Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAl 1974
Glistrup og Hartling takast í hendur. Hartlingstjórnin situr enn fyrir
stuóning Glistrups, sem nú á yfir höfði sér málsókn fyrir skattsvik.
Glistrup studdur
af fiokksfélögunum
Minni olía
frá Rússum
Caetano i klaustri
MARCELO Cateano, hinn útlægi
fyrrum forsætisráðherra
Portúgals, kom til Rio de Janeiro
í gær og dvaldist daglangt f
munkaklaustri einu, þar sem
hann hugleiddi framtíð sína.
Gamall nemandi hans úr laga-
deild háskólans í Lissabon var
eini gesturinn sem hann tók á
móti, og kvað hann Gateano hafa
verið þre.vttan, en við góða heilsu.
„Hann þarf hvíld til að geta
fundið sjálfan sig aftur. Hann
verður að b.vrja nýtt líf. Hann er
að velta fyrir sér tilboðum um
kennslustörf hér, og jafnvel hvort
hann ætli að setjast að í Rio.
Amerigo Thomaz, fyrrum forseti
Portúgal, sem gerður var útlægur
eftir byltinguna með Gateano,
dvelst nú einnig í Rio de Janeiro
ásamt eiginkonu og dóttur.
Sovézkur leik-
stjóri dæmdur
Moskvu 24. maí AP.
HINN heimskunni sovézki kvik-
myndaleikstjóri Sergej
Paradsjanov var fyrir skömmu
dæmdur í 6 ára fangelsi fyrir kyn-
villu, og fyrir að hafa hvatt ein-
hvern mann til sjálfmorós.
Paradsjanov var handtekinn i
Kief í desember sl. Þekktasta
mynd hans er „1 skugga gleymdra
forfeðra", sem hefur hlotið 16
alþjóðleg kvikmyndaverðlaun.
Kaupmannahöfn, 28. maí —
NTB
ÞINGMENN Framfaraflokks
Mogens Glistrups, sem sæti eiga í
nefnd danska þjóðþingsins um
þingsköp, hafa snúizt gegn þvf, að
flokksleiðtoginn verði sviptur
þinghelgi sinni og sóttur til saka
fyrir skattsvik.
Þetta er í fyrsta sinn f sögu
þingsins, að þingmenn beita sér
gegn slíkum tilmælum dómsyfir-
valda. Áöur hefur meirihluti
þingflokks Framfaraflokksins
lýst stuðningi við þá röksemd Gli-
strups, að hér sé um pólitískar
ofsóknir að ræða, undir yfirskini
réttarfarsmáls.
Mál Glistrups var tekið til um-
ræðu í nefndinni f dag, en ekki
tókst að afgreiða það. Verður það
rætt á ný á morgun í nefndinni,
og síðan kemur til atkvæða-
greiðslu i þinginu.
Fundur þingskaparnefndarinn-
ar í dag var athyglisverður fyrir
fleiri hluta sakir, þvi að Mogens
Glistrup sjálfur tók þátt í honum,
og lagði m.a. fram plagg þess
efnis, að dömsyfirvöld hefðu ekki
borið fram nægilega gild rök fyrir
ákærunni.
Moskvu, 28. maí. NTB. AP.
OLlURÁÐHERRA Sovétríkj-
anna, Valentin Shashin, segir að
vegna aukinnar innanlands-
neyzlu geti Rússar ekki aukið
olíuútflutning sinn á næstu árum.
Shashin gaf í skyn að útflutn-
ingurinn gæti dregizt saman á
næsta áratug vegna neyzluaukn-
ingarinnar innanlands.
Hann staðfesti á fundi með
bandarískum blaðamönnum að
Rússar mundu eiga fullt í fangi
með að fullnægja aukinni olíu-
þörf vegna vaxtaraukningar i
iðnaði Austur-Evrópu ef ekki yrði
dregið úr útflutningi til Vestur-
Evrópu.
Að sögn Shashin verður olíu-
framleiðslan 600 milljónir lesta
1980, en innanlandsne.vzlan 500
milljónir lesta eða meira.
Arið 1972 seldu Rússar 60
milljónir lesta af olíu til Vestur-
landa og 47 milljónir lesta til
Austur-Evrópu. Olíuframleiðsla
Rússa 1973 var 421 milljón lesta.
Shashin sagði: ,Við biðjum
enga um aðstoð. Við höfum nægar
olíulindir. Við getum bjargað
okkur sjálfir." Hann kvað ekki
þörf fyrir fjármagn og tækjabún-
að frá Vesturlöndum, en viður-
kenndi að þörf væri fyrir olíu-
leiðslur. Hins vegar útilokaði
hann vöruskiptasamningá þannig
að Rússar fengju leiðslur eða
tækjabúnað i staðinn fyrir olfu.
