Morgunblaðið - 01.06.1974, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 01.06.1974, Qupperneq 33
ið um vefstól til að vefa mynztruð gólfteppi. Framleiðslan var lituð í Innréttingunum og virðist mikil litagleði ríkja, getið er um rautt og grænt embs, rautt kersey, dökkt brókaði, röndótt Caleman- que, hvítt og gult flannel og dökk- grátt og hvítt pyklagen, svo eitt- hvað sé nefnt. Fyrirtækin tóku að sér litun fyrir einstaklinga. Arið 1756 eru t.d. litaðar þar 11 treyjur og 1 par af sokkum fyrir land- fógetafrúna Steinunni Björns- dóttur, allt blátt, húfa á son lög- mannsins, sömuleiðis blá og bux- ur rauðar fyrir Niels nokkurn Jorth. Segir Lýður, að mjög mikið hafi verið til af litarefni I Inn- réttingunum, sem hann kunni ekki skil á. Upphaf brunavarna Undir lok erindis síns sagði Lýður: Þótt rekstur Innrétting- anna hafi gengið fremur böslu- lega, hafa þær skilið eftir sig spor í sögu þjóðarinnar og haft marg- vísleg áhrif. Skulu nefnd nokkur dæmi þessu til stuðnings. a) Þess var áður getið, að til starfsemi Innréttinganna mætti rekja þá þéttbýlismyndun í Reykjavík, sem væri af öðrum toga spunnin en hjáleigubyggðin. Til Reykjavíkur fluttust á þeirra vegum iðnaðarmenn ýmsir, vefar- ar, skipasmiðir, beykjar, smiðir, sútarar og litunarsérfræðingar, auk verkafólks. Fleiri slæddust með og í bréfi, dagsettu 14. maí 1787, kvarta þeir Björn lögmáður Markússon og Jóhann Suncken- berg, kaupmaður, yfir þvl í bréfi til stiftamtmanns, að fólk sé far- ið að safnast saman i kotun- um umhverfis verksmiðjuþrop- ið, alls 17 manns, sem dragi fram lifið með þvi að vinna dag og dag i Innrétt- ingunum, þegar vinna féll. Kæmi því til álita, að hér hafi verið að hefjast þróun hliðstæð þeirri, sem fylgdi í kjölfar iðnbyltingarinnar erlendis, þegar sveitafólk fór að flykkjast til hinna ört vaxandi iðnaðarborga, en vera má líka, að hér sé um afleiðingar Móðuharð- inda að ræða. b) Bæjarbragur verksmiðju- þorpsins mun hafa mótað bæjar- brag kaupstaðarins a.m.k. i fyrstu. Kaupstaðurinn fékk að erfðum ýmis embætti, reglur og mannvirki frá Innréttingunum. Vatnspósturinn var áður nefndur, svo og næturvarðarembættið. Elzta erindisbréf yfir næturverði var gefið út af Christensen kaup- manni hinn 3. október 1778 fyrir næturverðina Arna Þorsteinsson og Svein Jónsson, og Skúli Magnússon gefur Magnúsi Guð- laugssyni næturverði erindisbréf, dagsett í Viðey 16. april 1792. Meðal eigna Innréttinganna við úttektina 12.—15. ágúst 1799 eru taldir 2 luktir fyrir næturverði og 2 morgunstjörnur, en það eru gaddak.vlfur og eins konar varnarvopn næturvarða. Þess má geta, að hinn sami Christensen gaf árið 1773 út reglur um með- ferð elds i verksmiðjuþorpinu og af bréfi frá Runólfi Klemenssyni verksmiðjustjóra til stiftamt- manns, dagsettu 4. júlí 1793, má sjá, að með fálkaskipinu 1789 hafa verksmiðjurnar fengið slökkvitæki, vatnsdælur, fötur, slöngur og brunastiga og mun þetta upphaf brunavarna I Reykjavík. Við báðum Lýð um að segja okkur svolítið fleira unt nætur- verðina, þörfina fyrir þá í bænum og um slökkvitækin. — Vaktar- arnir áttu aö labba um á nóttunni og hringja kirkjuklukkunum á hverjum heilum tíma. Síðan áttu þeir áð syngja vaktaravísu, sem ég hefi ekki getað fundið, sagði Lýður. Þeir áttu svo að syngja fyrir framan hús umsjónarmanns- ins og eins nærri rúmi hans og hægt var. Einnig víðar ef óskað var efti'r. Þannig hafa Reykvík- irigar' mátt Vakna við kirkju- klukkurnar á hverjum klukku- tíma. Vaktararnir áttu að lfta eft- ir hvort eldur væri laus, hvort nokkuð væri að bátum í höfninni og sjá til þess, að lausu bryggjurnar væru hæfilega langt sögu Reykjavíkur MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNl 1974 33 frá og kalla út hjálparlið, ef eitt- hvað var að. — Vaktaraembættið var ekki vel þokkað. Og 14. desember 1789 var opnað fyrsti vínskenkurninn hérí bænum. Ekkjufrú Angels opnaði veitingahús þar sem nú er Aðal- stræti 16. Þaó hafði víst ekkert góð áhrif í bænum. 