Morgunblaðið - 11.07.1974, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JULl 1974
Flytja þarf ínn nokkur Jn'is. tonn af sementi
87 miUj. kr. í oBu segir Sementsverksmiðjan
VERÐ á portlandsementi
hækkaði frá og með deginum I
gær um kr. 1.760,-, úr 4.780,- kr. f
6.540,- hvert tonn eða um 36,8%,
og er þá söluskattur ekki innifal-
inn. Hinn 20 marz s.l. hækkaði
sementið um kr. 980,- eða úr
3.580,- f kr. 4.560,- hvert tonn eða
27,4% fyrir utan söluskatt.
1 fréttatilkynningu frá
Sementsverksmiðju ríkisins
segir, að í apríl hafi sementið
einnig hækkað, þá um kr. 220,-
tonnið á þéttbýlissvæðum vegna
kerfisbreytinga, en áður hafði
verið verðjafnað að mestu leyti,
en nú að fullu. Tekjur verksmiðj-
unnar hækkuðu ekki vegna þess,
því verð á dreifbýlissvæðum
lækkaði miðað við það, sem orðið
hefði með óbreyttu kerfi. Rétt
þyki að skýra þetta nú um leið og
upplýst er, að verð á sementi frá
verksmiðjunni hafi hækkað alls
frá s.l. áramótum um 76,5%. (Þá
á eftir að bæta söluskatti við^
Mbl.)
Segir í fréttatilkynningunni, að
orsakir þessara hækkana séu,
eins og öllum megi ljóst vera, þær
hækkanir á vinnulaunum og
öllum öðrum rekstrarkostnaði,
sem orðið hafa frá s.I. ári. Hér
skuli aðeins nefnt, að verksmiðj-
an noti árlega um 12000 tonn af
Hestamenn úr Fáki, 50 talsins, lögðu af stað til Vindheimameia á
laugardaginn með eitthvað á þriðja hundrað hesta. Sv. Þorm.
tók þessa mynd, þegar Fáksmenn vorú staddir fyrir ofan
Skógarhóla f Þingvallasveit.
Hestamenn komnir
á Vindheimamela
Mælifelli 9. júlf.
A LAUGARDAGINN var tengd
ný Ianglína milli sfmstöðvanna á
Mælifelli og Sauðárkróki. Eru
þetta stórstígari framfarir f síma-
málum Lýtingsstaðahrepps en
nokkuð annað á löngu árabili.
Sfmstöðin á Mælifelli er nú opin
kl. 9—13 og 15—19 alla virka
daga, en frá morgni til miðnættis
meðan Landsmót hestamanna
stendur yfir á Vindheimamelum,
auk hinnar venjulegu neyðar-
þjónustu á nóttunni.
Fjöldi manna er þegar kominn
á Vindheimamela, margir sunnan
Kjöl og Stóravatnsskarð, einnig
hafa hópar komiö Sprengisand.
Flokkur Austfirðinga kom yfir
hálendið og niður úrVesturdal.
Meðal þeirra er hinn landskunni
hestamaður Pétur Jónsson á
Egilsstöðum.
- Sfra Ágúst.
Fréttir frá
Akranesi
þjóðhAtíðarmöt
S.l. sunnudag var haldið
fþróttamót á Akranesi í tilefni
þjóðhátíðar. Á Iþróttavellinum
við Langasand var keppt í hand-
knattleik karla og kvenna og
blaki. I Bjarnalaug fór fram
keppni í sundi, og golfkeppni fór
fram á 'vegum Golfklúbbsins
Leynis á Garðavelli (sjá meðf.
fréttabréf).
BANG-BANG SIRKUS
Skátafélag Akraness gekkst fyr-
ir ,,Bang-Bang“ sirkus fyrir börn í
nýju íþróttahússbyggingunni á
mánudagskvöldið. Lúðrasveit
skólanna aðstoðaði. Um 1200
manns sóttu skeinmtunina, sem
var hin fjölbreyttasta, og
skemmtu allir sér hið bezta.
Skemmtikraftar og aðrir þátttak-
endur voru um 70, og eru þeir
allir úr Skátafélagi Akraness.
LEIÐRÉTTING VIÐ
FRÉTT UM „SIGUR-
FARA“
Það var ranghermt, að Lions-
menn á Eskifirði hafi séð um að
koma kútternum til landsins. Hið
rétta er þetta: Ölafur Guðmunds-
son, umboðsmaður f Færeyjum,
hafði allari veg og vanda f sam-
bandi við kaupin í Færeyjum og
afgreiðslu mála þar. Kiwanis-
klúbburinn Þyrill Akranesi sá um
að koma skipinu heim, en m/s
Sæberg SU 9 Eskifirði tók að sér
að draga skipið til Neskaupstaðar.
