Morgunblaðið - 21.08.1974, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.08.1974, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. AGUST 1974 — 9,5% hækkun Framhald af bls. 28 framhaldið eins og bráðabirgða- lögunum. Þá óskaði hann eftir upplýsingum um, hvort haldið yrði áfram niðurgreiðslu á olfu til fiskiskipa. Loks innti hann eftir því, hvort fyrirhuguð hækkun á búvöruverði færi út í verðlagið, er hún kæmi til framkvæmda. Olafur Jóhannesson, forsætis- ráðherra, sagði, að ríkisstjórnin hefði á fundi þá um morguninn ákveðið að halda niðurgreiðslun- um áfram meðan bráðabirgðalög- in væru i gildi, nema áður yrðu gerðar ráðstafanir, er kæmu í þeirra stað. Þá sagði hann, að sama yrði upp á tengingnum með niðurgreiðslu á olfu til fiskiskipa. Þá ræddi forsætisráðherra um búvöruverðið. Sagði hann, að ríkisstjórnin hefði samþykkt hækkun á búvöruverði vegna rekstrarvöruhækkunar einvörð- ungu. Sú hækkun myndi þvf koma til framkvæmda á næst- unni. Kaupgreiðsluvísitalan hefði verið reiknuð út og ætti sam- kvæmt þeim útreikningum að verða 122,58 stig frá 1. september n.k. En kaupgreiðsluvísitalan, sem f gildi væri og myndi gilda áfram, ef framlenging laganna yrði samþykkt, væri 106,18 stig. Hækkunin væri 15,45%. Hann sagði síðan, að hækkun vfsitöl- unnar 1. september kæmi ekki til framkvæmda vegna búvöruverðs- hækkunarinnar, þó að bráða- birgðalögin yrðu ekki fram- lengd. I þeim efnum væri því ekki um breytta stöðu að ræða. Gylfi Þ. Gfslason sagði, að auð- séð væri á nefndarálitinu, að í burðarliðnum væri rfkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálf- stæðisflokksins. Ekki færi á milli mála, að það samkomulag, sem gert hefði verið í nefndinni, væri þáttur í stjórnarmyndunartil- raununum, sem enn væru á döf- inni. Bráðabirgðalögin væru að- eins þáttur í miklu vfðtækari ráð- stöfunum, sem allir ábyrgðir stjórnmálamenn viðurkenndu, að væru nauðsynlegar. Alþýðuflokk- urinn hefði gert sér þess fulla grein, eftir svo dæmalausa óstjórn, sem verið hefði undan- farin þrjú ár, að það hlyti að koma að þvf að gera yrði ráðstafanir í efnahagsmálum. Það væri þörf víðtækra ráðstafana, ef bæta ætti fyrir þau stórkostlegu mistök, sem gerð hefðu verið undanfarin þrjú ár og ríkisstjórn Ölafs Jóhannessonar bæri ábyrgð á. Sjálfstæðisflokkurinn og Fram- sóknarflokkurinn hefðu metið það svo, að tíminn fram til næstu mánaðamóta nægði ekki til þess að ná samstöðu; samstaðan væri ekki meiri en þetta. Hér væri því um að ræða enn eitt bráðabirgða- samkomulagið. Launþegum væri það undrunarefni, að búvöruverð væri nú hækkað, þó að kaupgjald yrði bundið í mánuð til viðbótar. Þannig ættu launþegar að þola 9% hækkun á verðlagsgrundvelli búvara bótalaust f einn mánuð. Síðan óskaði hann sérstaklega eft- ir upplýsingum um, hvort ríkis- stjórnin hefði verið sammála er hún tók þessa ákvörðun, en lagði jafnfram áherslu á, að ill væri hin fyrsta ganga Framsóknarflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins. Lúðvfk Jósepsson, við viðskipta- ráðherra, sagði, að ein meginfor- senda þess samkomulags, sem stjórnarflokkarnir hefðu gert sl. vor, hefði verið, að 9% hækkun á