Morgunblaðið - 01.06.1974, Síða 27

Morgunblaðið - 01.06.1974, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JUNI 1974 27 Forysta og skipulagning verkfallsins r komu stjóm N-Mands í opna skjöldu ÖFGASINNUM mótmælenda á Norður-trlandi hefur nú tekizt það margyfirlýsta ætlunarverk sitt að fella samsteypustjórn mótmælenda og kaþólskra í landinu. Að þessu hafa þeir stefnt leynt og Ijóst frá því stjórnin var sett á laggirnar fyrir tæplega hálfu ári. Fall hennar kemur því ekki á óvart f sjálfu sér, miklu heldur hverjir komu þvf til leiöar og hvernig. Það hefur nú sýnt sig, að viðleitni brezkra stjórnvalda til að leysa vandamál fbúa N-írlands með sæmilegri sanngirni í garð allra hlutaðeiganda aðila hefur mistekizt og virðist brezka stjórnin ekki eiga um nema tvennt að velja, úr þvf sem komið er; annaðhvort að taka í sfnar hendur stjórn N-trlands til frambúðar ellegar kalla herlið sitt þaðan burt og láta mótmælendur og kaþólska sjálfa um að útkljá deilur sfnar — og þá væntanlega með vopnavaldi, því að kaþólski minnihlutinn mun tæpast sætta sig átakalaust við áframhaldandi völd mótmælenda einna eftir hálfrar aldar reynslu af slíku fyrirkomu- lagi. Komið hefur til tals, að sett verði á laggirnar ný samsteypustjórn emhættismanna beggja trúfylkinga en slfk stjórn yrði vart langlff. Hætt er við, að verkfallsaðgerðir hæfust að nýju til að koma henni frá, nema þvf aðcins að henni fylgdu fyrirheit um nýjar kosningar og valdatöku mótmælenda einna að þeim loknum. Einnig hefur enn á ný verið rætt um þá leið að skipta N-lrlandi þannig, að þau hverfi, þar sem kaþólskir íbúar eru fjölmennastir, tengist trlandi — en það yrði varla gert hljóðalaust. Það, sem nú hefur gerzt á N-ír landi, er sorglegt dæmi þess hvernig ofbeldi leiðir af sér of- beldi, hvernig eigingirni og ósanngirni verða skynsemi og raunsæi sterkari. Þegar brezka stjórnin vék stjórn mótmælenda frá veturinn 1972 og leysti upp heimaþingið á Stormont, sendi það í ársfrí, höfðu mótmælendur haft öll tögl og hagldir í landinu um meira en hálfrar aldar skeið, eða allt frá skiptingu írlands, sem knúin var fram með vopnavaldi, þegar Bretar höfðu ákveðið, að írar fengju heimastjórn. i'skjóli þessa meirihluta valds var hinn kaþólski minnihluti beittur margskonar misrétti og nánast litið á hann sem annars flokks borgara. Það varð aftur á móti til að efla stuðning kaþólskra við þjóðernissinnaða lýðveldissinna, sem barizt hafa sleitulaust fyrir sameiningu landshlutanna írsku og beitt í þeirri baráttu hinum alræmda lýðveldisher — IRA — Hann hefur haldið uppi skæru- hernaði I þessu skyni öðru hverju og í miklum mæli frá því upp úr sauð milli trúfylkinganna í land- inu 1968—69, en frá þeim tíma hefur þar ríkt hrein ógnaröld, þrátt fyrir vist fimmtán þúsund brezkra hermanna, sem sendir voru á vettvang til að koma í veg fyrir borgarastyrjöld í landinu og kveða niður starfsemi IRA. Eftir að brezka stjórnin birti áætlanir sínar um framtíð N-lr lands, þar sem gert var ráð fyrir því m.a., að kaþólskir fengju til- tekna hlutdeild í stjórn landsins, dró heldur úr stuðningi kaþólskra við lýðveldisherinn og meirihluti Ibúanna í landinu virtist binda miklar vonir við samsteypustjórn- ina, sem sett var á laggirnar, und ir forseti Brians Faulkners. Öfgasinnar beggja hétu þó þegar i upphafi