Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAl 1974 23 Hjálmtý Brand flugvélstjóra og Jón Sverri fulltrúa. Þeir menntuðust allir til sinna starfa og eru reglusamir og góðir borgarar. Aðalheiður mín, við hjónin sendum þér, sonum þínum, syst- kinum hins látna og öðrum venslamönnum innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að blessa ykkur og styrkja. Bjarni Jónsson Dagbjartur Bjarnason varð bráðkvaddur við störf sín í Hval- firði 20. maí s.l., og verður hann kvaddur hinstu kveðjum frá Fri- kirkjunni í dag. Dagbjartur fæddist á Stokkseyri 24. okt. 1907, og ólst þar upp til 19 ára aldurs, eða til ársins 1926, að hann flytur til Reykjavíkur, þar sem hann bjó ætíð síðan. Snemma snerist hugur hans til sjómennsku, þar sem hann starf- aði á fiskiskipum frá Stokkseyri og Vestmannaeyjum og sjálfsagt frá fleiri verstöðvum. Árið 1932 ræðst hann sem háseti á skip Skipaútgerðar ríkisins, fer síðan í Stýrimannaskólann og lýkur far- mannaprófi úr Stýrimanna- skólanum á árinu 1939, og er hans hópur sá fyrsti sem tók farmanna- prófið eftir þriggja vetra nám, því áður var slíku prófi lokið eftir tveggja vetra nám. Stýrimaður á e/s Súðinni varð hann árið 1940, og var stýrimaður á strandferða- skipum útgerðarinnar til ársins 1952, að hann hætti sjómennsku og fer í land, þar sem hann vann við ýmis störf eftir því sem heilsan leyfði, en lengi hafði hann verið veill fyrir hjarta, og það var einmitt hjartað sem bilaði að síðustu. Dagbjartur var sfðustu árin eftirlitsmaður í Hvalfirði, og að morgni 20. maí fannst hann örendur undir stýri bifreiðar sinnar. Kynni okkar Dagbjarts hófust þegar ég kom sem matreiðslu- maður á e/s Súðina sumarið 1940, og vorum við síðan bestu kunn- ingjar, en Dagbjartur var þannig maður, að menn hlutu að eignast hann sem góðan kunningja, eða þannig kom hann mér fyrir sjón- ir. Þegar árásin var gerð á e/s Súðina 1943 var Dagbjartur stýri- maður þar, hann var ekki á vakt þegar sá óhugnanlegi atburður gerðist, en á hann mun að sjálf- sögðu hafa reynt ýmislegt að slík- um atburði loknum, og mun hafa munað um liðstyrk hans við þær kringumstæður. Hann særðist ekki, en fjórir menn særóust þá, þar af tveir til ólífis. Eg hef hér að framan stuttlega rætt um störf hins látna á sjó, en störfum hans eftir að í land var komið er ég ekki nægilega kunnugur, því vænti ég þess að aðrir verði til að geta þeirra. , Dagbjartur Bjarnason var Arnesingur i húð og hár, foreldrar hans voru Jóhanna Hróbjartsdóttir frá Grafarbakka í Hrunamannahreppi og Bjarni Grímsson frá Öseyrarnesi, þau eignuðust sjö börn, eitt þeirra dó liðlega eins árs gamalt, og voru börnin því sex er upp komust. Dagbjartur er fyrstur þeirra til að kveðja þennan heim. Dagbjartur Bjarnason giftist 20. júní 1936 eftirlifandi eiginkonu sinni Aðalheiði Tryggvadóttur úr Reykjavik, og bjuggu þau öll sín hjúskaparár á sama stað Barónsstig 59. Þau hafa eignast þrjá syni, þá Bjarna fulltrúa á Keflavíkurflugveili, Hjálmtý flugvélstjóra hjá Flug- félagi íslands og Jón Sverri full- trúa hjá Innkaupastofnun ríkis- ins. Barnabörnin eru fimm. Með þessum fáu línum vil ég fyrir mina hönd og fyrv. skips- félaga Dagbjarts á strandferða- skipum ríkisins færa hinum látna bestu kveðjur og þakkir fyrir samstarfið og kunningsskapinn. Astvinum hans öllum færum við á þessari stundu innilegustu samúðarkveðjur og biðjum þeim allrar blessunar. Við minnumst Dagbjarts Bjarnasonar með hlý- hug og