Morgunblaðið - 09.08.1974, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGUST 1974
17
É\Y (OMWtiY ÁÁflflV n\J KVK'vf, W-á'Ék'lkWI
Skrifstofustúlka óskast Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist blaðinu merkt: „lífeyris- sjóður 1498", fyrir þriðjudagskvöld 13. þm. Laus staða Staða framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Æskilegt er, að umsækjandi hafi lokið háskólaprófi og hafi nokkra þekkingu á tölvunotkun. Til athugunar eru möguleikar á, að skrifstofa Lánasjóðs íslenskra námsmsanna tæki jafnframt að sér ýmis skrifstofu- störf fyrir nefnd, er úthlutar styrkjum til jöfnunar á námskostn- aði, sbr. lög nr. 69/1972. Yrði horfið að þvi ráði, mundi þau störf einnig falla undir umsjá framkvæmdastjórans. Umsóknir um stöðu þessa, ásamt ýtarlegum upplýsingum um menntun og starfsferil, skulu hafa borist menntamálaráðuneyt- inu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 30. ágúst n.k. Menntamálaráðuneytið, 30. júlí 1974. Stórt bókaforlag óskar eftir prófarkalesara strax. Æfing og sérmenntun í íslenzku æskileg, en ekki skilyrði. Tilboð með upplýsingum, merkt „Prófarkalesari 5324" sendist afgr. Mbl. sem fyrst eða fyrir 20. ágúst.
Bónusvinna Viljum ráða nú þegar kvenfólk til verk- smiðjustarfa í spunaverksmiðju vorri í Mosfellssveit. Vaktavinna. 5 daga vinnu- vika. Dagvakt frá kl. 8 —16. Kvöldvakt frá kl. 16 — 24. Bónusgreiðslur ofan á fastakaup. Önnumst flutning á starfsfólki til og frá Reykjavík. Álafoss, sími 66300. Ungan mann vantar góða og örugga atvinnu strax. Margt kemur til greina. Hef stúdentspróf. Upplýsingarí síma 82994.
Trésmiðir óskast Vantar trésmiði strax. Næg vinna Upp- lýsingar í símum 84825 og 40650.
mRRGFHLDRR mÖGULEIKR VÐRR
Vefnaðarkennarar
sem ætla að lána muni á sýningu Félags
íslenskra vefnaðarkennara, eru vinsamlega
beðnar að koma með þá í Hafnarstræti 3,
laugardaginn 1 0. ágúst milli kl. 1 0 og 12.
Sýningarnefndin.
MAIMIMTAL 1816
6. hefti Manntals á íslandi 1816 er komið út.
Nokkur eintök af 4. og 5., heftum eru enn
fáanleg. Manntalið er selt í Bókaverzlun Stefáns
Stefánssonar Laugavegi 8.
Æ ttfræðifélagið.
Frá húsmæðraskóla
kirkjunnar
Löngumýri Skagafirði
Skólinn hefst 1. okt. og starfar til maí-loka.
Gefinn er kostur á heils vetrar námi og mis
löngum námskeiðum fyrir og eftir áramót.
Kennsla í öllum bústjórnar- og handavinnu
greinum. Samkv. námsskrá skólanna.
Umsóknir sendist sem fyrst. Upplýsingar gefur
skólastjóri, sími um Varmahlíð.
Skó/astjóri.
HÉRAOSMÓT
Sjálfstæðisflokkurinn efnir til héraðsmóta á eftirtöldum stöðum um
næstu helgi:
BÍLDUDAL
Föstudaginn 9. ágúst kl. 21.00 á Bíldudal, V-Barðastrandarsýslu.
Ávörp flytja Matthias Bjarnason, alþm. og Ólafur Kristjánsson, skólastj.
HNÍFSDAL
Laugardaginn 10. ágúst kl. 21.00 í Hnífsdal. Ávörp flytja Matthías
Bjarnason, alþm. og Jón Ólafur Þórðarson, lögfræðingur.
ÞINGEYRI
Sunnudaginn 11. ágúst kl. 21.00, á Þingeyri, Vestur-ísafjarðarsýslu.
Ávörp flytja Sigurlaug Bjarnadóttir, alþm. og Einar Oddur Kristjánsson,
frkvstj.
Fjölbreytt skemmtiatriði á héraðsmótunum annast Ólafur paukur og
hljómsveit hans auk Svölu Nielsen, Svanhildar og Jörundar
Guðmundssonar. Að loknu hverju héraðsmóti verður haldinn dansleik-
ur, þar sem hljómsveit Ólafs Gauks og Svahildur leika og syngja.
Hugheilar þakkir færi
ég öllum þeim, sem
heiðruðu mig sjötuga
með vinarkveðjum og
gjöfum.
Lifið heil.
Ágústa Ólafsdóttir,
Holtagerði 72.
Kappreiðar
Hestamannafélagið Hörður heldur sínar árlegu
kappreiðar á Harðarvelli við Arnarhamar,
laugardaginn 1 7. ágúst 1 974 og hefjast kl. 1 4.
Keppt verður í 250 m skeiði, 250 m folahlaupi,
300 og 400 m stökki.
Þátttaka tilkynnist í síma 66163 eða 66284
fyrir 1 3. ágúst.
Stjórnin.
TÆKNIFRÆÐINGUR
Óskum að ráða tæknifræðing eða trésmið með reynslu í verkstjórn.
Verksvið viðkomandi verður eftirlit með byggingaframkvæmdum og
viðhaldi húsa.
Umsóknir sem greini menntun, aldur og fyrri störf sendist:
Tæknideild Sláturfélags Suðurlands,
Grensásvegi 1 4,
Reykjavík.
fyrir 1 5. ágúst.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
SLÁTURFELAG suðurlands
Greiðsla olíustyrks
Hafnarfjörður — Kópavogur
Greiðsla olíustyrks fyrir tímabilið mars—maí hefst á bæjarskrifstofun-
um þriðjudaginn 13. ágúst kl. 1 0 f.h. Greiðslum verður háttað til hvers
framteljanda til skatts sem hér segir.
Þriðjudaginn 1 3. ágúst nöfn framteljanda sem byrja á A—D
Miðvikudagurinn 14. ágúst nöfn framteljanda sem byrja á E—G
Fimmtudaginn 1 5. ágúst nöfn framteljanda sem byrja á H—J
Mánudaginn 1 9. ágúst nöfn framteljanda sem byrja á K — M
Þriðjudaginn 20. ágúst nöfn framteljanda sem byrja á N — P
Miðvikudaginn 21 ágúst nöfn framteljanda sem byrja á R—T
Fimmtudaginn 22. ágúst nöfn framteljanda sem byrja á U—Ö
Vinsamlegast framvísið persónuskilríkjum.
Bæjarlögmaður Hafnarfjarðar
Bæjarritarinn Kópavogi.