Morgunblaðið - 14.08.1974, Side 3

Morgunblaðið - 14.08.1974, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1974 3 Stjórn Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda. Haraldur V. Ólafsson er annar frá vinstri. Stofnaður tónmenntasjóð- ur Haralds V. Ólafssonar A AÐALFUNDI Sambands flytjenda og hljómplötufram- leiðenda, sem nýlega var haldinn, var samþykkt að stofna tón- menntasjóð, sem bæri nafn Haralds V. Olafssonar forstjóra, en hann var fyrsti formaður sambandsins og einn aðal hvata- maður að stofnun þess. Tilgangur hins nýstofnaða sjóðs er að stuðla að hljómplötuútgáfu íslenzkra tónverka í flutningi íslenzkra hljómlistarmanna. í sjóðinn renna framlög frá sambandinu svo og aðrar tekjur, sem sjóðnum kunna að áskotnast. Stjórn Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda fer jafn- framt með stjórn sjóðsins. Formaður sjóðstjórnar er Svavar Gests. Samband flytjenda og hljóm- plötuframleiðenda var stofnað á sl. ári til að gæta réttinda þessara aðila skv. nýju höfundalögunum, en skv. þeim eiga þessir aðilar rétt til þóknunar, þegar hljóm- plötur eða önnur markaðshljóðrit eru notuð opinberlega. Á nýafstöðnum aðalfundi flutti Sigurður Reynir Pétursson hrl. framkvæmdastjóri sambandsins Sambandsstjórn Landssam- bands iðnaðarmanna kom saman til fundar fyrir stuttu f húsakynnum Iðnaðarmanna- félagsins f Hafnarfirði, og var þetta fyrsti fundur sambands- stjórnarinnar, en hún var sett á stofn eftir að lögum Lands- sambandsins var breytt á sfðasta þingi. Á fundinum var kynntur nýr framkvæmdastjóri Lands- sambandsins, Þórleifur Jónsson viðskiptafræðingur, sem tók við störfum um sfðustu áramðt af Ottó Schopka, viðskiptafræðingi, sem starfað hafði hjá Lands- sambandinu f 10 ár. Aðalefni fundarins að þessu sinni var um viðfangsefni Lands- sambandsins, en nýlega hefur verið gerð athugun á því, hvernig það geti aukið og endurbætt starf- semi sína á sviði stefnumörkunar í atvinnu- og efnahagsmálum. Til þessa réði Landssambandið i sina þjónustu danska ráðgjafarfyrir- tækið Mogens Höst, sem allmikið hefur starfað hér á landi áður, m.a. á vegum Iðnþróunarstofn- unar Sameinuðu þjóðanna. I fréttabréfi frá Landssamband- inu segir, að gert sé ráð fyrir, að iðnaðurinn sé sá atvinnuvegur, sem taka muni við meginhluta þess vinnuafls, sem kemur á vinnumarkaðinn á komandi árum. Því sé ljóst, að mjög auknar kröfur verði gerðar til iðnaðarins og heildarsamtaka hans á næst- unni. Landssamband iðnaðar- skýrslu félagsstjórnar, en í henni kom fram, að sambandið hefði farið vel af stað, þegar væri hafin innheimta gjalda fyrir opinberan flutning tónverka bæði hjá útvarpi og öðrum aðilum. Sverrir Garðarson var kjörinn EINS OG áður var hinn 9. ágúst sl., á afmælisdegi dr. Victors Urbancic, úthlutað styrk úr minn- ingarsjóði hans. Styrkinn skyldi að þessu sinni veita hjúkrunar- konu til sérnáms f hjúkrun heila- og taugaskurðsjúklinga f sam- ræmi við skipulagsskrá sjóðsins. Styrkinn hlaut Kristfn Oladðttir, yfirhjúkrunarkona við gjörgæzlu- deild Borgarspftalans f Reykja- vfk, og hyggst hún fara utan á næstunni þeirra erinda. Sjóðnum hafa að undanförnu borizt ýmsar gjafir eins og áður, og ber þar fyrst að nefna myndar- legt framlag Þjóðleikhússkórsins, en hann hefur löngum stuðlað að manna hafi því fyrir sitt leyti ákveðið að mæta þessari þróun með þvi að efla starfsemi sína á sviði hagrannsókna og fylgjast þannig með þróun iðnaðarins og atvinnulífsins í heild. Þannig sé hægt að leggja af mörkum aukinn skerf til iðnþróunar í landinu. A fundinum var lögð áherzla á, að til þess að hægt væri að gera sambærilegar kröfur til iðnaðar- ins hér á landi og í samkeppnis- löndunum þyrftu þær aðstæður, sem honum eru búnar að vera svipaður og þar. Bent var á, að forsenda þess, að hægt sé að móta skynsamlega iðnaðarstefnu, og þar með að samtök