Þar lá skipið frá hvítasunnu til 5.
júlí, og sáu félagar í Kiwanis-
klúbbnum Gerpi Neskaupstað um
gæzlu á skipinu þann tíma, en
síðan sá Landhelgisgæzlan um að
draga skipið til Akraness.
-Asmundur.
Neitið
Framhald af bls. 15
Kennedy hinum verstu ónöfn-
um. Á öðrum stað vfkur hann
einnig að Kennedyf jölskyld-
unni og segir, að hún bfði eftir
þvf einu að geta ráðizt til atlögu
gegn sér.
Þessi samtöl átti Nixon við þá
Ehrlichman, Haldeman, Dean
og Mitchell.
Megináherzla er þó lögð á, að
f afskriftum Hvfta hússins af
þessum samtölum hafi verið
svo mjög dregið úr þvf að
Nixon gæti verið viðriðinn mál-
ið, að það hafi komið eins og
þruma, þegar Ijóst er nú, að
forsetinn virðist hafa fylgzt
náið með allri framvindu mála
og gefið þær skipanir, sem hon-
um þótti henta hverju sinni.
Sömuleiðis fylgdist hann
greinilega með öllum greiðsl-
um til þeirra, sem að málinu
stóðu, enda þótt reynt hafi ver-
ið að breiða yfir það. Þá hefur
samtölum stundum beinlfnis
verið breytt og orð lögð f munn
Deans eða annarra, sem Nixon
mun sjálfur hafa sagt, sam-
kvæmt spólum nefndarinnar.
svartolfu og sé þetta einn stærsti
gjaldaliðurinn f rekstrinum.
Á árinu 1973 hafi þessi gjöld
numið rúmum 36 millj. kr., en
verði í ár 86,7 millj. kr. og sé þá
miðað við sama magn og óbreytt
verð til ársloka. Þessi gjöld hækki
þannig um 140% frá fyrra ári.
Þá hafi verð á innfluttu
sementsgjalli hækkað um 60%
frá fyrra ári. Ennfremur megi
geta þess, að innifalið í áður-
nefndri hækkun á sementi sé
nokkur upphæð til verðjöfnunar
við innflutt og sekkjað sement.
Einnig segir í fréttatilkynning-
unni, að uppsetningu nýrrar
sementskvarnar hafi seinkað svo,
að nauðsynlegt reyndist að flytja
inn nokkur þúsund tonn af
sementi á næstu vikum. Þetta
sement kosti komið í hús kr.
8.635,- hvert tonn. Ef þetta
sement væri selt með leyfilegri
álagningu myndi það kosta kr.
9.900,- (án söluskatts.).
— Tollgæzla
Framhald af bls. 32
1940 og 1. mgr. 60. gr., sbr. 61.
gr. og 1. mgr. 62. gr. laga nr. 59,
1969 um tollheimtu og tolleftirlit,
sbr. 138. gr. hegningarlaganna“.
Valtýr sagði að dómssátt hefði
verið gerð 9. júlf 1974, þar sem
tollvarðstjórinn játaði kæruatriði
rétt og samþykkti að greiða 50
þúsund króna sekt í ríkissjóð.
Valtýr sagði aðspurður um mál
aðstoðarverzlunarstjóra Frí-
hafnar: „I desemberbyrjun 1972
veitti vökull lögregluþjónn
athygli undarlegri hegðan leigu-
bifreiðastjóra, sem lögreglu-
maðurinn hafði afskipti af vegna
umferðarlagabrots. Þar sem
maðurinn hafði áður fengið dóm
fyrir ólöglega sölu áfengis, ákvað
lögreglumaðurinn að leita í bif-
reiðinni og fannst þá tóm gos-
flaska, sem í hafði verið áfengi,
en hún hafði verið tæmd á gólf
bifreiðarinnar. Við húsleit á
heimili mannsins fundust m.a. 30
flöskur af ótollafgreiddu áfengi
af sjaldgæfri tegund, sem aðeins
fæst hérlendis í frfhöfninni á
Keflavíkurflugvelli.
Rannsókn málsins var umfangs-
mikil og tæplega viku síðar var
aðstoðarverzlunarstjóri Frf-
hafnarinnar, Gunnar Kristjáns-
son, handtekinn og úrskurðaður í
allt að 10 daga gæzluvarðhald.
