Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 32
^ÞEIR RUKR uissKiPTin scm nuGivsni nucivsmcRR ^*-»22480 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1974 Ytri-Njarðvík: BANASLYS SA hörmulegi atburöur gerðist f Ytri-Njarðvík um hádegisbilið sl. sunnudag. að fjögurra ára drengur varð undir afturhjóli vörubifreiðar, sem ekið var aftur á bak, og beið drengurinn sam- stundis bana. Tildrög slyssins voru þau, að drengurinn, sem var að leik MAÐUR TÝNDUR í EYJUM I VESTMANNAEYJUM hefur staðið vfir víðtæk leit að fertug- um manni, Garðari Jðnssyni. frá því á sunnudaginn. Síðast sást til feröa Garðars á laugardagskvöld- ið, og var hann þá á gangi í mið- bænum í Vestmannaeyjum. Leitað hefur verið um alla eyjuna. I gærkvöldi átti að hefja leit með sporhundi Hjálparsveita skáta. Garðar Jónsson er aökomumað- ur í Vestmannaeyjum. Hann hef- ur starfað þar mikið á undanförn- um vertíðum. Garðar er meðal- maður á hæð, þrekinn, dökkskol- hærður og með hrokkið hár. AUGLYSENDUR eru vinsamlegast beðnir að athuga, að síðasta blað fyrir hvítasunnu kemur út laugardaginn 1. júní. — Æskilegt er, að handrit berist sem f.vrst og eigi síðar en kl. 6 e.h. á fimmtudag. skammt frá þar sem bifreiðin stóð, hljóp af stað í áttina til hennar er hún var sett í gang, en faðir hans var ökumaður hennar. Þegar drengurinn var rétt kominn að bifreiðinni varð honum fótaskortur fyrir aftan annað afturhjólið með fyrr- greindum afleiðingum. Nokkrir sjónarvottar voru að slysinu og -eyndu þeir að gera ökumanni viðvart, en hann heyrði ekkí aðvörunaróp þeirra fyrr en um seinan. Tveir~II ára stálu skotum I GÆKMORGUN var brotizt inn í vinnuskúr Breiðholts hf. í Breið- holti. Stolió var nokkru magni af naglaskotum. Lögreglan var fljót að hafa uppi á þjóíunum, sem reyndust vera tveir drengir, 11 ára. Þeir skiluðu aftur þeim skot- um sem þeir höfðu ekkí þegar sprengt. Það þarf ekki að taka fram hve hættuleg slík skot geta verið í höndum barna, og því skal það brýnt íyrir þeim sem sjá börn með siík skot að leik, að tilkynna það lögreglunni strax. Iscargo kaupir nýja flugvél I GÆKKVÖLDI lenti á Keykja- víkurflugvelli flugvél sem vöru- flutningaíelagið Isearco keypti fyrir skömmu í Noregi. Vélin er af gerðinni Douglas DC-6A, og er hún sérstaklega útbúin til vöru- flutninga. Iscarco á nú þrjár DC-6 flugvélar. I. Sól hækkar á lofti, og fólk notar hvert tækifæri sem gefst til að njóta hennar. Og hvað er þá betra en skreppa í Laugarnar? (Ljósm. Mbl. 01. K. M.) Vinna má pepsín úr kútmögum hér NEFND sérfræðinga, sem unnið hafa að þvf að kanna grundvöll fyrir framleiðslu lyfjaefna hér- lendis úr innlendum hráefnum, telur að mikið magn innlendra hráefna sé hér fvrir hendi hent- ugt fvrir lífefnaiðnað. Hráefni Nefnd frá GATT rannsakar efnahagsaðgerðir Islendinga GATT, Alþjóðastofnun um tolla- mál, sem situr í Genf, skipaði á mánudag sérstaka rannsóknar- nefnd, sem á að athuga svokallað innborgunarkerfi, sem ríkis- stjórnin setti á nýlega. Með þvf er innflytjendum gert að greiða inn á reikning Seðlabankans 25% af andvirði innfluttrar vöru og skal fjárhæðin liggja á reikningnum í 90 daga með 3% vöxtum. Formað- ur nefndarinnar er fuiltrúi Ástralíu hjá GATT, Colin Teese. Jafnframt fól GATT fram- kvæmdastjóra sínum Oliver Long að hefja viðræður við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn um greiðslu- stöðu Islendinga út á við. Kannsókn sem þessi hefur aldrei áður farið fram á efnahag Islendinga. Þórhallur Asgeirsson, ráðuneytisstjóri í viðskíptaráðu- neytinu, sagði í viðtali við Mbl. að tilgangur með athuguninni væri sá að sjá, hver áhrif þessar ráð- stafanir kynnu að hafa á viðskipti íslendinga við aðrar þjóðir. Þór- hallur sagði að menn hefðu búizt við þessum viðbrögðum frá GATT og vitað að slík nefnd yrði skipuð. Við því væri þó ekkert að segja, viðskiptaráðune.vtið mynd láta í té upplýsingar og skýringar á því, hvers vegna íslenzk stjórnvöld hefðu talið þetta nauðsynlega ráð- stöfun. Sagði hann að athugun sem þessi tæki talsverðan tíma og að öllum líkindum yrði búið að afnema innborgunarkerfið áður