iðnaðarins geti tekið þátt í þeirri stefnumótun, er, að þær upplýsingar, sem byggja þarf á séu fyrir hendi og tiltölulega nýlegar. Samkvæmt mati innlendra og erlendra sér- fræðinga skorti talsvert á, að svo sé. Þá var samþykkt eftirfarandi ályktun um iðnfræðslumál á fundinum: „Sambandsstjórnar- fundur Landssambands iðnaðar- manna, sem haldinn var 25. júlí 1974 ræddi stöðu verk- og iðn- fræðslumála, svo og fram- kvæmdir til úrbóta á þessu sviði, og harmar, hve daufar undir- tektir þessi mál hljóta hjá stjórn- völdum. Er það von sambands- stjórnar, að væntanlegir þing- menn og ríkisstjórn kynni sér þetta vanrækta mál í fræðslu- kerfinu og veiti liðsinni sitt til úrbóta.“ formaður sambandsins, en aðrir í stjórn eru Haraldur V. Ölafsson, varaformaður, Guðmundur Jóns- son, Svavar Gests, Ragnar Ingólfs- son, Helgi Hjálmsson, Ölafur Vignir Albertsson og Jón Ármannsson. vexti og viðgangi sjóðsins með framlögum í einhverri mynd. Stjórn sjóðsins skipa nú Krist- inn Guðmundsson, sérfræðingur í heila- og taugaskurðlækningum, Þorsteinn Sveinsson, lögmaður, og dr. Melitta Urbancic. Þess má geta, að minningar- spjöld sjóðsins fást í Bókaverzlun tsafoldar, Austurstræti, Bóka- verzlun Snæbjarnar Jónssonar, Hafnarstræti 4, og á aðalskrif- stofu Landsbankans, Ingólfshvoli við Hafnarstræti, 2. hæð. Dr. Vésteinn Rúni Eirfksson Nýr doktor í eðlisfræði ÞANN 4. júní s.l. varði Vésteinn Rúni Eiríksson, eðlisfræðingur, doktorsritgerð við Edinborgar- háskóla. Ritgerðin fjallar um kristalla- byggingarannsóknir á vetnis- bundnum járnrafmagnskrist- öllum og heitir á frummálinu „Structural Studies of Hydrogen- bonded Ferroelectrics". Vésteinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1965 og B.Sc (honours) prófi í eðlisfræði frá Edinborgarháskóla 1969. Hann stundaði síðan rann- sóknir í fasteðlisfræði við Edin- borgarháskóla og atómorkurann- sóknastofnunina (Atomic Energy Research Establishment) í Harwell Englandi. Rannsóknir þessar voru styrkt- ar af rannsóknarráði Bretlands (Science Research Council), atómorkurannsóknarstofnuninni I Harwell og Edinborgarháskóla, en auk þess naut Vésteinn styrkja frá atómorkuráði Bretlands (United Kingdom Atomic Energy Authority), Vísindasjóði, lána- sjóði íslenskra námsmanna, Brodie Memoral Fund og Ward- law Mempral Fund. Dr. Vésteinn vinnur nú á Raun- visindastofnun Háskólans. Kona Vésteins er Harpa Karls- dóttir, kennari, og eiga þau hjón tvö börn Kristín Óladóttir hlaut Victor Urbancic-styrkinn Landssamband iðnaðarmanna: Iðnaðurinn taki þátt í stefnumótun iðnþróunarinnar Samið í læknadeilunni: Læknar byrjaðir að endurráða sig AÐFARARNOTT s.l. mánudags náðist samkomulag f kjaradeilu sjúkrahússlækna og rfkisvalds- ins. Að sögn Þorsteins Geirsson- ar, deildarstjóra f fjármálaráðu- neytinu, var samið um 19,4—21,4% grunnkaupshækkan- ir, til viðbótar við 3% hækkun, sem Kjaradómur ákvarðaði 15. febrúar s.l. Enn fremur var samið um smærri atriði, svo sem breytt- an útreikning ð yfirvinnu. Lækn- ar samþykktu samningana með yfirgnæfandi meirihluta á félags- fundi sfnum á mánudagskvöld. Að sögn Snorra Páls Snorrasonar formanns Læknafélags lslands, munu læknar á næstu dögum end- urráða sig f þær stöður, sem þeir höfðu sagt lausum við sjúkrahús- in. Margir samningafundir hafa verið haldnir að undanförnu í þessari deilu, og var hún siðustu dagana í höndum Torfa Hjartar- sonar sáttasemjara. Sem fyrr seg- ir ákvarðaði Kjaradómur þann 15. febrúar s.l. 3% kauphækkun til sjúkrahússlækna. Samkvæmt kjarasamningalögunum er heim- ilt að endurskoða niðurstöðu Kjaradóms, ef almennar hækkan- ir verða á samningstímanum, og var þetta endurskoðun á Kjara- dómnum. Læknar settu fram all- miklu hærri kröfur en samið var um, en segja má, að niður staða samninganna nú sé nokkuð ná- lægt þeirri niðurstöðu, sem fékkst f almennu kjarasamningunum í febrúar s.l. og i samningum BSRB og ríkisins. Norður-írsku börnin koma I DAG kemur til landsins hópur barna frá ófriðarsvæðunum f Derry á Norður-lrlandi. 