Morgunblaðið - 11.07.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1974
Heimsmet íslendinga:
3% þjóðarinnar
til útlanda í júní
■■MIIHI 'Illl|||j
ÍSLENDINGAR eru drjúgir við
að setja heimsmetin þessa dagana
og f júnfmánuði settu þeir enn
eitt. Þá fóru 3% þjóðarinnar f
ferðalög til útlanda eða um 7000
manns. „Og þetta mun vera
algjört heimsmet, ef við miðum
við höfðatöluna,“ sagði Lúðvfg
Hjálmtýsson formaður Ferða-
málaráðs, þegar við ræddum við
hann f gær.
Lúðvíg sagði, að fyrstu sex mán-
uði þessa árs hefði ferðamönnum
farið fækkandi og miðað við síð-
asta ár næmi fækkunin 8.6%.
Þetta ætti þó ekki við um ferða-
menn frá öllum þjóðum, Bretar
hefðu komið hingað í auknum
mæli á þessu ári, og miðað við
fyrstu sex mánuði síðasta árs
hefðu komið hingað 4,3% fleiri
Bretar á þessu ári. Mun þetta
fyrst og fremst stafa af þorska-
stríðinu, sem þá geisaði og hafði
mikil áhrif á hingaðkomu Breta.
Þá hefur þýzkum ferðamönnum
einnig fjölgað nokkuð eða um
6.9%. Bandarískum ferðamönn-
um hefur hins vegar fækkað um
5.2%. Ástæðan fyrir þvf er sú, að
mikill áróður er nú rekinn fyrir
því í Bandaríkjunum, að fólk
ferðist minna út fyrir landið en
áður.
Ennfremur sagði Lúðvíg, að
ekki væri enn Ijóst hvort Islend-
ingar myndu slá heimsmet sitt frá
því í júní f þessum mánuði. Margt
benti til þess, að svo yrði ekki.
Fólk, sem ætlaði sér til hinna
suðlægari landa, væri farið að
velja fyrri hluta sumars til slíkra
ferða og svo haustin. Miðsumarið
væri að flestra dómi of heitt fyrir
Islendinga. Þá ætluðu margir sér
að vera heima um þjóðhátíðina.
Árið 1972 fóru 30 þúsund ís-
lenzkir orlofsþegar í ferðalög til
útlanda, en þá voru um 80 þúsund
orlofsþegar í landinu. — Þetta er
gífurlega stór hluti orlofsþega og
erum við langt fyrir ofan aðrar
þjóðir hvað þetta snertir, sagði
Lúðvíg, og ekki er vitað um neina
aðra þjóð, þar sem yfir 1% af
íbúafjöldanum færi í ferðalög til
útlanda á einum mánuði.
Opnun hringvegarins
FORMLEG opnun vegar um
Skeiðarársand verður á sunnu-
daginn. 14. júlf. 1 þvf tilefni
verður efnt til hátfðahalda á
sandinum — við lengstu brú á
tslandi — sem tengir saman
hringveg um landið. Hátfða-
höldin hefjast kl. 13.20 nærri
vestari brúarsporði Skeiðarár-
brúar með leik lúðrasveitar. Er
það Skólahljómsveit Kópavogs,
sem leikur undir stjórn Björns
Guðjónssonar. KI. 13.30 verður
hátfðin sett af sýslumanni Skafta-
fellssýslu. Að þvf búnu flytur
samgönguráðherra ræðu og
Fngin ákvörðun um lokun
hluta Strandagrunns
ENN hefur sjávarútvegsráðherra
ekki tekið ákvörðun um, hvort
friða skuli stórt hafsvæði á
Akraborg í
skemmtiferð
M/S AKRABORG fór í skemmti-
ferð s.l. sunnudag. Siglt var um
Sundin og inn í Hvalf jörð. Þá var
siglt til Akraness, en farþegar
notuðu tfmann og skoðuðu bæinn.
Fullskipað var í ferðinni, um 500
farþegar og er fyrirhugað að fara
slíkar ferðir í sumar, þegar vel
viðrar og þá helzt um helgar.
Dregið í
happdrætti
Háskólans
Miðvikudaginn 10. júlf var
dregið í 7. flokki Happdrættis Há-
skóla Islands. Dregnir voru 4,200
vinningar að fjárhæð fjörutíu
milljónir króna.
Hæsti vinningurinn, fjórir
milljón króna vinningar, komu á
númer 18134. Tveir miðar af
þessu númeri voru seldir í
umboði Valdimars Long í Hafnar-
firði, sá þriðji f Aðalumþoðinu f
Tjarnargötu 4 í Reykjavík og sá
f jórði á Neskaupstað.
