Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JUNI 1974
Lagmeti fyrir 1 m;.Ujturð
til Bandaríkjanna 1977
UNDANKARIÐ hefur Sölustofn-
un lagmetið unnið að því að finna
heppilega dreifingaraðila f.vrir
vörur sínar í Bandaríkjunum og
eftir ítarlega könnun var gerður
umboðssamningur milli S.L. og
íyrirtækisíns Tai.vo Amerieas Inc.
í New York þann 23. apríl sl.
Taiyo Amerieas mun selja vörur
Sölustofnunarinnar undír vöru-
merkinu Icelandic Waters.
Tai.vo Americas verzlar ein-
gjiingu með sjávarafurðir og er
traust fvrirtæki, sem starfað hef-
ur um nokkurra ára skeið með
mjög göðum árangri. Hefur það
þegar gert samning við S.L. um
kaup á lagmeti á árinu 1974 fyrir
240 m. kr. og stefnt að því að auka
þetta ntagn árlega, þannig að sal-
an nemi 1 milljarð kr. á árinu
1977. Þær vörutegundir, sem
ínest á að selja á þessu ári, eru:
kippers, kavíar, brislings,
sandrínur og rækja.
I fréttatilk.vnningu frá S.L. seg-
ir. að þessi samvinna sé að allra
áliti mjög hagstæð, en i samningn-
Tónleikar
í Norræna
húsinu
.VIANUKLA Wiesler flautuleikari
og Halldór Haraldsson píanó-
leikari halda tónleika i Norræna
húsinu næstkomandi mánudags-
kvöld og hefjast þeir kl. 8.30. Þau
hafa að undanförnu haldið tón-
leika á ýmsum stöðum á landinu,
en á tónleikunum í Norræna hús-
inu verður efnisskráin ný og
hefur sennilega ekkert verkanna
verið leíkið hér opinberlega áður,
en þau eru eftir Roussel, Martinu,
Martin, Honegger og Gasella.
Þetta er í annað sinn sem þau
Halldór og Manuela halda tón-
leika í Norræna húsinu, en þau
voru þar á ferð sl. haust.
um sé t.d. ákvæði utn endurskoð-
un á verði eigi sjaldnar en árs-
fjórðunglega, sem tr.vggja á, að
alltaf sé selt á hæzta verði. Þá eru
ákvæði um. að Taiyo Americas
verzli ekki með vörur sambæri-
legar þeim, sem S.L. hefur á boð-
stólum frá öðrum framleiðendum.
Einnig heimilar samningurinn að
S.L. selji allt að jafnvirði helm-
ings þess magns, sem hún selur
Taiyo Americas, öðrum aðilum i
Bandaríkjunum og þá með öðrum
vörumerkjum.
Stofnuð Suður-
nesjadeild FEF
A LAUGARDAG kl. 2 verður
stofnuð Suðurnesjadeild Félags
einstæðra foreldra, í Félagsheim-
ilinu Vik i Keflavík. Síðar í sumar
er ætlunin að stofna deildir á
Isafirði, Akureyri og ef til vill
víðar á landinu.
F’undurinn í Keflavík er
ætlaður öllum einstæðum for-
eldrum á Suðurnesjum, sem
áhuga hafa á að ganga í félagið,
og sömuleiðis eru velunnarar
FEF og þeir, sem hefðu áhuga á
að gerast styrktarfélagar, vel-
komnir á fundinn.
Jóhanna Kristjónsdóttir, form
FEF, kemur á fundinn og flytur
ávarp, umræður verða o.fl. mál
tekin fyrir.
Verulegur áhugi er viða að
koma upp sérstökum deildum
FEF úti á landi og hefur verið
afráðið að stjórn FEF beiti sér
fyrir því. meó aðstoð heima-
manna, að koma upp þessum
félögum.
Indverski listmálarinn Aziz.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.).
Indversk list
á Mokka
AZIZ heitir ungur listmálári frá
Indlandi, sem um þessar mundir
sýnir 25 olíumálverk á iMokka.
Sýningin var opnuð sunnudaginn
26. maí sl. og mun standa í u.þ.b.
þrjár vikur.
Flestar myndanna eru lands-
lagsmyndir. en einntg er nokkuð
um mvndir af hestum og er þetta
tvennt eftirlætis fyrirmyndir
listamannsins. Aziz hefur dvalið
hér á landi í tvo mánuði og eru
flestar m.vndanna inálaðar hér á
þessu tímabili, einnig eru
nokkrar frá því að hann var í
Kaupmannahöfn, en þaðan kom
hann' hingað. Aziz hefur fengizt
við að mála í hartnær tíu ár og
gekk í listasköla í borginni
Hyderabad í Suður-Indlandi.