Hann tilkynnti að hugmyndir
um fyrirhugaða samvinnu Rússa
og Japana um olíuvinnslu í Vest-
ur-Síberíu væru úr sögunni og
ekki yrði hægt að selja Japönum
oiíu fyrir 1980.
Svíakonungur
nú skattlagður
Nixon nýtur
stuðnings G.
Washington, 28. maí AP.NTB.
HÆSTIRÉTTUR Bandarfkjanna
tilk.vnnti í dag að lögfræöingar
Nixons forseta létu í ljós álit sitt
á fimmtudag á beióni Leon
Jaworskis saksóknara um að
hæstiréttur úrskurði að forsetinn
verði að afhenda hljóðritanir af
64 samtölum um Watergatemál-
ið.
Jaworski skýrði frá þvf í dag að
hann hefði undir höndum gögn
sem sýndu að skattstofa Banda-
ríkjanna hefði fengið fyrirmæli
frá Hvíta húsinu um að endur-
skoða framtöl pólitískra óvina,
þar á meðal fyrrverandi for-
manns demókrataflokksins,
Lawrenee O'Brien, og klekkja á
þeim á annan hátt.
Jafnframt eru flestir frétta-
miðlar í Bandaríkjunum sammála
um að Nixon forseti hafi glatað
stuðningi Gerald Fords varafor-
seta vegna ósveigjanlegrar af-
stöðu í deilunum við dómsmála-
nefnd fulltrúadeildarinnar og
Jaworski saksóknara. Á sama
tíma taka æ fíeiri forystumenn
repúblikana afstöðu gegn forset-
anum.
Stjórnmálamenn i Washington
draga þannig mjög í efa yfirlýs-
ingar Ronald Zieglers blaðafull-
trúa um að samstarf Nixons og
Fords sé enn gott. Ekkert bendir
til þess að Nixon vilji fara að
ráðum Fords og afhenda dóms-
málanefndinni og Jaworski fleiri
gögn.
Jaworski hefur beðið hæstarétt
að láta málið til sín taka þar sem
lögfræðingur Nixons, James
D.St.Clair bað áfrýjunarrétt i
Washington að hnekkja þeim úr-
skuröi John J. Sirica dómara að
Nixon verði að afhenda Jaworski
fleiri hljóðritanir. Ilæstiréttur
hefur þar með í fyrsta skipti feng-
ið málið til meðferðar.
Jaworski segir að upplýsingar
ekki
Fords
um fyrirmæli til skattstofunnar
um að klekkja á pölitfskum óvin-
um forsetans sé að finna á hluta
segulbandsspólu sem Hvíta húsið
hafi neitað að afhenda á þeirri
forsendu að hún komi Watergate-
málinu ekki við.
Stokkhólmi 28. maí — NTB
ORÐASKAK allmikió varð á
sænska þinginu í gær, þegar sam-
þvkkt var frumvarp, sem borið
var fram af Gunnari Stráng, fjár-
málaráðherra, þess efnis, að kon-
ungsfjölskyldan í Svíþjóð skyldi
framvegis greiða eignaskatt og
tolla. Talsmenn „Moderata
samlingspartiet" sögðu t.d., að
frumvarp þetta væri tilræði við
konungdóminn og væri aðeins
borið fram til að sleikja allra
róttækustu öflin. Hins vegar svör-
uðu jafnaðarmenn því til, að hér
væri aðeins um að ræða eðlilegt
spor í átt til meira jafnréttis.
Tage Magnusson frá „Moderata
samlingspartiet" sagði, að ef hirð-
in þyrfti að greiða skatt af öllu
nema lífeyri sfnum. yrði konungi
gert erfiðara að gegna skyldu-
störfum sínum i þágu þjóð-
arinnar. i sama streng tók
formaður sama flokks, Gösta
Bohman. Hann kvað það
ókurteisi, sem ekki hefði ver-
ið sýnd fvrri konungum. að
krefjast þess. að konungur fyllti
út skattskýrslu sína og tilkvnna
hversu margar , sigarettur hann
kemur með ínn í landiö o.s.frv.
Erik Wærnberg frá jafnaðar-
mönnum sagði. að þessar rök-
semdir væru hlægilegar. „Kon-
ungur er vel menntaður og hann
hlýtur að geta fyllt út skatta-
skýrsluna sína." sagði hann m.a.
Síðan var frumvarpið samþykkt
með 251 atkvæði gegn 48.
Margir gaullistar eru
óánægðir með Chirac
JACQUES Chirac, hinn nýi for-
sætisráðherra Frakka, var land-
búnaðar- og innanríkisráðherra
í stjórn Georges Pompidous
forseta. Val hans í emhættið
kemur þvf ekki á óvart.
Skipun hans bendir til þess
að Valerv Ciseard d’Estaing,
hinn nýi forseti, muni fvlgja
hefðbundinni stefnu gaullista f
utanrfkismálum, en fjarlægjast
stefnu áhrifamanna flokksins í
innanlandsmálum.
