Morgunblaðið - 01.06.1974, Page 24

Morgunblaðið - 01.06.1974, Page 24
MOKGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. JUNÍ 1974 Umræðurnar á þingi: Framíköll og stóryrði Kommúnistar flýja undan taragasinu Fróðlegt "etur verið að segja frá því, sem fór fram innan veggja Alþingishússins meðan á óeirðunum stóð fyrir utan. Tillag- an um að island gerðist stofnaðili að Norður-Atlantshafsbandalag inu kom í kjölfar viðræðna ráð- herra fslenzku ríkisstjórnarinnar við bandaríska kollega sína í Washington. Tillagan var lögð fram af ríkisstjórninni og var svo- hljóðandi: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að gerast stofnaðili fyr- ir Íslands hönd að Norður-Atlants hafssamningi þeim sem fulltrúar Bandaríkjanna, Belgiu, Bret- lands. Frakklands. Hollands. Kan- ada, Luxembúrg og Noregs hafa orðið ásáttirum og prentaður er sem fylgisskjal með ályktun þess- ari1' í greinargerð tillögunnar eru síðan rakjn ýtarlega öll efnisatr- iði málsins og forsaga þess. Þó að samstaða væri meðal lýð- ræðisflokkanna um þessa tiliögu, með nokkrum undantekningum þó, mætti hún harðari andstöðu þingntanna kommúnisla. eins og við var að búast. Umræður um hana urðu þvf heitar. og oft að sama skapi skemmtilegar. Steinar J. Lúðvíksson. blm. Mbl. sagði frá þessum umræðum i grein, sem hann skrifaði í Mbl. 29. marz 1969, og skýrði hann m.a. svo frá: FYRRI UMRÆÐA UM TIL- LÖGUNA Kl. 10. árdegis 29. marz 1949 hófst fyrri umræða um tillöguna. Bjarni Benediktsson fylgdi henni úr hlaði, en aðrir sem þátt tóku í umræðunum voru Einar Olgeirs- son, Gylfi Þ. Gíslason, Katrín Thoroddsen, Hannibal Valdimars- son. Sigfús Sigurhjartarson, Ás- mundur Sigurðsson, Áki .Jakobs- son, Finnur Jónsson og Jónas Jónsson. Ræður kommúnistaþing- mánnanna voru yfirleitt langar og fóru þeir hamfarir út í samning- inn. Stóð umræðan allan daginn, en þegar langt var liðið kvölds flutti Einar Olgeirsson svohljóð- andi tillögu að rökstuddri dag- skrá: Um leið og Alþingi felur ríkisstjórninni að snúa sér til stjórna Bandaríkjanna, Bretlands og Sovétríkjanna og óska yfirlýs- inga þeirra um. að þessi ríki muni virða að fullu friðhelgi Is- lands í stríði sem friði. svo fremi það Ijái engu ríki herstöðvar í landinu, tekur það fyrir næsta mál á dagskrá. Tillaga þessi var siðar felld að viðhöfðu nafnakalli með 38 at- kvæðum gegn 10. Margir þing- menn gerðu grein fvrir atkvæði sinu. Meðal þeirra var Jónas Jóns- son sem sagði: ,,Þar sem það er orðið ljóst, sem flutningsmanni tillögunnar var víst ekki kunnugt um. að Rúss- land gerði samninga við fimm þjóðir í vestri. en tók þær allar herskildi, tel ég það bera vott um vöntun á sögulegum skilningi að samþykkja þessa dagskrá og segi því nei.“ . Þegar umræðu var lokið var til- lögunni vísað til utanríkisnefnd- ar, en Jón Pálmason forseti Sam- einaðs-Alþingis bað menn að bíða í húsinu því ætlunin væri að hefja 2. umræðu þá um nóttina ef störf nefndarinnar sæktust vel. Mót- mæltu kommúnistar þéssu harð- lega og sagði t.d. Einar Olgeirsson að þetta væri ofbeldi sem minnti meira á Trampe greifa, en Jón Pálmason. Urþvf gat ekki orðið að síðari umræða færi fram um nótt- ina. en ákveðið var að hún hæfist kl. 10 daginn eftir. ÖLDURNAR ÞYNGJAST Kl. 10 voru flestir þingmenn mættir I þinghúsinu og forseti setti fund. Áður en síðari umræða um tillöguna hófst kvaddi Lúðvík Jósefsson sér hljóðs utan dag- skrár og mælti þá m.a.: „Þegar ég kom hingað (að Al- þingishúsinu) kl. 9 í morgun — ég er vanur að koma hingað um það Ieyti. — þá voru aðaldyrnar, móti allri venju, lokaðar. Það var ekki hægt að komast inn. Ég hvarf þá að því ráði að leita til bakdyranna. Ég ætlaði að reyna að komast inn þeim megin, eins og ég hef stundum gert áður. Þar var tekið á móti mér af nokkrum lögregluþjónum, og ég var fangaður. Mér var meinað um inngöngu