Morgunblaðið - 01.06.1974, Page 10

Morgunblaðið - 01.06.1974, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JUNÍ 1974 Me.vvant fer inn í nýjasta bílinn sinn. Hann hefur átt tugi bíla síðan hann kevpti fvrst gamla Ford 1918. Viðtal við Meyvant Sigurðsson á Eyði áttræðan Ok lœkninum í nœturvitjanir í gamla Ford í spönsku veikinni Meyvant f d.vrunum á Eiði Me.vvant Sigurðsson, sá Reyk- víkingurinn sem vzt býr í borg- inni, varð áttræður 5. apríl. í 40 ár hefur hann búið á Eiði við Nesveg og alið þar upp 9 börn. Tímans tönn virðist ekki hafa sett teljandi mörk á hann. Hann hefur ekki einu sinni fengið gigt og bregður aðeins upp gleraugum við lestur. En umhverfið kring um litla hvita húsið hans hefur tekið þeim mun meiri breytingum. F.vrir neðan það liggur hraðbraut, þar sem áður var tún, fallegir sjóvarnargarðar og fjara. Garðarnir fóru í tveimur veðr- um, óveðrinu þegar franska rannsóknaskipið Pourqoi-pas fórst 1931 og leifarnar í öðru óveðri fvrir 3 árum. — Vegurinn er mér auðvitað tíl óþæginda segir Meyvant. En ekk' hefi ég á móti þróuninni í vaxandi borg. Mér þykir vænt um Reykjavík og vona að þeir megi þar ráða áfram, sem ráðið hafa, og vona að þeim takist vel aðgera Reykjavík að hreinni og fallegri borg. Meyvant telur sig vera Reyk- víking fram í fingurgóma, enda hefur hann átt hér langa starfs- æfí. Hann er þó fæddur á Guðnabæ í Selvogi 1894, en fað- ír hans hafði flutt árið eftir til bróður síns að Sögni í Ölfusi og þar var fjölskyldan, þegar jarð- skjálftinn mikli kom 1896. Bærinn hrundi, en börnin voru borín út í heygarð. Fjölskyldan flutti því til Reykjavíkur, kom hingað bláfátæk og settist að í lítlu koti á Bergstaðastíg og fað- ir Meyvants gerðist sjómaður. Um aldamótin fluttust þau að Bala við Klapparstíginn. — Reykjavík hefur breytzt svo mikið síðan þá, að það er alveg ótrúlegt, segir Meyvant. Þá var það að fara upp í sveit að fara inn að Rauðará eða suður í Grænuborg, þar sem Land- spftalinn er nú. Þegar Meyvant stálpaðist, byrjaði hann að sækja og flytja hesta og hafði af þv.í sæmilegar tekjur. Ekki veitti af. Menn fóru gjarnan í útreiðartúra um helgar og þeir áttu hestana sína í Kópavogi, á Digranesi, í Fifu- hvammi, Breiðholti, á Korpúlfs- stöðum og á Bústöðum. Meyvant sótti þá, lagði af stað gangandi á fyrsta staðinn, en tók hest traustataki og safnaði hestunum saman í Elliðaár- hólma. Sumir leikararnir i bæn- um voru viðskiptamenn hans, svo sem Jens Waage og Árni Eiríksson o.fl. Þá var ekki búið að skipuleggja hestagæzlu, eins og síðar varð. Eftir það vann Meyvant hjá danska olíufélaginu DDPA frá 1911 til 1918, þegar hann keypti sér fyrsta bílinn. Þá kom spánska veikin og forstjóri olíu- félagsins skrifaði Meyvant bréf, sem hann á enn, þar sem hann segir honum að lána tvo hesta og vagn frá fyrirtækinu til að flytja sjúka og látna. En sjálfur ók Meyvant lækninum í næturvitjunum hans í bifreið. — Ég tók veikina snemma, og var einn af þeim fyrstu til að risa upp úr henni, segir hann. Hér var danskt skip, Fredriksía, sem hafði losað olíu og var á förum. Á laugardags- kvöldið fór ég með. stýri- mönnunum á ball, og kvaddi þá svo um nóttina, þvi þeir áttu að fara, segir Meyvant. En um morguninn sá ég að skipið lá hér enn. Þá var spánska veikin komin í bæinn. Annar danski stýrimaðurinn lézt úr henni. Sjálfur veiktist ég þarna strax um nóttina. En um hádegi á þriðjudag var ég spurður hvort ég gæti komið og ekið læknin- um. Ég var að vísu ekki orðinn góður, en fór samt og það kom í minn hlut að aka Magga Júl., Magnús lækni, milli sjúk- linganna í nýkomnum Fordbíl, sem hafði átt að fara til Akureyrar, en var tekinn til þess. Við komum