1 þetta sinn eru f hópnum 21 barn, auk tveggja fararstjóra. Þau koma hingað á vegum Hjáfparstofnun- ar krikjunnar og fleiri aðila og dvelja hér f 12 daga. Þetta er í þriðja sinn, sem slík- ur hópur norður-írskra barna kemur til Islands. í öll skiptin hefur verið blandað saman kaþólskum börnum og börnum, sem eru mótmælendatrúar. Hóp- urinn, sem kemur til landsins í dag, mun fyrstu vikuna dvelja í Hliðardalsskóla, en siðan verða börnin nokkra daga á heimilum i Hveragerði. Hafa sjálfboðaliðar í Hveragerði, á Selfossi, Eyrar- bakka og þar f kring unnið mikið undirbúningsstarf. Hjálparstofnun kirkjunnar hef- ur beðið Mbl. að geta þess, að f jár- framlög til styrktar þessu starfi eru vel þegin, og er m.a. tekið á móti þeiin á gfróreikning 20002. „Eftir atvikum tel ég samning- ana viðunandi og það var skoðun meirihlutans á fundinum hjá okk- ur. En vissulega þurftum við að slá nokkuð af kröfum okkar. En ég tel mikilvægast, að samningar skyldu takast, áður en til þess kom, að læknar hættu störfum. Þeir munu á næstu dögum endur- ráða sig í stöður sínar við sjúkra- húsin, og allt verður því með eðli- legum hætti“. Þetta sagði Snorri Páll Snorrason, formaður Lækna- félags Islands i samtali við Mbl. í gær. Þess skal að lokum getið, að það var sameiginleg samninganefnd Læknafélags Islands og Læknafé- lags Reykjavíkur, undir forystu Grétars Ölafssonar, sem tók þátt í viðræðunum við samninganefnd ríkisins. Guinea — Bissau viðurkennd RlKISSTJÖRNIN hefur sent frá sér frétt, þar sem segir, að hún hafi ákveðið að viðurkenna Guineu-Bissau sem sjálfstætt og fullvalda ríki. 1 símskeyti Einars Ágústssonar utanrikisráðherra til Victor Maria utanrikisráðherra flutti hann rikisstjórn og þjóð Guineu-Bissau kveðjur og árnaðaróskir f nafni íslenzku ríkisstjórnarinnar og fslenzku þjóðarinnar. Glúntasöngv- ar á íslenzku FÁLKINN hefur sent frá sér hljómplötu með glúntasöngvum. Það eru þeir Asgeir Hallsson og Magnús Guðmundsson, sem hafa sungið þessa þekktu sænsku söngva inn á plötu við undirleik Carls Billich. Egill Bjarnason þýddi sænska textann yfir á íslenzku. Glúntasöngvarnir hafa um langa hríð notið hylli tónlistarunnenda. Dagný með fullfermi Siglufirði 13. ágúst. SKUTTOGARINN Dagný kom til Siglufjarðar í dag með full- fermi af ágætum fiski af Hala- miðum, 170 tonn. Veiðiferðin tók 8—9 daga. Aflinn fer til vinnslu í frystihúsunum hér á staðnum. Steingrímur. Borgarneshrepp- ur 1 nýtt húsnæði Borgarnesi, 13. ágúst. UM SlÐUSTU helgi flutti Borgar- neshreppur skrifstofur sfnar f nýtt húsnæði að Borgarbraut. Var byggt ofan á áhaldahús hreppsins og eru þarna mjög rúmgóðar skrifstofur. Að sögn Húnboga Þorsteinssonar sveitarst jóra höfðu vaxandi umsvif hreppsins þrengt að, svo að ráðizt var f þessa byggingu f september f fyrra. Ekki hefur verið unnið samfellt við byggingu f fyrra. Ekki hefur verið unnið samfellt við bygg- ingu, en nú er verið að ljúka verkinu. Byggingarmeistari er Jó- hann Waage og er kostnaður áætl- aður um 5—6 milljónir króna. Hreppurinn var búinn að hafa skrifstofur um árabil f Svarfhóli, húsi Jóns heitins Björnssonar kaupmanns. Nú, er ætlunin •> gera skrifstofurnar aó leikské í nýja húsnæðinu, sem ei 200 fermetrar, verða auk hre^., skrifstofunnar umboð Brunabóta- félags Islands, Rafveita Borgar- ness og skrifstofa framkvæmda- stjóra Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Nýkjörin hreppsnefnd hefur nú skipt með sér störfum og mynd- uðu vinstri flokkarnir meirihluta. Var Guðmundur Ingimundarson endurkosinn oddviti. Húnbogi Þorsteinsson var endurráðinn sveitarstjóri með öllum atkvæð- um hreppsnefndar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.