18. marz kvartar framkvæmdastjóri Inn- réttinganna undan því, að annar vaktarinn fáist ekki til að gegna st'arfi sínu lengur og sé farinn á sjó. Vaktararnir áttu m.a. að gæta þess, að ekki væri hávaði í bæn- um á nóttunni og gekk honum ekki vel að þagga niður i hávaða- seggjunum eftir að vískenkurinn kom. Var fremur hætt við, að þeir, sem ollu hávaðanum, réðust á hann. Var þá farið fram á, að vaktararnir fengju opinbert erindisbréf og heyrðu undir land- fógeta, sem hafði á hendi lög- reglustjórn í bænum. En fram að því höfðu þeir verið á vegum Inn- réttinganna. 1799 eru heimildir fyrir því að vaktararnir voru komnir með morgunstjörnur. Ég hefði gaman af að sjá slíkan grip. Því ég veit ekki til, að morgun- stjarna sé nokkurs staðar til enn hér á landi, sagði Lýður. — Um brunavarnir er það að segja, að elztu reglur um bruna- varnir eru frá 1773. Þá var bann- að að fara óvarlega með eld á milli húsa. 1789 telur rentu- kammerið þörf á að senda slökkvitæki til landsins og eru þau tiltekin, 4 talsins, því nú sé hér ekki aðeins iðnaðar- og verzlunarhús heldur líka hús í opinberri eigu og einkaeigu. Þessi tæki komu svo með fálkaskipinu. Stiptamtmaður samdi tillögur að mjög ítarlegri reglugerð um slökkvilið og brunavarnir, sem hann sendi rentukammerinu. Eg hefi hvergi séð þær staðfestar, en afrit af þeim eru í bréfasafni stiftamtmanns. Fyrsti iönskólinn 1 þriðju málsgrein segir Lýður í erindi sínu: c) Með rentukammersbréfi, dagsettu 15. júlí 1783, voru Inn- réttingarnar skyldaðar til að ráða 2 stúlkur og 1 pilt úr hverri af eftirtöldum sýslum: Mýra-, Ár- nes-, Rangárvalla-, Húnavatns- og Eyjafjarðarsýslu, og kenna þeim vefnað og spuna og af bréfum frá Runólfi Klemenssyni til stiftamt- manns, dagsettum 1. febrúar 1792 og 3. nóvember sama ár, má ráða, að þar hafa líka stundað nám ung- menni úr Borgarfjarðar- og Gull- bringusýslu. Ungmenni þessi fluttu verkkunnáttuna með sér heim í hérað og vefstól að auki, sem verksmiðjurnar úthlutuðu þeim ókeypis. Innréttingarnar eru þvf fyrsti iðnskóli Islands. Er við spurðum Lýð nánar um þennan fyrsta iðnskóla á Islandi, kvað hann þörf á að fara nánar ofan í þetta mál og rekja verk- kunnáttu þessa fólks og þau áhrif, sem það hafði heima I sveitunum, þau gætu verið mun meiri en menn hefðu viljað vera láta. Að lokum skal aðeins vitnað í eina málsgrein í erindi Lýðs Björnssonar, sem hér hefur aðeins verið gripið ofan í. Þar segir: Skúli játar I greinargerðinni til Landsnefndar fyrri, að fyrir vangá hafi þess ekki verið gætt að reisa íbúðarhús yfir æðstu stjórn- endur veraldlega innanlands, landfógeta, amtmann og land- lækni ásamt húsnæði fyrir apótek í Reykjavík, en þar ættu slik hús að 'vera í réttu lagi, enda væru erfiðleikar með böðskipti milli embættismanna, þ.e. umræður og bréfaskipti, eitt þeirra atriða, sem hindruðu framfarir á Islandt. Hann hefur því um 1770 verið þeirrar skoðunar, að heppilegt væri að efla Reykjavík og gera hana að éiris konar veraldlegi-i stjórnsýSlumiðstöð innarilánds, og má mikið vera, ef harin er ekki höfundur þeirrar hugmyndar. Nafngiftin Faðir Reykjavíkur virðist því réttmætt. Nú hefur Lýður, sem kunnugt er, meiri þekkingu en flestir á samskiptum Islendinga og Dana á þeim öldum, sem ömurlegastar voru hér og því spurðum við hann I framhaldi af þessu, hvaða við- horf hann hefði til samskipta Dana og íslendinga. — Eg vil að íslendingar leggi