Morgunblaðið - 01.06.1974, Side 12

Morgunblaðið - 01.06.1974, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1, JUNÍ 1974 LISTAHÁTÍÐ 1974 Bassasöngvarinn Martti Tavela Keisari bassanna og píanósnillingur koma A listahátíð munu tvisvar sinnum koma fram frægir lista- menn á einkatónleikum, sem áreióanlega má teljast til Iist- vióburöa hér. Það er Daniel Barenboim, sem hefur pfanó- tónleíka í Háskólabíói 9. júní og söngvarinn Martti Tavela syngja þar meó undirleik Vladi- mirs Ashkenazys. Barenboim er Islendingum að góðu kunnur. Hann kom hér á listahátíöinni 1970 og hélt þá hljómleika ásamt konu sinni, sellóleikaranum Jaequline du Pré, auk þess sem hann stjórn- aði Sinfóníuhljómsveit íslands. Barenboim er ungur maður, rétt líðlega þrítugur, en tónlist- arferiil hans hófst snemma, því hann var eitt af undrabörnun- um svonefndu, kom fyrst fram opinberlega 7 ára að aldri heima hjá sér í Buenos Aires. Og hann var ekki nema 12 ára, þegar hann hafði haslað sér varanlegan völl í Evrópu og 15 ára sigraði hann Bandaríkin, eins og þaó var orðað. Undrabörn eiga oft erfitt uppdráttar sem þroskaðir lista- menn en það urðu ekki örlög Barenboims. Hann hefur átt óslitinn tónlistarferil og verið jafn eftirsóttur sem hljómsveit arstjórí og píanóleikari. Hann ferðast um og stjórnar og leikur með öllum helztu hljómsveitum í Evrópu og Ameríku. Hljóm plötur hanseru heimskunnar. Hann hefur t.d. leikið inn á plötur með New Phílharmonic og Otto Klemperer alla píanó- konserta Beethovens, og með Ensku kammerhljómsveitinni alla píanókonserta Mozarst. En með þeirri hljómsveti hefur hann mikið starfað. Það þótti tíðindum sæta, að í fyrra stjórn- aði Barenboim í f.vrsta sinn óperu, Don Giovanni eftir Moz- art. á Edinborgarhátíðinni. Nú kemur hann til Islands, og held- ur píanókonsert í Háskólabíói. Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir, að hann stjórnaði Sinfón- fuhljómsveitinni, en af því verður ekki. Finninn Martti Tavela kemur nú til Islands í fyrsta sinn. Hann er taiinn einn af mestu bassasöngvurum heims og hef- ur verið síðasta áratug. Hann er stór og nnkill og stundum kall- aður risinn frá Karela, og keis- ari bassanna. Fram undir þetta hefur frægð hans verið mest í óperum. I 10 ár var hann að- dráttarafl í Rínaróperum og síðustu árin hefur hann verið einn aðalforustumaður óperu- hátíðarinnar í Savonlinna í Finnlandi, þar sem hann í sum- ar syngur titilhlutverkið í óper- unni Boris Goudonov eftir Mussourgsky. I vetur tók Tavela sig allt í einu til og hélt ljóðatónleika víða í Evrópu við frábærar und- irtektir. Hann hafði lagt stund á ljóðasöng heima í Finnlandi áður en frægðarferill hans hófst á óperusviðum Evrópu og hlotið 1. verðlaun fyrir ljóða- söng árið 1959. Nú tók hann aftur upp þráðinn og íerðaðist til 15 borga í Evrópu með ljóða kvöld, þar sem hann fiutti við- kvæmustu Schubertsverk og verk eftir Brahms, Kilpinen og Rachmaninow. Hlaut hann stormandi undirtektir. Og nú ætlar Tavela að heimsækja Is- land og syngja í Háskólabíói og Achkenazy ætlar að leika undir fyrir hann. Loftur Júlíusson: Variðland Varnarmálin eru eitt aðal- þrætuefnið í íslenzkum stjórn- málum og risa einna hæst nú þessa dagana, eftir að niðurstöður undirskriftalista Varins lands lágu endanlega f.vrir. Er niður- stöður þessar voru kunnar, var líkl og hellt hefði veriðoliu á eld, þvílík voru viðbrögð svokallaðra hernámsandstæðinga, sem fengu hressilega að finna fyrirþví, að til er hér á Islandi fólk, sem fengið hefur nafngiftina Jiinn þögli meirihluti", og þá svíður undan því sem eðlilegt