) Landfræðileg lega
Islands er hagkvæm hvað snertir
dreifingu afurðanna í Evrópu og
Ameríku 4) Nýting á ódýrum inn-
lendum aukaafurðum í næringar-
vökva örgróðurs (en fúkalyfja-
framleiðsla er gerð með ræktun
(„gerjun") örvefja). Er hér eink-
um átt vió undanrennuduft, svo
og proteinhydró lýsöt unnin úr
fiskslógi. Öhætt mun að fullyrða,
að hráefni þau, sem hér um ræðir,
séu fyrir hendi í ótakmörkuðu
magni, hvað snertir fúkalyfja-
framleiðslu, segir í skýrslunni.
FÆREYSKUR
FYRIRLESARl
MIÐVIKUDAGINN 29. maí kl.
17.15 heldur mag.art. Mortan
Nólsöe frá Færeyjum fyrirlestur í
I. Kennslustofu háskólans.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
norsku og nefnist:
Betraktninger otn forholdet
mellom ballade og sagaforlegg.
Öllum er heimill aðgangur.