nema ég gæti sýnt eitt- hvert aðgöngukort, og mér var sagt að án þess færi ég ekkí inn í húsið." Kærði Lúðvík siðan þennan at- burð fvrir forseta. Daginn áður hafði orðið sam- komulag milli kommúnista og stjórnarflokkanna, að gefin yrðu út aðgöngukort að þingpöllum, þar sem búizt var við að ella mundi verða þar mikill troðning- ur og þrengsli. Var ákveðið að hver flokkur fengi þrjú aðgöngu- kort á hvern þingmann. Mistökin að Lúðvík var ekki hleypt inn i húsið, stöfuðu af því eingöngu. að lögreglumenn sem gættu dyr- anna, þekktu hann ekki í sjón, en starfsmaður þingsins kom til hjálpar og leiðrétti mistökin. Jón Pálmason forseti harmaði að þessi mistök hefðu átt sér stað. og sagði þingmönnum, að sjálf- sögðu væri heimilt að fara allra sinna ferða, sem fyrr. Er síðari umræða um tillöguna gat hafizt, skýrði forseti frá því. að hann hefði ákveðið að timinn sem færi til umræðunnar yrðu þrjár klukkustundir. svo sem heimild væri til í þingsköpum. Las siðan forseti upp urnrædda grein ~þingskapa. Við þessa ákvörðun umturnuðust kommún- ista þingmennirnir algjörlega og gerðu hróp að forseta. Ekki mun allt bókað í þingtíðindi sem þar var kallað, en í þeim má samt lesa eftirfarandi: Sigfús Sigurhjartason: Við krefjumst forsetaúrskurðar. Ég neita þessum aðgerðum, og krefst úrskurðar forseta. Einar Olgeirsson: Þetta er eng- inn fundur Sigfús: Þetta er lögleysa og vit- leysa. Einar: Ég mun greiða atkvæði á móti þessu. Sigfús: Þetta er harðstjórn og amerískt ofbeldi, ólög og vitleysa. Einar: Hafa menn þá rétt til að greiða atkvæði. Þegar hljóð hafði fengist lét forseti þingmenn greiða atkvæði um ákvörðun sína. Var hún sam- þykkt með 29 atkvæðum gegn 13. Kommúnistar óskuðu eftir nafna- kalli og létu óspart ljós sitt skína með greinargerðum um atkvæði sitt. Kastaði fyrst tólfunum þegar Einar Olgeirsson tók til máls. Flutti hann langa tölu, án þess að Ljósm. Öl. K. Magnússon. greiða atkvæði. Forseti barði í bjölluna og óskaði eftir atkvæð- inu, en Einar lét ekki segjast. Frammfköll fóru að heyrast, og m.a. þeirra er kölluðu til þing- mannsins. sem farinn var að ólm- ast, var forsætisráðherra. Upp úr þvi urðu þessi orðaskipti: Forseti: Atkvæðið. Einar: Ég bið forseta að vera rólegan og láta forsætisráðherra þegja, svo ég geti lokið minni greinargerð. Forseti: Þetta er alltof löng greinargerð. Einar: Ég ræð minni greinar gerð sjálfur. Hér er Alþingi Is- lendinga, en ekki stofnun Banda- rfkjaleppa. Forsætisráðherra: Þú ætlar ekki að gera það að sæmdarstofn- un. Einar: Þegi þú, þú hefur ekki orðið hér. Ég er alþingismaður Islendinga, kosinn af 7000 Reyk- víkingum og tala hér i umboði þeirra. en þú ert uppbótaþing- mannsræfill sem sveikst þig inn á þing. (í ákafa sfnum gleymdi þingmaðurinn hve margir þing- menn kommúnista voru einmitt uppbótaþingmenn). P’rá þessum orðaskiptum greindi pjóðviljinn svo daginn r — Arásin forsöngvari annarra laga, sem kommúnistarnir sættu sig siður við. Var þeim nú ljóst að uppsker- an var aðeíns háð og spott, en klukkan var að ganga þrjú og stutt þar til þingsályktunartillag- an kæmi til atkvæða. N'ú var að duga eða drepast. MOLD, EGG OG GRJÓT Lögreglan hafði skipað sér i einfalda ríið 'eftir Kirkjustræti og voru lögregiuþjónar búnir kylfum og hjálmum. Að baki þeirra upp við vegg Aiþingishússins. hafði skipað sér hópur stuðningsmanna stjörnarflokkanna. kominn til að standa vörð um friðhelgi þings- ins. Inni í húsinu var svo varalið lögreglunnar staðsett. Höfðu varaliðsmenn armbindi. með rnerki lögreglunnar sér til auð- kenningar. Kommúnistar tóku nú að kasta moldarkögglum og eggjum að lög- reglunni og Alþingishúsinu. Erfitt var fyrir lögregluna að átta sig á því hvaðan sendingarnar komu, þvi kommúnistar höfðu komið sér fyrir í smáhópum innan um mannfjöldann. Hafðist hún því lítið að. þó á henni og mönn- unum