Morgunblaðið - 14.08.1974, Qupperneq 28
ÞEIR HUKR
UIÐSKIPTin SEm
RUGLVSR í
WovöunbTaíiiuu
nucLvsmcHR
^^-•22480
MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1974
Framnes „veiddi,, þýzku vörpuna:
Klædd innan með
35 millimetra neti
TVEIR fiskifræðingar af rann-
sóknarskipinu Árna Friórikssyni
fóru f gær um borð í skuttogarann
Framnes IS tii að rannsaka vörpu
vcstur-þýzka togarans Hohsweg
BX 735. Varðskip klippti á vörpu
togarans f fyrradag, og kom hún
sfðar upp mcð vörpu Fram
nessins af hreinni tilviljun.
Varpan var mæld nákvæm
lega. Reyndist möskvastærð
hennar vera 105—110 milli
metrar, en má minnst
vera 120 millimetrar. Að inn
an var varpan klædd með 35
millimetra rækjuriði, 16 fet upp.
Þessi útbúnaður er að sjálfsögðu
algjörlega ólöglegur. Varðskips-
menn af Óðni komu einnig um
borð f Framnesið í gær, og bar
mælingum þeirra saman við mæl-
ingar fiskifræðinganna. Einnig
staðfestu þeir, að togvfrarnir
hefðu nýlega verið þverskornir.
Mbl hafði í gær samband við
Auðunn Auðunsson skipstjóra á
Framnesi ÍS. Hann sagði, að
Framnes hefði verið á veiðum á
Halanum, rúmlega 40 mílur frá
landi. Svartaþoka var á miðunum
á mánudag. Mörg skip voru að
veiðum, þar á meðal tveir vestur-
þýzkir togarar. Varðskip stuggaði
við þeim um morguninn, og fluttu
þeir sig þá austar, en seinna um
daginn voru þeir komnir á sömu
slóðir aftur. Kom varðskip þá
einnig á staðinn og klippti vörp-
una aftan úr skuttogaranum
Hohsweg. Gerðist þetta um klukk-
an 18, að sögn Landhelgisgæzlunn
Framhald á bls. 16
Ólafur Jóhannesson á fundi
með forseta tslands árdegis f
gær. Þar tilkynnti Ólafur, að
tilraun hans til myndunar
nýrrar vinstri stjórnar hefði
mistekizt.
Geir Hallgrímsson:
Reiðubúnir að mynda
ábyrga og sterka stjórn
Rétt að kanna vilja Alþýðuflokksins til þátttöku
Ókennilegur
hlutur á reki
I FYRRINÓTT fann trilla ókenni-
legan hlut á reki í miðjum Vopna-
firði. Að sögn Landhelgis-
gæzlunnar var þetta keilulaga
málmhlutur, 9 metra langur, og
flaut hann vel. Nálægt miðju voru
tveir stýranlegir uggar og tveir
fastir uggar aftast. Á hlut þessum
voru áletranir á ensku. Er helzt
talið, að um sé að ræða radiótæki
frá brezka flotanum. Varðskip tók
hlutinn um borð, og verður hann
rannsakaður nánar, þegar það
kemur til Reykjavíkur í lok vik-
Þingflokkur sjálfstæðismanna
samþykkti á fundi sfðdegis f gær
að verða við tilmælum Ólafs
Jóhannessonar um viðræður við
Framsóknarflokkinn um myndun
nýrrar ríkisstjórnar. Viðræðu-
nefndir flokkanna munu koma
saman til fundar kl. 10 árdegis f
dag. Geir Hallgrfmsson sagði f
samtali við Morgunblaðið f gær-
kvöldi, að Sjálfstæðisflokkurinn
væri reiðubúinn til þess að standa
að myndun sterkrar og ábyrgrar
rfkisstjórnar, er gæti tekizt á við
þau vandamál, sem leysa þyrfti.
Þá sagði hann, að ástæða væri til
þess að kanna, hvort Alþýðu-
flokkurinn vildi taka þátt í þess-
um viðræðum á einhverju stigi
málsins.
Ólafur Jóhannesson skýrði for-
seta íslands frá því í gærmorgun.
að tilraun hans til þess að mynda
nýja vinstri stjórn hefði mis-
tekizt. Forseti tslands óskaði þá
eftir því við Ólaf Jóhannesson, að
hann kannaði aðra möguleika á
stjórnarmyndun. I samræmi við
það átti hann viðræður við Geir
Hallgrímsson, formann Sjálf-
stæðisflokksins, laust fyrir hádegi
í gær. Þar óskaði Olafur eftir við-
Auglýsingataxtar útvarps og sjónvarps:
Tæplega 40% hækkun
ræðum við Sjálfstæðisflokkinn
um myndun ríkisstjórnar. Þing-
flokkur sjálfstæðismanna kom
saman til fundar kk 17 í gærdag.
Fundinum lauk kl. 19. Þar var
samþykkt að verða við tilmælum
Ólafs Jóhannessonar. Kosin var
viðræðunefnd af hálfu flokksins.
Hana skipa: Geir Hallgrímsson,
Gunnar Thoroddsen, Ingólfur
Jónsson og Matthías Á.
Framhald á bls. 16
RlKISSTJÓRNIN hefur heimilað
tæplega 40% hækkun á auglýs-
ingatöxtum útvarps og sjónvarps.
Hækkun á töxtum útvarps hefur
þegar komið til framkvæmda, en
taxtahækkun sjónvarps kemur til
framkvæmda 1. nóvember n.k.
