Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1974 7 Möguleikar Islendinga í fisk- eldismálum næstum ótakmarkaðir Rætt við dr. Peter K. Bergman Dr. Peter K Bergman. „ÉG TEL möguleikana á að gera fiskeldi að stórri at- vinnugrein á íslandi næst- um ótakmarkaða," sagði dr. Peter K. Bergman fiski- fræðingur í samtali við þáttinn nú um helgina. Dr. Bergman hefur dvalizt hér- lendis sl. 3 vikur i sam- bandi við Sameinuðu þjóðaáætlunina um rann- sóknir á íslenzkum ám og vötnum, sem nýbyrjað er að vinna að hjá Veiðimála- stofnuninni. Sem kunnugt er veittu S.Þ. 9 milljónir isl. kr. til þessarar áætlunar, sem unnið verður eftir næstu 2—3 árin. Er hér um að ræða stórmerkilegar rannsóknir, sem væntan- lega eiga eftir að verða fisk- eldis- og fiskræktarmálum hérlendis til mikils fram- dráttar. Dr. Bergman er sérfræð- ingur á sviði laxamerkinga og tölfræðilegra rannsókna á endurheimtum merktra laxa. Hingað kom hann frá Wash- ingtonfylki í Bandaríkjunum, þar sem hann starfar hjá fylk- isstjórninni við slíkar rann- sóknir og við Washingtonhá- skóla, en fylkisstjórnin rekur 26 fiskeldistöðvar. Hann kom hingað með mjög merki- legt tæki, sem notað er við laxamerkingar og er hið nýj- asta á því sviði. Tæki þetta er eins konar segulmögnunar- tæki, þannig að laxamerkið er örsmár þráður, sem settur er í höfuð laxaseiðisins, og fer seiðið síðan gegnum af- langt hulstur, þar sem þráð- urinn segulmagnast. Þegar síðan seiðið gengur aftur í laxeldisstöðina, eftir að hafa eytt sínum tíma ! sjó, er sér- stakt hljóðbylgjutæki notað, sem gefur merki, er merktur lax fer framhjá því. Kosturinn við þessa merkingu, er, að hún hindrar á engan hátt ferðir seiðisins. Vitað er að hin gömlu hefðbundu merki voru í mjög mörgum tilfellum of þung fyrir seiðin, þannig að þáu urðu svifasein og gátu ekki bjargað sér undan hættunum í djúpi hafsins. Þetta tæki er einnig mjög hraðvirkt, þannig að hægt er að merkja miklu fleiri seiði og þar með tryggja betri niður- stöður af þeim tilraunum, sem verið er að gera með laxamerkingum. Verður mjög athyglisvert að fylgjast með á næsta ári, er þau seiði, sem nú er verið að sleppa úr Kollafjarðarstöðinni fara að skila sér. En í vor hafa verið merkt fleiri seiði þar en nokkru sinni fyrr, eða um 29 þúsund, þar af 19 þúsund með nýja tækinu. Voru flest seiðin tveggja ára seiði, en nokkur þúsund eins árs seiði voru einnig merkt. Við spurðum dr Bergman að því hvað hann teldi helzt þurfa að gera til að auka umsvif fiskeldis hér á landi. Hann svaraði því til að ef litið væri á allar aðstæður hér. nægt hreint vatn og ekki sízt þá staðreynd að veiðar í sjó væru bannaðar, væru lítil takmörk fyrir því sem hægt væri að gera, ef nægilegt fjármagn væri fyrir hendi. Hann benti okkur á að i heimafylki sínu, þar sem starfræktar væru 70 eldis- stöðvar, sem framleiddu allt að 8 — 900 milljónir seiða á ári, hefði tugum ef ekki hundruðum milljóna dollara verið varið til uppbyggingar þessarar atvinnugreinar og árlega væri milljónum dollara varið til rannsókna á þessu sviði. T.d. vinna hjá fylkis- stjórninni um 70 vísinda- menn við slík störf. Hér er um að ræða Kyrrahafslax, sem nær eingöngu er veiddur í sjó. Hann sagði að þær niðurstöður, sem fengist hefðu af tilraunum og rann- sóknum í Kollafirði ættu að geta verið mönnum næg hvatning til að hyggja á smlði fiskeldisstöðva og taldi að möguleikar til uppbygg- ingar væru meiri hér á landi en nokkurs staðar annars staðar, þar sem Atlantshafs- laxinn veiðist. Einnig væri það þýðingarmikið að hér hefði verið unnið skipulega að rannsóknum á þessu sviði um áratugaskeið, en t.d hefði ekki verið byrjað veru- lega að vinna að rannsókn- um ! sínu fylki fyrr en fjöldi stöðva hefði verið byggður. Þar hefði fólk því rennt blint i sjóinn í Upphafi hvað snerti möguleika á að stöðvarnar skiluðu arði. Dr. Bergman sagði að Kollafjarðarstöðin hefði komið sér mjög á óvart. Hann hefði haldið að hér væri aðeins um að ræða litla tilraunastöð. Hann taldi að hægt væri að auka afköst hennar um helming og þar með gera hana mun arðbær- ari, án þess að rekstrarkostn- aður ykist til muna, en