Kvaðst hann hafa hug á að dvelja
hér á landi í a.m.k. sex mánuði í
viðbót og k.vnnast þjóðsögum og
þjóðtrú Islendinga með það fyrir
augum að túlka þau á lérefti, en
hann hefur fengizt nokkuð við að
mála myndaflokka. setn túlka ind-
versk trúarbrögð.
.hbrié, cós
Átl:'
T.i.r.'
1 <». tcvnrv nl :
. t Ýx-"l.
wwM
•í
SÍSBS&'
Mpj&Í
EUefu ImuM ám
afrtuefi
íémsfnw^r
k w-im
i«ií
Þjóðhátíðarnefnd:
Nýir minningargripir
að koma á markaðinn
VEIGAiMIKILL þáttur í starfi
þjóðhátíðarnefndar 1974 er út-
gáfa minningargripa ýmiss
konar. en markmiö með sölu
þeirra er að standa undir beinum
kostnaði við hátíðarhiildin á Þing-
völlum. Að sögn Indriða G. Þor-
steinssonar framkvæmdast jóra
Nýtt
rækjuverð
VERÐLAGSRAÐ sjávarútvegsins
hefur ákveðið lágmarksverð á
rækju f.vrir timabilið 1. júní til 31.
ágúst 1974. Fyrir hvert kg af
rækju verða greiddar kr. 42.00 og
er þá gert ráð fyrir, að um 350
stykki fari í hvert kg.
þjóöhátíðarnefndar eru þessa
daga að koma á markaðinn nokkr-
ir slíkir gripir til viðbótar.
I fyrsta lagi er um að ræða tvo
öskubakka, sem fá má i sérstök-
um umbúðum þannig að hægt er
að senda þá heimshorna á milli
líkt og póstkort, svo og ferkantað-
an bakka. Ennfremur eru nú að
koma út barmmerkí og má fá þau
í fjórum litum, auk silfurmerkis.
Einnig koma innan skamms á
markaðinn borðfánar, og von er á
álímingarmiðum með táknmynd-
um þjóðhátíðarinnar til að festa á
bifreiðar o.fl. Fyrstu dagana í júlí
koma svo út minnispeningar þjóð-
hátiðarnefndrar sjálfrar og eru
þeir úr kopar og silfri. Þetta eru
töluvert stærri peningar en slátta
Seðlabankans, sem nú er senn að
verða uppseld, en Seðlabankinn
mun einnig annast sölu og dreif-
ingu þessara peninga.
Vegna útgáfu einkaaðila á
minnispeningum og gripum
tengdum þjóðhátiðinni sagði
Indriði, að nefndin gæti ekki
bannað slíkt, en hins vegar væri
rétt að benda almenningi á, að
hinir raunverulegu minningar-
hlutir væru þeir, sem þjóðhátíðar-
nefnd, hátíðarnefndir héraða og
aðrir opinberir aðilar stæðu að.
Það væru fyrst og fremst þeir,
sem hefðu raunverulegt verð-
gildi.
I sambandi við fyrri útgáfu
þjóðhátíðarnefndar á minjagrip-
um sagði Indriði, að mjög væri
farið að ganga á minningarskild-
ina, sem komu út nú fyrir jólin,
og væri því rétt að benda fólki,
sem hug hefði á að eignast þessa
skildi, á að nú færu að verðu
síðustu forvöð að fá þá. Skildirnir
eru tvenns konar — verðlauna-
skildir Sigrúnar Guðjónsdóttur,
sem gerðir voru hjá Bing og
Gröndal, og viðurkenningar-
skildir Einars Hákonarsonar, er
gerðir voru hjá Gleri & postulíni í
Kópavogi.
Landhelgisgæzlan
kaupir hraðbát
Á NÆSTUNNI mun Landhelgis-
gæzlan fá til landsins hraðhát
sem hún hefur fest kaup á í
Noregi. Báturinn er fengin til
reynslu. Hann veröur settur um
borð f eitthvert stærri varðskip-
anna, og notagildi hans borið
saman við gúmmíhátanna sem
gæzlan notar nú. Ef re.vnslan
verður góð, verða ef til vill keypt-
ir fleiri slíkir bátar.
Pétur Sigurðsson forstjóri
Landhelgisgæzlunnar sagði Mbl. í
gærkvöldi, að hraðbáturinn væri
byggður úr plasti, og væri hann
21 fet að lengd. Hann er búinn
140 hestafla Ford bílavél, og
getur gengið 36 sjómílur. Bátar af
þessari gerð þykja liprir í snún-
ingum og sjóhæfni þeirra er ágæt.
Báturinn er byggður í Kristian-
sand í Noregi, og er myndin tekin
þar.