virðingu. Hvili hann í friði. Böðvar Steinþórsson Guðný Guðjónsdóttir fráBrekkum -Minning LAUGARDAGINN 4. maí var til moldar borin frá Breiðabólsstað- arkirkju mágkona mín Guðný Guðjónsdóttir. Hún andaðist á Landspítalanum að morgni sum- ardagsins fyrsta. Barn vorsins var hún frá vöggu til grafar, hún var fædd 4. mai 1905 á Brekkum í Hvolhreppi, dóttir heiðurshjónanna Guðbjarg- ar Guðnadóttur og Guðjóns Jón- geirssonar, sem þar bjuggu á fimmta áratug. Guðnú var sú fimmta i röðinni af niu börnum þeirra hjóna. Það má með sanni segja, að þessi hjón máttu ekki vamm sitt vita i neinu. Þarna undir brekk- unni var æskuheimili Guðnýjar, og þar ríkti sá andi, sem hún sótti sina lifsnæringu i meðan ævin entist. Eg minnist þess, að þegar ég kom fyrst á æskuheimili Guðnýj- ar, hvað mér fannst hún vera glæsileg á íslenzka búningnum sínum, krýnd hinu mikla jarpa hári, sem uppsett tók henni í belt- isstað. En ég sá fljótt, að ytra útlit Guðnýjar var lítið borið saman við manngildi hennar. Hún tók að erfðum frá foreldrum sínum þá eðiiskosti, sem eru gulli dýrri, trúmennsku og heiðarleika, sem fylgdu henni til hinstu stundar. Á leið sinni í gegnum lífið ávann hún sér alls staðar traust og virðingu. Aldrei lagði hún öðru fólki misjafnt til, en vildi létta byrðar samferðamanna sinna eft- ir getu. Ekkert særði hana því eins djúpt og varanlega, eins og ef henni fannst komið ódrengilega fram, hvort heldur var í orði eða athöfn. Þar.nig fer gjarnan þeim, sem sjálfir bera djúpa virðingu fyrir hinum raunverulegu verðmætum lífsins. Guðný átti marga og góða vini sem hún hafði yndi af að hitta og sækja heim, og var hún nú í einni slíkri ferð þegar kallið kom, um að nú skyldi lagt upp í hina hinstu för. Guðný giftist aldrei og átti ekki börn, en hún átti þess fleiri börn að vinum, þau fundu hlýju umhyggjuna og löðuðust að Guðrún Guðbjörns- dóttir — Minning Fædd 24. maf 1892. Dáin 11. aprfl 1974. Það er svo margt að minnast á frá morgni æskuljósum. Já sannarlega er margt, sem fyllir hugann, þegar litið er til baka við kveðjustund elskulegrar systur minnar. Þá eru árin á æskuheimilinu yfirgripsmest í augnablikinu og kalla fram ótal ánægjuatvik frá bernskudögum — því þó að litla baðstofan á Sveinsstöðum væri hvorki há til lofts eða víð til veggja, nutu furðu margir þar yls og ánægju, ekki síst gangandi vegfarendur, sem oft komu kaldir og hraktir frá volki úr vatnsföllum eða þreyttir af þungfærri göngu undan Ólafs- víkurenni og öllum var tekið opn- um örmum. í æsku minni var það ævinlega stóra systirin, sem greiddi götu þeirra yfir erfiðasta spottann og við hin yngri fylgdumst með, þetta skapaði hlýhug í hjörtum annarra og enn finn ég ylinn af þakklæti þeirra, sem þannig var liðsinnt því oft var þetta aldrað fólk. > Á þeim bæ þekktist ekki kyn- slóðabilið — ó, hvað ég man vel margar frístundir að sumarlagi, þegar foreldrar okkar og gömlu konurnar, sem hjá þeim dvöldu, komu öll út á tún til að horfa á ærsl okkar og leiki og skemmtu sér konunglega. En ævinlega var okkur bent á, að vinnan væri blessun, fyrst og fremst ættum við að gera kröfu til sjálfs okkar og sýna öðrum góðleik, og treysta örugg handleiðslu guðs og þessi lífssannleikur hefur létt okkur gönguna fram á þennan dag. Hvað ég man vel, þegar hún sem ung stúlka fór á mann- fagnaði, leikrit eða þess háttar, hvað við heima hlökkuðum til heimkomu hennar, því þá sagði F. 22.6. 1916 I). 21.5. 