Margir gaullistar eru
óánægðir með val Chiracs
vegna þess að hann var fremst-
ur í hópi þeirra manna í flokkn-
um sem börðust gegn framboði
Jacpues Chaban-Delmas i fyrri
umferð forsetakosninganna og
fylktu sér um Giscard d’Esta-
ing.
Þannig átti Chirac drjúgan
þátt í sigri Giscard d’Estaing.
Margir harðir gaullistar lita á
hann sem svikara enda er hinn
nýi forseti ekki gaullisti,
heldur foringi lítils flokks sem
er i bandalagi með þeim, Oháða
lýðveldisflokksins.
Chirac er 41 árs gamall og var
yngsti ráðherrann i stjórn
Pompidous heitins. Hann varð
innanríkisráðherra i fráfarandi
stjórn Pierre Messmers i marz
og hafði þá verið landbúnaðar-
ráðherra i tvö ár.
í starfi landbúnaðarráðherra
fékk Chirac orð fyrir að vera
harður samningamaður og
óvenjulega skeleggur baráttu-
maður hagsntuna franskra
bænda. Hann átti því oft i úti-
stöðum við landbúnaðarráð-
herra annarra aðildarlanda
Efnahagsbandalagsins og oft
kom til harðra orðaskipta milli
þeirra á fundum þeirra um
verð á landbúnaðarafurðum.
Á einum slikum fundi, i
Luxemborg í apríl í fyrra, sak-
aði Chirac vestur-þýzka land-
búnaðarráðherrann, Josef Ertl,
um að hafa meiri áhuga á
austurstefnu Bonnstjórnar-
innar en EBE, að veikja hags-
muni Evrópu og styrkja þannig
hagsmuni Bandaríkjanna og að
kalla fram hættulegar deilur
innan bandalagsins. Ertl svar-
aði þvi einu að Chirac „ætti að
tala við sálfræðing".
Chirac er þannig lýst að hann
sé harðsnúinn „tæknikrati", að
hann hafi boriö mikla virðingu
fyrir Pompidou heitnum for-
seta og hann sé mikill aðdáandi
eftirmanns háns, Giscard
d'Estaing.
Ýmsir erlendir fulltrúar i
Paris eru þeirrar skoðunar að
hann sé ágengur, frakkur og
allt að þvf frekur og ögrandi.
Þeim finnst hann dæmigerður
fulltrúi gamla Frakklands, það
er að segja valdatíma gaullista,
þegar Pompidou var forseti.
Hann hefur próf frá hinum
fræga skóla Ecole nationale
d'administration (ENA) eins
og Giscard d’Estaing og er í
hópi margra ungra tæknikráta
sem de Gaulle og Pompidou
tóku í stjórn sína.
I desember 1972 sendu þrír
franskir prófessorar frá sér bók
um þessa tæknikrata og nefndu
hann „Jacques Chirac eða lýð-
veldi foringjaefnanna". A ein-
um stað í bókinni var varpað
fram þeirri spurningu hvort
Chirae yröi einhvern tima for-
sætisráðherra.
Jacques Chirac er fæddur í
Paris 29. nóvember 1932. Hann
lærði stjórnvísindi áður en
hann hóf nám í ENA og um
tíma stundaði hann nám við
Harvardháskóla í Bandarikjun-
um. Hann er kvæntur og á tvær
dætur.
Hann hóf embættisstörf fyrir
stjórnina 1959. starfaði fyrst í
Alsírsmálaráðuneytinu og fékk
skjótan frama. Hann varð
pe rsó n uleg ur aðst oða rmaðu r
Pompidous er hann var for-
sætisráðherra og siðan ráðu-
neytisstjóri í fjármála- og
félagsmáiaráðuneytinu.
Arið 1967 var Chirac kosinn á
þing i Correze í SuðurFrakk-
landi. Síðan hefur hann barizt
ötullega fyrir hagsmunum kjör-
dæmisins og tryggt þvi eins
rnikla opinbera aðstoð og hann
hefurgetaö.
Chirae komst i röð helztu
áhrifamanna gaullistaflokksins
þegar hann stofnaði samtök
Jacques Chirac
sem eru auðkennd með tölu-
stöfunum 43. Félagar þessara
samtaka voru aðallega. þing-
menn gaullista er beittu sér
tvrir því i orði kveðnu að
Pierre Messmer yrði forseta-
frambjóðandi flokksins. en
börðust i raun og á laun fvrir
kosningu Giscard d'Estaings.
Nú hefur ritari gaullista-
flokksins. Alexandre
Sanguinetti. lýst yfir því að
stuðningur flokksins við
Giscard d'Estaing verði „trygg-
ur. en vakandi og vissulega
ekki skilyrðislaus,"