500,000 krónur komu á númer
46998. Voru aUir fjórir miðarnir
af því númeri seldir á Akureyri.
200,000 krónur komu á númer
52589. Tveir miðar voru seldir á
Akureyri og hinir tveir f um-
boðinu á Tálknafirði.
50,000 krónur:
1337 1585 1886 1909 1969
3940 7249 9621 10464 13624
14418 17432 18133 18135 21468
21881 24376 25394 27588 28931
29141 30854 32406 34379 35223
36348 42685 43903 45854 47331
48490 48497 49167 49589 50152
50835 53808.
Strandagrunní, en bæði Fiskifé-
lag tslands og Landssamband fsl.
útvegsmanna hafa mælt með þvf,
að það verði gert samkvæmt til-
lögu Hafrannsóknastofnunarinn-
ar. Búizt var við, að ákvörðun um
friðun svæðisins yrði tekin f dag,
en svo virðist, sem Lúðvfk Jóseps-
son, sjávarútvegsráðherra, ætli
eitthvað að draga þetta mál á
Ianginn.
einnig vegamálastjóri, er lýsir
gerð framkvæmda. Sfðan mun
samgönguráðherra opna hring-
veginn formlega.
Hátíðahöldin hefjast síðan kl.
14.15 á sérstöku hátíðarsvæði rétt
hjá brúnni og eru það þjóð-
hátíðarnefndir í Austur- og
Vestur-Skaftafellssýslu, sem sjá
um þau. Hefjast þau með helgi-
stund biskupsins yfir Islandi,
herra Sigurbjörns Einarssonar.
Ræður flytja Eysteinn Jónsson,
fyrrverandi formaður sameinaðs
Alþingis og Matthías Johannes-
sen formaður Þjóðhátíðarnefndar
1974. Þá verður samfelld dagskrá
um Skeiðarársand, sem Páll Þor-
steinsson fyrrverandi alþingis-
maður hefur tekið saman.
Milli dagskráratriða syngur
samkór Skaftfellinga undir stjórn
Jóns ísleifssonar, söngstjóra.
Samkórinn er myndaður af kór
Skaftfellingafélagsins í Reykja-
vík og kórum heima í héraði.
Einnig syngur Ólafur Þ. Jónsson
einsöng.
Keppni verður í reiptogi milli
Austur- og Vestur-Skaftfellinga
og brúarvinnumanna. I lok
hátíðardagskrárinnar leikur
síðan Skólahljómsveit Kópavogs
aftur. Að lokum verður dansað á
palli til kl. 22 um kvöldið, og
leikur hljómsveitin Glitbrá fyrir
dansi.
Á hátíðarsvæðinu verður hægt
að kaupa veitingar af ýmsu tagi.
Þar verða einnig seldir minjagrip-
ir, þar á meðal minnispeningur,
er þjóðhátíðarnefndirnar hafa
látið gera í tilefni þessa merka
atburðar.
Flúðu
vinnustaðinn
1 gærmorgun gaf öryggisloki
sig 1 sápugerðinni Frigg í
Garðahreppi og við það láku
einhverjar eiturgufur út.
Starfsfólk verksmiðjunnar
þurfti að flýja staðinn og þessa
mynd tók Sv. Þ. þegar fólkið
var komið út úr húsinu og eins
og sjá má eru sumir enn með
gasgrfmur.
Hækkandi heims-
markaðsverð á áli
HEIMSMARKAÐSVERÐ á áli
hefur farið nokkuð hækkandi á
þessu ári, og eftirspurnin eftir
þvf er nú vfðast hvar orðin mikil.
Sölutregða sú, sem um hrfð gætti
á áli, virðist þvf úr sögunni að
sinni.
Ragnar Halldórsson forstjóri
ISAL sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að á Evrópumarkaði
væri verðið nú 39 cent pundið, en
hefði verið 36 cent pundið í maí
s.l. Um síðustu áramót var verðið
30 cent pundið. Hefur því verðið
hækkað nokkuð ört á Evrópu-
markaði á þessu ári.
Mótfallnir hækkun
innritunargjalda
Hann sagði, að hins vegar hefði
verðið ekki hækkað eins ört á
Bandarikjamarkaði. Þar væri það
nú 33.5 cent pundið, en gert væri
ráð fyrir, að það hækkaði í 36 cent
í ágúst.