á kvöldin í miðstöð hjálparstarfsins, sem Lárus H. Bjarnason stjórnaði og tókum beiðnirnar um læknisvitjun, röðuðum þeim niður og lögðum svo af stað og ókum alla nóttina milli sjúk- linganna. Það voru miklar hörmungar. Ég held að það hafi bjargað okkur, að læknirinn blandaði alltaf toddýi á hita- brúsa og við dreyptum á því á nóttunni. — Þú hefur verið búinn að taka bflpróf þá? — Já, og fékk mér fyrsta bíl- inn eftir þetta, á árinu 1918. Það var gamli Ford. Ég hafði faríð mína fyrstu ferð í mótor- vagni, þegar Thomsen fékk fyrsta bílinn og ég ók með hon- um eina ferð fyrir 25 aura. Okk- ur þótti mjög merkilegt að sjá hvernig þessi farartæki komust um og hvernig menn lögðu á stýrið o.s.frv. Meyvant hætti sem sagt hjá olíufélaginu danska um haustið og gerðist bifreiðastjóri, ók fólki um bæinn og á sumrin tíl Þingvalla eða austur að Ölfusá. Vegir voru vondir, þvf þeir voru svo sundurskornir af hestakerrunum, segir Meyvant. En gamli Ford var góður, léttur og sterkt í honum. Þá var ekki fært austur fyrir Þjórsá nema í skráþurru, því annars var ekki fært bílum um moldargöturnar. Eftir þetta eignaðist Meyvant hvern bílinn á fætur öðrum og hefur sjálfsagt átt marga tugi bíla um æfina. Einu sinni rak hann bifreiðastöð og átti 12 bíla sjáifur. En það fór ekki vel. Upp úr því missti hann bílana og húsið og stóð uppi blásnauð- ur. — Það var pólitísk árás, af því ég var Sjálfstæðismaður, segir hann. Þá voru fjórar aðrar bílastöðvar í bænum og þar átti hver sinn bíl. Þeir ráku stöðvarnar fyrir jafnað- argreiðslu. Mér gekk vel að fá verkefni. Ég var kurteis og þægilegur maður og síma- stúlkunum var vel við mig og vísuðu gjarnan á mig og ég hafði fengið aksturinn hjá flestum útgerðarfélögunum,. En þá lét Héðinn Valdi- marsson, sem var formaður Dagsbrúnar, alla hina slá sér saman f eina stöð, þar sem menn máttu eiga sinn bíl og aka honum sjálfir, og verkamenn afgreiddu ekki aðra. Það var sett vinnubann á mína bíla. Enginn gat neitt við þessu gert, þó ég hefði skráð fyrirtæki og löggilt, þvf engin vinnulöggjöf var til í landinu. Og þar missti ég ailt. Þá var ég svo fátækur að ég átti ekki skyrtuna sem ég stóð í, segir Meyvant. En nú er ég rikastur allra, því ég skulda engum neitt, bætir hann svo við. — Svo kom kreppan? — Já, svo kom kreppan og þá var erfitt. Ég var svo stór upp á mig, að ég vildi ekki biðja neinn um neitt. Þá var konan mfn, Elisabet Jónsdóttir, minn mikli styrkur. Hún vakti nótt og dag við að stagla og stoppa flíkurnar á mig og krakkana. Ég hafði verið alinn við að þiggja ekki af öðrum og það hefi ég aldrei gert. Ég hefi alltaf gert meiri kröfur til sjálfs mín en annarra. Þess vegna er ég líklega Sjálfstæðis- maður. — Áður var hægt að fá snúð og mjólkurgla fyrir 8 aura, svo maður þurfti ekki mikið. Og hefðí verið hægt að fá 400 snúða fyrir það sem einn kostar í dag, bætir Meyvant við og hlær þegar talið berst að dýrtíð- inni og þeim breytingum sem orðið hafa á verðlagi. Meyvant er ekkert að kvarta í lífinu. Og enn sést hann stund- um í anddyri Háskólabíós, þar sem hann var lengi við dyra- vörzlu. Einnig var hann um tima umsjónarmaður með háskólalóðinni og leit eftir Stúdentagörðunum og kom þá ágætlega saman við unga fólkið, sem hann segir að sé efnilegt og gott. — Það hefur hjálpað mér f lífinu að ég er léttlyndur, segir hann, kveinkaði mér ekkert þó ég fengi áföll í lífinu. Stundum rífst ég bara við sjálfan mig og brýni mig til dáða. Ég bý hér úti við sjóinn i húsinu mínu, sem er æði tómlegt eftir að konan dó. En ég hefi sólina allan daginn á einhverjum glugganum, fallegt útsýni og sólsetrið á Flóanum. Og mér líður vel. Meyvant ætlaði að taka á móti