Morgunblaðið - 01.06.1974, Side 21

Morgunblaðið - 01.06.1974, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JUNI 1974 21 Frystihúsin að stöftvast? Rætt við nokkra frysti- húsamenn á aðalfundi SH Aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna var haldinn i gær og fyrradag að Hótel Sögu. Komið hefur fram, að rekstursstaða frystihúsanna er nú mjög slæm og eru mörg þeirra rekin með tapi. Morgunblaðið sneri sér í gærtil nokkurra fulltrúa á aðalfundinum og leitaði álits þeirra á reksturshorf um frystihúsanna. Fara viðtölin hér á eftir. Rekstrargrundvöllur togar- anna er brostinn Einar Sveinsson forstjóri Bæjarút- gerðar Hafnarfjarðar: — Verðlagsþróunin var þegar orðin mjög óhagstæð, þegar kaup- hækkanir og aðrar rekstrarhækkanir komu til framkvæmda 1. marz sl. og má segja, að þá hafi rekstrargrund- völlur útgerðarinnar brostið. Með þessu er ég ekki að segja, að verka- fólkið hafi ekki haft þörf fyrir þessa kauphækkun, en það verður að vera samræmi 1 hlutunum. Eins og nú horfir er augljóst, að þessi þróun getur ekki gengið til lengdar. Ofan á þetta bætist mikill og langvarandi taprekstur togaranna Mikið er rætt um ráðstafanir til að mæta þeim vanda, sem framundan er eftir 1. júní, en ég tel, að sá vandi sé þegar fyrir hendi. 20% af brúttótekjum Gfsli Konráðsson frá Akureyri. togaranna eru bundin til afborg- unar, en reksturinn i dag er ekki betri en það, að tekjur hrökkva ekki fyrir beinum útgjöldum. Þessari 20% bindingu er ekki hægt að mæta með öðru móti en söfnun lausaskulda. — Til hvaða ráðstafana telur þú að grípa þurfi? — Ég sé ekki nema eitt úrræði ef ekki á að verða um rekstrarstöðvun að ræða, að útflutningsframleiðslan fái greitt fyrir gjaldeyrinn það verð. sem kostar að afla hans. Afkoman eins slæm og hún getur verið Guðmundur Karlsson hjá Fisk- iðjunni h /f f Vestmannaeyjum: — Rekstrargrundvöllurinn nú er eins slæmur og hann hefur nokkurn tlma verið, m.ö.o. enginn. Þvl meira sem við framleiðum þeim mun meira tapar fyrirtækið. Þetta er bein afleiðing þeirrar verðlagsþróunar, sem verið hefur I landinu að undan- förnu, og lækkunar á afurðaverði. Gildir þetta jafnt um fiskvinnsluna og útgerðina, en I útgerðinni ná endarnir engan veginn saman. Ef ekki verður á snögg breyting til batnaðar fæ ég ekki annað séð en algjör rekstrarstöðvun sé fyrirsjáan- leg. — Hefurðu von um, að eitthvað rætist úr á næstunni? — Ég sé engin merki breytinga og held, að ekki sé langt i það, að fiskvinnslufyrirtækin gefist hreinlega upp Ég hef ekki trú á, að lánastofn- anir geti endalaust hlaupið undir bagga. í rauninni ætti Fiskiðjan að vera hætt allri starfsemi nú þegar, en sllkt er náttúrulega hægara sagt en gert. — Hefur þú nokkrar tillögur til úrbóta? — Á þessu vandamáli er ekki til nein algild lausn, en það er deg- inum Ijósara, að skapa verður þess- um atvinnuvegi heilbrigðan rekstrar- grundvöll. — Setti gosið ekki strik I reikn- inginn hjá ykkur? — Gosið kom auðvitað illa við okkur, en við féllum alveg út á árinu 1973, sem var tiltölulega gott ár. Við komum svo inn aftur um sl. áramót, — beint inn I taprekstur, sem kemur mun verr við okkur en hina, sem voru I gangi 1973. Fólks- ekla hefur líka háð okkur, en við misstum mikið af fastafólki eftir gos- ið. Annars hefur uppbyggingin gengið eftir því, sem vonir stóðu til. Skuttogararnir standa ekki undir stofnkostnaði Gisli Konráðsson framkvæmda- stjóri Útgerðarfélags Akureyringa: — Útgerðarfélag Akureyringa Jakob Sigurðsson úr Reykjavik. rekur 5 togara, þar af eru 3 nýlegir skuttogarar, en 2 gamlir siðutogar- ar. Skuttogarar eru dýr atvinnutæki og eins og málin standa nú eru engar líkur á, að þeir standi undir afskriftum og vöxtum af sínu stofn- fé. Eins og nú horfir sé ég ekki annað en að skipin þyrftu að fást ókeypis ef maður vildi eiga von á sæmilegri rekstrarafkomu. Við nú- verandi aðstæður standa þessi dýru skip engan veginn undir stofn- kostnaði sinum og þar af leiðir, að afkoma gömlu skipanna verður skárri, en