Morgunblaðið - 01.06.1974, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNI 1974
Bœndurnir í Haga
í Grímsnesi
Helgi Guðnason
Fæddur 1. desember 1914
Dáinn 4. aprfl 1974
,,Syrgir ekkja, sakna börn.
Skaró er oröiö í skíldi sveitar-
félags Grímsnesinga." Þessar
setningar eru skráðar i 132 ára
gamalli grafskrift um frænda
okkar í Búrfellskirkju. Mér finnst
þær gætu átt við enn í dag, þegar
þau sorgartíðindi spurðust, að
feðgarnir Helgi og Guðmundur í
Haga væru allir. Hvernig mátti
þetta verða? Þessir menn þekktu
vatnið og staðhætti betur en flest-
ir aðrir, en vegir Guðs eru
órannsakanlegir.
Helgi Guðnason var fæddur f
Haga 1. desember 1914. Foreldrar
hans voru Elísa Bjarnadóttir og
Guðni Magnússon, sem bjuggu í
Haga allan sinn búskap, en þessi
ætt hefur nú búið f Haga á aðra
öld. Olöf, amma mín, sem bjó í
Vatnsholti, næsta bæ við Haga,
sagði mér margar sögur af vin-
áttu, tryggð og hjálpsemi þessa
fólks. Þessir eiginleikar voru
Helga i blóð bornir og veit ég, að
margir Grímsnesingar telja sér
eiga Helga skuld að gjalda. Helgi
kvæntist Kristrúnu Kjartansdótt-
ur frá Austurey í Laugardal, vor-
ið 1943 og hófu þau búskap árið
eftir í Haga. Helgi var mikill
dugnaðarbóndi, fóðraði allan sinn
fénað tíl hámarksafurða, smiður
var hann ágætur og bera bygging
ar í Haga þess vott, að þar fór
saman hugur og hönd. Ibúðarhús
sítt og útihús öli byggði Helgi á
þessum 30 ára búskapartíma sín-
um. Já, mörgum verkum kom
Helgi af til bóta fyrir jörð sfna,
t.d. var það ekki heiglum hent að
gera 6 km langan veg upp að Haga
upp á sitt einsdæmi, en þannig
var Helgi, einbeittur, viljasterkur
— snyrtimenni svo af bar —.
Þau Helgi og Kristrún
eignuðust þrjú börn, Ragnhildi,
sem er gift Hafliða Sveinssyni og
býr á Ósabakka á Skeiðum,
Kjartan, kvæntur Erlu Sigurjóns-
dóttur frá Stóru-Borg og býr í
Haga og Guðmund, sem fór sína
hinstu för með föður sínum.
Guðmundur
Helgason
Fæddur 21. september 1948
Dáinn 4. apríl 1974
Guðmundur var fæddur í Haga
21. september 1948. Hann ólst þar
upp með foreldrum og systkinum
og vildi hvergi frekar vera en
heima í Haga. Sjaldan fellur eplið
langt frá eikinni, segir gamalt
máltæki og átti það vel við hér.
Guömundur fór í íþróttaskólann f
Haukadal til Sigurðar Greipsson-
ar og lagði alla stund síðan rækt
við íþróttir, einkum glímu og
körfubolta. Þá lá leiðin að Hvann-
eyri og lauk hann búfræðiprófi
1968. A Hvanneyri kynntist Guð-
mundur konuefni sínu, Aslaugu
Harðardóttur, ættaðri frá Hrygg
í Hraungerðishreppi. Hún lauk
kandidatsprófi í búfræði frá
Hvanneyri, svo vel voru þau hjón
undír lífsstarfið búin, búskapinn,
sem hugur þeirra stóð til.
Guðmundur og Áslaug voru ný-
búin að byggja vandaö íbúðarhús
í Haga og nú í vor ætluðu þeir
bræður að ráðast í fjósbyggingu
og voru búnír að kaupa mestallt
efni og annan undirbúning, sem
Elísabet Samúels-
dóttir—Minning
Helgi Guðnason
t
Tengdasonur okkar,
GERARD A. BANNON jr„
starfsmaður Loftleiða h.f. á Kennedyflugvelli,
lézt af slysförum 1 6. mal siðastliðinn.