1974 í dag verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu Guðmundur Guðmundsson, mjólkurfræðing- ur, Njörvasundi 14, en hann lézt þann 21. þ.m. eftir erfiða sjúk- dómslegu. Guðmundur var fædd- ur á Stokkseyri 22. júni 1916 og var þvi tæplega 58 ára gamall þegar hann lézt. Foreldrar Guðmundar voru hjónin Guðmundur Guðmundsson og Þorbjörg Þorbergsdóttir í Sím- onarhúsi á Stokkseyri og ólst hann upp hjá þeim til tveggja ára aldurs, en þá fór hann i fóstur til móðurbróður sins Eiríks Þor- bergssonar og Þorbjargar Hall- dórsdóttur, er bjuggu að Arnar- hún okkur leikinn allan og hvað skemmtunin hafði upp á að bjóða. Þannig nutum við ferðarinnar með henni því frásögn hennar var svo skemmtilega lifandi, það voru dýrðlegir dagar, þannig leið æskan. Ég minnist brúðkaupsdagsins hennar, einmitt þegar þau komu frá kirkjunni, hvað mér fyndist þau falleg, hann hár, dökkhærður og spengilegur, hún með sitt gullna hár, grannvaxin og létt í spori, ;— ó, hvað fjölskyldan óskaði þeim innilegrar hamingju. Eftir brúðkaupið fluttust þau í fjarlæga sveit og mér fannst skyggja f litlu baðstofunni á eftir. En lífsgangan hélt áfram, bar- áttan var háð við lítil efni en gestrisni og góðviid skipuðu önd- vegi hvar sem þau dvöldu. Börnin urðu átta, en tvo drengi misstu þau kornunga, hin uxu upp hvert öðru mannvænlegra, þau hófu sitt lífsstarf og bænir hennar og blessunaróskir fylgdu þeim. Þá kom sorgin stóra, þegar elsti sonur þeirra andaðist frá fjórum litlum börnum, sem öll urðu bænabörnin hennar frá þeirri stundu, það var traustið á drott- inn og vissan um endurfundi, sem hjálpaði henni yfir þann erfiða hjalla. En þó aó bilið lengdist á milli okkar og vík yrði milli vina, því ég bjó við Breiðafjörðinn en hún hér í Reykjavík, rofnaði aldrei sambandið milli okkar vegna bréfaskriftanna, sem milli okkar fóru. Bréfin hennar voru mér bæði fögnuður og styrkur og mörg voru þau prýdd dýrmætum ljóðaperlum, sem fáir víssu hve létt henni lágu á tungu. í minningunum flýgur tíminn. Nú átti ég sjálf vaxin börn, sem nutu minnar góðu systur, þegar þau voru hér á ferð og mikið er ég staðakoti í Hraungerðishreppi og var hann hjá þeim til skólaaldurs, en eftir það var hann á vetrum hjá móður sinni í Reykjavik við skólanám. Miklir kærleikar voru milli þeirra Guðmundar og fóstur- móður hans Þorbjargar, er nú dvelur á Hrafnistu 99 ára að aldri. Guðmundur vann við margvis- leg störf á uppvaxtarárum sínum, en 1939, þá 23 ára að aldri, réðst hann til starfa hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi sem lær- lingur í mjólkurfræði, en fer sið- an til Danmerkur til að afla sér frekari menntunar í sinni starfs- grein. Eftir nám í mjólkurfræði- skólanum vann hann urn skeið hjá dönskum mjólkurbúum, til að afla sér frekari starfsreynslu áð- þakklát fyrir allar þær nætur og daga, sem hún annaðist þau, ég treysti því, að nú finni andi hennar ylinn frá mínu þakkláta hjarta. Og árin líða, ég minnist þeirra beggja á síðastliðnu hausti eftir sextíu ára hjónabandssamleið, þar sem þau stóðu hönd í hönd og enn voru þau falleg, hann með sitt silfurhvfta hár, hár og vörpu- legur, hún á sinum þjóðbúningi svo yndislega kvenleg og enn var hún stóra systirin, en þrátt fyrir, að nú hefði hár hennar misst sinn gullna blæ og höndin hvíldi á hækjunni, sem hún hafði ekki sleppt hin síðustu ár, var reisnin hin sama, með bros á vör tóku þau á móti gestum og leiddu þau inn á heimili sitt, þar sem hver hlutur ber vott um