vandamálið við þau er, að á þau fást ekki menn eins og von er. Fiskvinnslan hefur hins vegar gengið betur og hagnaður af henni vegið nokkuð upp á móti taprekstri togaranna, en betur má ef duga skal. Það er augljóst, að eitthvað verður að gera til að koma rekstrar- grundvelli togaraútgerðarinnar í við- unandi horf. — Og hvaða ráðstafana vilt þú grlpa til? Ég er ekki viðbúinn þvl að segja, hvað á að gera Þetta er vandamál, sem varðar alla þjóðina Hér er um að ræða okkar helzta atvinnuveg og meðan svo er, er óhjákvæmilegt að endurnýja skipaflotann og finna ein- hverjar leiðir til að rekstur fiskiskipa geti haldið áfram. Greiðsluerfiðleikar vegna birgðasöfnunar Guðmundur Björnsson fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ólafsvíkur og Hólavalla h/f: — Hjá okkur hefur afkoman verið sæmileg að undanförnu og stafar það m.a. af þvi, að við höfum haft mikið og gott hráefni i vetur. Hjá okkur voru í vetur söltuð á niunda hundrað tonn. miðað við fullstaðinn fisk. Auk þess framleiddum við 40 þús. kassa af freðfiski og um 900 tonn af fiskimjöli. Við gerum ekki út sjálfir, en 10 af 19 bátum, sem gerðir voru út frá Ólafsvlk i vetur, voru I viðskiptum hjá okkur. — Rekstrarumsvif ykkar hafa þá aukizt fremur en hitt? — Það hefur gengið á ýmsu sið- an fyrirtækin voru sameinuð 1969—'70. Við erum nú að stækka hraðfrystihúsið um helming auk þess sem það verður endurnýj- að eftir kröfum timans. Við reiknum með að taka það í notkun nú í haust. Ólafur Gunnarsson frá Neskaupstað. GuSmundur Björnsson úr Ólafsvik. GuSmundur Karlsson Frá Vestmannaeyjum. — Telur þú vera bjart framundan hvað varðar rekstrarafkomu? — Um það er erfitt að segja, en sem stendur eigum við i greiðslu- erfiðleikum vegna mikillar birgða- söfnunar, ég vona þó, að úr því rætist áður en langt um liður „Vantar mikið upp á viðunandi rekstursgrundvöll" Ólafur Gunnarsson, Síldar- vinnslunni, Neskaupstað: „Það er greinilegt, að verðlækk- anir á afurðum undanfarið fara langt með að koma á móti gengissiginu. Frystihúsin vantar mikið upp á við- unandi rekstursgrundvöll. Afkoman var ágæt sl. ár og segja má, að siðustu þrjú árin hafi verið mjög gott tímabil, enda hefur ekkert veitt af. þar sem uppbyggingin hefur verið ör og frystihúsin orðið að mæta siauknum kröfum um hreinlæti og aðbúnað. Ef verðþróunin fer enn versnandi eða stendur i stað, þá þurfum við frystihúsamenn að gæta vel að því, að okkar hagur verði ekki fyrir borð borinn," sagði Ólafur Gunnarsson frá Neskaupstað — Hvaða ráðstafanir þarf að gera til að koma frystihúsunum á réttan kjöl? — Ég get ekki bent hér á nein sérstök úrræði. Það horfir siður en svo vel og búast má við, hvað sem verða kann ofan á í stjómmálunum, að róðurinn verði erfiður. Það er alltaf erfitt að sannfæra fólk um, að afurðaverð fari lækkandi Nú, mest af þessum hagnaði, sem frystihúsin hafa haft á undanförnum árum, hefur farið til að byggja þau sjálf upp og bæta hag þeirra, sem við þau vinna. Ef afkoma húsanna er slæm er það fljótt að segja til sin i þjóðfélaginu. . — Hvað um síldarvinnsluna í Neskaupstað sérstaklega? — Við höfum fjárfest gífurlega á undanförnum árum Sl. tvö ár höfum við keypt skip fyrir um 300 milljónir og jafnframt kostað um 50 milljónum til endurbóta á frystihús- inu og saltfiskverkuninni. Og það er ekkert lát á þeim framkvæmdum, sem bíða Þessi mikla fjárfesting gefur ekki tilefni til svartsýni og við verðum að treysta því og trúa, að Einar Sveinsson úr Hafnarfirði. séð verði til þess, að afkoman verði nægilega góð. Allt annað væri hrein uppgjöf. „HöfuSatvinnuvegirnir geta ekki gengið svona á höfSi" Þórarinn Guðbergsson úr Garði: „Það er ekkert leyndamál, að á sl. ári var ástandið þolanlegt hjá frysti- húsunum, en síðan hefur sigið á ógæfuhliðina. Eftir þá hækkun fisks- verðs, sem varð um áramótin, var talið, að frystihúsin stæðu á núlli, en síðan komu gifurlegar kostnaðar- hækkanir i kjölfar kjara- samninganna, sem alveg hafa snúið dæminu við. Eins og nú