til við norska stórþingið, að danska þjóðin verði sæmd friðarverð- launum Nóbels fyrir þetta ár vegna þess fordæmis, sem hún hefur síðustu áratugina gefið öðr- um þjóðum um það hvernig eigi að umgangast aðra þjóð, sem einu sinni var hluti af hennar riki. Má þar vísa beint I handritamálið. Engir aðrir en Danir hafa gert það, að skila því, sem þeir einu sinni voru búnir að fá I söfn hjá sér. Það er löngu kominn tími til þess að við hættum að ala á Dana- hatri. Það gerði sitt gagn — I sjálfstæðisbaráttunni. En hún er löngu búin gagnvart Dönum. — Ekki þarf að fara langt ofan I sögu Innréttinganna til að sjá hve mikið konungur lét af hendi til þessara mála, segir Lýður enn- fremur. Og þegar ég var að vinna að sögu sveitarstjórna á íslandi fyrir tímabilið 1850—70, þá þakkaði ég stundum fyrir að það skyldi hafa verið danskur kóngur, sem þá réð yfir íslandi og stöðvaði t.d. samþykkt frumvarps til laga frá Alþingi Íslendinga um að takmarka leyfi til giftinga við svo og svo mikla eign. T.d. átti tómthúsmaður að vera formaður á báti til að mega gifta sig. Var þetta samþykkt með 17 atkvæðum gegn 8. Á móti voru 3 konung- kjörnir þingmenn og 5 þjóðkjörn- ir, t.d. Jón Sigurðsson á Gautlönd- um, Arnljótur Ólafsson, Bergur Thorberg og Eirikur Kúld, sem taldi samþykkt slíks frumvarps hafa það eitt í för með sér, að lausaleiksbörnum fjölgaði, enda væri körlum og konum ekki bann- að að elskast heldur aðeins að giftast. Þessi afstaða Eiríks gefur tíl kynna hvaða skoðun Jón Sigurðs- son forseti hefur haft á málinu. Valdsmenn erlendis voru sumir hverjir hinir nýtustu menn. Eg álít t.d., að Thodal stiftamtmaóur, sem reyndar var norskur, verð- skuldi annað af hálfu íslendinga, fyrir drengilega framkomu I Móðuharðindunum og skörungs- skap oftar, en að vera gerður að hálfgerðu dusilmenni og er þetta sagt af gefnu tilefni. — Nú er Jörundur hundadaga- konungur mikið I tízku og hver um annan keppist við að gera hann að frelsishetju. Hvað finnst þér um hann? — Ja, ég veit ekki hvað hefði gerzt hér, ef hann hefði verið lerigur við völd og vil ekki taka neina ábyrgð á honum hér. En hann gafst ekkert vel I Hobbart I Tasmaníu, þar sem hann var lög- reglustjóri sfðar á ævinni. — Við viljum nú gjarnan gera frelsisbaráttu úr komu hans? — Já, og e.t.v. á það rætur að rekja til einhvers konar minni- máttarkenndar, en Íslendingar þurfa yfirhöfuð ekkert að skammast sln fyrir sjálfa sig á 18. öldinni og fyrri hluta 19. aldar. Ég held jafnvel, að á þessu tima- bili hafi þeir unnið sln mestu afrek og er þá tekið tillit til að- stæðna. Þetta var alveg ge.vsilega erfitt tímabil og raunar merki- legt, að þjóðin skyldi lifa það af og vera jafnframt sífellt að búa I haginn fyrir komandi kynslóðir. Og ef við nefnum 17. öldina, þá megum við vera montin af því að hafa aldrei gleypt hráar galdraof- sóknir Evrópu. Galdraofsóknir 17. aldar hér eru afsprengi alþjóð- legrar hugmyndafræði þess tíma og voru fluttar inn af nokkrum menntamönnum. en ekki verður séð, að þau vísindi hafi höfðað til þjóðarinnar. Þarna er eitt svið, sem mig langar að kanna, þ.e. hugsanaheimurinn á bak við galdrana, er raunar bvrjaður að grúska I því, en vinna við sveitar- stjórnarsöguna situr f.vrir. Verk efnin eru alls staðar. Þar með ljúkum við þessu spjalli við Lýð Björnsson, sem hófst með því, að við fórum að grípa niöur erindi hans um Inn- réttingarnar — E. Pá — Glefsur úr sögu Reykjavíkur VAL Helmut Schmidts kanslara á Hans Dietrieh Genscher, hinum nýja utanrík- isráðherra Vestur-Þýzkalands, var að áliti margra þeirra, sem gjörla hafa fylgzt með stjórn- málum þar I landi, harla sér- kennilegt. Að visu valdi hann mann I utanrikisráðherra- embættið