Morgunblaðið - 01.06.1974, Page 44

Morgunblaðið - 01.06.1974, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JUNÍ 1974 Frá skátamóti í Botnsdal Landsmót skáta að r Ulfliótsvatni í sumar Landsmót skáta, hið sextánda í röðinni, verður haldið að Úif- ljótsvatni dagana 14.—21. júlí n.k. en undirbúningur fyrir það er nú hafinn af fullum krafti. Vegna iandsmótsins og með tiiliti til framtíðarreksturs hefur mótsstjórn gert áætlanir um uppbvggingu mótsstaðarins í samráði við Úlfljótsvatnsráð. Verið er að leggja nýja vatns- veitu með virkjun linda og í bígerð er að smfða snyrtihús með vatnssaiernum og böðum, ieggja skólplagnir og rotþrær, gera bíiastæði og vegabætur auk uppgræðsiu á landi með sáningu og áburðardreifingu. Verður þetta fjölmennasta landsmót, sem hér hefur verið haldið, en áætlað er, að á þriðja þúsund skáta sæki mótið. úm 250 erlendir skátar hafa boðað komu sína á mótið, flestir frá Norðurlöndunum en auk þess frá Grænlandi, Frakklandi, Englandi, Sviss, Þýzkalandi og Bandaríkjunum. A Landsmótinu í sumar verð- ur mjög fjölbreytt dagskrá og geta þátttakendur valið um leiki og þrautir, keppni af ýmsu tagi, fræðslu og ferðalög. Keppni skátaflokka og drótt- skátasveita, sem hófst í febrú- ar, lýkur á mótinu, Þá verður haldið íþróttamót og ekki má gleyma varðeldum af ýmsu tagi. Aætlað er. að ylfingar og ljósálfar heimsæki mótið og verður þá sérstök dagskrá fyrir þau. Laugardaginn 20. júlí verður mótssvæðið svo opið til heimsókna. Þjónustustarfsemí af ýmsu tagi verður rekin á mótinu og má þar m.a. nefna almenna póst- og símaþjónustu, full- komna sjúkrahjálp með lækni og hjúkrunarkonu auk þess sem Landsbankinn mun starf- rækja þar útibú. A meðan mót- ið stendur yfir verður gefið út dagblað, sem flytja mun fréttir af mótinu, viðtiil. greinar og annað efni. sem mótsgestir vilja koma á framfæri. Tvær tjaldbúðir verða á mót- inu, skátatjaldbúð og fjöl- skyldutjaldbúð. Skátatjaldbúð- in er fyrir alla starfandi skáta og fær hvert félag þar sitt af- markaða svæði, sem það á að sjá um. I fjölskyldutjaldbúð geta dvalizt hjón með börn sín undir skátaaldri, ef annað hvort hjónanna eða bæði hafa verið skátar, eða ef þau eru foreldrar skáta. Ramma mótsins hafa skátar nefnt ..Landnám ', en með þvi vilja þeir minnast 1100 ára landnáms á Islandi og hvetja til nýs „landnáms" skáta á Úlf- ljótsvatni. Mótsstjóri verður Bergur Jónsson verkfræðingur en með honum í mótsstjórn eru Unnur Seheving Thorsteinsson, sem er varaformaður, Jarl Jónsson fjármálastjóri, Magnús Hall- grimsson tæknistjóri, Sigurjón Mýrdal dagskrárstjóri og Inga Jóna Þórðardóttir útbreiðslu- stjóri og ritari mótsstjórnar. Umsóknarfrestur er til 1. júní n.k. Fyrir þann tima þarf að greiða 1000 kr. tryggingagjald, en þátttökugjald er alls 4800 kr. fyrir einstakling i skátabúðun- um allan mótstímann. 1 þvi gjaldi er innifalið matur, móts- handbók og mótsmerki. Eins og gefur að skilja er nóg að gera við undirbúning móts- ins og hjálpfúsar hendur þvi vel þegnar. Sjálfboðaliðaferðir verða farnar hverja helgi fram til móts. Skorað er á alla skáta 15 ára og eldri að koma til vinnu. Ferðir eru þátttakend- um að kostnaðarlausu, drykkir og ein heit máltíð á dag. Þátt- takendur þurfa að skrá sig á skrifstofu BlS, Blönduhiíð 35. Þess má að lokum geta, að margir erlendu skátanna óska eftir að fá að dveljast á íslenzk- um heimilum í allt að vikutíma eftir mótið. BÍS fer þess á leit við fólk, sem hefur hug á að bjóða heim einum eða fleirum erlendurn skátum, að hafa sam- band við skrifstofuna. 