að gera allt, sem þeir gætu, til að fella þessa stjórn; lýðveldissinnar vegna þess, að þeir töldu hana koma í veg fyrir sameiningu landshlutanna írsku; mótmælendur vegna þess að þeir voru andvígir hlutdeild kaþólskra í stjórn landsins og töldu einsýnt, aó svonefnt írlandsráð, sem sett skyldi á laggirnar með aðild stjórna Írlands, N-Írlands og Bretlands, yrði upphafið að sam- einingu Írlands alls og þar með yrðu mótmælendur smám saman ofurseldir yfirráðum kaþólskra. irlandsráðið varð hið endanlega þrætugpli. Uppgjöf Faulkners Forystumenn kaþólska verka- mannaflokksins — SDLP — höfðu gert stofnun Irlandsráðsins að algeru skilyrði fyrir þátttöku í samsteypustjórn með mótmæl- endum undir forystu Faulkners. Ráð þetta skyldi fjalla um ýmsa þætti í samskiptum landshlut- anna írsku. Þar sem brezka stjórnin átti aðild að því líka, töldu fylgjendur ráðsins í hópi mótmælenda, að þar með yrði tryggt, að aldrei yrði gengið um of á hagsmuni þeirra. Þessu vildu öfgasinnar ekki treysta og olli málið alvarlegum klofningi í stjórnmálafylkingu mótmælenda. Með tilkomu stjórnar Verka- mannaflokksins í Bretlandi harðnaði afstaða þeirra enn frek- ar; þeir óttuðust, að Wilson yrði kaþólskum hliðhollari en góðu hófi gegndi. i því sambandi má minna á, að upphafandófsaðgerða kaþólskra á N-Írlandi árið 1968 gegn ofríki mótmælenda var af mörgum talið eiga rót að rekja til þeirrar trúar kaþólskra, að verka- mannaflokksstjórn Wilsons, sem þá var við völd í Bretlandi, mundi styðja þær. Áhyggjur öfgasinna og áróður féll í betri jarðveg meðal mótmæl- enda en Brian Faulkner og stuðningsmenn hans höfðu búizt við. Þóttust þeir því sjá fram á verulegt fylgistap meðal kjós- enda. Til þess að draga úr áhrif- um málsins setti Faulkner fram málamiðlunartillögu þess efnis, að framkvæmd hinna ýmsu þátta írlandsráðsins yrði mun hægari en upphaflega var ráð fyrir gert. Þessu voru forystumenn SDLP al- gerlega andvígir í upphafi en létu þó undan eftir að verkfallið hófst á dögunum — fyrir þrábeiðni brezka N-Írlandsmálaráðherrans, Merlyns Rees, sem taldi slíka málamiðlun einu leiðina til að bjarga samsteypustjórninni. En tilslökun kaþólskra varð sízt til að bæta ástandið. Verkfalls- menn töidu hana mikinn sigur Húsmæður að sækja sér mjólkur- og kertaskammta, en slfk skömmtunarstarfsemi fór fram á nokkrum brýnustu lffs- nauðsynjum undir forystu og umsjón verkfallsmanna. fyrir sig og sannfærðust um, að þeir þyrftu aðeins að herða þumalskrúfurnar dálítið betur til að vinna fullnaðarsigur, þ.e. að fella samsteypustjórnina. Og þar reiknuðu þeir dæmið rétt. Vegna þess hve gersamlega verkfalls- mönnum tókst aó lama athafnalíf landsins og sýna styrk sinn — þeir urðu í raun hin eina stjórn I landinu — sá Faulkner sér ekki fært að halda áfram stjórnarsam- vinnunni enda var stjórnin orðin gersamlega máttlaus og fékk ekki við neitt ráðið. Síðustu dagana var ástandið þannig innan stjórn- arinnar að kaþólsku ráðherrarnir hótuðu að segja af sér ef brezki herinn tæki ekki I tauniana, en Faulkner hótaði afsögn, ef hann gerði það. Ein meginástæðan til þess hve stjórn Faulkners varð áhrifalaus andspænis aðgerðum verkfalls- manna var sú, að forsprakkar þess og rækileg skipulagning þess komu flestum I opna skjöldu. Frá upphafi stjórnarmyndunarinnar hafði andstöðunni gegn henni