Mbl. fékk þær uppiýsingar hjá
) auglýsingadeild útvarpsins í gær,
Vinstri flokk-
arnir fjórir:
Ósammála um hver
ágreiningsatriðin voru
TILRALNIR Ólafs Jóhannes-
sonar til þess að mynda nýja
vinstri stjórn fóru út um þúfur
sl. mánudag. Ljóst er af yfirlýs-
ingum talsmanna flokkanna
f jögurra, að þeim ber ekki sam-
an um, á hvaða málefnum við-
ræðurnar hafi fyrst og fremst
strandað. Alþýðuflokkurinn
leggur áherzlu á, að tilraunin
til myndunar nýrrar vinstri
stjórnar hafi mistckizt vegna
ósamkomulags um varnarmál-
in. Framsóknarflokkurinn hafi
I meginatriðuni fallizt á kröfur
Alþýðuflokksins I þeim efnum,
en Alþýðubandalagið ekki.
Magnús Kjartansson segir hins
vegar, að samkomulag hafi
ekki verið langt undan f varn-
armálum. Öiafur Jóhannesson
segir, að varnarmálin og sú
krafa Alþýðuflokksins, að haft
yrði samráð við Alþýðusam-
bandið og aðra aðila vinnu-
markaðarins, áður en endan-
lega yrði gengið frá samkomu-
lagi, hafi ráðið mestu um, að
viðræðurnar báru ekki árang-
ur.
Ólafur Jóhannesson hefur
lýst yfir þvf, að grundvallar-
ágreiningur hafi verið milii
flokkanna I varnarmálum. Þá
hefur hann ftrekað, að hann
hafi ekki viijað fallast á,
að stjórnarmyndunarviðræður
færu þannig fram, að stjórn-
málaflokkarnir væru bundnir
af samkomulagi við aðila utan
þingsins, áður en rfkisstjórn
væri endanlega mynduð. Óeðli-
legt væri að veita aðilum utan
þingsins slfk ftök og áhrif á
stjórnarmyndun, sem að réttu
lagi ætti að vera f höndum Al-
þingis.
Gylfi Þ. Gfslason lýsti yfir
þvf I sjónvarpsviðtali f gær-
kvöldi, að ágreiningur um varn-
armálin hefði fyrst og fremst
ráðið þvf, að stjórnarmyndun-
artilraunin mistókst. 1 fréttatil-
kynningu frá viðræðunefnd Al-
þýðuflokksins segir m.a.:
„1 varnarmálum gerði
Alþýðuflokkurinn þá ófrá-
vfkjanlegu kröfu, að tsland
verði áfram f varnarsamtökum
vestrænna þjóða og engin
ákvörðun verði á þessu stigi
tekin um brottför varnarliðs-
ins. Hins vegar lýsti flokkurinn
sig reiðubúinn til að ræða
margvíslegar breytingar á
framkvæmd varnarmáianna og
lagði fram margar hugmyndir
á þvf sviði.
Framsóknarflokkurinn tók
sömu stefnu og Alþýðuflokkur-
Framhald á bls. 16
að taxtinn fyrir auglýsingatímana
klukkan 9.30 og 16 væri 70 krónur
hvert orð. Klukkan 12.30 og 18
kostar orðið 80 krónur og klukkan
19.20 kostar orðið 150 krónur. Þá
er i gildi afsláttarverð fyrir aug-
lýsingar frá kirkjum, líknarfélög-
um og aðrar slíkar auglýsingar,
svo og jarðarfararauglýsingar. Er
það 40 krónur pr. orð.
Hjá sjónvarpinu kostar hver
auglýsingamínúta nú 19.000 krón-
ur. Þann 1. nóvember n.k. hækkar
mínútan í 26.000 krónur og 1.
nóvember 1975 mun hún enn
hækka í 38.000 krónur. Er þetta
100% hækkun á einu ári. Sá hátt-
ur er hafður á hjá sjónvarpinu, að
nýtt auglýsingaverð er ákveðið 1.
nóvember ár hvert, og gildir þetta
verð í eitt ár.
Tók konu
kverkataki
UM klukkan 21 í gærkvöldi
var lögreglan kvödd að húsi f
Holtunum í Reykjavík. Maður
hafði ráðist á konu og tekið
hana kverkataki, en konan
slapp úr greipum mannsins
áður en hann gat gert henni
miska. Maðurinn hijóp af vett-
vangi, en lögreglan náði hon-
um seint í gærkvöldi. Konan
var flutt á Slysavarðstofuna.
Var hún með áverka á hálsi.
Hún fékk að fara heim fljót-
lega. Rannsókn málsins var á
frumstigi þegar Mbl. fór f
prentun.
Trilla sökk
Skipverjar björguðust
I GÆRMORGUN kom leki að
trillunni Reyni tS 526, þar sem
hún var á veiðum undan Rit.
Trillan Jóhanna tS 159 var nærri,
og tók hún Reyni f tog. Átti að
reyna að draga trilluna upp f
f jöru, en áður en það tókst, sökk
trillan. Gerðist það undan Grænu-
hlfð. Tveir menn voru á Reyni, og
björguðust þeir um borð f Jó-
hönnu.
Það var klukkan rúmlega 10.30,
að skipverjar á Reyni urðu varir
við leka framarlega í trillunni.
Jóhanna kom fljótlega á vettvang
og lagði af stað með Reyni í togi
um klukkan 11. Jafnframt létu
skipverjar á ísafjarðarradíó vita,
sem hafði samband við varóskipið
Óðin, sem ekki var langt undan.
Lagði Óðinn þegar af stað til bát-
anna tveggja og voru dælur til-
búnar. Klukkan 11,45 sökk svo
Reynir, og átti Óðinn þá ófarinn
skamman spöl að bátnum.
Reynis ÍS 526 var 10 tonna
trilla, gerð út frá ísafirði. Hún
var á handfæraveiðum.