4* -4 4 Merki landsmótsins r — N-Irland Framhald af bls. 27 íngu haldið áfram og ákveðið að hefja verkfallið um miðjan maí- mánuð, — ef hið svonefnda Sunningdale-samkomulag um trlandsráðið o.fl. yrði samþykkt í endanlegri atkvæðagreiðslu á fieimaþinginu í Stormont, 14. mai. Daginn fyrir atkvæðagreiðsl- jna skýrðu forystumenn UWC þeim Craig og Paisley frá fyrir- ætlan sinni. Þeir reyndu að telja þá á að bíða með verkfallið, vildu reyna frekari stjórnmálaleiðir og jafnvel efna til smáskæruverk- falla á stöku stað, áður en til svo rótttækra aógerða væri gripið. En allt kom fyrir ekki og eftir að Sunningdale-samkómulagið hafði verið samþykkt í Stormont með 44 atkvæðum gegn 28, var verk- fallinu lýst yfir. Straumrof, götuvígi og hótanir . . . Megináherzlan hafði verið lögð á að undirbúa verkfall í rafstöð- um og vélaiðnaði og fór þegar að bera á rafmagnsskorti. Jafnframt hafði ráðið komið sér upp nefnd- um á öllum stærstu og veigamestu vinnustöðum og sýndi sig nú, að þær höfðu unnið vel. Þegar næstu daga lagðist niður vinna í hverju fyrirtækinu á fætur Öðru hvort sem starfsfólkið vildi eða ekki. Sveitir úr varnarsamtökum Ulster UDA tóku þátt í aðgerðun- um og fóru vopnaðar kylfum og öðrum bareflum um verzlunar- hverfi víðsvegar um landið og neyddu kaupmenn til að loka verzlunum. Forystumenn ráðsins og helztu stjórnmálaforíngjar öfgasinna fóru stðan á fund brezka aðstoðar- ráðherrans, Stanleys Ornes, og settu fram kröfur sínar um af- sögn samsteypustjórnarinnar, af- nám irlandsráðsins og nýjar kosn- ingar, sem stjórnarmyndun yrði síðan byggð á, þ.e.a.s., að völdin kæmust aftur í hendur meirihlut- anum, mótmælendum, sem eru tveir þriðju hlutar íbúanna. Viðræðurnar urðu mjög harðar, — en þess er getið, að vinsemd hafi ekki verið mikil fyrir, því að Stanley Orne hafi verið þekktur fyrir samúð og stuðning við réttindabaráttu kaþólskra á árun- um fyrir 1970. Orne hafnaói enda öllum kröf- um mótmælenda og síðar lýsti Harold Wilson, forsætisráóherra Bretlands, því yfir, aó stjórn hans mundi ekki láta öfgamenn knýja sig til fráhvarfs frá fyrri stefnu. Um hana hefði veríð einhugur í brezka þinginu á sínum tíma og framtíð N-Irlands væri undir því komin, að henni yrði fylgt fram. Eftir þennan fund hljóp enn meiri harka í aðgerðirnar og svo sem kunnugt er af fréttum var allt athafnalff N-írlands lamað áð- ur en yfir lauk. Mjög var farið að sverfa að mörgum íbúanna, bæði vegna peningale.vsis og skorts á matvælum sem eyðilögðust í stór um stíl vegna verkíallsins, sem náði til vöruflutningaverka- manna sem annarra, er ekki fengu eldsne.vti á bifreiðar sinar. Götuvígi voru sett upp til að koma í veg fyrir, að fólk færi til vinnu sinnar og þeim hótað öllu illu, sem gerðu sig líklega til að brjóta boð verkamannaráðsins. Aðeins læknar og hjúkrunarfólk fengu að vinna og var þó takmarkað rafmagn til sjúkrahúsa. Af flest- um öðrum vinnustöðum var straumur alveg tekinn og jafnvel skólum varð að loka í miðjum prófum, sem olli mörgum óþægindum. A íbúðarhverfi var straumi hleypt öðru hverju en fyrirvaralaust og misjafnlega lengi í senn. Miklar deifur urðu um það ínn- an samsteypustjórnarinnar hvort beita skyldi brezka hernum gegn verkfallsmönnum. Kaþólskir voru því fylgjandi en Faulkner harð- neítaði. Meriyn Rees var heldur hlynntur íhlutun hersins, en her- stjórnin sjálf mjög hikandi — fékk þó þúsund hermenn til við- bótar þeim 15.500, sem fyrir voru. Eftir að