verðlagsgrundvelli búvöru kæmi ekki til framkvæmda meðan lögin væru i gildi. Þá greindi hann frá því, að ríkisstjórnin hefði þá um morgunin samþykkt þessa hækk- un með þremur atkvæðum ráð- herra Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum ráðherra Al- þýðubandalgsins, en Magnús Torfi Ólafsson hefði setið hjá. Með þessu hefði áðurnefndu sam- komulagi verið raskað. Hér væri þvf á ferðinni nýtt samkomulag Framsóknarflokksins og Sjálf- stæðisflokksins, sem gilda ætti næsta mánuð. Þá gerði hann grein fyrir tillögu, er hann flutti ásamt Magnúsi Kjartanssyni, þar sem lagt var til, að sú hækkun, sem leyfð hefði verið á landbún- aðarvörum, yrði greidd niður úr rfkissjóði. Hann taldi, að hér væri um að ræða 50 milljónir króna. Magnús Torfi Ólafsson greindi frá þvf, að hann hefði setið hjá við atkvæðagreiðslu í ríkisstjórninni, þar sem hann hefði talið, að ríkis- stjórnin ætti ekki sem bráða- birgðastjórn að taka ákvörðun sem þessa, enda hefði náðst sam- komulag um framgang málsins milli Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, er hefði öruggan meirihluta á Alþingi til að koma því máli fram. Eðvarð Sigurðsson sagði, að sú 9,5% hækkun á verðgrundvelli búvöru, sem forsætisráðherra hefði tilkynnt að koma ætti til framkvæmda á næstunni, þýddi í raun nálægt 20% hækkun á bú- vöruverði til neytenda. Hér væri þvf um stóra hluti að ræða, sem kæmu verst niður á þeim, sem lakast væru settir í þjóðfélaginu. Með þessari ákvörðun væri geng- ið þvert á aðalatriði bráðabirgða- laganna. Ólafur Jóhannesson, forsætis- ráðherra, talaði að lokum og sagði, að óþarfi væri að bendla sjálfstæðismenn við þá ákvörðun, sem tekin hafi verið f ríkisstjórn- inni. Óhjákvæmilegt væri að framlengja bráðabirgðalögin, hvort sem tækist að mynda ríkis- stjórn Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks. Þá sagði hann, að það hljómaði fallega, að segja, að ríkissjóður ætti að mæta hækkun- um með auknum niðurgreiðslum. En æskilegt hefði þó verið, að ráðherrar Alþýðubandalagsins hefðu gert grein fyrir því, hvar taka ætti fjármagn til aukinna niðurgreiðslna. Efri deild fær nú málið til með- ferðar. Irar leita fanga Dyflinni, 19. águst. AP IRSKA stjórnin kom f dag til skyndifundar jafnframt þvf sem hafin var leit um allt Irland að 19 skæruliðum, sem sprengdu sig út úr einhverju rammgerðasta fangelsi landsins. Þvf var lýst yfir fyrr á þessu ári að ógerningur væri að flýja úr fangelsinu, þegar flestir fangar úr Irska lýðveldishernum (IRA) voru fluttir f það. — Golf~ Framhald af bls. 27 leika f landsliðinu gegn Finnun- um. Stjórn GSl hefur fengið upplýs- ingar um hvernig lið Svíþjóðar og Danmerkur verða skipuð á Norðurlandamótinu og í sænska liðinu verða allir snjöllustu áhugakylfingar Svía. Allir hafa þeir forgjöfina 0, nema Jan Rube, sem er með plús 1 í forgjöf. Aðrir f sænska liðinu verða Olle Dahlgren, Clauens Jöhmcke, Gör- an Lundquist, Micael Sörling og Tomas Bergström. Er sá síðast- nefndi aðeins 18 ára gamall, en talinn efnilegasti kylfingur Svía um þessar mundir. — íþróttir Framhald af bls. 27 Trammere — Bournem. 