auð- vitað þyrfti fjármagn til að reisa nauðsynlegar bygging- ar. Dr. Bergman sagði að lok- um, að hann hefði haft mikla ánægju af þv! að koma hing- að og vinna að þessum mál- um og kvaðst hlakka til að koma aftur að ári, er seiðin, sem nú hefðu verið merkt færu að skila sér. Hann sagð- ist vona, að þessi styrkur Sameinuðu Þjóðanna og þær rannsóknir, sem hann kostar myndu bera árangur. og feketöí Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. Nóatúni 27, sími 25891. fbúð óskast Ung reglusöm hjón með eitt barn og vinna bæði úti óska eftir 2ja til 3ja herb. ibúð á leigu. Vinsamlegast hringið i sima 84109—30692 eftir kl. 1 e.h. Verzlunarhúsnæði Óska eftir að taka á leigu húsnreði fyrir litla sérverzlun við fjolfarna verzlunargötu eða í verzlunarmið- stöð. Tilboð sendist Mbl. merkt' ..1300 . Til leigu 3ja herb. risíbúð i Vesturbænum. Tilboð sendist Mbl. fyrir 1. júni merkt: 1303. 170 ha. VOLOV-PENTA bátavél til sölu, ásamt mælaborði og miklu af varahlutum. Uppl. í síma 14227. Hafnarfjörður — Rvk. Reglusöm eldri kona, vill leigja eða kaupa gott kjallaraherbergi eða rispláss. Upplýsingar i síma 15523 kl. 6 — 7. Til leigu er litil tvegjja herbergja kjallara- ibúð. Tilboð merkt ,,3438" sendist Mbl. fyrir 31. þ.m. Til sölu Benz '69 sendiferðabifreið, stöðvarleyfi, talstöð og mælir geta fylgt. Uppl. í síma 81 436. Sumarfr!! Noregi? íbúð í Reykjaviðk óskast í skiptum fyrir raðhús í Bergen frá 20. júlí í 3—6 vikur. Skrifið Helgu Kress, Nordisk institutt, Universitetet i Bergen. Atvinna óskast Stúlka á 16. ári óskar eftir vinnu, margt kemur til'greina, en ekki í sveit, getur byrjað strax. Upplýsingar í sima 50204. Stúlka Stúlka frá 14 — 17 ára óskast til skrifstofu- og sendistarfa. Upplýsingar i sima 27544 á skrif- stofutima. Vantar til leigu 80 til 120 fm húsnæði, undir hreinlegan atvinnurekstur, má vera i kjallara. Uppl i sima 40067—4071 7. BIII — Skuldabréf VW 1500 Variant árg. 1966. Má greiðast með skuldabréfi. Uppl i sima 51710 og eftir kl. 1 9.00 52353. Keflavík — Njarðvík 4ra herb. íbúð óskast. Upplýsingar i sima 1 081. Pingoin-garn Margar gerðir, þolir þvottavéla- þvott. VERZL. HOF Þingholtsstræti. Óska eftir vinnu frá kl. 1—5, sem næst Grænu- borg v/Miklatorg. Vön afgreiðslu. Héf unnið við saumaskap. Upplýsingar í sima 82631 eftir kl. 1. Peugeot 204 árg. 1 970 til sölu. Góður bíll. Uppl. i sima 33060—82393. Óska eftir 4 — 5 tonna trillu. Upplýsingar í síma 1 001 8 eftir kl. 7. Einhleypur eldri maður óskar eftir herbergi sem fyrst. Upplýsingar i sima 2 5500 frá kl. 10—16. Ungan mann vantar 1 herbergi sér. Uppl. á Hótel Esju, sími 82200. Manfreð. Bændakonur Ef ykkur vantar 12 ára telpu til snúninga eða barnagæzlu í sumar, þá hringið i sima 40499. Sumarbústaðir til sölu ca. 30 fm sumarbústaður á eignarlandi i Þrastaskógi. BÍLA OG FAST- EIGNAÞJÓNUSTA SUÐUR- NESJA, simi 92-2925 milli kl. 1 3 og 19. Sumarbústaður til sölu i nágrenni Reykjavikur á mjög fögrum og rólegum stað. Upplýsigar eftir kl. 7 —9 á kvöldin i sima 71 107. Túnþökur Vélskornar túnþökur til sölu. Upplýsingar i sima 71464 og 41896. Nýstúdent óskar eftir atvinnu. Margt kemur til greina. Upplýsingar i sima 1 6909. Foreldrar ef þið eigið barn 8 til 10 ára sem langar að skreppa hálfan mánuð i sveit, þá hringið í sima 20822 eftir kl. 1 2 30. mai. Enskukennari óskar eftir vinnu á íslandi i sumar eða haust. B.A. próf frá háskól- anum í Californiu (Berkeley) i 1972. Einhver kunnátta í islenzku. Með mæli. ARTUR SALM, 3500 Ridgecrest, Carlsbad, Calif. U.S.A. Sandgerði 3JA HERBERGJA íbúðir í Garð- inum, einbýlishús i smiðum. 5 herbergja eldri ibúð, verð 1,5 millj. Hef kaupanda að góðu ein- býlishúsi i Keflavik. BILArOG FASTEIGNAÞJÓNUSTA SUÐURNÉSJA, simi 92-2925 milli kl. 13 —19. Keflavík — Suðurnes Til sölu meðal annars i Keflavik 1 90 fem. fokhlet einbýlishús, verð 3,3 millj. Nýlegt 6 herb. raðhús, verð 6,3 millj. 3ja og 4ra herb. ibúðir, útborgun má skipta á árið. Eldra einbýlishús, hæð ris og kjallari, verð 3 millj. BI'LA OG FATSTEIGNAÞJÓNUSTA SUÐURNESJA, simi 92-2925 milli kl. 1 3 og 1 9.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.