en henm lyki. Innborgunarkerf- inu er gert að gilda til 30. septem- ber. Um viðræður framkvæmda- stjóra GATT við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn sagði Þórhallur, að verkaskipting milli GATT og gjaldeyrissjóðsins væri sú, að GATT fjallaði um viðskiptahöml- ur, en sjóðurinn um greiðslur eða yfirfærslur á gjaldeyri. Hann kvað það enn ekki hafa verið skil- Framhald á bls. 18 þessi eru innyfii fiska, hvala og sláturdýra. Unnt er að vinna enzýma hormóna o.m.fl. úr þessu hráefni og senda síðan úrganginn til mjölvinnslu eins og gert hefur veriö. Lífefnaiðnaði og þar með enzým iðnaði er spáð vaxandi gengi á næstu áratugum og er verðlag á þessum efnum geysihátt. Sem dæmi er í skýrslu nefndarinnar tekið, að unnt sé að vinna pepsin úr kútmögum, hvalsmögum og vömbum sláturdýra. En verð á pepsíni er um 400 kr. grammið eða 400 þús. kr. kílóið. Ur svilum eru unnið sterólar, 15—20 tonn úr 5000 tonnum, en þar eru einnig á ferðinni verð- mætir hormónar og ef reiknað er 1% af sterólmagninu þá fást 200 kg. Verð þessara hormóna er mis- jafnt, en af testosteroni kostar það 100 kr. grammið, andrósteróni 300 kr. grammið og .estradíóli 2400 kr. grammið. FRAMBOÐSLISTISJALFSTÆÐ- ISFLOKKSINS í REYKJAVÍK Á fundi Fulltrúaráðs Sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavfk I gærkvöldi var tekin ákvörðun um framboðslista Sjálfstæðisflokks- ins I Keykjavík við alþingiskosn- ingarnar 30. júní n.k. Framboðs- listinn er þannig skipaður: 1. Geir Hallgrímsson, fyrrv. alþm. 2. Gunnar Thoroddsen, fyrrv. alþm. 3. Kagnhildur Helgadóttir, fyrrv. alþm. 4. Jóhann Hafstein, fyrrv. forsætisráðherra. 5. Pétur Sigurðsson, fyrrv. alþm. 6. Ellert B. Schram, fyrrv. alþm. 7. Albert Guðmundsson stórkaupmaður. 8. Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafr. 9. Geirþrúður H. Bernhöft ellimálafulltrúi 10. Gunnar J. Friðriksson iðnrekandi 11. Kristján J. Gunnarsson fræðslustjóri 12. Áslaug Kagnars blaðamaður 13. Gunnar Snorrason kaupmaður 14. Þórir Einarsson dósent 15. Halldór Kristinsson sölumaður 16. Karl Þórðarson verkamaður 17. Bergljót Halldórsdóttir meinatæknir 18. Gunnar S. Björnsson trésmiður 19. Sigurður Þ. Arnason skípherra 20. Siguröur Angantýsson rafvirki 21. Ragnheiður Guðmundsdóttir læknir 22. Jónas Jónsson frkv.stj. 23. Birgir Kjaran, fyrrv. alþm. 24. Auður Auðuns, fyrrv. ráðherra. Ur skúflöngum og briskirtlum má vinna fleiri meltingarenzým, t.d. trypsín. Verð á trypsín og öðrum slíkum enzýmum fer eftir hreinleika, en er frá 12 þúsund til 800 þús. krónur kg. Magn þessara efna, sem vinnan- leg væru úr íslenzku hráefni eru væntanlega tugir, ef ekki hundr- uð kg af þessum verðmiklu efn- um segír í skýrslu nefndarinnar en hana skipa þeir dr, Sigmundur Guðhjarnason prófessor, Almar Grímsson deildarstjóri, Reynir Eyjólfsson lyfjafræðingur, Þor- leifur Jónsson viðskiptafræðing- ur og dr. Björn Dagbjartsson mat- vælaverkfræðingur. Telja þeir tímabært að rann- saka hráefniö og kanna hvort við getum ekki hagnýtt okkur þessa þróun og breytt okkar verðlitlu aukaafurðum í verðmeiri útflutn- ingsframleiðslu. Telur nefndin nauðsynlegt að ráða hæfa starfs- menn til að sinna þessum rann- sóknum, sem geti farið fram hjá Kaunvisindastofnun Háskólans og Rannsóknastofnun fiskiðnað- arins og notað aðstöðu og tækja- búnað þessara stofnana. I skýrslu nefndarinnar er fjallað um hugmyndir um vinnslu nýtanlegra efna úr aukaafurðum úr fiski, hval og sláturfé. Þar segir t.d. að svil hafi verið flutt út, sem notuð hafi verið til mjöl- framleiðslu fyrir lyfjaverk- smióju, og ekki sé ólíklegt að nota mætti kynkirtla úr lambhrútum og hvölum til stereoframleiðslu á svipaðan hátt og svilin. Einnig sé vitað að í öllum meltingarfærum (mögum, löngum, görnum) sé mikið af chólesteróli og ef fram- leiðsla þess eða annarra steróla teljist arðvænleg, sé I innyflum mikið viðbótarhráefni. Þær fiskafurðir, sem hugsan- lega myndu verða notaðar til llf- enfaiðnaðar eru fyrst og fremst innyflin, roð og lifravefur. Og víða erlendis eru ýmsir kirtlar Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.