verkfallið hafði staðið í viku var herliðinu beitt til að rífa götuvígi, en þau voru jafnharðan hlaðin á ný. Síðustu dagana var settur hervörður við olíustöðvar en margir höfðu af því áhyggjur, að brezki herinn stæði allt í einu milli vopnaðra sveita mótmæl- enda og lýðveldissinna, sem létu hatur sitt og reiði bitna á brezk- um hermönnum eigi síður en hver á öðrum. Östaðfestar fréttir hermdu raunar, að af hálfu hers- ins og lýðveldissinna — IRA — hefðu farið fram leynilegar vopnahlésviðræður. Alla vega hafði IRA sig lítt í frammi og sögðu kunnugir, að innan þeirra vébanda væri öllum kröftum beitt að liðssöfnun og undirbúningi hugsanlegra átaka við öfgasveitir mótmælenda. Eiga Bretar að fara eða vera? 1 Bretlandi gerast þær raddir æ sterkari, sem halda því fram, að brezka stjórnin eigi að láta N-Ir land lönd og leið, leyfa mótmæl- endum og kaþólskum að berast á banaspjót og þeim sterka að sigra. Fylgjendur þessarar stefnu benda á, að hverskonar viðleitni brezkra stjórnvalda til að leysa hnúta írlandsmálanna hafi beðið skipbrot; allar aðgerðir hafi verið of miklar fyrir annan aðilann og of litlar fyrir hinn, allt frá því Gladstone lagði fram frumvarp um heimastjórn Irum til handa árið 1886. Helzta röksemd gegn þessu er sú, að mótmælendur geti með sanni sagt, að Bretar hafi búið til þetta vandamál á sínum tíma — mótmælendur séu á Irlandi fyrir tilstilli brezkra stjórnvalda fyrr á öldum — og því beri Bretar ábyrgð á framtíð þeírra, beri skylda til að tryggja, að þeir verði ekki ofurseldir kaþólsku valdi. En þá benda talsmenn hinna á, að N-lrland geti orðið Bretlandi það sem Suður-Vietnam varð Banda- rikjunum. Reynslan hafi nú sýnt, að það sé sama hvað Bretar geri til að leysa málin af sanngirni, öfgasinnar mótmælenda og lýð- veldissinna muni ætíð — hvor fylkingin með sínum hætti — koma í veg fyrir, að Bretar losni við þennan þunga bagga með sæmilegri virðingu. Ríkjandi eru hinsvegar sjónarmið þeirra, sem segja það enga lausn, að Bretar láti af íhlut- un um málefni N-Irlands, þá megi búast við fullkominni borgara- styrjöld. Mótmælendur muni hefja hefndaraðgerðir gegn kaþólskum vegna hryðjuverka- starfsemi IRA á síðustu árum og þá hljóti frska lýðveldið óhjákvæmilega að dragast inn í átökin með ófyrirsjáanlegum af- leiðingum, sem aldrei gætu orðið Bretum til álitsauka. Fylgjendur þessa sjónarmiós telja, að halda beri áfram tilraunum á grund- velli Sunningdalesamkomulags- ins og brezku áætlananna frá 1973, hvað sem mótmælum og verkfallsaðgerðum lfði. Og þeir telja, að öfgasinnar n-írskra mót- mælenda hefðu fljótlega gefizt upp á verkfallinu, hefði sam- steypustjórnin þráazt lengur við. Með stofnun írlandsráðsins var stigið stórt skref til að sætta hina stríðandi aðila. Veigamestu atrið- in í þvi efni voru kannski annars- vegar viðurkenning írsku stjórn- arinnar á skiptingu Irlands og því, að mótmælendur yrðu ekki neyddir til sameiningar og hins- vegar, að ráðið átti að verða vett- vangur samvinnu milli iandshlut- anna, samvinnu, sem er óhjákvæmileg og hlýtur að fara vaxandi.m.a. vegnaaðildar Irlands og Bretlands að Efnahagsbanda- lagi Evrópu. Fengi þetta ráð friö til að starfa um hríð og sýna hvers samvinnan innan þess væri megn- ug, væri e.t.v. von um frið á Ir- landi. Þá væri hugsanlega hægt að sannfæra íbúana, sem stutt hafa öfgafylkingar beggja aöila, um að sá kostur væri a.m.k. skömminni til skárri en stöðugar blóðsúthellingar. —mbj.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.