Gunnar neitaði öllum sakar-
giftum í fyrstu, en um síðir játuðu
báðir aðila málsins brot sín.“
„Um framhaid málsins leyfi ég
mér að vitna beint í ákæruskjal
saksóknara ríkisins, þar sem
verknaði aðstoðarverzlunarstjór-
ans er lýst svo: „Gegn ákærða,
Gunnari Valgeir Kristjánssyni, er
málið höfðað fyrir að hafa mis-
notað aðstöðu sína sem aðstoðar-«
verzlunarstjóri Fríhafnar á Kefla-
vfkurflugvelli með eigin kaupum
á 30 3/4 lftra flöskum af Kulov-
vodka — einni flösku í senn — á
ótilgreindu tímabili fram til 27.
nóvember 1972 og flutt áfengið
jafnóðum fram hjá tolleftirliti
heim til sín og selt það ásamt
einni sams konar flösku til við-
bótar mánudagskvöldið 27.
nóvember 1972, meðákærða . . .
fyrir kr. 17.000.00.“ Meðákærði er
leigubifreiðastjórinn. Dómur f
máli þessu var upp kveðinn 2. júlí
1973 og hefur honum nú verið
fullnægt með greiðslu sektar að
upphæð kr. 95.000.00.
Kristján Pétursson sagði í við-
tali við Mbl.: „Ég tel þessa aðgerð
utanríkisráðherra mjög alvarlegt
áfall fyrir tollgæzluna, sérstak-
lega þó út á við, því að hver
treystir þeirri tollgæzlu, sem
heimilar smyglara að starfa f
sinni þjónustu. Eins og menn vita
verða ráðherrar ekki sóttir til
saka, nema með samþykki Alþing-
is, og því stöndum við starfsmenn
tollgæzlunnar, sem viljum veg
hennar sem mestan, gjörsamlega
berskjaldaðir gagnvart ráðstöf-
unum ráðherra sem þessum. Ég
mun hins vegar áfram sem hingað
til reyna að efla tollgæzluna
ásamt mínum ágætu samstarfs-
mönnum og reyna þannig að
koma í veg fyrir, að þetta ógæfu-
lega embættisverk ráðherrans
valdi meiri skaða en orðið er.
Allir hljóta einnig að sjá hvert
fordæmi þessar ákvarðanir ráð-
herra hljóta að gefa — sérstak-
lega er varðar það fólk, sem
starfar á hinu tollfrjálsa svæði
f 1 ugstöðvarbyggingari nnar.
Veldur þetta tollgæzlunni eðli-
lega erfiðleikum við framkvæmd
skyldustarfa sinna.“
Kristján Pétursson sagði enn-
fremur:
„Hinn 1. desember sfðastliðinn
réð utanríkisráðherra Alvar
Óskarsson, þáverandi bflstjóra
fjármálaráðherra, afgreiðslu-
mann Fríhafnarinnar á Kefla-
víkurflugvelli. Svo virðist sem
fjármálaráðherra hafi viljað
losna við Alvar, þar sem reksturs-
kostnaður bifreiðarhans var
helmingi hærri en á bifreiðum
annarra ráðherra eða nálægt
einni milljón króna á hálfu öðru
ári og ætti öllum að vera skiljan-
legt, að f jármálaráðherra gat ekki
við slíkt unað, því að hann hefur
ávallt viljað sýna gott fordæmi í
meðferð fjármuna. Alvar mætti
uldrei til vinnu í Fnhöfninni og í
febrúarbyrjun lagði hann fram
læknisvottorð um veikindi í
óákveðinn tíma. Full laun fékk
hann, þrátt fyrir að hann hefði
ekki áunnið sér rétt til slfks veik-
indafrís. Hafði Alvar þó sem
betur fer nægilega góða heilsu til
þess að starfa á kosningaskrif-
stofu Framsóknarflokksins í
Reykjavík á fullum launum hjá
Frfhöfninni. Nú eru síðustu
fréttir þær, að Alvar hafi verið
hækkaður í tign í Fríhöfninni og
gerður að fulltrúa og þvf hækkað-
ur um 5 til 7 launaflokka. Flestir
myndu þó halda, að frammistaða
Alvars verðskuldaði ekki svo
skjótan frama umfram þá starfs-
menn Fríhafnarinnar sem starfað
hafa þar f 15 ár og unnið hafa
frábær störf við þá stofnun."
„Mér er það efst í huga,“ sagði
Kristján, „að reyna að koma f veg
fyrir að tollgæzlan verði
fyrir alvarlegum áföllum af
framangreindum ástæðum. Sá
maður, sem ég hélt að stæði hvað
næstur tollgæzlunni og ætti að
styrkja hana og efla, hefur valdið
okkur sárum vonbrigðum."
Morgunblaðið birtir nöfn mann-
anna, sem frá er skýrt í þessari
frétt til þess að hlffa öðrum
starfsmönnum Fríhafnarinnar og
tollgæzlunnar á Keflavíkurflug-
velli við órökstuddum getgátum
og grun, sem komið gæti upp
meðal fólks.
— Barinn og...
Framhald af bls. 32
grein fyrir. Ekki mundi hann
heldur hvort bifreiðin var leigu-
bíll eða lítill bíll, en hallaðist þó
fremur að hinu fyrrnefnda. Sfðan
man maðurinn ekkert, hvorki
það, sem gerðist uppi í Breiðholti,
né hvernig hann komst þaðan.