úr hópi frjálsra demókrata, eins og Willy Brandt hafði gert, en að þessu sinni er um allt annars konar persónuleika að ræða en hinn vinsæla og virta stjórnmála- mann Walter Scheel, sem nú er orðinn forseti Vestur-Þýzka- lands. Genscher er 47 ára að aldri, þybbinn og að sumra smekk þumbaralegur og rogg- inn. Valið þykir fyrst og fremst sérkennilegt sökum þess, að Genscher hefur mjög litla reynslu I utanríkismálum og talar ekkert annað tungumál en þýzku. Genscher hafði verið innan- ríkisráðherra frá árínu 1969. I því embætti barðist hann fyrir því, að lögreglu landsins væri breytt I nútímalegra horf og kom fram sem harðske.vttur vörður laga og reglu ekki sízt fyrir að ganga á milli bols og höfuðs á Baader-Meinhof glæpaflokknum. Einnig kom hann því til leiðar. að kosninga- aldur var lækkaður úr 21118 ár og hóf markvissa umhverfis- verndaráætlun. i skoðanakönn- un, sem gerð var I april, var hann þriðji vinsælasti stjórn- málamaður landsins — næstur Brandt og Seheel. Þess er vænzt I Bonn að Genscher muni taka við af Scheel sem formaður flokks frjálsra demókrata I haust. Afskipti Genschersaf utanrík- ismálum hafa, eins og fyrr seg- ir, verið litil. en t.d. átti hann sæti i sendinefnd frjálsra demókrata, sem ræddi við Kosygin forsætisráðherra Sovétríkjanna I Moskvu árið 1969. og hann hefur einnig hvatt til gagnkvæmra afvopn- unarsáttmála við Varsjárbanda- lagsrfkin. Talið er. að Scmidt og Genscher muni I stefnumálum sínum og starfsaðferðum verða talsvert frábrugðnir Brandt og Scheel. Að minnsta kosti i tipp- hafi er ekki á milli þeirra það vináttusamband og gagnkvæm virðing, sem ríkti á milli Brandts og Scheel, hvað sem sfðar verður. Jafnaðarmaður- inn Schmidt hefur aldrei borið sérlega hlýjan hug til Genschers, hins fhaldssama einkaframtaksmanns, og kann að not-færa sér tengsi hans við Guillaume-njósnahneykslið, sem varð Brandt að falli. Það var einmittGenschersemí emb ætti innanríkisráðherra til- kynnti Brandt I maí 1973, að Guillaume, einn af nánustu samstarfsmönnum kanslarans, kynni að vera njósnari Austur- Þjóðverja. Genscher kann þvi að verða fyrir ásökunum um að hafa ekki gert nógu gagngerar ráðstafanir til að koma I veg fyrir, að Guillaume ætti aðgang aó leyniskjölum. Hann er eini háttsetti ráðherrann I stjórn- inni, sem tengdur er hnevksli þessu og er enn við völd. Ekki eru þó taldar miklar líkur á þvi, að Schmidt muni revna að beita Genscher þrýstingi. t.d. vegna þess aó flokkur Genschers er i I.vkilaðstööu á þingi. i utanríkismálum er talið. að Schmidt og Genscher muni halda áfram .austur'-stefnu Brandts og Scheel. en þó ekki með jafnmiklum eldmóði. Genscher flúði frá Austur- Þýzkalandi árið 1952 og ber ekki sama traust til ríkisstjórna Austur-Evrópurikjanna og Brandt og Scheel gerðu. Hvað varðar Efnahagsbandalagið er Genscher talinn mjög hlvnntur auknu og nánara samstarfi Evrópuríkja, en Sehmidt kannslari hefur hins vegar sagt, að stjórn sín muni vera varkár f þeim efnum og ekki tefla efnahag Vestur-Þýzka- lands í hættu vegna Evróþu- bandalags, sem kann svo að revnast óstarfhæft. I varnar- málum er Genscher fylgjandi áframh'aldandi aðild að Atlants- hafsbandalaginu og litur hann á utanrikismál og varnarmál sem mjög samtvinnaða mála- flokka. Hans-Dietrich Genscher er lögfræðingur að mennt og gerð- ist fljótlega eftir flóttann frá Austur-Þýzkalandi flokksmað- ur frjálsra demókrata. Frami hans innan flokksins var skjót- ur og hann hefur gegnt miklum fjölda trúnaðarstaða fyrir hann. Þingmaður varð Genscher árið 1965 og vafafor- maður flokksins 1968. Genscher * Ovænt skipaður utanríkis- ráðherra Vestur-Þýzkalands

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.