horfir rekur frystihúsin beint í strand. Þrátt fyrir ráðstafanir til að stöðva visitöluna 1. júní er ástandið mjög slæmt, þær eru aðeins til að firra frekari vandræðum. Verð á freðfiski fer nú lækkandi og sölutregða hefur gert vart við sig á erlendum mörkuðum. Frystihúsin eru full af unninni vöru, og okkur virðist sem bankarnir hafi dregið í land með lánsfé og láni nú ekki meira en lögboðið er Það gerir stöðuna mjög erfiða einmitt nú þegar varan hleðst upp vegna sölu- tregðunnar og við verðum að standa i skilum með fastar greiðslur. — Hvernig vilt þú leysa þennan vanda? — Ég tel, að við eigum að draga í land I byggingariðnaðinum í landinu. Þar er mikið af ófaglærðu fólki, sem starfað gæti i staðinn við framleiðsluna, þannig að við fram- leiddum meira en fjárfestum minna i öðrum greinum. Annars hlýtur að verða að gera einhverjar varanlegar ráðstafanir, þvi að það gengissig, sem nú hefur orðið, gerir ekki meir en að vega upp á móti þeirri lækkun, sem þegar er orðin á fisk- afurðum erlendis. Hófleg gengis- lækkun með eðlilegum hliðarráð- stöfunum til að sporna gegn verð- bólgunni mundi sjálfsagt einhverju bjarga Það hlýtur að verða fyrsta verk nýrrar stjórnar og nýs þings að taka þessi mál traustum tökum Höfuðatvinnuvegirnir f landinu geta ekki gengið svona öfugir. „12—1400 miMjóna tap á frystihusunum í ár" Jakob Sigurðsson hjá Sjófangi. Reykjavík Jakob Sigurðsson hjá Sjófangi, Reykjavík: „Það er augljóst mál, að öll frysti- húsin i landinu eiga við mikla örðug- leika að etja eins og stendur Þetta bitnar þó mismunandi á húsunum, eftir þvi hver aðstaða þeirra er varð- andi hráefnisöflun, starfsfólk og af- komu á undanförnum árum. Mörg frystihús þola nú nokkurn taprekstur um takmarkaðan tíma, en reksturs- tapið núna er svo mikið, að jafnvel þeir sterkustu geta ekki þolað það til frambúðar. Rétt er að geta þess, að rekstursfjárörðugleikar hjá þessum aðilum hljóta að hafa gert vart við sig nú þegar vegna þess að þessi frystihús urðu að fjárfesta mjög verulega í endurbótum og nýbygg- ingum til að mæta þeim kröfum, sem nú eru gerðar, og það fé, sem varð til hjá þeim, er alls ekki hand- bært til að standa undir reksturstapi. Það liggur fyrir, svo að ómótmælan- Þórarinn Guðbergsson úr Garði. legt er, að frystihúsin munu tapa 12—1400 milljónum króna á þessu ári og er þá miðað við, að reksturskostnaður aukist ekki frá þvi sem nú erÞetta voru ummæli Jakobs Sigurðssonar um reksturs- ástandið í frystihúsaiðnaðinum Jakob hélt áfram: — Það verður verkefni næstu rikisstjórnar að kljást við þetta vandamál og það verður örugglega mjög erfitt. Mest virðist talað um gengisfellingu, enda virðist auðveld- ast að fá samstöðu um hana. Fram kom við gerð síðustu kjarasamn- inga, að launþegasamtökin lögðu alla áherzlu á að fá hækkað útborg- að kaup, þrátt fyrir það að fyrir lá, að atvinnuvegirnir þyldu ekki þessar hækkanir, eins og allir vissu. Við svona aðstæður er venjulega gripið til gengislækkunar, en hún yrði samt erfið núna einnig fyrir sjávarút- veginn vegna þeirra hækkana, sem þá yrðu á aðkeyptum vörum, og útistandandi erlendra skulda vegna nýju fiskiskipanna. Ég velti þvi mjög fyrir mér, þegar verið var að semja, að ef við Islend- ingar hefðum i heild gert okkur Ijósa stöðu okkar miðað við nágranna- þjóðirnar, sem eiga nú í verulegum efnahagsvandræðum, þá hefðum við ákveðið að halda linunni eins og hún var í höfuðatriðum og halda okkar lífskjörum óbreyttum Þetta hefði getað tekizt, þrátt fyrir rýrn- andi lifskjör i öðrum löndum En árangurinn af þessum samningum er nú sá, að flestir þeir, sem töluðu um hærri laun, halda þvi fram, að vegna verðhækkananna, sem óhjákvæmilega hlutu að fylgja i kjöl- farið og allir vissu um, séu launþeg- ar nú lítið sem ekkert betur staddir, ef ekki verr, en atvinnuvegirnir hins vegar komnir í mikla erfiðleika, sem mikið átak þarf til að leysa. Þess vegna er ekki hægt að taka þá Framhald á bls. 47

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.