Morgunblaðið - 14.08.1974, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.08.1974, Blaðsíða 27
Fulltrúi félaganna er viðstaddir voru, er dómurinn var kveðinn upp, Hilmar Svavarsson, Hannes Þ. Sigurðsson og Hans Guðmundsson. Bikarkeppnin í kvöld: Fimm liðanna sem enn eru eftir haf a sigrað í keppninni Fjórir stórleikir fara fram í bikar keppni KSÍ í kvöld, leikirnir í 8-liða úrslitunum milli Víkings — KR, ÍA — Fram, ÍBK — Vals og ÍBV — Völsungs. Þó að annar aðilinn í öll- um þessara leikja sé enn í fallbaráttu í 1. deild eða berjist á toppnum í deildinni, má fastlega gera ráð fyrir, að öll liðin leggi hart að sér í kvöld, því að 10 dagar eru þar til næstu leikir í deildinni fara fram. Víkingar geta tæpast mætt með sterkasta lið sitt í kvöld, þar sem marg- ir beztu leikmenn úr öftustu víglínu eiga við meiðsli eða veikindi að striða KR-ingar misstu enn einn leikmanninn i síðasta leik, er Baldvin Elíasson skarst illa á fæti, og verður hann ekki með í kvöld Framarar töpuðu fyrir tilvonandi ís- landsmeisturum ÍA um siðustu helgi, en þurfa þó ekki að vera með neina minnimáttarkennd Þeir léku mun bet- ur en Skagamenn i fyrri hálfleiknum og ættu að sigra í leiknum í kvöld, nái þeir svipuðum leik í kvöld í sambandi við leikinn á Akranesi má geta þess, að Akraborgin fer frá Reykjavik klukkan 1 7 30 og fer frá Akranesi klukkan 2 1 í Keflavík verður án efa mjög skemmtilegur leikur tveggja sterkra liða í Vestmannaeyjum ættu heima- menn að vera nokkuð öruggir með sigur gegn Völsungi Allir leikirnir i kvöld hefjast klukkan 19 00 Fimm þeirra liða, sem eftir eru i keppninni að þessu sinni, hafa emu sinni eða oftar hlotið bikarinn KR- ingar hafa unnið 7 sinnum, Fram og ÍBV tvívegis hvort félag, og Víkmgur og Valur einu sinm Sjötta liðið. sem unnið hefur í keppninni frá því að hún fór fyrst fram árið 1 960, er lið IBA r Islandsmót- ið í golfi Salómonsdómur eða hvað? ELMAR Geirsson var dæmdur 6lög- legur með Fram I leik liðsins gegn Val í 1. deildinni fyrr I sumar fyrir sérráðsdómstól KRR i fyrradag. eins og skýrt var frá i Morgunblaðinu i gær. Af ýmsum ástæðum taldi dóm- stóllinn þó ekki ástæðu til að dæma leikinn Frömurum tapaðan, heldur skyldi hann fara fram að nýju. Er dómstóllinn kom saman i gær, lágu fyrir skeyti frá Alþjóða knatt- spyrnusambandinu, þar sem sagði, að félagaskiptin væru ólögleg og sömu- leiðis greinargerð frá Ellert B Schram, formanni KSÍ, þar sem hann segir, að félagaskipti Elmars Geirssonar hafi aldrei verið fornplega rædd af stjórn KSÍ. Dómstóll KRR byggði dóm sinn á skeyti FIFA og yfirlýsingu Ellerts Schram um, að Framarar hafi ekki sótt um tilskilin leyfí til KSÍ, er Elmar hóf að leika með Fram í sumar. Eðli málsins samkvæmt taldi dómurinn þó ekki fært að beita þyngstu viðurlögum, en þá hefði leikurinn verið dæmdur Fram tapaður. Framarar hafi verið í góðri trú um hlutgengi leikmannsins i Valsleikn- um. Þá benti dómurinn einnig á það, að lög KSÍ um félagaskipti landa á milli væru engan vegínn fullnægjandi í nú- verandi formi. Dómsniðurstaðan var sú, að leikur Fram og Vals skyldi fara fram að nýju, leikurinn 18 júli dæmdur ógildur Þá var Fram gert að greiða 500 krónur til framkvæmdaraðila (slandsmótsins, en það eru hæstu fjársektir, sem hægt er að