Héraðsmóti
á Höfn frestað
Vegna minningarathafnar um
séra Skarphéðinn Pétursson, pró-
fast í Bjarnarnesi, sem fram fer
föstudaginn 12. júlf, hefur verið
ákveðið að fresta héraðsmóti
Sjálfstæðisflokksins í ASkafta-
fellssýslu um óákveðinn tíma.
Sigurður Kristjánssog og skips-
höfn hans á Skarðsvfkinni voru
með mestan afla yfir allt landið,
þriðju vertfðina f röð. Hafa sumir
fengið bikara fyrir minna.
Skarðsvík
hæst yfir
EINS og Morgunblaðið hefur
skýrt frá hafa verið uppi deilur
um það innan Háskólaráðs og
Stúdentaráðs um hækkun á inn-
ritunargjöldum f Háskólann.
Þessi hækkun hefur nú verið
staðfest af menntamálaráðherra,
og innritunargjaldið er nú 3700
kr. en var kr. 1600 fyrir tveimur
árum. Vaka, félag lýðræðissinna f
Háskólanum, var algjörlega á
móti þessari hækkun og einnig
hluti prófessora f Háskólaráði. A
fundi f Háskólaráði fyrir stuttu
létu prófessorarnir Þorsteinn
Sæmundsson, Jónatan Þórmunds-
afla-
landið
Hellissandi.
VETRARVERTlÐ Rifshafnar-
báta gekk nokkuð vel. Gerðir voru
út 14 bátar, 30—260 lesta, auk
nokkurra smærri báta. Heildar-
afli þeirra var 7,100 lestir, og að
venju var Skarðsvfk SH aflahæsti
báturinn með 1444 lestir.
Hamrasvanur var með 876 lestir
og Sæljón með 851 iest.
Sigurður Kristjánsson skip-
stjóri á Skarðsvfk og skips-
höfn hans skiluðu mestum afla á
land á þessarri vertfð yfir allt
landið og er þetta þriðja árið í röð
sem þetta gerist.
Hafa sumir fengið bikara fyrir
minni afrek.
-Rögnvaldur.
son og Örn Bjartmarz Pétursson
bóka eftirfarandi:
Þar sem Háskólaráði hefur ver-
ið synjað um nauðsynlegar upp-
lýsingar varðandi fjárhagsáætlun
og reikninga stúdentaráðs mun-
um við greiða atkvæði gegn fram-
kominni tillögu um hækkun inn-
ritunargjalda.
Póstlestin við
Torfulæk í nótt
Mælifelli 10.7.
GÚFURLEGT fjölmenni er nú
komið á landsmót hestamanna á
Vindheimamelum. Hópar ríðandi
manna stefna að úr öllum áttum
og hestafjöldinn f Borgareyju er
svo mikill, að ævintýri er líkast að
sjá ofan af Laufásnum. I dag eru
dómnefndir að dæma góðhesta og
er fylgzt með því af áhuga. Prúð-
mennska og reglusemi ríkir á
mótsstaðnum og í tjaldborginni í
hvömmunum við Svartá. Póstlest-
in er nú í Húnaþingi á leið frá
Lækjamóti að Torfalæk, þar sem
gist verður í nótt. Næsti gististað-
ur er Æsustaðir í Langadal, en á
miðmunda á laugardag kemur
pósturinn á mótsstaðinn. Formleg
setning landsmótsins verður á
föstudag. Veðurblfða er nú í
Skagafirði, logn og heiðskírt.
Hvítá, nýtt
skip Hafskips
HVlTÁ nefnist nýtt kaupskip,
sem kom til landsins f fyrradag
og er f eigu Hafskips h.f. Skipið,
sem er 1300 lestir að stærð, verð-
ur skráð á Akranesi.
Halldór Friðriksson hjá Haf-
skip sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að lestar skipsins
væru 96 þúsund rúmmetrar að
stærð og skipið væri smíðað f
Þýzkalandi árið 1966, en þaðan er
skipið keypt. Gert er ráð 1'yrir, að
skipið verði í reglubundnum ferð-
um á tveggja vikna fresti á milli
Islands, Gautaborgar, Kaup-
mannahafnar og Fredrikstad.
Kaupverð skipsins var um 93
millj. kr.
Ellefu manna áhöfn er á skip-
inu. Skipstjóri er Steinarr
Kristjánsson og yfirvélstjóri Jón
Sveinsson.
Keflavík —
Fram 1:0
Keflavfk og Fram léku f gær-
kvöldi f 1. deildinni f knatt-
spyrnu. Leiknum, sem fram fór á
Laugardalsvellinum, lauk með
sigri Keflvfkinga, sem skoruðu 1
mark. Markið gerði Kári Gunn-
laugsson á 53. mfn.