0—1 Wrexham — Port Vale 2—2 4. deild: Barnsley — Exeter 1—0 Brandford C. Crewe 1—2 Brendford — Northampton 1—0 Darlington — Swansea 3—2 Donacaster — Stockport 2—1 Hartlepool — Newport 2—0 Lincoln — Chester 2—1 Mansfield — Southport 2—1 Reading — Cambrigde U. 2—0 Torquay — Roterham 0—3 Workington — Scunthorpe 1—1 — Friðrik Framhald af bls. 2 áskorendaeinvfgjum ef hann verður þar f efstu sætum. Frið- rik tók sfðast þátt f svæðamóti 1969, en komst þá ekki áfram. En 1959 varð hann f efstu sætum bæði á svæða- og milli- svæða mótum, og vann sér þar með rétt til þátttöku f áskor- endamóti, en sigurvegari þess vann sér rétt til að skora á heimsmeistarann. 1 þá daga voru einvfgin ekki komin til sögunnar. — Þeir yngri Framhald af bls. 27 4x100 METEA BOÐHLAUP: (7) sek. A-sveit HSH 53,5 A-sveit HSK 56,9 A-sveit FH 58,4 A-sveit lE 58,7 A-sveit UMSB 61,1 B-sveit ÍR 61,4 LANGSTÖKK: (15) metrar Magnús Stefánsson, HSH 5,23 J6n Erlingsson, HSK 5,23 Guðmundur Kristjánsson, HSH 4,81 Alexander Smárason, HSH 4,74 Gestur Grétarsson, lR 4,40 Hálfdán Þórisson, UMSB 4,32 HASTÖKK: (18) metrar Jón Erlingsson, HSK 1,65 Guðmundur Geirdal, UBK 1,55 Þorsteinn Aðalsteinss., FH 1,50 Jóhann Grans, USAH 1,45 Bjarni Guðmundsson, FH 1,40 Einar Ó. Steinsson, HSK 1,40 KtJLUVARP: (15) metrar Magnús Stefánsson, HSH 14,28 Gústaf Karlsson, HSH 13,45 Guðmundur Geirdal, UBK 13,40 Guðmundur Kristjánsson, HSH 12,28 Magnús Rúnarsson, HSK 11,90 Bjarni Guðmundsson, FH 11,45 — Vantaði bara Framhald af bls. 2 ókeypis gistingu, eins og vant er með tigna gesti, gist var í fanga- geymslunni f stað hótels. Maður þessi er rúmlega tvítug- ur utanbæjarmaður. Hann hefur ekki verið tekinn fyrir slfkt brot áður. Þess má geta, að maðurinn hafði f fórum sfnum nokkuð magn af erlendum gjaldeyri, sem hann hafði keypt á svörtum markaði og borgað vel fyrir með fölskum ávísunum. Voru dæmi til þess, að hann borgaði 200 krónur fyrir dollarann. — Geir Framhald af bls. 28 hér væri um að ræða hækkun á verðgrundvelli búvara vegna mikilla kostnaðarhækkana við rekstur. Bændur hefðu lögum samkvæmt rétt til þess að fá hækkun á búvöruverði f sam- ræmi við hækkun rekstrar- kostnaðar. Rfkisstjórnin hefði á hinn bóginn skotið sér undan þvf allt fram til þess að af- greiða þetta mál. Ef þessi hækkun hefði ekki komið til framkvæmda, hefði það jafn- gilt raunverulegri kauplækkun hjá bændum. En enginn stjórn- málaflokkur hefði lagt til, að gripið yrði til kauplækkana f sambandi við þær ráðstafanir, sem nú lægi fyrir að gera þyrfti. Geir Hallgrfmsson sagði enn- fremur, að þótt þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu ekki verið með f ráðum um þetta efni, hefðu þeir ekki vilj- að eiga þátt f stórauknum út- gjöldum ríkissjóðs f formi auk- inna niðurgreiðslna vegna þess- arar hækkunar landbúnaðaraf- urða, þar sem öllum væri ljóst, að rfkissjóður ætti minna en ekki neitt úr að spila. - Urðum að flýja Framhald af bls.3. fsbirni. Ekki urðum við varir við neitt, en vorum hissa á að verða aldrei varir við flugvélar, en heiðskfrt var með öllu, þó svo að við höfum heyrt hér heima að hjá okkur hafi ver ið þoka. Herkules-flugvélin frá Varnarliðinu á Keflavíkurflug- velli kom síðan í Ijós um há- degisbilið á