hugkvæmni og hagar hendur og allt ilmar af hreinlæti. I huga mér býr hljóðlát þökk fyrir að hafa fengið náð til að lifa með henni svo iangan dag, og nú lofa ég guð í hjarta mínu fyrir líf hennar og starf. Eiginmann hennar og ástvini alla fel ég guðs- vernd. Með einlægri systurkveðju. Sigrún ur en heim til íslands skyldi hald- ið. Á þessu tímabili kynntist Guð- mundur eftirlifandi eiginkonu sinni, frú Tove Guðmundsson, fædd Gliese, frá Lelleinge á Sjá- landi, en þau fluttust siðan hing- að til lands vorið 1949 og settust að á Selfossi, en þangað hafði Guðmundur ráöið sig til starfa Framhald á bls. 18 Guðmundur Guð- mundsson mjólkur- frœðingur - Minning henni. Ástæðan fyrir því, að ég festi þessar hugsanir minar á blað, er þakklæti, hjartans þakk- læti fyrir tryggð hennar og vin- áttu við okkur hjónin og ást henn- ar á börnunum og tengdabörnun- um okkar, og siðan á þeirra börn- um. Minning hennar lifir í hjörtum hennar ungu vina. Siðustu árin dvaldi hún í Þor- lákshöfn og eignaðist þar sem annars staðar trausta og góða vini. Á heimili Sigríðar Helga- dóttur var hún nokkur ár og að- stoðaði hana með börnin sem þá voru ung. Við þetta heimili tók hún órofa tryggð og Sigrfður og börnin hennar reyndust henni sannir vinir æ sfðan. Á heimili Ingibjargar og Davíðs heitins Friðrikssonar var hún einnig til aðstoðar, þar fann hún fljótt hina hlýju vináttu, sem hún kunni svo vel að meta. En síðast var hún á heimili hjónanna Val- gerðar og Gunnars Snorrasonar, þau voru henni svo góð sem væri hún þeirra nánasti ættingi. Ég veit, að ef hún nú mætti mæla, þá yrði bæn hennar sú, að guð vildi launa þessum vanda- lausu vinum allt það, sem þeir gerðu fyrir hana. Ég sat við hvílu Guðnýjar síð- asta daginn, sem hún hafði ráð og rænu. Þá sagði hún m.a.: Ég ótt- ast ekki dauðann, en ég óttast að lifa og verða öðrum til óþæginda. Þetta lýsir best lífsviðhorfi henn- ar og trú. — Hvar sem Guðný dvaldist stóð hugurinn alltaf heim, heim í Rangárþing, hún átti þar alla ævi lögheimili sitt. Og nú er Guðný, á afmælisdegi sinum með hækk- andi sól, komin heim að sóknar- kirkjunni sinni, þar sem hún ung játaði trú sina á hann, sem alla leiðir heim að lokum. Hún var trú allt til dauða, og ég er þess fullviss, að fyrirheitið um kórónu lífsins hefur fallið henni í skaut. Blessuð sé hin ljúfa minning hennar. Ragnheiður Ólafsdóttir Að morgni 25. apríl síðastliðins, lézt á Landspitalanum frænka okkar góð Guðný Guðjónsdóttir frá Brekkum í Hvolhreppi. Guðný var fædd 4. mai 1905 og var þvi tæplega 69 ára að aldri, er hún lézt. Hér skal ekki rakinn æviferill hennar í einstökum atr- iðum. Sjálf var hún ekki fjölyrt um sína hagi, það skipti hana jafnan meira máli að létta undir byrðar vina sinna, og þeir voru margir. Við minnumst hennar með þakklæti og trega, það segir sína sögu. Guðný giftist aldrei og átti enga afkomendur, en við, stór hópur systkinabarna hennar og aðrir góðir vinir, áttum rúm í hjarta hennar, sem værum við hennar börn. Hugur okkar reikar til barnsár- anna, mynd Guðnýjar er björt og skýr i hugum okkar. Arin liðu, við uxum úr grasi, giftumst og eign- uðumst okkar börn, ást hennar og umhyggja náði til þeirra líka. Með þessum linum viljum við þakka elskulegri frænku okkar fyrir umhyggju hennar og elsku i okkar garð, og barna okkar. Vina- hópurinn var stór, hjarta hennar var stórt. Vertu sæl, Drottinn Guð þig þeiði. Frænkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.