vinum sínum og veita þeim kaffisopa í Valsheimilinu daginn eftir afmælið, laugar- daginn 6. apríl, kl. 4—7 og litu margir inn, því Meyvant er félagslyndur maður og vel kynntur í borginni, þar sem hann hefur búið i nærri 8 ára- tugi. — E.Pá. Stórkaupmenn um stefnu stiórnarinnar: Vöruskortur, spá- kaupmennska og svartamarkaðsbrask STJÓRN Féiags fsíenzKfa Sfor- kaupmanna segir í greinargerð sem Mbl. hefur borizt, að ráðstaf- anir ríkisstjórnarinnar í efna- hagsmálum séu alltof seint fram komnar, ófullnægjandi, of ein- hliða og beinlínis skaðlegar at- vinnulffi landsmanna. í greinar- gerðinni segir, að stjórn F. Í.S. sé Ijóst að nú sé sívaxandi halli á vöruskiptajöfnuði landsins og gjaldeyrisvarasjóðurinn fari minnkandi og því sé gagnráðstaf- ana þörf til að mæta þessum vanda. Hins vegar séu ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í þeim efnum allsendis ófullnægjandi, þar sem þær miði fyrst og femst að því að draga úr vöruframboði, en lítið sem ekkert sé gert til að draga úr eftirspurn eftir vörum og þjón- ustu á tilsvarandi hátt. Þá segir, að ráðstafanirnar muni leggjast þungt á innflytj- endur matvöru og neyzluvara sök- um þess, að birgðir þeirra séu nú í lágmarki eftir farmannaverkfall- ið auk þess sem þeim sé óheimilt að taka eriend vörukaupalán og innlendir bankar stórminnki út- lán sín til verzlunarinnar. Þó | muni þessar ráðstafanir leggjast þyngst á þær greinar innflutnings og heildverzlunar, sem flytja inn fjárfestingar- og rekstrarvörur fyrir landbúnaðinn og ýmsa fram- kvæmdaaðila. Vöruflutningaskip- in streymi nú til.fandsins hlaðin síðbúnum nauðsyhja- og rekstrar- vörum, sem hlaðiát upp f vöru- geymslum skipafélaganna sökum þess að fjármagn skortir til að leysa þær út. A sama tfma gangi á birgðir iðnfyrirtækja, heildverzl- ana og kaupmanna sakir þess, að vörur berast ekki nægilega ört að vegna fjármagnsskortsins. Segir, að til mikils samdráttar muni koma í vöruframboði inn- flutnings og heildverzlunar, sem hafa muni í för með sér truflandi áhrif á atvinnulíf þjóðarinnar, tæki og varahluti muni skorta fyr- ir sjávarútveg og landbúnað, iðn- aðinn muni skorta hráefni og vélavarahluti, byggingariðnaðinn verkfæri og nauðsynleg bygging- arefni og loks muni samgöngu- greinar vanhaga um vörubifreiðir og ýmsa varahluti. Ur fram- kvæmdum muni þvf draga á mjög ókerfisbundinn hátt. Þá segir, að vöruskortur muni ýara vaxandi á næstu vikum og hafa í för með sér innkaupaæði, spákaupmennsku og jafnvel svartamarkaðsbrask milli neyt- enda sé ekki skipt um stefnu hins opinbera á þessum málum. Segir, að það tjón og sú röskun, sem verða muni í atvinnuiífi þjóðar- innar, muni því reynast almenn- ingi dýrkeyptari en sá bati í efna- hagslífinu, sem stefnt sé að með ráðstöfunum þessum. Þá segir orðrétt í greinargerð stórkaupmanna: Stjórn Félags íslenzkra stór- kaupmanna mótmælir harðlega þessari frystingu á verulegum hluta rekstrarfjár félagsmanna og telur, að innborgunarskyldan sé hreint leigunám, þar sem óverulegar bætur komi fyrir, því að aðeins 3% ársvextir koma á geymsluféð, en fullljóst má vera, að fé þetta muni lánað ríkissjóði meó fullum vöxtum a.m.k. 12% þar sem kunnugt er, að verulegur halli e.r á ríkissjóði, sem Seðla-1 bankinn hefur f jármagnað. Stjórnin skorar á ríkisstjórnina að afnema reglur þessar í áföng- um frá og með 15. júní n.k., þann- ig að 25% lækki þá í 15%, siðan lækki 15% í 5% hinn 15. júlí og verðí loks afnumdar að fullu 15. ágúst, og telur, að þannig verði komizt að mestu hjá þeim skakka- föllum í atvinnulífi landsmanna, sem fyrirsjáanlegar eru að óbreyttu, og áður er lýst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.