við þinghúsið dyndi mold og egg. Það var ekki fýrr en óeirðarseggirnir tóku að rifa upp hraungrýti, sem raðað var með blómabeðum á Austurvelli, og kasta að húsinu. sem hún mund- aði kylfurnar, enda brotnaði nú hver rúðan á fætur annarri á fundarsa! neðri deildar og í skrif- stofu forseta Islands. Var mannfjöldanum ýtt lítið eitt frá húsinu. FANGARI ÞINGHÚSINU Inni i Alþingishúsinu hélt fund- ur áfram eins og ekkert hefði í skoríst, þó að grjót og glerbrot flygju inn í salinn. Að atkvæða- greiðslu lokinni virtist lið kommúnista útifyrir ætla gjör- samlega aðærast. Þeir höfðu haft með sér jeppabíl með gjallarhorm og var kallað frá honum það sem var að gerast inni í þinginu og fólkið æst með slagorðum. I Al- þýðublaðinu segír að þegar at- kvæðagreiðslu lauk. hafi Brynjólfur Bjarnason farið út i glugga og kallað á nafngreindan mann að þingmenn „sósíalista" væru fangar í þinghúsinu og fengju ekkí að fara út. Var þessi Iýgi sfðan endurtekin í gjaliar- horníð „ogærðístþá ungkomma fylkingin hálfu meira". Tóku þeir i ákafa að hrópa nafn Einars Olgeirssonar og hertu á grjótkast- inu. Lögreglan skipaði fólkinu nú að dreifa sér. en sú skipun komst til fárra vegna öskurs og hávaða. Gaf Iögreglustjóri þá skipun um að dreifa mannfjöldanum. Reyndu kommúnístar að veita viðnánt, en þó var hægt áð ryðja svæðið næst þinghúsinu. Þá olli það erfiðleik- um hve mikill mannfjöldinn var og aðrir en þeir, sem fremst stóðu, vissu lítt hvað um var að vera, og hreyfðu sig því lítið. BARDAGINN HEFST Oeirðarseggirnir sóttu strax aft- ur aö Alþingishúsinu, nú vopnað- ir lurkum og grindverksrimlum, auk grjótsins. Þótti nú sýnt að lögregluþjónum væri ómögulegt að dreifa fólkinu og var því kallað til varaliðsins. Sótti lið lögregl- unnar nú fram gegn viglínu kommúnista. en annað fólk hrökk frá eftir mætti. En kommúnistar veittu harða mótspyrnu og beittu lurkum sinum og trérimlum óspart gegn kylfum lögreglunnar og urðu vfða harðar sviptingar. Jafnframt jókst grjóthríðin á Al- þingishúsið og voru nú flestar rúður brotnar. Gáfu kommúnistar hvergi eftir við lögregluna óg leit helzt út fyrir að blóðugur götu- bardagi myndi hefjast. TÁRAGAS Til að koma f veg fyrir það ákvað lögreglan nú að beita tára- gasi til að dreifa fólkinu. Táragas er mjög óþægilegt að fá í augun og veldur tímabundnum sviða, en er hættulaust að öðru leyti. Brátt lagðist þykkt ský yfir Austurvöll þegar lögreglan, búin gasgrímum, hóf að sprengja táragassprengjur, og leið ekki á löngu þar til mann- fjöldinn var ailur kóminn á flótta hágrátandi. Voru lögreglumenn nú einir eftir á Austurvelli. og gátu nú þingmenn komist út úr húsinu, en í öryggisskyni höfðu þeir haldið sig innandyra. Síðar um kvöldið fór að bera á nokkrum ólátum í miðbænum, aðallega í Austurstræti og Póst- hússtræti. Var gerður aðsúgur að lögreglunni og lögreglustöðin grýtt. Linnti ekki látunum fyrr en hópnum hafði verið dreift með táragasi. Þá sprungu tvær sprengjur, önnur á svölum Sjálf- stæðishússins, þar sem rúður brotnuðu. Voru þar unglingar að verki og náði lögreglan til þeirra. HLERAR FYRIR GLUGGUM Ófagurt var að lítast um á Aust- urvelli daginn eftir óeirðirnar. Hellugrjótið, sem raðað var upp með gangstigunum, sem lágu frá styttu Jóns Sigurðssonar hafði að mestu verið rifið, svo og frá öðrum gangstigum. 1 Alþingishús- inu lá grjót og glerbrot um gólf, á stólum og borðum og flestar rúð- ur voru brotnar. Var strax hafist handa við að hreinsa húsið og negldir voru hlerar fyrir glugg- ana. Rannsókn hófst hjá sakadóm- ara. og var hún umfangsmikil. M.a. var óskað eftir því við ljós- myndara, sem myndir tóku af at- burðunum að senda þær lögregl- unni henni til aðstoðar við rann- s'ókn málsins. Voru nokkrir menn handteknir grunaðir um að hafa æst til óeirðanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.