Jarðarförin fór fram I Uniondale, New York, 2 1 maí.
Fyrir hönd dóttur okkar
Hafdfsar Bannon.
Jónína og Einar Símonarson.
Guðmundur Helgason
til þurfti, en enginn má sköpum
renna.
Ég, sem þessar línur rita, átti
því láni að fagna að eiga Guð-
mund að vini og félaga. Við
störfuðum saman í Ungmenna-
félaginu Hvöt, þar sem Guðmund-
ur var formaður í 2 ár, en gaf ekki
kost á sér lengur, þegar hann
byrjaði á íbúðarhúsi sínu heima í
Haga. Hann var samt alla tíð vel
virkur félagi, en vildi vera heill
en ekki hálfur i öllu. Við vorum
vinnufélagar á skurðgröfu að
sumarlagi, svo að ég á margar
góðar minningar um góðan dreng,
sem var kappsfullur að hverju
sem hann gekk og vildi ekki láta
sinn hlut eftir liggja.
Guðmundur og Áslaug áttu
einn son, Hörð Óla, 4 ára gamlan,
augastein pabba og mömmu.
Víð hjónin biðjum góðan Guð
að styrkja þær Kristrúnu og Ás-
laugu og annað heimilisfólk i
Haga í þeirra djúpu sorg.
Böðvar Pálsson.
F. 18. ágúst 1913
D. 25. maí 1974 '
„Blessuð von i brjósti mínu
bú þú meðan hér ég dvel.
Lát mig sjá í ljósi þinu
Ijómann dýrðir bak við hel“
Á ÖLLUM tímum bresta hlekkir í
frænda- og vinakeðju. Ástvinir
kveðja þennan heim, og hverfa
sjónum okkar, sem eftir sitjum.
Við vorum 7 systkinin, sem áttum
þvi láni að fagna að hafa getað
haldið sambandinu um 60 ára
skeið, þó ekki hafi ætið legið
saman leiðir.
ViA áttum ástrika, góða og
heiðarlega foreldra, sem innrættu
okkur það bezta, sem gefur lífinu
gildi — einnig yfir landamæri lifs
og dauða. Við áttum skemmtileg
æskuár, þar sem söngur var í há-
vegum hafður, enda bæði for-
eldrar og börn i kórum eftir þvi
sem aldur og ástæður leyfðu. Það
var því mikið sungið á heimilinu,
og við systkinin 7 gátum um tíma
átt okkar eiginn þríraddaða kór.
Nú er ein röddin brostin — sú
fyrsta, sem hverfur úr hópnum.
Það verður ævinlega sérstakur
tregablær, þegar fyrsti hlekkur-
inn brestur í keðjunni.
Það verður einnig tómlegt að
koma í Túngötu 5 á isafirði, þar
sem Bubba og eiginmaður
hennar, Einar Gunnlaugsson hafa
búió í yfir 40 ár. Hún var ætíð svo
hress og mikið líf í kring um
hana.
Þegar við lítum til baka, þá
finnst manni ekki svo ýkja langt
síðan við lékum okkar barnaleiki,
en svona er lífið, það er alltaf
einhver að kveðja. En þegar árin
færast yfir, og litið er yfir liðinn
dag, þá eru svo ótal margar
dásamlegar minningar, sem ylja
um hjartarætur, að þakkir verða
efst i huga.
Við ræddum einmitt um þetta
systurnar einn dag fyrir rúmum
mánuði sfðan, þegar hún lá á
Landakotsspítala. Annars var hún
mjög dul, en mjög sterk. Við vor-
um ásáttar um það, að okkur væri
eiginlega ekkert að vanbúnaði.
Við ættum yndisleg börn og
barnabörn. Þau kæmu sér vel
áfram og væru nýtir þegnar síns
lands. Við ættum okkar barnatrú
— værum sáttar við Guð og menn.
Hvað meira er hægt að óska sér?