er. að þessi fjöl- menni hópur skuli dirfast að tjá skoðun sína með eiginhaldar- undirskriftum. Ennþá. sem betur fer. búum við Islendingar í lýðfrjálsu landi þar sem allur almenningur má láta skoðun sina f ljós opinberlega, eíi slfkl er ekki hægt að gera. þar siifn kommúnismi og einræði ráða ríkjum eins og allur almenningur á jslandi veit. sem fylgist með fr.etium um slíkt úr fjölmiðlum frá Ix'ssum liindum. Aslæðati lyrij, því. 4|i5 t;g. hr.ipa þgssnr I íimr. er sú. að ég iel sMldu iuiiia ,ið IRyk’ga- gi*ein l'yrtr undtrskrilt ntinni á fyrrgreindan lista, en til þess þarf ég að fara nokkuð aftur ftímann, tíl áranna fyrir strið. milli 1935 og 1940. Þá voru hér á landi svo- kallaðir krepputímar. og fólk Itafðt varla til hnífs og skeiðar. atvmnuleysi var mikið og landið langt frá alþjóðaleið ef svo má kalla. \ þessum árum var ég til sjós, aðallega á toguruin, og sigld- utn viðmikið með ísfisk á enskan og þýzkan markað. Þjóðverjar voru þá miklir viðskiptavinir okkar og áttuin við margvísleg samskipti við þá á ýmsum sviðum. Engan óraði þá fyrir þeim snöggu umskiptum, sem urðu, þegar heimsstyrjöldin brauzt út haustið 1939, og því síður öllum þeim harmleik, sem dundi yfir sjó- mannastétt okkar meðan á styrjöldinni stóð. Eg var einn af þeitn, sem sigldu því nær iill stríðsárin með ísfisk til Englands, að undanskildum 2 vetrum. setn ég var í Stýl'i- mannaskólanum, árið 1939—'40. Strax í byrjun stríðs- ins voru öll fslenzk skip, sem sigldu til útlanda, merkt ineð stórum islenzkum fánum, máluðum á báðar skipshliðar og naifnið ISLAND með stóruin stöfum við hliðina. Þetta átti að tákna hlutleysi l'mtdsþas gagnyai't stríðsáði luih, VoVulrt Vlð Í göðri trú um, að tillit væri tekið tíl þetjs og ,við fengjuin að fara ferða okk- ar nær óáreittir, því að eina lífs- bjöt'g : þjóðarinnajf var að koírtá ftsknuiip til siku á enskan tnarkað fyrir inijkla pe-nfqga. Sama trtáli gegndi uin flutningaskipin okkar, þau þurftu að sækja varninginn heim frá Bandaríkjunum til að fæða og klæða þjóðina. En Adam var ekki lengi í Paradís. lllut- leysismerkin á skipunum dugðu skammt, þvi að fljótlega fóru Þjóðverjar að skjóta niður skip okkar og murka lífið úr varnar- lausum sjómönnunum með vél- byssuárásum, aðallega frá kafbát- um, og mörg skipin hurfu i haftð með allri áhöfn án þess að nokkur væri til frásagnar um endalokin. Hin fslenzka sjómannastétt var í víglínunni öll stríðsárin, og var það mikil blóðtaka fyrir svo fámenna þjóð sem Islendinga að missa sína beztu syni í blóma lífs- ins, en talið var, að hlutfallslega misstu Islendingar fleiri menn í stríðinu en hinar stríðandi þjóðir. Blóðtakan var mest í byrjun striðsins, þegar hertaka landsins átti sér stað. Það var hlutur, sem engan Islending óraði fyrir að gæti átt sér stað eða gengi svo fljótt fyrir sig. Ég var á vakt um borð í togaranum, sem ég þá var á, staddur i Reykjavíkurhöfn þann örlagaríka morgun, er tundurspillarnir brezku brunuðu inn á Reykjayikip'hpfn q^., her- menn, gráir " fyrír járnumÆ geystust upp á hafnarbakkann OjM dreifðust um allan miðhæinng líójtur ’ voþn-aðra sjóliða kom stuttu seinna niður að togara þeiin, er ég var á. Skipuðu þeir mér með vopnavaldi að sa'kja ’ strax heim skipstjórann, sem ég^ og' gerði, éh siðári var tógarínn,^ 'ás'amt nokkruin öðruin skipúm íp höfninni nófáðúr'dfl 'flutiíthgá ár* hergögnum milli herflutninga- skips, er lá á ytri höfninni, og lands. Eg ætla nú ekkt að rekja þennan þátt sögunnar frekar, því að hann er vel skráður, en vil aðeins minna á, að upp frá þessu verða ein mestu þáttaskil í sögu