beita i máli sem þessu. Er við höfðum í gær samband við forráðamenn Knattspyrnudeildar Vals, vildu þeir ekki segja á þessu stigi, hvort Valsmenn mundu áfrýja. Verður það mál tekið fyrir á stjórnarfundi, en heldur var I gær talið óliklegt, að Valsmenn myndu áfrýja, en frestur tíl þess er sex mánuðir. FRAM MUN ÁFRÝJA Morgunblaðið hafði i gær samband við Alfreð Þorsteinsson formann Knatt- spyrnufélagsins og spurði um álit hans á niðurstöðu dómsins og hvort Framar- ar hygðust áfrýja Sagði Alfreð þá meðal annars: — Ég vil lýsa undrun minni á niðurstöðu dómsins Hann hefur hvorki tekið tillit til prófmála af svipuðu tagi né hefðar Ég vil enn fremur lýsa undrun minni á afstöðu formanns Knattspyrnusambands ís- lands, Ellerts B Schram, sem hefur tekið þá ákvörðun að vera „stikk fri" i þessu máli, enda þótt forráðamenn Fram hafi komið til hans að fyrra bragði út af þessu máli og leitað álits hans. Hann virðist ekki gera sér grein fyrir skyldum sínum né stjórnar Knatt- spyrnusambandsins. Ég leyfi mér að fullyrða, að slikt hefði ekki gerzt, hefði Albert Guðmundsson verið við stjórn- völinn, enda stóðst allt sem á milli hans og stjórnar Fram fór. — Ég vil vekja athygli á því, að Carl Bergmann, sem er kjörinn í sérráðs- dómstól Knattspyrnuráðsins og er jafn- framt félagi i Fram, vék úr dómnum. Bergur Guðnason, forseti dómsins, sem jafnframt er Valsmaður, sá ekki ástæðu til þess. — Ljóst er, að formleg félagaskipti Elmars áttu sér aldrei staðl Hann fékk aðeins timabundið leyfi til að leika með þýzka liðinu Að þessu athuguðu er augljóst. að Fram mun áfrýja þessum dómi. Persónulega vil ég segja það, að mér finnst „leiðindamórall" yfir þessu kærumáli, ef ég má nota það orð Valsmenn hafa lýst þvi yfir, að þeir vilji fá það á hreint, hvað sé leyfilegt í þessu máli. Þeim var í lófa lagið að kanna það, þegar Jóhannes Eðvalds- son, Val, kom heim eftir keppnisþátt- töku I S-Afriku og enn fremur, er Ingi Björn Albertsson, Val, kom heim eftir keppnisþátttöku i Frakklandi. — Ég vil að það komi skýrt fram. að stjórn Fram álitur bæði sjálfsagt að rétt að lögum sé framfylgt. í þeirri góðu trú — og með samþykki stjórna og formanna KSÍ á undanförnum árum — var Elmar Geirsson látinn leika Það var ekki einungis að fyrir lægi sam- þykki stjórnar KSÍ (sem núverandi for- maður KSÍ segir, að sé týnt), heldur einnig hefð i mörgum greinum íþrótta, að Fram tók þessa ákvörðun. Og ef einhver er sekur um glappaskot, er það ekki Fram, sagði Alfreð að lokum. VÉK EKKI ÚR DÓMNUM, ÞVÍ HANN SAT ÞAR ALDREI Þessu næst sneri Mbl. sér til Bergs Guðnasonar, forseta dómsins Spurðum við Berg um réttmæti þeirrar fullyrðingar Alfreðs Þorsteinssonar, að Carl Bergmann hefði vikið úr dómnum. — Þessi fullyrðing stenzt þvi miður Þeir sátu f dómnum: Vilberg Skarp- héðinsson, Bergur GuSnason og Baldur Maríusson. engan veginn hjá Alfreð vini mlnum, sagði Bergur — Carl Bergmann var erlendis, er málið var fyrst tekið fyrir 1. ágúst og kom ekki heim fyrr en þann áttunda, en þá var málið komið á lokastig Þá kom aldrei til greina, að Carl tæki sæti Baldurs Mariussonar, sem kynnt hafði sér málið ofan ! kjöl- inn og verið með i starfi dómsins frá byrjun. — Ef taka hefði átt tillit til félags- legra sjónarmiða, þá hefðu allir aðalmenn