Síðan gerist það, að lögreglan er
kvödd upp í Grýtubakka í Breið-
holti laust fyrir hádegið á þriðju-
daginn til að kanna innbrot í
ruslatunnugeymslu. Við rann-
sókn í geymslunni fundust gler-
augu, lyklakippa, brotinn lindar-
penni og karlmannaskór. I
geymslunni voru einnig blóðslett-
ur, sem bentu til, að átök hefðu
þar átt sér stað. Seinna um daginn
kom svo maðurinn, sem barinn
hafði verið, til fundar við lögregl-
una í því skyni að hressa upp á
minnið. Kom þá í Ijós, að hlutirnir
úr ruslatunnugeymslunni til-
heyrðu honum og virðast þar falla
saman brotin um árásina og ránið
á manninum og innbrotsins í
geymsluna. Málið er í rannsókn
og eins og áður segir leitar lög-
reglan leigubílstjóra eða öku-
manns fólksbifreiðar, sem hefur
ekið mönnunum upp f Breiðholti
aðfararnótt þriðjudagsins.
Forráðamenn steypustöðvanna á fundinum f gsr. Frá vinstri. Sigursteinn Guðsteínsson (BM Vallá)
Halldór Jónsson (Steypustöðin), Sveinn Valfells (Steypustöðin), Birgir Björnsson (Breiðholt h.f) og
Vfglundur Þorsteinsson (BM Vallá). Ljósm. Mbl. ÖI. K. Mag.
— Sement
Framhald af bls. 32
steypustöðvarnar f Reykjavík til
þess að stöðva öll lánaviðskipti
frá og með deginum í dag.
B.M. Vallá h.f.
Breiðholt h.f.
Steypustöðin h.f.
Sem fyrr segir mun þessi
ákvörðun hafa stórkostlega rösk-
un í för með sér í byggingar-
iðnaðinum. Steypustöðvarnar
hafa lánað steypuna á 75—90
daga víxlum. Á þessum tíma hafa
margir einstaklingar með
dugnaði náð að gera hús sín fok-
held, áður en þeir hafa þurft að
greiða eyri fyrir steypuna. Hafa
steypustöðvarnar verið einu
aðilarnir, sem lánað hafa bygg-
ingarefni. Vegna hins erfiða
ástands hjá bönkum og lána-
stofnunum hafa steypustöðvarnar
ekki fengið aukna vfxlakvóta, og
því hafa þær orðið að grípa til
þess ráðs að stöðva öll lánavið-
skipti. Kom það fram hjá forráða-
mönnum þeirra á fundinum í
gær, að líklega hefði aðeins innan
við V* hluti þeirra einstaklinga,
sem nú standa f húsbyggingum,
f járhagslegt bolmagn til að greiða
steypuna út f hönd. Stöðvast því
byggingar hjá þeim.
A fundinum komu fram at-
hyglisverðar upplýsingar um
verðlag á sementi. Töldu forráða-
mennirnir, að sementsverð hér
væri hærra en í nokkru öðru
landi á Vesturlöndum. Sements-
tonnið kostar nú 7700 krónur, en
kostaði 4040 krónur f byrjun
marz. Sementspokinn kostar nú
385 krónur, en kostaði 202 krónur
í marzbyrjun. Rúmmetrinn af til-
búinni steypu mun hækka úr 4000
krónum í liðlega 5000 krónur. Þá
komu þær upplýsingar fram á
fundinum, að þessi hækkun nú
væri sú mesta á einu bretti sfðan
1959, og að hún gæfi Sements-
verksmiðjunni 225 milljónir á árs-
grundvelli. Töldu forráðamenn-
irnir þetta meiri hækkun en verk-
smiðjan hefði þörf á.
Síðan í marz hafa steypu-
stöðvarnar farið fram á við verð-
lagsyfirvöld 18% hækkun á eigin
hlut vegna stórfelldra kostnaðar-
hækkana. Ekkert svar hefur bor-
izt, en á sama tíma hefur ríkis-
fyrirtæki fengið 37.5% hækkun.
Töldu forráðamennirnir, að það
væri lögbrot af hálfu verðlags-
yfirvalda að taka ekki hækkunar-
beiðni þeirra til meðferðar. Telja
steypustöðvarnar óhjákvæmilegt
að þær fái þessa umbeðnu hækk-
un á eigin hlut, að öðrum
kosti verði þær að loka á næstu
dögum eða ákveða útsöluverð
í trássi við lögin. Það mun
því fást úr því skorið á næstu
dögum hvort enn meiri röskun
verður í byggingariðnað-
inum eða þá að hann stöðv-
ast alveg. Steypustöðvarnar eru í
dag reknar með tapi, sem nemur
3—4 milljónum samtals hjá þeim
öllum. Hjá þeim vinna um 150
manns.