Islands, hrein atvinnuby Iting, þar sem á landi hér þurrkast úr allt atvinnuleysi og kaupgreiðslur margfaldast; Islendingar kasta frá sér þeim einu vinnuverkfær- um, sem þekktust þá, skóflu, haka og járnkarli og taka til við að nota stórvirkar vinnuvélar og nýjar vinnuaðferðir í hinni frægu Bretavinnu. Síðan komu Banda- ríkjamenn með sina verkkunn- áttu og framkvæmdir í stórum stíl, sem við búum að enn þann dagí dag. Mér verður nú á að spyrja, hvar við Islendingar værum á vegi staddir, hef ðu þessi þáttaskil ekki orðið á þessum árum, þessum hörmungarárum, sem yfir heiminn gengu? Islenzka þjóðin græddi óhemju fé, sem hún býr að enn þann dag i dag. En ég vil halda svolítið áfram með söguna, þó að margt vanti í hana og stiklað sé á stóru. Við, sem stóð- um áfram í eldlínunni fiskandi og siglandi með fiskinn tilEnglands, fórum fram á við Bretana að fá vopn um borð í skipin og fengum þau, bæði riffla, vélbyssur og loft- varnabelgi, sem komið var fyrir ofan á stýrishúsinu og skotið hátt í loft upp. Voru þeir tengdir ör- þunnum stálvir, sem festur var í lof t. stýrishússins og notaðir ef mqð; þurfti til varnar gegrt fltig-1 vé faá rásum og til að fyrirbýggjá; að’-ovinaflugvélar gætu rennt sér yf'9'jskipið og hafið vélbyssu- eða spíengjuárásir á það. Okkur var kefitit að fara með fyrrgreindan vo|rtabúnað, auk þess sem stýris- húséýor.u varín með skotheldum stálplötúm. Með þessum vopnum og útbjahaði höfðum við þajÍ'á tilfinnTHgunni, að við værum miklu öruggari um líf okkar og gætum varizt að einhverju leyti, ef á þyrfti að halda, því að reynslan hafði kennt okkur, að hlutleysi og álgjört varnarleysi voru ekki til í striði. Það er eftiriektarvert að heyra og sjá í útvarpi og sjónvarpi og lesa í blöðum rök og álit þeirra manna, sem kalla sig hernáms- andstæðinga. Þeirra á meðal eru hálærðir prófessorar, kennarar og háskólanemar, flestir ekki fæddir eða komnir til vits og ára, er síðasta heimsstyrjöld brauzt út og vita þvi ekkert, hvað stríð eða hernám er i raun og veru, utan það, sem þeir hafa Iesið í bókum og séð leikið í myndum f sjón- varpi og kvikmyndahúsum. Reyndar séð glefsur úr frétta- myndum af styrjöldum, sem háð- ar hafa verið úti í heimi á sl. árum. Þeir tala mikið um herinn hér á landi og bera fram háværar kröf- ur um að hann fari burt. Það var hægt að tala um hermenn hér á íslandi á styrjaldarárunum, er þeir gengu hér um götur með alvæpni og voru í yfirgnæfandi meirhluta, dreifðir um allt land. Ég hefi ekki rekizt á slfka menn frá styrjaldarlokum, en ég hefi heyrt talað um varnarliðsmenn, sem séu suður á Keflavfkurflug- velli, og það gefur mér álíka öryggiskennd að hafa þá þar og i striðinu, eftir að við fengum vopn í hendur um borð í skipin okkar, því að reynslan kenndi okkur, að hlutleysi er ekki til og verður aldrei til nema í orði, .á íneðan fítýrjaldarástand er yfirvcjfandi i heiminum, og jafnvel ekki á svo- kölluðum friðártimum. Ég hefi reýrtt að færa riik fyrir afstöðu mi'nrií til Varins lands'tog1. byggi þáu á’féynslu minni úr s|ð| ustu st:#jöld. jEn ég vil spyrjaj hyérbrú raúrihæf rök þeirra, s^rrt ! jjlýrjast gégri þy,í, að landið sé vÍrk tð? Ætl'á þeir að leysa sjómaniiak stéttina af i næstu styrjöld og lofa henni að hvíla sig á að brauðfæða og klæða landsbúa, (sem ég reikna með að þurfi eins og í fyrri heimsstyrjöld vegna legu lands- ins) veifandi dulu hlutleysisins, eða hafa þeir fundið upp eða reiknað út einhverja algilda lausn til bjargar þjóðinni á hættustund, þegar þar að kemur? 18. marz 1974.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.