laugardag. Flug- mennirnir köstuðu niður til okkar pakka með neyðartalstöð, mat og ýmsu öðru. Og áður en þeir fóru, lækkuðu þeir flugið og köstuðu til okkar sígarett- um, sem við vorum fegnir að fá. Danska þyrlan kom ekki fyrr en um kvöldið, og fannst okkur það alleinkennilegt að nota þyrlu frá Grönlandair til að bjarga okkur, því hún þurfti að fara langa vegalengd til að komast að okkur, en þyrla frá varnarliðinu hefði ekki verið nema tvo tima að komast til okkar. Hér munu einhver ann- arlega sjónarmið hafa ráðið. Við komum síðan til Meistara- víkur um miðnæturskeið á laugardagskvöld og þar var vel tekið á móti okkur.“ Að lokum sögðu þeir Lúðvík og Páll, að skömmu áður en isfjallið brotnaði og skall niður í fjörðinn hefðu þrír hrafnar flogið að þeim og látið öllum illum látum. I þann mund, sem ísfjallið féll í fjörðinn flugu hrafnarnir í burtu. Þá sögðust þeir vilja þakka öllum, sem Iögðu sitt af mörkum til að bjarga þeim. —ÞÖ — Yfirdráttur Framhald af bls. 28 fram, að sjóðurinn ætti miklar eignir, sem hann taldi, að væru það miklar að verðmæti, að slag- aði hátt upp I skuld sjóðsins. Inn- heimta viðlagasjóðsgjalda hjá sveitarfélögum hefur gengið treg- lega, en það atriði skiptir þó ekki sköpum að sögn Braga. Viðlagasjóður hefur nú selt 170 hús af þeim 494, sem reiknað er með að seld verði á almennum markaði. I flestum hinna húsanna er enn búið, og auð hús eru aðeins á 3 stöðum af þeim 20 þar sem sjóðurinn reisti hús, á Stokkseyri, Eyrarbakka og Þorlákshöfn. Á sumum stöðunum eru biðlistar fólks, sem vill kaupa hús af sjóðn- um um leið og þau losna. Bráða- birgðahúsin I Hveragerði hafa ekki verið seld á almennum mark- aði, heldur voru þau send til Vest- mannaeyja til að leysa húsnæðis- skortinn þar. — Rockefeller Framhald af bls. 1 flokksbróðir Rockefellers, Barry Goldwater, sem sagði, að Rocke- feller væri of frjálslyndur til að geta sameinað repúblfkanaflokk- inn, en sagði hann mjög hæfan f v araf orsetaembættið. \ f \ j \ 1 M ■ l\ i\ T \ ' Viljum ráða sem fyrst pilt eða stúlku til sendiferða Upplýsingar í aðalbankanum, Lækjargötu 12 Iðnaðarbanki íslands h. f. Hótel Borgarnes auglýsir Oss vantar stúlkur nú þegar og um næstu mánaðarmót til framreiðslustarfa. Uppl. hjá hótelstjóra. Hótel Borgarnes. Sameinuðu þjóðirnar óska eftir loftskeytamönnum með starfsleyfi eða jafngilda menntun. Aldurstakmörk 23—40 ára. Góð enskukunnátta nauðsynleg. Umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir til að starfa hvar sem er í heiminum. Góðfúslega hafið samband við hr. E. Michalsen, Hótel Loft- leiðum, Reykjavik 22 og 23. ágúst 19 74. Stúlkur óskast óskum að ráða stúlkur til afgreiðslustarfa í kaffiteríu. Getum einnig bætt við okkur smurbrauðsdömu, þarf ekki að vera vön. Upplýsingar aðeins veittar á staðnum, ekki í síma. Útgarður h. f., Veitingahúsið Glæsibæ, Álfheimum 74. HÓTEL BORG FRAMREIÐSLUMAÐUR EÐA STÚLKA SEM GETUR UNNIÐ SJÁLFSTÆTT ÓSK- ASTÁ HÓTEL BORG. UPPL. GEFUR HÓTELSTJÓRI. Verzlunarstarf Maður óskast til afgreiðslustarfa í bíla- varahlutaverzlun. Tilboð merkt: „Framtíð — 1406" sendist Mbl. fyrir föstudagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.