Morgunblaðið - 21.08.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.08.1974, Blaðsíða 1
Wilson vill þjóð- nýtingu hafnanna London 20. ágúst AP. Verkamannaflokksstjórn Harolds Wilson tilkynnti í dag, að hún hefði í undir- búningi lagafrumvarp um þjóðnýtingu allra hafna á Bretlandi. Skv. frumvarp- inu ergert ráð fyrir, að sett verði á stofn sérstök hafnarmálastjórn, sem hafi yfirstjórn allra mála varðandi brezkar hafnir. Flestar hafnir á Bretlandi eru nú undir stjórn viðkomandi bæjaryfirvalda, þ.á m. hafnirnar í Lundúnum, Liverpool og Manc- hester. Ef af þjóðnýtingaráform- unum verður munu litlar einka- hafnir eins og Felixtowe og Shoreham teknar undir ríkis- Talsmaður íhaldsflokksins í iðnaðarmálum, Eldon Griffiths, sagði f dag, að Ihaldsflokkurinn myndi leggjast gegn þessum þjóð- nýtingaráformum og sagði, að svo virtist sem verkalýðsfélögjn f Bretlandi væru farin að mynda stefnu stjórnar Wilsons. Er gert ráð fyrir, að Griffiths hafi hér átt við tilkynningu stjórnarinnar fyrr í þessum mánuði um að hún mundi þjóðnýta ailar stærstu skipasmíðastöðvar landsins og skipaviðgerðarstöðvar. Vfst er talið, að Wilson muni næstu daga boða til nýrra kosninga í lok september eða byrjun október. Rockefeller og Ford á blaðamannafundinum í gær. Utnefningu Rockefellers fagnað: stjórn. I bréfi Fred Mulleys samgöngu- málaráðherra til ýmissa hags- munasamtaka segir, að þjóð- nýting hafnanna sé gamalt loforð Verkamannaflokksins. Þjóð- nýtingin muni hafa f för með sér nauðsunlegan sveigjanleika fyrir brezkt viðskiptalíf. „Einn af reyndustu og hæf- ustu mönnum Bandaríkjanna Styrjaldarhættan afstaðin? Washington 20. ágúst AP—NTB. (Sjá grein ábls. 13). „HANN verður stórfínn liðsmaður fyrir mig, Banda- ríkin og heiminn,“ sagði Gerald Ford Bandaríkjaforseti, er hann I stuttri sjónvarps- og útvarpsræðu tilkynnti útnefningu Nelsons Rockefellers, fyrrum fylkisstjóra New York, í embætti varaforseta. IJtnefningunni var í dag fagnað af Bandarikjamönnum og flestir bandarísku þingmannanna létu í ljós ánægju sfna. Hugh Scott, leið- togi repúblikana í öldungadeild- inni, sagðist vonast til, að þingið staðfesti útnefningu Rockefellers á 35—40 dögum, en ekki 55 dögum, eins og það tók að stað- festa útnefningu Fords fyrr á árinu. Reglu- og stjórnunarnefnd öld- ungadeildarinnar byrjaði þegar í dag umfangsmikla rannsókn á ferli Rockefellers og bað alríkis- lögregluna FBÍ um fullkomna rannsókn á öllum málum fylkis- stjórans. Þá var þingbókasafnið beðið um að safna saman öllum ræðum Rockefellers og öllum greinum, sem um hann hafa verið skrifaðar. Howard Cannon, for- maður nefndarinnar, sagði, að nefndin myndi biðja Rockefeller um fullkomið uppgjör á skatt- skýrlum hans og heimild til að fá í hendur skýrslur frá læknum hans. Cannon sagði, að erfiðasta vandamálið yrði að komast að því hvort hin gífurlegu auðævi Rockefellers myndu valda hags- munaárekstrum vegna embættis hans. Cannon sagði, að nefndin myndi ekki geta hafið opinbera fundi um staðfestinguna fyrr en eftir 4. september nk. Meirihluti beggja þingdeilda þarf að stað- festa útnefninguna. Af hálfu full- trúadeildarinnar fjallar dóms- málanefndin um málið. Rockefeller sagði á fundi með fréttamönnum f dag, að það væri sér mikill heiður að fá að þjóna Ford og þar með öllum Banda- ríkjamönnum. Er fréttamenn spurðu hann hversu miklar eignir hans væru svaraði Rockefeller: „Þið eruó ekki þingnefndin, sem á að fjalla um það. Ég mun fara að öllu leyti eftir því, sem lögin kveða á um, og svara öllum þeim spurningum, sem þingnefndir kunna að spyrja mig.