dómsins og báðir vara- mennirnir orðið að vikja Hvar hefðum við þá staðið? SALÓMONSDÓMUR Jón Aðalsteinn Jónsson. formaður Vikings sagði i gær, að Vikingar myndu senda fljótlega inn kæru vegna Elmars Geirssonar i leik Víkings og Fram Um dóminn sagði Jón: — Að minu mati er þetta mikill Salómons- dómur, félögunum er gefin viðvörun, en Framarar samt ekki sendir niður i 2 deiid. Við munum sætta okkur við þennan dóm, en reikna með, að sama niðurstaða fáist i okkar máli Við erum óhræddir við að mæta Frömurum á knattspyrnuvellinum að nýju: ISLANDSMðTIÐ f golfi hófsl i Grafarholls- vellinum T gærkvöldi. Þad heldur áfram f dag og út þessa viku. Gffurleg þálftaka er f mótinu. svo mlkil, aó skipuleggjendurnir áttu fullt f fangi meó aó koma keppninni fyrir á svo fáum dögum. Hver keppandi hefur ákveúió rásnúmer og á tfmaseólinum, sem hér fer á eftir, eru rástfmar þelrra, sem veröa ð ferðinni f dag Mfl: kl. 07.50 13—19—15 — 07.58 01—05—11 — 08.06 20—27—06 — 08.14 09—23—22 — 08.22 17—07—14 — 08.30 08—24—03 — 08.38 18—04—16 — 08.46 12—21—26 — 08.54 10—02—25 — 09.04 28 — 1. fl.: Kl. 09.20 . 75—41 — 09.28 74-43—44 — 09.36 42—4—73 — 09.44 72—46—47 — 09.52 67—48—68 — 10.00 69—49—56 — 10.08 50—55—52 — 10.16 51—54—60 — 10.24 53—57—61 — 10.32 66—59—62 — 10.40 63—58—64 — 10.48 65—71—70 2. fl.: Kl. 11.10 81—84—106 — 11.18 101—098—095 — 11.26 096—097—099 — 11.34 100—091—094 — 11.42 082—087—088 — 11.50 089—086—085 — 11.58 083—090—092 — 12.06 093—102—105 — 12.14 103—104 — 3. fl: Kl. 12.30 N n J :i 7 — 12.38 128—125—111 Framhald á bls. 16 Taka þátt í HM í lyftingum — efna til fjáröflunarmóts Tveir beztu lyftingamennirnir, Gústaf Agnarsson og Guðmundur Sígurðsson, taka þátt i heimsmeistaramótinu i lyftingum, sem fram fer i Manilla á Filipseyjum nú i haust. Eiga þeir báðir talsverða möguleika á að verða ofarlega á blaði miðað við þann árangur, sem þeir hafa náð i æfingum i sumar. Ferðin til Filipseyja verður mjög dýr fyrir þá félaga og þvi hefur Lyftingasambandið ákveðið að koma á fjáröflunarmóti annað kvöld. Þar munu beztu lyftingamenn landsins mætast. Skúli Óskarsson, Kári Eliasson, Árni Þór Helgason, Friðrik Jósepsson, Guðmund- ur Sigurðsson og Gústaf Agnarsson. Keppnin fer fram i Iþróttahúsi KR og hefst klukkan 20.30 á morgun — Minning Helgi Framhald af bls. 19 hvað Helgi reyndist tengdamóður sinni sérstaklega vel. Helgi og Steinunn eignuðust fimm dætur: Vigdísi, er gift var Þorsteini heitnum Árnasyni, Sigrúnu gifta Jóni Asgeirssyni, Fríðu, gifta Bjarna Jónssyni, Hlff, ógifta, Steinunni, gifta Ingvari Gunnbjörnssyni. Einnig ólu þau upp dóttur Vigdisar, Kötlu, gifta Ásgeiri Ólafssyni, er þau gerðu að kjördóttur. Helgi var félagslyndur maður og söngvinn. Hann var einn af stofnendum Karlakórs K.F.U.M., er síðar varð Karlakórinn Fóst- bræður og einnig söng hann f mörg ár í Dómkirkjukórnum og við jarðarfarir eða meðan heilsa hans leyfði. Helgi missti konu sfna eftir mikil og erfið veikindi í jan. 1971, þá var hann einnig farinn á heilsu, en sá missir varð honum ofraun. Helgi átti þvi láni að fagna að eiga góðar dætur, er reyndust honum ailar vel til hinztu stundar. Hlif dóttir hans hélt heimili að Leifsgötu ásamt- dóttur sinni Dfs og varð það hans skjól þar til hann var fluttur á hjúkrunardeild