Eg fann þó, að umhugsunin um
eiginmanninn olli henni áhyggj-
um — en einhver verður alltaf að
verða eftir — tíminn er fljótur að
líða, og hann er ekki einn. Samt
-L
t Þökkum innilega sýnda samúð við andlát og útför mannsins míns, föður okkar. tengdaföður og afa.
Eiginmaður minn og faðir okkar. JÓNS LÝÐSSONAR,
TRYGGVI J. JÓAKIMSSON, Grettisgötu 73.
ísafirði,
andaðist miðvikudaginn 29. maí. Innilegar þakkir færum við öllum þeim, læknum og hjúkrunarkonum, sem veitt hafa aðstoð í veikindum hans.
Birna Sigurðardóttir og börn. Guðrún Glsladóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir/áfí ÖCj lamgafi, / - , í t Beztu þakkir fyrir auðsýnda vináttu vegna fráfalls
MAGNÚS SIGGEIR BJARNASON, ? EINARS VIGFÚSSONAR, cellóleikara.
fyrrv. verkstjóri frá Smiðshúsum, Eyrarbakka, P í
andaðist á Elli- oa hjúkrunarheimilinu Grund þann 30 mai ti; '■ ■ Si '2 • <1: (1(1 Guðrún Pállna Guðjónsdóttir, i
;§ Líney Pálsdóttir,
böm, tengdabörn, barnabörn Guðrún Sveinsdóttir, Elfn Halldórsdóttir,
og barnabarnabörn. % ■i Herdis Vigfúsdóttir, Valtýr Pétursson.
.l(>/1 i; ; A<\ /Mijij'ííí.luit-ní: .> i 'uuiíhISIihI* ifO tu . í
t SIGRÍÐUR TÓMASDÓTTIR, t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför systur
Hrauntungu 6. minnar,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4 júní kl. 1 3.30. GUÐFINNU SIGURÐARDÓTTUR,
Akurgerði 1 6.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Stefanía Ragnheiður Pálsdóttir. Ólafla Sigurðardóttir.
gerði hún ekki uppskátt, að enda-
lokin væru ef til vill ekki langt
undan — en ef svo væri — þá er
allt í hendi Guðs.
Við söknum Bubbu — söknuður
er mannlegur og gerir ætið vart
við sig á skilnaðarstundum. En á
bak við öll ský skín sólin. Á bak
alls trega þorna tárin. Og að baki
vonar er vissan — vissan um
eilífa lífið, trúarvissan, sem er
líftaug mannlegrar tilveru.
Jesús sagði: Ég lifi, og þér
munuð lifa — Trúið á Guð og
trúið á mig — Sá, sem trúir á mig,
mun lifa þótt hann deyi.
Efnislega séð hefur Bubba
sungið þetta í kirkjunni sinni á
Isafirði um 45 ára skeið — þetta
var stór hluti af hennar lífi.
Við þökkum elskulegri systur
allar dásamlegu samveru-
stundirnar. Við biðjum eigin-
mann hennar, börnum, tengda-
börnum og barnabörnum bless-
unar Drottins.
Við óskum Bubbu góðrar heim-
komu og biðjum henni allrar
blessunar.
Með ástkærri kveðju frá
systkinum.
H.T.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf,
að afmælis- og minningar-
greinar verða að berast blað-
inu fyrr en áður var. Þannig
verður grein, sem birtast á i
miðvikudagsblaði. að berast
f sfðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag, og hliðstætt með
greinar aðra daga. — Grein-
arnar verða að vera vélritað-
ar með góðu línubili.
t
Móðir mín, tengdamóðir, amma
og systir,
GUDMUNDA SIGRÍÐUR
HANNESDÓTTIR,
sem andaðist 24 maí að Elli
og hjúkrunarheimilinu Grund,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju 5. júní kl, 1.30 e.h.
Ólafur Sigurðsson,
Sólrún Guðbjörnsdóttir.
Hjörtur Þór Ólafsson,
Jóhannes Hannesson,
Guðmann Hannesson
t
Þökkum innilega samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför
SIGURUNNAR
ÞORFINNSDÓTTUR,
Blónduósi
Vandamenn.