“ Hann sagð- ist gera ráð fyrir, að eignir sínar yrðu settar í sérstakan sjóð. Rockefeller sagðist telja, að Ford myndi örugglega bjóða sig fram í forsetaembættið 1976. Hann sagðist hafa hvatt hann til þess og gerði ráð fyrir, að svo yrði. Þetta er í fyrsta skipti, sem fram kemur, að Ford, sem ekki er kjörinn I forsetaembættið, hefur minnzt á pólitíská framtíð sína, en aðeins 11 dagar eru liðnir frá þvi að hann tók við af Nixon. Eins og fyrr segir fögnuðu þing- menn útnefndingu Rockefellers og m.a. sagði Carl Albert forseti fulltrúadeildarinnar: „Rockefell- er er einn af reyndustu og hæf- ustu mönnum Bandarfkjanna og ég geri ráð fyrir, að útnefning hans vefði staðfest án tafar." Sama sagði Frank Moss öldunga- deildarþingmaður demókrata, sem á sæti í reglu- og stjórnunar- nefndinni. Mike Mansfield, leið- togi demókrata f öldungadeild- inni lýsti Rockefeller sem frábær- lega hæfum manni. Eini maður- inn, sem lét í ljós efasemdir, var Framhald á bls. 16 Lang- sóttur snafs Shirley Temple sendiherra Washington 20. ágúst AP. FORD Bandarfkjaforseti út- nefndi f dag leikkonuna frægu Shirley Temple sendiherra Bandarfkjanna f Ghana. Shirley Temple er nú 46 ára að aldri, gift og þriggja barna móðir. Hún beið ósigur f kosn- ingum til fulltrúadeildarinnar f Kalifornfu fyrir tveimur ár- um, en hefur tekið virkan þátt f bandarfskum þjóðmálum, sat m.a. 24. allsherjarþing S.Þ. sem fulltrúi Bandarfkjanna. Shirley Temple lék f 40 kvik- myndum og 50 sjónvarpsþátt- um, en dró sig f hlé frá leik- störfum fyrir mörgum árum. Rólegra á Kvpur: Nikósíu, London og Washington 20. ágúst AP. TILTÖLULEGA rólegt var á Kýp- ur f dag og að sögn talsmanna sameinuðu þjóðanna var aðeins vitað um örfá tilfelli þar sem skipzt var á skotum, en jafnframt hermdu fregnir, að aukin spenna rfkti nú milii liðsmanna Sam- einuðu þjóðanna og tyrkneska innrásarhersins. Stjórnin á Kýp- ur fyrirskipaði f morgun útgöngu- bann frá sólarlagi og bannaði einnig allar hópgöngur f kjölfar morðsins á bandarfska sendi- herranum á Kýpur, Rodgers Davis, f gær. Lfk sendiherrans var flutt með flugvél heim til Bandarfkjanna sfðdegis í dag, en sama flugvélin kom með eftirma'nn hans L. Dean Brown, aðstoðarutanrfkisráð- herra. Stjórnin á Kýpur gaf i dag út handtökuskipun á hendur þriggja Kýpurbúa vegna morðs- ins á sendiherranum, en ekki var í tilkynningu stjórnarinnar sagt frá nöfnum þeirra, sem leitað er. I tilkynningunni lofar stjórnin, að þeir óábyrgu aðilar, sem stjórnin álftur að hafi staðið að baki blóðs- úthellingunum, verði færðir fyrir rétt. Brezka stjórnin tilkynnti í dag, að hún hefði hafið nýjar tilraunir til að koma Genfarviðræðunum um Kýpur á stað á ný. Ræddi brezki landstjórinn á Kýpur við Clerides forseta í dag og viðræður við Mavros utanríkisráðherra Grikklands og Gunes utanrfkis- ráðherra Tyrklands eru í bfgerð. Areiðanlegar heimildir í Ankara segja, að Tyrkirlivetji til þess, að komið verði á fót sam- bandsríki Tyrkja og Grikkja á Kýpur, en stjórnin f Anakara hef- ur á sama tíma hafið umfangs- mikla aðstoð við Tyrki á Kýpur til að setja á stofn sjálfstæða stjórn á eynni. Hefur stjórnin skipað sér- staka nefnd til að annast þessa aðstoð og hefur nefndin setið á stöðugum fundum til að gera áætlanir í þessu sambandi. Herma heimildirnar, að þúsundir Tyrkja frá meginlandinu verði sendir til Kýpur til að aðstoða við framkvæmdir, þar á meðal stjórnunarfræðingar, lögfræðing- ar, byggingatæknifræðingar, iðn- verkfræðingar, búfræðingar o.s.frv. Tyrkir hafa nú á sínu valdi um 40% landsvæðis á Kýp- ur. Tyrkneskir hermenn á Kýpur fundu í dag fjöldagröf við þorpið Aloa með 57 lfkum tyrkneskra manna, þar á meðal kvenna og smábarna, sem tyrknesk herna- ðaryfirvöld segja, að grískir þjóð- varðliðar hafi myrt. Aðeins þrír þorpsbúa komust hjá aftöku. Segja Tyrkir, að þetta séu aðeins fyrstu sannanirnar um fjölmörg Framhald á bls. 2. Lang- sóttur snafs Bridgeport Connecticut 20. ágúst. LÖGREGLAN f Bridgcport handtók f dag tvo menn og eru þeir sakaðir um að hafa reynt að fylla fangana f fylkis- fangelsinu f Bridgeport. Mennirnir skildu tvær gallónflöskur af áfengi fyrir utan glugga fangelsisins og tóku úr þeim tappana. Fang- arnir ráku sfðan 3ja metra langa slöngu niður f flöskurn- ar og reyndu að sjúga. Fanga- verðir komu fljótlega á vett- vang og bundu enda á þessa hanastéisveizlu. Yfirfanga- vörðurinn sagði við frétta- menn, að hann vissi ekki til, að nokkur fanganna hefði fundið á sér, enda þyrfti mikinn sog- kraft til að ná sér f snafs og hefðu tveir fangar orðið bláir f framan áður en þeir gáfust upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.