Borgarspítalans við Barónsstíg í febr. s.l. Dætur Helga hafa beðið fyrir sérstakt þakklæti til alls starfs- fólksins á hjúkrunardeildinni fyrir sérstaklega góða og hlýlega umönnun við föður sinn meðan hann dvaldi þar og geri ég það með góðri samvizku, því sú stofn- un er til fyrirmyndar. Haustið 1944 átti ég þvf láni að fagna að kynnast þeim sæmdar- hjónum Steinunni og Helga og verða tíður gestur á þeirra glæsi- lega og gestrisna heimili á Leifs- götu 17, og sfðar að verða tengda- sonur þeirra. Það er margs að minnast, er ég lít til baka. Heimili Helga var glæsilegt og gestrisið eins og ég hefi áður sagt og er mér kunnugt um, að margur á þaðan ánægju- legar minningar og margir hugsa til þess með þakklæti fyrir gott viðmót og viðurgerning, því eng- inn „gekk þar bónleiður til búð- ar“. Þar kynntist ég manni, sem var vinnusamur meðan heilsan entist, og hann minntist þess, „að morgunstund gefur gull í mund“. Helgi var árrisull maður með af- brigðum og vinnan, heiðarleikinn og skylduræknin voru hans aðals- merki. Helgi var skemmtilegur og þægilegur maður f viðmóti, en eitt var það í fari hans, sem vakti sérstaka athygli og það var hve sérstakt prúðmenni hann var í tali og orðavali og að aldrei heyrði ég hann tala illa um nokkurn mann. Helgi var snyrti- og hreystimenni og í hans löngu veikindum heyrðist hann aldrei segja æðruorð. Með Helga er genginn góður drengur og það var gæfa að hafa kynnzt honum. Helgi var trúaður maður þótt hann hefði það fyrir sig og ég treysti því, að för hans yfir móð- una miklu verði í samræmi við trú hans. Mágkonum, konu minni og öðr- um ættingjum votta ég samúð mína. Megi minningin um góðan föður verða þeirra styrkur á sorgarstund. Jón Ásgeirsson. Kveðja frá vini Það kom mér ekki á óvart, er ég frétti andlát vinar míns, Helga Sigurðssonar húsgagnabólstrara, Leifsgötu 17. Mér var kunnugt um langvarandi veikindi hans og að það var ekki bata von. Samt er það svo, að þegar góðvinir hverfa oss sjónum, lætur söknuðurinn ekki á sér standa, það er okkar hlutskipti, er eftir lifum. Kynni okkar Helga Sigurðs- sonar hófust 1922, er ég gekk í Karlakór K.F.U.M., er nú heitir Fóstbræður. Þar sungum við svo saman í 35 ár og stóðum jafnan hlið við hlið í fyrsta bassa, þar til báðir hættu í kórnum. Það var gott að hafa Helga sér við hlið, því hann var söngmaður ágætur og lagviss i bezta lagi. Þannig hófst vinátta okkar og bar þar aldrei skugga á, enda voru konur okkar vinkonur og sam- gangur milli heimilanna. Helgi Sigurðsson rak eigið verk- stæði alla tið og naut góðs álits fyrir vandvirkni og heiðarleika i öllum viðskiptum. Hann var hinn mesti mannkostamaðúr og vildi hvers manns vanda leysa, enda var öllum vel til hans, er honum kynntust. Sína góðu konu, Stein- unni Guðmundsdóttur, missti Helgi fyrir fáum árum. Hann syrgði hana á sinn hljóðláta hátt, enda fór heilsu hans úr því hnign- andi, uns yfir lauk. Aðdáunarvert var hversu dæturnar allar sýndu foreldrum sínum mikla ástúð og umhyggju i þeirra miklu veik- indum. Þeim og öðrum ástvinum Helga sendum við hjónin og fjöl- skylda innilegar samúðarkveðjur. Svo kveð ég þig kæri vinur, með þakklæti fyrir gæða kynni. Guð blessi þig. Magnús Pálmason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.