verið haldið uppi af stjórnmála- mönnum, með þá William Craig, fyrrverandi innanríkisráðherra og séra Ian Paisley í broddi fylk- ingar. Þá þekkti stjórnin og vissi hvers var af þeim að vænta. En nú kom skyndilega í ljós, að frum- kvæði að gerða gegn stjórninni hafði verið tekið úr þeirra hönd- um. Fyrír verkfallinu stóðu lítt eða óþekkt samtök, Verkamanna- ráð Ulster, — skammstafað UWC (Ulster Workers Council) skip- að eitilhörðum öfgamönnum, sem höfðu unnið að undirbúningi þess í langan tíma. Að sjálfsögðu nutu þeir stuðnings þeirra Craigs og Paisleys en þeir höfðu engin áhrif á rás atburðanna. Og þegar ljóst varð, að UWC ætlaði á tveimur vikum að takast að koma á marg- falt meira öngþveiti í N-Irlandi og ömurlegra ástandi en írska lýð- veldishernum hafði tekizt með fimm ára skæruhernaði, vissu menn ekki sitt rjúkandi ráð. Viðvörun 1 febrúar ’Framkvæmdastjórn UWC er skipuð 21 fulltrúa, 19 körlum og 2 konum, sem langflestir eru lítt eða ekki þekkt nöfn i landsmál- um. Opinber talsmaður ráðsins heitir Jim Smyth og hefur starfað um árabil hjá samtökum skrif- stofumanna. Flestir forystumenn samtakanna koma hinsvegar úr skipasmíðaiðnaðinum og véla- iðnaðinum, greinum, sem eru að heita hrein vígi mótmælenda. Nokkrir þeirra höfðu staðið að stofnun samtaka verkamanna mótmælenda (Loyalist Associa- tion of Workers) árið 1971, sem reyndu að vinna fylgi verkalýðsins á breiðum grund- velli. Það mistókst og sam- tökin lognuðust út af eftir mis- heppnað verkfall, sem boðað var til, i mótmælaskyni við fangelsan- ir hryðjuverkamanna úr sveitum mötmælenda, án dóms og laga — internment — en slíkar fangels- anir hafa um árabil verið eitt helzta vopn stjórnvalda i barátt- unni við IRA og hundruð kaþólskra manna setið fangnir lengri og skemmri tíma vegna gruns um stuðning við IRA. Forystumennirnir i LAW lærðu af reynslunni og komu á laggirnar tittnefndu verkamannaráði Ulsters, þar sem safnað var sam- an lykilmönnum úr helztu starfs- greinum athafnalífsins. Helzti skipuleggjari ráðsins, Hugh Petrie, hafði um hríð verið vara- formaður LAW og sömuleiðis i eina tíð verið lifvörður Williams Craigs. Enda þótt aðgerðir þeirra hafi komið á óvart, höfðu þeir varað við því sem koma skyldi. I febrúar áttu forystumenn UWC fund með Meriyn Rees, sem þá var sá maður í „skuggaráðuneyti" Verkamannaflokksins, er fjallaði um mál N-Irlands. Þeir kvörtuðu við hann yfir samsteypustjórn- inni og írlandsráðinu og óskuðu liðsinnis hans við að fá hvort- tveggja afnumið. Hann vísaði til- mælum þeirra á bug og sögðust þeir þá ætla að sjá til þess, að athafnalíf N-Irlands yrði lamað. Þessari hótun var engu sinnt. Eftir þingkosningarnar brezku, þar sem mótmælendur unnu ellefu af tólf þingsætum N-lr- lands í neðri málstofu brezka þingsins, var gert hlé á undirbún- ingi verkfalls, m.a. fyrir orð Williams Craigs, sem vildi gefa nýrri brezkri stjórn færi á að sýna, að hún tæki tillit til úrslit- anna og léti undan kröfum mót- mælenda. Þegar á hinn bóg- inn varð ljóst, að Wilson hafðí engu minni áhuga á írlandsráðinu en stjórn Heaths hafði haft, var skipulagn- Framhald á bls. 44 Hermenn víð bensfnafgreiðslu f Belfast eftir að brezki herinn var settur til vörzlu bensfn- og olíustöðva á sfðustu dögum verkfallsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.